Dagur - 22.01.1988, Blaðsíða 9
22. janúar 1988 - DAGUR - 9
Hallfreður
Örgumleiðason:
»
Tannlæknar eru menn
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir desembermánuð 1987 hafi
hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrj-
aðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en
síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan
mánuð, talið frá og með 16. febrúar.
Fjármálaráðuneytið, 18. janúar 1988.
Góðan dag háttvirtu lesendur.
Betri er einn fugl í hendi en þrír
í Kjarnaskógi og oft kemur hníf-
ur úr heiðskíru lofti þannig að
betra er að barna brunninn áður
en byrgið er dottið ofan í hann. í
dag ætlaði ég nefnilega að halda
upp á eins árs pistlaafmæli mitt
með veglegum hætti. Undan-
farna mánuði hef ég lagt dálítið
fé til hliðar til að geta nú a.m.k.
farið út að borða og jafnvel tekið
konuna með, þótt hún megi
trauðla við því, blessaður belgur-
inn. fetta átti að verða besti dag-
ur lífs míns, taumlaus munaður
og sællífi. En því miður, vonlaust
er að sötra sagóvelling fyrr en í
skeiðina er kominn. Saga mín er
sárari en tárum taki, en hún er
ekkert einsdæmi.
Árleg hundahreinsun er nokk-
uð sem flestir hundaeigendur
kannast við og árlega tannhreins-
un kannast eflaust flestir eigend-
ur tanna við. Pessi árlega tann-
hreinsun vill að vísu dragast um
fáein ár því blessað mannfólkið
forðast tannlækna eins og pest-
ina. Þessi ótti er auðvitað með
öllu ástæðulaus, tannlæknar eru
menn rétt eins og við og það sem
þeir aðhafast er mannlegt,
undantekningalaust.
Ég er mjög reglusamur hvað
tannlæknaheimsóknir varðar og
brá mér því í árlega tannhirðu á
dögunum. Ég læt tannlækninn að
mestu um það verk enda er hann
mun færari á því sviði en ég.
Hann skrapar nikótínhúðina af
tönnunum og plokkar svínakjöt-
ið sem festist á milli þeirra um jól
og páska. Hví skyldi ég puða við
þetta sjálfur, tannlæknirinn gerir
þetta mun betur. Ég vissi að af
nógu væri að taka því nokkur ár
eru liðin frá síðustu tannhirðu.
Ætli það hafi ekki verið í Reykja-
vík, vorið 1983.
Ég skondraði á fund tannlækn-
is á Akureyri sem tók mér opnum
örmum og tjóðraði mig við
stólinn. Hann bað mig að glenna
upp kjaftinn og skipti litum þegar
hann sá innihaldið. „Endajaxl-
ar/‘ muldraði hann áfergjulega.
Á augabragði var hann kominn
með gríðarlega töng upp í trant-
inn á mér og fór að jagast á sterk-
legum jöxlunum. Hann svitnaði,
augun virtust ætla út úr höfðinu á
honum og hann urraði af áreynslu.
Ég gólaði og hrein meðan töngin
reyndi að slíta jaxlinn upp með
rótum. „Viltu kannski að ég deyfi
þig,“ hváði hann vingjarnlega
eftir að liafa bisað við jaxlinn í 10
mínútur.
Að sjálfsögðu tók ég þessu
kostaboði. Þá tók hann bor, eða
litla sög og klauf jaxlinn í tvennt,
alveg niður í bein. Blóðið spýttist
framan í hann og nú reyndi hann
að rffa klofinn jaxlinn úr mér. Á
meðan gekk hann frá ýmsum
formsatriðum:
„Nafnnúmer?“ „Áeíiöeiáá,“
svaraði ég að bragði. „Ha?“ Ég
reyndi hvað ég gat að segja hon-
um nafnnúmer mitt, heimilis-
fang, stöðu og hver innistæðan á
bankabókinni væri. Hann hélt
áfram að jagast á jaxlinum og
spurði í þaula, en varð óþolin-
móður þegar hann fékk ekki skýr
svör. Loks tókst honum að kippa
jaxlinum út og slatta af kjálka-
beininu með, því ræturnar höfðu
verið kræktar við beinið. Á með-
an blóðið korraði í koki mér
tókst mér að svara honum. Hann
virtist ánægður og hófst nú handa
við næsta jaxl, sem var ekki síður
sterklegur. Hann hélt uppi
hrókasamræðum meðan hann
braut jaxlinn í mél og plokkaði
hann úr gómnum. Greinilega
fínn náungi.
Eftir að tannlæknirinn hafði
hreinsað alla óæskilega jaxla út
úr munninum á mér rétti hann
kurteislega út höndina og fór
fram á upphæð sem jafngilti 7
mánaða sparnaði hjá okkur hjón-
unum. Hann fékk peningana
tafarlaust, enda teljum við taxta
tannlækna mjög sanngjarna.
A.m.k. hefur aðeins einn maður
kvartað yfir gjaldskránni svo ég
viti til.
Ur þessari heimsókn fór ég 4
tönnum fátækari og aðeins fleiri
krónum. Það var allt í lagi, ég hef
hvort eð er ekkert getað borðað
undanfarna daga, aðeins smjatt-
að á blóðinu sem stanslaust hefur
streymt úr holunum. Mér líður
samt vel, finnst að ég hafi gert
góðverk. Tannlæknirinn játaði
því að jaxlarnir hefðu verið í
mjög góðu ásigkomulagi en þetta
væri vani hjá honum, að taka alla
endajaxla sem hann rækist á.
Mér líður eins og manninum sem
dó til að hinir gætu lifað.
Ég þekki ung hjón sem fórn-
uðu sér fyrir tannlæknavísindin á
enn áhrifaríkari hátt en ég. Þau
höfðu safnað hundruðum þús-
unda til kaupa á íbúð. Rétt áður
en ganga átti frá samningum
skruppu þau til tannlæknis. Hann
vildi setja krónur og brýr í tennur
konunnar og skreyta síðan allt
saman með gulli. Hann sendi
manninn í tannréttingu. Hann
vildi láta hann líta út eins og Jam-
es Coburn og því skyldi raða
tönnum hans upp á nýtt. Þessar
langanir tannlæknisins gerðu það
að verkum að hjónin gátu ekki
keypt sér íbúð og geta það senni-
lega aldrei. Tannlæknirinn gat
hins vegar klárað sumarbústað-
inn, keypt sér nýjan bíl og
skroppið til Thailands. Dæmið
sýnir bara hve sterk fórnfýsin er í
okkur íslendingum, eða er
kannski eitthvað annað hér á
ferðinni? Kannski eru ekki allir
sáttir við þetta, en ég held að
klókindin ráði hér einhverju, eða
eins og Danir segja: De mere
kloge narrer de mindre kloge. -
Takk fyrir og góðar stundir.
Seljum bæði nýja og sólaða
hjólbarða,
af öllum gerðum
Gott verð
Norðlensk gæði
BX
Norðlenskt fyrírtæki
Gúmmívinnslan hf.
Rettarhvammi 1 Akureyri Sími 96-26776
Evrópuráðsstyrkir
Evrópuráöiö veitir fólki sem starfar á ýmsum sviðum
félagsmála styrki til kynnisdvalar í aðildarríkjum
ráösins á árinu 1989.
Upplýsingar og umsóknareyöublöð fást í félags-
málaráðuneytinu, Hafnarhúsinu viö Tryggvagötu.
Umsóknarfrestur er til 18. febrúar nk.
Félagsmálaráðuneytið, 18. janúar 1988.
Þorrablót
Hið árlega þorrablót Öxndælinga verður haldið
í Hlíðarbæ laugardaginn 30. janúar og hefst kl.
9.00 STUNDVISLEGA.
Pantið miða í síðasta lagi þriðjudaginn 26. janúar í
síma 27138, 26841 eða 26707.
Skemmtiatriði verða við allra hæfi.
Sameinumst öll og mætum kát og hress.
Takið með ykkur gesti.
+ Nóg pláss fyrir gott fólk og gott skap +