Dagur - 05.07.1988, Blaðsíða 2
2-DAGUR-5. júlí 1988
Hvammstangi:
Hátíðarhöld um
næstu helgi
- þegar minnst verður
50 ára afmælis sveitarfélagsins
Dagana 8. til 10. þ.m. munu
Hvammstangabúar minnast 50
ára afmæli bæjarfélagsins.
Hvammstangi hafði fram til
ársins 1938 verið hluti af
Kirkjuhvammshreppi. Afmæl-
isdagurinn er 10. júlí. Göngu-
brú hefur verið byggð á
Hvammsá þar sem hún rennur
sunnan við félagsheimilið. Þar
hefur verið byggður pallur yfir
ána og unnið er að uppbygg-
ingu hátíðarsvæðis á bökkum
árinnar. Afmælisins verður
minnst með miklum hátíðar-
höldum. Formaður hátíðar-
nefndar er Sigríður Karlsdótt-
ir, og framkvæmdastjóri Örn
Ingi.
Þess er vænst að afmælishátíð-
in verði fjölsótt af heimafólki,
nágrönnum og burtfluttum Hún-
vetningum. Boðið verður upp á
fjölþætta dagskrá fróðleiks- og
skemmtiefnis.
Hátíðardagskráin hefst föstu-
daginn 8. með því að útimarkað-
ur verður opnaður við félags-
heimilið kl. 14. Þar verður gleð-
skapur, tónlist og prútt.
Kl. 20.30 verður opnun sýn-
inga. Sýning Elísabetar Harðar-
dóttur á myndvefnaði o.fl. á
neðri hæð félagsheimilisins. Sýn-
Ferðafélag Svarfdæla:
Ferðaáætlim
sumariö 1988
ákveðin
Ferðaáætlun Ferðafélags
Svarfdæla hefur verið ákveðin.
Farið verður í margar
skemmtilegar ferðir að vanda.
Fyrsta ferðin verður farin næst-
komandi fimmtudag en þá verður
farið í kvöldgönguferð fram á
Böggvisstaðadal. Annan laugar-
dag verður gengið á Rimar og
laugardaginn 27. júlí verður farið
í fjöruferð út frá Dalvík.
Sunnudaginn 7. ágúst ætla
ferðafélagsmenn að fara í göngu-
ferð á Syðraholtsdal og upp að
Nykurtjörn. Þann 21. ágúst verð-
ur farin ferð á Tunguhryggsjökul.
Á aðalfundi félagsins á dögun-
um var kjörin ný stjórn. Formað-
ur félagsins er Stefán Haligríms-
son en aðrir stjórnarmenn eru:
Valdimar Bragason gjaldkeri,
Kristján Hjartarson ritari, Zop-
honías Jónmundsson meðstjórn-
andi og Gunnsteinn Þorgilsson
meðstjórnandi. Hjörtur Þórar-
insson sem setið hefur í stjórn
félagsins um árabil lét nú af for-
mennsku og voru honum þökkuð
vel unnin störf í þágu félagsins.
JÓH
ing á verkum nemenda Grunn-
skólans og á verkum myndlistar-
klúbbsins Litbera í Grunnskólan-
um og orkusýning Rafmagns-
veitna ríkisins í Héraðsbókasafn-
inu.
Sýningarnar verða einnig opn-
ar frá kl. 14-22 á laugardag og
sunnudag.
Á laugardagsmorguninn verð-
ur dagurinn tekinn snemma með
heiðursskoti í morgunsárið (af-
mælisvekjaraklukka). Kl. 9 verð-
ur léttur morgunverður fyrir
sundlaugargesti. Syndandi þjón-
ar og önnur óvænt atriði.
Kl. 10 hefst frjálsíþróttamót
USVH og kl. 14 hefst knatt-
spyrnuleikur Kormáks og
UMSE-b. Flugeldakeppni verður
í leikhléi ef þátttaka fæst.
Kl. 16.30 verður hljómskála-
tónlist í Bjarkarási, lúðrasveit og
harmonikutónlist.
Kl. 17.30 hefjast útihátíðar-
höld við Hvammsá. Afhending
og afhjúpun á listaverki sem unn-
ið er af Marinó Björnssyni og
fyrirtæki á Hvammstanga gefa
staðnum. Þorpið við ána, upp-
lestur. Vígsla göngubrúar á
Hvammsá, bæjakeppni í skák og
hópreið hestamanna verður um
staðinn.
Kl. 21, sögusýning, upphaf
byggðar á Hvammstanga, leikið
og kvikmyndað. Þá verða útitón-
leikar, Baggabandið frá
Þórshöfn, Fúsi og félagar og ýms-
ar óvæntar uppákomur. Um
kvöldið leikur hljómsveitin
Árbandið fyrir dansi á fjölskyldu-
dansleik í félagsheimilinu og
harmonikuleikarar munu eitt-
hvað grípa þar inn í.
Sunnudaginn 10. sem er
afmælisdagurinn, hefjast hátíðar-
höldin með grillveislu í gróður-
reit Ingibjargar og Sigurðar.
Rútuferðir verða á svæðið frá kl.
10.30. Kl. 13.30 hefst guðsþjón-
usta í Hvammstangakirkju og að
henni lokinni verður gengið f
skrúðgöngu frá kirkjunni að há-
tíðarsvæðinu við Hvammsá.
Lúðrasveit leikur á hátíðarsvæð-
inu, afmælishátíðin verður sett,
afmælisræða, kórsöngur, ávörp
gesta, kórsöngur og flutt verður
revía, Hvalir í hvömmum. Há-
tíðarhöldunum lýkur kl. 17 með
listflugi, fallhlífarstökki, lúðra-
blæstri og barnagríni á hátíðar-
svæðinu. fh
Sauðárkrókur:
Skátar heimsækja vinabæ
Köge, vinabær Sauðárkróks í
Danmörku, á 700 ára afmæli
um þessar og minnist þess á
margvíslegan hátt. Núna er
staddur 35 manna hópur frá
Skátafélaginu Eilífsbúum
Sauðárkróki á stóru skátamóti
í Köge, þar sem 500 skátar frá
öllum Norðurlöndunum hafa
mætt. Mótið er haldið í aðal
afmælisviku Köge-búa, en þeir
eru búnir að halda upp á
afmælið frá því á nýársdegi.
Frá Sauðárkróksbæ er staddur
á afmælishátíðinni, bæjarstjór-
inn Snorri Björn Sigurðsson.
Fyrstu dagana dvöldu skátarnir
á einkaheimilum, en á laugardeg-
inum 2. júlí hófst skátamótið.
Meðal þess sem skátarnir áttu að
gera var að taka á móti Margréti
Danadrottningu, sem kom í
heimsókn til Köge í tilefni afmæl-
isins. Krakkarnir frá Eilífsbúum
eru á aldrinum 12-15 ára, 4 strák-
ar og 26 stelpur.
í ágúst nk. verður svo haldið
vinabæjamót í Köge, en á það
fara bæjarfulltrúar frá Sauðár-
króki fylktu Iiði. -bjb
Skátafélagið Eilífsbúar á Sauðárkróki heldur af stað á skátamót í Köge,
vinabæ Sauðárkróks í Danmörku.
DAGIJR
Blönduósi
0 954070
Norðlenskt dagblað
Hluti fundargesta á ársfundi Póstsambands Norðurlanda á Hótel KEA. Mynd: Ljósm.st. Páis.
Ársfundur Póstsambands Norðurlanda á Akureyri:
Póstviðskipti á Norður-
löndum fara vaxandi
Ársfundur Póstsambands
Norðurlanda, Nordpost, var
að þessu sinni haldinn á Akur-
eyri, dagana 28.-30. júní síð-
astliðinn. Á þessum fundum
bera póstmálastjórarnir saman
bækur sínar um póstþjónust-
una og reksturinn í löndum
sínum. Ennfremur eru teknar
fyrir skýrslur fastanefnda sam-
bandsins sem eru: NA (almenn
og alþjóðleg mál), ND (rekstr-
ar- og markaðsmál) og NG
(gíró og fjármunamiðlun) og
rædd viðhorf til þess sem er að
gerast hjá alþjóðastofnunum
en Norðurlöndin hafa sín á
milli náið samráð um afstöðu
til mála þar.
Póstviðskipti hafa farið vax-
andi á Norðurlöndum. Stöðugt er
reynt að mæta þörfum viðskipta-
lífsins og almennings með
nýjungum eins og forgangspósti
(express mail service, EMS) og
myndsendingum, póstfaxi. Einn-
ig eru eldri þjónustugreinar
aðlagaðar að þörfum viðskipta-
Ólafsflörður:
Enn vantar
tannlækni
Ólafsfírðingar hafa nú verið
tannlæknislausir um eins árs
skeið. Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir hefur ekki tekist að fá
tannlækni í bæinn en vonir
standa nú til að úr rætist.
Enginn þeirra tannlækna sem
útskrifuðust úr Háskóla íslands í
vor hafði áhuga á að koma til
Ólafsfjarðar en einn nemi sem
útskrifast næsta vetur hafnaði
ekki tilboði Ólafsfirðinga.
Fyrir skömmu hafði íslensk
kona, sem starfar við tannlækn-
ingar í Noregi, samband við
bæjarstjóra og lýsti áhuga á að
ræða við yfirvöld í Ólafsfirði og
skoða aðstöðu. Hefur hún nú
staðfest ósk sína bréfleiðis og
kemur á næstunni til Ólafsfjarðar
að líta á aðstæður. JÓH
vinanna. Þá er sífellt verið að
vinna að margs konar hagræð-
ingarmálum í því skyni að gera
póstþjónustuna hagkvæmari. Á
fundinum var ákveðið að gefa út
nýtt Norðurlandafrímerki á
næsta ári. Myndefnið verður
þjóðbúningur.
Næsti fundur NORDPOST
verður í Danmörku og hefur
danska Póst- og símamálastjórn-
in tekið við framkvæmdastjórn.
Á blaðamannafundi að lokn-
um fúndinum, kom fram að
Norðurlöndin hafa með sér náið
samstarf í póstviðskiptum sem
rekja má aldir aftur í tímann.
Norðurlöndin standa mjög fram-
arlega á þessu sviði og eru stefnu-
mótandi fyrir önnur lönd. T.d.
var aðstoðarpóstmálastjóri
Bandaríkjanna sérstakur gestur á
fundinum, til að kynna sér það
sem er efst á baugi á Norðurlönd-
um.
Það kom fram að gæðaeftirliti
hefur nýlega verið komið á, til að
tryggja að gildandi gæðastöðlum
sé fylgt. Fyrir almenn bréf er
staðallinn þrír dagar milli íslands
og hinna Norðurlandanna. frá
því að bréf er póstlagt þar til að
það berst til viðtakanda. Innan
allra landanna er stefnt að því að
bréf séu borin út strax næsta dag
'eftir að þau eru póstlögð. kjó