Dagur - 05.07.1988, Qupperneq 5
HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI96-24423 AKUREVRI
og þar upp klöngraðist blaða-
maður ásamt flugmönnunum
tveim í þessari ferð, þeim Hilm-
ari Bergsteinssyni og Brynjólfi
Sigurðssyni. Þriðji flugmaðurinn,
Harald Snæhólm, hvíldi að þessu
sinni. Allir eru þeir flugmenn hjá
Flugleiðum, en þeir hafa margir
hverjir veitt sér þá ánægju að
fljúga Douglas DC-3 í sumarfrí-
inu sínu, og þá í sjálfboðavinnu.
Páll Sveinsson hefur verið í eigu
Landgræðslunnar síðan 1973, en
Flugfélag íslands gaf vélina ’71 til
hennar.
Þegar við höfðum komið okk-
ur fyrir, flugmennirnir í sætum
sínum og blaðamaður fyrir aftan
þá, var farið yfir öll öryggisatriði.
Greinilegt var að þeir Brynjólfur
og Hilmar kunnu vel við sig og
fóru um tæki og tól flugvélarinn-
ar sem gull væri. Huga þurfti að
mörgum atriðum áður en vélin
færi á loft, en að því loknu hoss-
aðist Páll Sveinsson fram á flug-
brautina, með 4 tonn af áburði
innanborðs, og kom sér fyrir á
enda flugbrautarinnar. Þá var allt
gefið í botn, hávaðinn gífurlegur,
en upp komst vélin. Mikill hliðar-
vindur var á Pál í þessari ferð og
við hámark að sögn flugmann-
anna. En þeir sögðu að vélin gæti
þolað margt þótt gömul væri.
Að þessu sinni átti að dreifa
yfir svæðið Lurk á Auðkúluheiði
og var skyggni mjög gott til
flestra átta. Þegar búið var að
þræða fram hjá minka- og refa-
búum yfir Skagafirði gat Páll
haldið ótrauður áfram, en þeir
Hiimar og Brynjólfur sögðu að
það væri orðin heilmikil kúnst að
sneiða framhjá öllum þeim loð-
dýrabúum sem rokið hafa upp á
landinu að undanförnu.
Hilmar er flugstjóri á DC-8
þotu Flugleiða og hefur flogið
Páli mörg undanfarin ár, og sömu
sögu má segja um Brynjólf, en
hann er flugvélstjóri hjá Flugleið-
um og hefur oft gripið í stjórn-
tæki „Þristsins“. Aðspurðir um
hvort það væri ekki mesta sportið
hjá flugmönnum að fá að fljúga
Páli sögðu þeir að svo væri. „En
við megum ekki gleyma flug-
freyjunum maður,“ sögðu þeir og
hlógu dátt.
Dreifingin á Lurk gekk vel og
fór vélin fimlega að. Þegar dreift
er flýgur Páll í um 200 feta hæð
og tekur myndarlegar dýfur þeg-
ar snúið er við. Undir lokin kom
afturkippur á vélina þegar stífla
myndaðist í rennunni og stór
áburðarskammtur fór aftur úr
vélinni, stærri en flugmennirnir
ætluðu. „Þetta hlýtur að skila
sér,“ sögðu þeir þegar þeir litu á
áburðarhrúguna sem niður fór.
Þá var haldið til baka á Krókinn,
ögn var skyggni að minnka og
lentum við í smá hagléli á leið-
inni, en að öðru leyti prýðisútsýni
yfir Skagafjörðinn. Hver ferð hjá
Páli tekur um 50 mínútur, enda
er ekki um neina hraðskreiða
þotu að ræða.
Lending gekk vel, þrátt fyrir
hliðarvind, og Páll Sveinsson
settist hægt og rólega niður á
afturhjólin, rann eftir brautinni
og staðnæmdist tilbúinn til áfyll-
ingar fyrir næstu ferð. Þá var
ævintýraflugferð lokið, heyrn-
arskjólin tekin af og klöngrast
niður stigann á móðurjörðina.
Blaðamaður kvaddi þá Hilmar og
Brynjólf og þakkaði fyrir ánægju-
lega ferð. -bjb
5. júlí 1988 - DAGUR - 5
Ágætu
viöskiptavinir
Nú er hagstætt að koma til okkar og versla, eins og
alltaf áður.
Við bjóðum frístundaföt.
Barnastærðir á kr. 3.710,-
Fullorðinsstærðir á kr. 4.275.-
Létta karlmannastakka í ferðalagið á kr. 2.100.-
Ný gerð gallabuxna á kr. 1.030.7
Rúllukragabolir á kr. 798.
Úrval af peysum
á unga og aldna.
Siguthar Gubmundssonarhf.
HAFNARSTRÆTI96 SÍMI96-24423 AKUREYRI
jm■■■ # ■
Bússur
Vesti
Verð og gæði við
Að sjálfsögðu seljum
og undanfarin ár. _
Þekking ★ Reynsla ★Þjonusta
Opið laugard. kl. 9-12.