Dagur - 05.07.1988, Qupperneq 7
5. júlí 1988 - DAGUR - 7
Knattspyrna 2. deild:
Tindastólsliðið
slakt gegn FH
- tapaði 1:4 í lélegum leik
Tindastóll fékk efsta lið 2.
deildar, FH, í heimsókn á
Sauðárkróksvöll sl. föstudags-
kvöld í Islandsmótinu í knatt-
spyrnu. Úrslit leiksins réðust á
fyrstu mínútunum nánast því
þá náðu FH-ingar að gera tvö
mörk, en úrslitin urðu 4:1 fyrir
FH. í leikhléi var staðan 3:0.
Tindastólsmenn virtust hálf
sofandi í byrjun leiksins og eftir 4
mínútur höfðu FH-ingar skorað.
Það var Pálmi Jónsson sem gerði
það eftir mistök í vörn Tinda-
stóls. Einni mínútu síðar kom
annað mark FH. Jón Erling
Ragnarsson afgreiddi boltann þá
laglega í netið úr þröngri stöðu.
Greinilegt var að FH var sterkari
aðilinn í leiknum en leikmenn
Tindastóls voru langt frá sínu
besta.
Það var ekki fyrr en Eyjólfur
Sverrisson átti skot í stöng eftir
aukaspyrnu á 10. mínútu, sem að
Tindastóll fór aðeins að ranka við
sér. En það dugði ekki til því á
32. mínútu kom þriðja mark FH.
Það var hinn eldfljóti Pálmi Jóns-
son sem slapp í gegnum vörn
Tindastóls og skoraði. Það sem
eftir lifði fyrri hálfleiks átti
Tindastóll fáa spretti, FH-ingar
réðu gangi leiksins.
í seinni hálfleik komst Tinda-
stóll betur inn í leikinn og barðist
af hörku. Á 56. mínútu minnk-
uðu þeir muninn með marki
Eyjólfs Sverrissonar úr víta-
spyrnu. Tindastóll átti nokkur
góð færi í seinni hálfleik, skotið
var í stöng og þverslá, en inn vildi
boltinn ekki. FH-ingar nýttu eitt
af fáum færum síðari hálfleiks
fjórum mínútum fyrir leikslok,
þegar Pálmi Jónsson skoraði sitt
þriðja mark og fjórða fyrir FH.
Undir lok leiksins var farið að
bera á mikilli hörku hjá leik-
mönnum og mikið um ljót og
óþarfa brot. En úrslitin voru
ráðin, 4:1 fyrir FH. Sanngjörn
úrslit en sigurinn heldur stór mið-
að við gang leiksins.
í liði FH stóðu þeir Pálmi
Jónsson, Jón Erling og Ólafur
Jóhannesson upp úr en ekki er
nokkur leið að taka einhvern út
úr slöku liði Tindastóls í þessum
leik. Þeir mega fara að bíta meira
frá sér ef þeir ætla sér ofar á
stigatöflu 2. deildar, a.m.k.
verða að fást stig á heimavelli.
Dómari leiksins, Guðmundur
Stefán Maríasson, dæmdi vel og
línuverðir voru Sveinn Sveinsson
og Ari Þórðarson. -bjb
Knattspyrna 3. deild:
Jafntefli hjá
Dalvík og Sindra
UMFS Dalvík og Sindri gerðu
jafntefli, 1:1, þegar liöin mætt-
ust í B-riðli 3. deildar á föstu-
dagskvöld. Leikurinn fór fram
á Dalvík og má segja aö miðað
við marktækifæri hafi Sindra-
menn sloppið vel.
Heimamenn fengu óskabyrjun
og náðu forystunni strax á 2.
mínútu með marki Birgis Össur-
arsonar. í framhaldi af því dró
liðið sig nokkuð til baka og Sindri
var meira með boltann og sótti
nokkuð x fyrri hálfleik. Liðið
náði hins vegar ekki að skapa sér
nein afgerandi færi og staðan í
leikhléi var því 1:0.
Jafnræði var með liðunum
fyrstu mínútur síðari hálfleiks.
Sindri náði síðan að jafna leikinn
á 60. mínútu eftir slæm mistök
markvarðar UMFS Dalvíkur.
Þrándur Sigurðsson átti þá skot
að marki Dalvíkinga frá vítateig.
Markvörðurinn var kominn með
hendur á boltann en missti hann
inn fyrir línuna og dómarinn
dæmdi mark. Einhverjir vildu
meina að boltinn hefði ekki farið
inn yfir marklínuna en trúlega
hefur ákvörðun dómarans verið
rétt.
Eftir þetta mark hresstust Dal-
víkingar og hófu að sækja stíft.
Þeir fengu mýmörg marktækifæri
það sem eftir lifði leiksins en
náðu ekki að nýta þau og úrslitin
urðu því 1:1. JHB
Staðan
2. deild
Úrslit í 7. umferð urðu þessi:
Fylkir-IR 2:1
Tindastóll-FH 1:4
Víðir-Selfoss 1:2
Þróttur-UBK 2:2
ÍBV-KS 6:1
FH 7 6-1-0 18: 5 19
Fylkir 7 4-3-0 16:11 15
ÍBV 7 3-0-4 17:15 9
Selfoss 6 2-3-110:10 9
Víðir 7 2-2-3 13:10 8
UBK 7 2-2-3 13:16 8
KS 6 2-2-2 13:17 8
ÍR 7 2-1-4 11:15 7
Tindastóll 7 2-0-5 11:19 6
Þróttur 7 1-2-4 12:16 5
Markahæstir:
Sigurður Hallvarðss. Þrótti 7
Guðmundur Magnúss. Selfossi 6
Pálmi Jónsson FH 6
Eysteinn Kristinsson (nr.5) í undarlegu skallaeinvígi við Jón Erling FH-ing.
Knattspyrna 2. deild:
Mynd: bjb
Siglfirðingar steinlágu
í Vestmannaeyjum
Knattspyrnulið KS átti trúlega
einn sinn slakasta leik í árarað-
ir þegar liðið mætti ÍBV í Vest-
mannaeyjum á laugardag.
Leiknum lauk með stórsigri
ÍBV, 6:1, eftir að staðan hafði
verið 3:0 í leikhléi.
Nokkurt jafnræði var með lið-
unum fyrstu mínúturnar en eftir
að Páll Grímsson náði að skora
tvívegis fyrir Vestmanneyinga á
fyrstu 15 mínútum leiksins var
aldrei spurning um hvorum megin
sigurinn myndi lenda. Segja má
að Eyjamenn hafi verið í einni
stórsókn það sem eftir var fyrri
hálfleiks, ef undan er skilið
stangarskot Paul Friar, og þeir
náðu að skora einu sinni til við-
bótar fyrir leikhlé. Það var Tóm-
as Ingi Tómasson sem skoraði
það mark á 31. mínútu úr víta-
spyrnu sem Páll Grímsson „fisk-
aði“.
KS-ingar hófu síðari hálfleik-
inn af krafti og sóttu stíft fyrstu
10 mínúturnar. Reiðarslagið kom
hins vegar á 55. mínútu þegar
Eyjamenn náðu einni sókn og
Páll Grímsson skoraði 4. mark
ÍBV.
Eftirleikurinn var auðveldur.
Niðurbrotnir Siglfirðingar veittu
litla mótstöðu og Eyjamenn náðu
að bæta við tveimur mörkum.
Tómas Ingi Tómasson skoraði
það 5. og Páll Grímsson var síð-
an enn einu sinni á ferðinni með
sitt 4. mark í leiknum. KS-ingar
klóruðu í bakkann í lokin þegar
Baldur Benónýsson skoraði úr
vítaspyrnu en það hafði lítið að
segja, stórsigur Eyjamanna var i Siglfirðingar sem gengu af ieik-
staðreynd og það voru niðurlútir | velli. JHB
Baldur Benónýsson skoraði eina mark Siglfirðinga í Eyjum.