Dagur - 22.01.1988, Page 24
ÞORRAMATU R
Eins og undanfarin ár býður Bautinn upp á
sinn vinsæla þorramat.
Þorrablótsnefndir og einstaklingar.
Hafið samband og við munum gefa nánari upplýsingar.
BAUTINN HF. SÍMI 21818.
Samningar
tókust
í Hrísey
Tekist hefur að gera bráða-
birgðasamkomulag á milli
Verkalýðsfélagsins Einingar á
Akureyri og Útgerðafélags
Kaupfélags Eyfirðinga í Hrísey
um laun fiskverkafólks þar, en
þar er verið að taka upp nýtt
vinnslukerfi, svokallaða flæði-
línu.
Undanfarið hafa staðið yfir
viðræður milli þessara aðila, en
samningurinn var samþykktur
með öllum greiddum atvkæðum á
fundi starfsfólks í gærdag.
Sævar Frímannsson formaður
Einingar sagðist í samtali við Dag
vera all þokkalega ánægður með
þann samning sem gerður var.
„Ákveðið var að greiða fasta
krónutölu ofan á tímakaup og
ákveðna upphæð á hvert fram-
leitt kíló. Vegna þessa nýja kerfis
eru ekki til neinir ákveðnir staðl-
ar til að miða við og mun því
koma í ljós á næstu vikum hvernig
þetta reynist." Hann sagðist
reikna með að ef afköst verði
góð, þýddi þetta einhverja kjara-
bót.
Samningurinn gildir til 31.
mars en þá verður væntanlega
gerður annar samningur sem
verður bónussamningur og mun
hann taka mið af reynslutímanum.
Aðspurður um hvort þessi
samningur gæti hugsanlega orðiö
fyrirmynd á öðrum stöðum sagð-
ist Sævar ckki reikna með því.
„Hann gæti hugsanlega verið það
á þeim stöðum sem hafa svipaða
línu.“ VG
Þau voru að skera niður og ganga frá alls konar góðgæti sem notað verður í þorrabakkana frá Kjötiðnaðarstöð
KEA. F.v. Sigríður Sveinsdóttir, Birgitta Reinaldsdóttir, Ármann Kjartansson og það er hann Rúnar Magnússon
sem er lengst til hægri. Kjötiðnaðarstöðin útbýr bakkana sem seldir eru í kjörbúðum KEA. Gert er ráð fyrir að stöð-
in útbúi á annað þúsund þorrabakka að þessu sinni. Mynd: Ár
Þórshöfn:
Drukknir á
stolnum bíl
Tveir unglingspiltar voru tekn-
ir á Þórshöfn á stolnum bíl um
síðustu helgi. Reyndust þeir
vera undir áhrifum áfengis og
við yfírheyrslur hjá lögreglunni
viðurkenndu þeir að áfengið
hefði verið keypt fyrir þá.
Að sögn Jóns Stefánssonar lög-
regluvarðstjóra á Þórshöfn eru
nokkur brögð að því að fólk
panti vín fyrir unglinga. Sagði
hann að lögreglan hefði komist
að því hver hefðj keypt vínið fyr-
ir piltana í þessu tilfelli og hefði
viðkomandi verið kærður fyrir
vikið.
Jón sagði að erfitt væri að
koma í veg fyrir að fullorðið fólk
keypti vín fyrir unglinga, en hann
hefði áhyggjur af að sífellt yngri
krakkar hefðu nú vín undir
höndum. AP
Kjarasamningar VMSÍ án ASÍ:
„Sjálfsagður og eðlilegur hlutur“
- segir Asmundur Stefánsson
„Okkar kerfi er þannig, að
hvert verkalýðsfélag hefur
umboð sjálft til að ákveða
hvernig það fer með sína
samninga. Það hefur legið Ijóst
fyrir frá miðju sumri að nú yrði
sainið á hverjum vettvangi fyr-
ir sig,“ sagði Ásmundur Stef-
ánsson forseti ASÍ í samtali við
Dag þegar hann var inntur álits
á því að VMSÍ hefur ákveðið
að rcyna samninga án aðildar
ASÍ. Ásmundur sagði venjuna
þá, að meta í hvert sinn sem
Er karavæðing togara tímaskekkja?:
„Svona reglugerð ber vott
um mikla þröngsýni“
- segir Grímur Valdimarsson forstjóri Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins um væntanlega reglugerð EBE
„Það virðist vera um það að
ræða hjá Efnahagsbandalaginu
að þeir telji kassa henta betur,
um borð í togurum, en kör. Ég
er ekki búinn að skoða þau rök
sem þarna liggja að baki en
það er full ástæða fyrir okkur
að skoða þetta mál vel,“ sagði
Halldór Árnason fram-
kvæmdastjóri Ríkismats sjáv-
arafurða í samtali við Dag
vegna fréttar um væntanlega
lagasctningu EBE um löndun
ísfísks.
„Við verðum auðvitað, í sam-
bandi við gæði sjávarafla
almennt, að vera vakandi fyrir
því sem er að gerast í viðskipta-
löndunum og hvernig við stönd-
um gagnvart þeim lögum og
reglugerðum sem þau setja,“
sagði Halldór ennfremur.
Grímur Valdimarsson forstjóri
Rannsóknarstofnunar fiskiðnað-
arins sagði í samtali við Dag að
almenna umræðan um kassa og
kör væri á þá leið, að hvor aðferð
um sig hafi sína kosti og galla.
„Hitastig í fiskinum er að öllu
jöfnu lægra, sé hann geymdur í
köruin og því geymist hann í
raun betur í þeim. Petta er háð
því að vandað sé til þegar fiskin-
um er raðað í körin.
Gallinn er hins vegar sá að
neðsti fiskurinn verður fyrir meiri
þrýstingi en í kössunum og því
tapar hann svolítið meira vatni.
Lausnin á þessu vandamáli hefur
verið sú að láta fiskinn liggja í
blöndu af sjó og ís. Þannig helst
hann mjög kaldur og geymist
vel,“ sagði Grímur.
„Ef ég væri með mannskap
sem kynni að ísa í kassa þá myndi
ég alveg óhræddur velja þá
aðferð," sagði Grímur þegar
hann var beðinn um að velja á
milli aðferðanna tveggja.
Útibú RF á Neskaupsstað
vinnur nú að tilraunum með nýja
gerð af körum, með ís í hliðun-
um. „Við teljum að þetta geti
haft ýmsa kosti. í öliu falli þá er
ísun á fiski í litla kassa ekki loka-
lausnin,“ sagði Grímur.
„Miðað við þær rannsóknir
sem við erum að gera þá finnst
mér svona löggjöf eins og Banda-
lagið ætlar að setja, bera vott um
mikla þröngsýni og er alveg gátt-
aður á henni,“ bætti hann við.
ET
gengið er til samninga hvernig
hagsmunum er talið best
borgið.
Karvel Pálmason sagði á fundi
hjá Einingu á dögunum að þeir
teldu ekki vera sameiginlegan
farveg innan heildarsamtakanna
m.a. vegna mishárra launa og að
líklega myndi þar verða samið
um prósentuhækkanir, sem
VMSÍ myndi ekki sætta sig við.
Um þetta sagði Ásmundur að
engin slík umræða hefði átt sér
stað innan ASÍ þar sem legið
hefði ljóst fyrir að þessir samn-
ingar yrðu á höndum einstakra
sambanda eða félaga. „Sameigin-
leg stefnumótun hefur ekki farið
fram á vettvangi ASÍ af þessum
ástæðum. Kröfugerð í þeim
samningum sem ASÍ sem heild
hefur farið með hefur verið með
mismunandi hætti og misjafnt
hvaða áherslur hafa þar verið
lagðar. Það að hver vilji fara fyrir
sig er sjálfsagður og eðlilegur
hlutur."
Aðspurður um hvort þessi
ákvörðun VMSÍ hefði hugsan-
lega einhverjar breytingar í för
með sér varðandi komandi samn-
inga sem lytu að aðildarfélögum
ASÍ sagði Ásmundur, að í raun
væri ekki til neinn Alþýðusam-
bandssamningur. „Það sem ASÍ
hefur gert þegar staðið er sameig-
inlega að samningum innan þess,
er að semja um breytingar á
samningum hinna einstöku félaga
og sambanda. Rökstuðningur
fyrir samfloti í samningum hefur
oftast verið sá, að Ieggja áherslu
á sameiginleg mál eins og kaup-
máttartryggingu og félagsleg atr-
iði.
Nú eru áherslur lagðar á kröfur
fiskvinnslufólks sem eðlilegt er
að tekið sé á á þeirra vettvangi.
Ég á því ekki von á að Alþýðu-
sambandið verði í neinum samn-
ingaviðræðum. Það hefur ekki
verið til umræðu að það yrðu
sameiginlegir samningar á vegum
Alþýðusambandsins og ég hef
ekki verið á þeirri skoðun að það
sé rétt, svo þar hefur ekki verið
um neinn ágreining að ræða.“
VG
218 nemendur ganga
til samræmdra prófa
- í Norðurlandsumdæmi vestra næsta vor
„Stærö árganganna er á bilinu
191 til 218 börn, og því eru
ekki miklar sveiflur í
nemendafjölda milli ára í okk-
ar umdæmi. í vor munu 218
nemendur ganga til samræmdra
prófa í skólum umdæmisins,
en þeir voru 207 í fyrra,“ sagöi
Guðmundur Ingi Leifsson,
fræðslustjóri Norðurlands-
umdæmis vestra, þegar hann
var spurður um þróun
nemendafjölda og fjölda
þeirra sem munu taka sam-
ræmd próf.
Til að gefa glögga mynd af
skiptingu nemenda í 9. bekk milli
skóla í Norðurlandsumdæmi
vestra gaf fræðslustjóri upp tölur
um fjölda þeirra í hverjum skóla.
Tölur í svigum fyrir aftan uppgef-
inn nemendafjölda tákna fjölda
þeirra nemenda á árinu 1987,
sem gengu til samræmdra prófa:
Grunnskóli Siglufjarðar 29
(32), Gagnfræðaskólinn á Sauð-
árkróki 44 (48), Laugarbakka-
skóli 18 (8), Grunnskólinn á
Hvammstanga 11 (8), Héraðs-
skólinn á Reykjum 19 (35),
Húnavallaskóli 22 (14), Grunn-
skólinn á Blönduósi 22 (18),
Grunnskólinn í Höfðakaupstað,
Skagaströnd, 11 (11), Varma-
hlíðarskóli 26 (24), Grunnskól-
inn á Hofsósi 16 (9). EHB