Dagur - 05.07.1988, Page 3
5. júlí 1988- DAGUR-3
Mun færri umferðarslys í
ár en á sama tíma í fyrra
- Vegirnir batna en ekki er hægt að segja það sama um ökumennina
segir Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs
Umferðarslysum þar sem
meiðsli urðu á fólki, fækkaði
um 40 fyrstu 5 mánuði ársins,
miðað við sama tíma í fyrra.
Þau voru 225 fyrstu 5 mánuð-
ina í fyrra en 185 á sama tíma í
ár. Slasaðir í þessum 225 slys-
um í fyrra voru 362 á móti 267
í ár í 185 umferðarslysum, eða
tæplega 100 manns færra.
„Við hljótum að líta að hluta
til á nýju umferðarlögin sem
skýringu á þessari fækkun
umferðarslysa en auðvitað er allt-
af hættulegt að bera saman þessa
hluti á ntilli tveggja ára. Þetta er
svolítið tilviljanakennt en er þó
mjög í rétta átt,“ sagði Óli H.
Þórðarson framkvæmdastjóri
Umferðarráðs í samtali við Dag.
í fyrra slösuðust 134 alvarlega í
umferðarslysum fyrstu 5 mánuð-
ina en 97 í ár og minni háttar
meiðsli í fyrra hlutu 228 en 170 í
ár. Fjöldi látinna er einum tleiri í
ár en í fyrra en þá létust 9 manns
í umferðarslysum fyrstu mánuð-
ina en 10 í ár.
„Þó svo að umferðarslysum
fari fækkandi, er þetta engan
veginn viðunandi og það má eng-
inn taka það svo. Þetta eru nátt-
úrlega allt of margir slasaðir og
látnir í untferðarslysum í svona
fámennu þjóðfélagi. Og þó svo
að vegirnir batni, er ekki hægt að
segja það sama um ökumennina
og maður verður að álíta að þessi
gífurlega fjölgun bíla kalli á fleiri
slys.
Þessar efnahagsráðstafanir
ríkisstjórnarinnar á sínum tíma
til lausnar kjaramálum, að lækka
verð á bílum, var mér alls ekkert
að skapi. Þjóðfélagið hefur ekki
lagt það fjármagn í umferðar-
mannvirki sem hefði þurft miðað
við þessa gífurlegu aukningu á
bílaflota landsmanna. Frá því að
hægri umferð var tekin upp fyrir
20 árum, hefur bílum fjölgað um
100 þúsund, úr 40 þúsund í 140
þúsund bíla. Og þó að ýmsar lag-
færingar hafi verið gerðar á
umferðarmannvirkjum víða um
land á þessum árum, hefur það
ekki verið í neinu samræmi við
þá aukningu á bílaflotanum sem
verið hefur.“
Um þessar mundir er ár síðan
reglum um hámarkshraða var
breytt og leyfður var t.d. 90 km
hámarkshraði úti á vegum með
bundnu slitlagi. „Á mörgum veg-
urn var þetta réttlætanlegt en hins
vegar eru enn þann dag í dag til
vegir sem eru engan veginn gerð-
lir fyrir þennan hraða en eru þó
með bundnu slitlagi. Þetta hefur
orðið til þess að hraðinn hefur
líka farið upp á við þar sem hann
mátti síst við því.“
Undanfarin ár hafa júlí og
ágúst verið mestu umferðarslysa-
mánuðirnir og því vildi Óli sér-
staklega brýna fyrir fólki aö haga
akstri í samræmi við aðstæður og
fara með gát í einu og öllu.
„Þetta eru mestu ferðamánuöir
ársins og margir á ferðinni og það
er lítið gaman að koma heim úr
sumarfríi með brotin bein og
beyglaðan bíl," sagði Óli H.
Þórðarson ennfremur. -KK
Mynd: TLV
A sjó.
Egilsstaðabær:
Helgi HaJldórsson
forseti bæjarstjómar
Um miðjan júnímánuð fór
fram kosning fulltrúa í embætti
innan bæjarstjórnar Egils-
staðabæjar. Helgi Halldórsson
var kosinn forseti bæjarstjórn-
ar með fjórum atkvæðum en
Sveinn Þórarinsson fékk þrjú
atkvæði.
Helgi Halldórsson (D) var kos-
inn í bæjarráð Egilsstaðabæjar,
en auk hans sitja í bæjarráði þeir
Þorkell Sigurbjörnsson (Ó) og
Sveinn Þórarinsson (B). Vara-
menn í bæjarráði eru Sigurjón
Bjarnason, Þórhallur Eyjólfsson
og Ásdís Blöndal. Sigurjón
Bjarnason var kosinn 1. varafor-
seti bæjarstjórnar og Þorkell Sig-
urbjörnsson 2. varaforseti.
Meirihluta í bæjarstjórn Egils-
staðabæjar mynda sjálfstæðis-
mennirnir Helgi Halldórsson og
Ásdís Blöndal, Þorkell Sigur-
björnsson frá framboði óháðra
og alþýðubandalagsmaðurinn
Sigurjón Bjarnason. Framsókn-
armennirnir Sveinn Þórarinsson,
Þórhallur Eyjólfsson og Broddi
Bjarnason mynda minnihlutann.
Bæjarstjóri er Sigurður Símonar-
son. EHB
VID RÁÐUMST GEGN VAXTA0KRI
9,9%
ÍRSVHm
ENGIN
VERDTRYGGING
Bílasalan hf. boðar byltingu í greiðslu-
kjörum frá 1. júlí 1988.
Við lánum kaupendum nýrra bíla frá
Ford og Suzuki, allt að 50% af kaup-
verði, til 12 mánaða, með 9,9% föstum
ársvöxtum, - án verðtryggingar.
Þetta eru hagstæðustu kjör sem boð-
in eru i bílaviðskiptum hérlendis.
DÆMi UM BÍLAKAUP:
Nýr bíll. Verð 400.000 kr.
Útborgun (eöa eldri bíll upp í) 200.000 kr.
Lán 200.000 kr. með 9,9% ársvöxtum,
án verðtryggingar.
LÁNAKJÖR:
lAnsupphæð 200.000
mAnuður AFBORGUN VEXTIR /USTLSANKA ÞÖKNUN MÁNAÐAR GREIOSIA
1. afb. 2. afb 3. afb. 4. afb. 5 ofb 6. afb. 7: afb. 8. afb. 9. afb. 10.afb. 11 afb. 12. afb. 16.667 16.667 16.667 16.667 16.667 16.667 16.667 16.667 16.667 16.667 16.667 16.667 1-650,00 1.512.50 1.375,00 1.237.50 1.100,00 962.50 825.00 687.50 550.00 412.50 275,00 137.50 100 100 100 100 100 100 100 100 100 100 100 100 18.417 18.279 18.142 18 004 17.867 17.729 17.592 17.454 17.317 17.179 17.042 16.904
Samtals: 211926
Endanlegt verð bílsins 411.929,- kr.
^ SUZUKI
® Bílasalan hf.
sími 26301, Strandgötu 53
(Bílahöllmni)