Dagur - 05.07.1988, Page 6
6 - DAGUR - 5. júlí 1988
„Góðan daginn, við erum að selja þessa pepsíflösku á
960 krónur.“ Vegfarendum um Miðbœ Akureyrar var
boðinn til kaups einn og hálfur lítri af pepsí á þessu
ágœta verði og viðbrögðin voru á einn veg: Undrun.
Áður höfðum við kannað verð á einu glasi afdrykk þess-
um í Sjallanum og á Hótel KEA. í Sjallanum var glasið
selt á 120 krónur, en á Hótel KEA var það ögn ódýrara,
eða 100 krónur sléttar. Við fengum veitingamann í bœn-
um til að mæla hversu mörg glös af drykknum rúmuðust
í einum og hálfum lítra og út úr þeirri vísindalegu athug-
un fengust átta glös og var miðað við tvo til þrjá klaka í
hverju þeirra. Með þessar upplýsingar í farteskinu var
keyptur einn og hálfur lítri afpepsi á 120 krónur - eða á
sama verði og eitt glas í Sjallanum. Verðlögðum við
flöskuna á 960 krónur og tókum síðan til við að pranga
henni inn á tiltölulega saklausa vegfarendur.
„Nei, þakka þér kærlega
fyrir. Ekki á 960 krónur -
þótt ótrúlegt sé,“ svaraði
Haukur Torfason útibús-
stjóri ÁTVR á Akureyri er
honum var boðin flaskan til
kaups. Hann hristi höfuðið
og hélt leiðar sinn, afar hissa
á verðlagningunni. F’ótti hún
enda frjálsleg í meira lagi.
Við gáfumst ekki upp og
héldum pranginu áfram.
Nóa Björnssyni fyrirliða
Þórs í knattspyrnu var næst
boðin flaskan. „Þetta er nú
heldur gróft,“ sagði hann og
afþakkaði alla verslun við
okkur. Er málið var útskýrt
fyrir piltinum var hann
nokkuð hissa. „Ér þetta
virkilega tilfellið. Kók er það
eina sem ég drekk þá sjaldan
ég fer út að skemmta mér.
Ég borga uppsett verð
hikstalaust og finnst það svo
sem enginn glæpur. En því
er ekki að neita að þetta er
fjandi mikið, þegar komið er
upp í heila flösku.“
Guðrún Njálsdóttir spurði
hvort við værum alveg vit-
laus orðin. „Ég hef aldrei
hugsað út í hvað þetta er
dýrt. Er þetta löglegt?“
spurði hún eftir að málið
hafði verið útskýrt. Við
ítrekað boð sagðist hún
endilega vilja kaupa tvær
flöskur, en dró það til baka
og sagðist fyrr drekka bless-
að vatnið.
í>að leit heldur illa út með
söluna, en við héldum áfram
að svífa á fólk með kosta-
boðið. Gunnar Frímannsson
konrektor Menntaskólans á
Akureyri þakkaði gott boð
og var eins og aðrir eilítið
undrandi á hinni frjálsu
verðlagningu. „Ég fer lítið út
að skemmta mér, eða akkúr-
at einu sinni á ári. Ég segi
þér ekki hvað ég drekk þá,“
sagði Gunnar er hann var
spurður út í þá hluti. „Ég er
undrandi á þessari verðlagn-
ingu,“ sagði hann og afþakk-
aði flöskukaupin enn og
aftur.
„Já takk, ég ætla að fá
eina,“ voru fyrstu viðbrögð
Auðar Ástu Hallsdóttur er
henni var boðin flaskan
góða.
- „Það eru 960 krónur.“
Sölumenn voða ánægðir.
Auði allt að þvf svelgdist
á, er hún heyrði verðhug-
myndir okkar. „Nei, ég er
hætt við,“ sagði Auður er
hún hafði komist yfir mesta
áfallið. Fannst verðið helst
til of hátt. Hún sagðist þó
stundum kaupa sér gosglas
þegar hún færi á dansleiki og
borga það að sjálfsögðu
möglunarlaust. „Það þýðir
ekkert að kvarta yfir verð-
inu, það verður ekki
lækkað.“
Það þýddi heldur ekki
mikið að bjóða þeim
mæðgum, Hrönn Sigurðar-
jdóttur og Tinnu flöskuna
góðu. „Alveg ómögulega,
þakkað þér fyrir,“ voru svör-
in er erindið var borið upp.
„Þetta er alveg ferlega dýrt.
Ég hef ekki hugsað út í það
áður hvað þetta er í rauninni
dýrt. Ég fer sjaldan á böll og
kaupi lítið þegar það gerist,“
sagði Hrönn.
Ekki tókst okkur að selja
flöskuna, þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir. Hún er enn
óseld, og reyndar er búið að
drekka þessar dýru veigar.
mþþ
„Nei, þakka þér fyrir, þótt ótrúlegt sé,“ sagði Haukur
Torfason þegar honum var boðið að kaupa pepsí á 960
krónur.
Gunnar Frímannsson leitar að veskinu sínu í brjóst-
vasanum. Hann steinhætti við kaupin þegar verðið
var gefíð upp!
Auður Ásta Hallsdóttir var volg til að byrja með.
Vildi jafnvel kaupa flöskuna, en snarhætti við er verð-
ið var gefíð upp.
Nói Björnsson sagðist stundum kaupa sér gosglas á
veitingastöðum og aldrei hugsað út í hvað það væri
dýrt. „Er það tilfellið? Kostar gosið svona mikið“
sagði fyrirliðinn hissa.
Guðrúnu Njálsdóttur þótti flaskan ansi frjálslega
verðlögð og afþakkaði gott boð.
Mæðgumar Hrönn og Tinna vildu ómögulega kaupa
flöskuna á þessu Ijómandi góða verði, 960 krónur.
„Svakalega er þetta dýrt hjá þér.“ Myndir: gb