Dagur - 05.07.1988, Qupperneq 9
8 - DAGUR - 5. júlí 1988
Knattspyrna 4. deild:
Iitil knattspyma
í leik Eflingar
og Neista
Eding og Neisti skildu jöfn þegar liöin
mættust í D-riðli 4. deildar á laugardag.
Leikurinn var nokkuð sögulegur og verð-
ur hans trúlega minnst fyrir flest annað en
knattspyrnu. Liðin gáfu sér þó tíma til að
skora sitt markið hvort, Efling í fyrri hálf-
leik og Neisti í þeim síðari.
Nokkur harka var í leiknum og Jóhann
Ingólfsson dómari hleypti honum allt of mik-
ið upp. Hann leyfði leikmönnum að komast
upp með leiðiníeg og óþörf brot og hefði
a.m.k. mátt sýna þrjú gul spjöld í fyrri hálf-
leiknum. Þctta varð til þess að leikurinn
leystist upp í hálfgerða vitleysu og slagsmál
en knattspyrnan sat á hakanum. Það var Vil-
hjálmur Sigmundsson sem skoraði mark Efl-
ingar en Magnús Jóhannesson skoraði mark
Neista. Einn leikmaður var rekinn af leik-
velli í síðari hálfleik. Þórarinn Illugason sem
hafði komið inn á scm varamaður. JHB
Stórsigur HSÞ-b
á EMSE-b
HSÞ-b var ekki í vandræðum með að
sigra UMSE-b þegar liðin mættust á
Laugalandsvelli á föstudagskvöld.
Leikurinn var liður í D-riðii 4. deildar og
lauk honum með öruggum sigri HSÞ-b,
2:6. Staðan í hálfleik var 1:3.
UMSE-b náði forystunni í leiknum með
marki Þrastar Guðmundssonar strax á upp-
hafsmínútunum. Þá tóku Þingeyingarnir við
sér og skoruðu þrjú mörk fyrir leikhlé. Þeir
skoruðu síðan önnur þrjú í síðari hálfleik en
Þröstur klóraði í bakkann fyrir UMSE-b á
lokamínútunum. Þrátt fyrir að sigur HSÞ-b
hafi verið verðskuldaður var hann e.t.v. of
stór, t.d. má nefna að UMSE-b fékk víta-
spyrnu sem ekki tókst að nýta. Ari Hall-
grímsson skoraði tvö mörk fyrir HSÞ-b í
þessum leik og það gerði Róbert Agnarsson
einnig. Þá skoruðu þeir Hinrik Árni Boga-
son og Einar Jónsson eitt mark hvor. Einar
gerði sitt mark úr vítaspyrnu. JHB
Tvö sjáJfsmörk
í leik Æskuim-
ar og Kormáks
Tvö sjálfsmörk voru skoruð þegar Kor-
mákur sigraði Æskuna í D-riðli 4. deildar
á Svalbarðseyri á laugardag. Kormákur
sigraði örugglega í leiknum með fjórum
mörkum gegn einu.
Mark Æskunnar í þessum leik var
sjálfsmark, svo og eitt mark Kormáks.
Bjarki Haraldsson skoraði svo tvö mörk fyrir
Kormák og Grétar Eggertsson eitt. JHB
Staðan
4. deild
Úrslit í 6. umferð D-riðils urðu þessi:
Æskan-Kormákur
UMSE-b-HSÞ-b
Efling-Neisti
1:4
2:6
1:1
Kormákur
HSÞ-b
Vaskur
UMSE-b
Neisti
Efling
Æskan
5 3-0-2 10: 7 9
S 2-2-1 13: 9 8
3 2-0-1 4: 4 6
4 2-0-2 7: 9 6
5 1-2-2 7: 8 5
4 1-1-2 6: 7 4
4 1-1-2 7:10 4
Markahæstir:
Ari Hallgrímsson HSÞ-b 6
Albert Jónsson Kormáki 4
Atli Brynjólfsson Æskunni 3
Baldvin Hallgríinsson Eflingu 3
Kóbert Agnarsson HSÞ-b 3
Þórarinn Jónsson Eflingu 3
Þröstur Guðmundss. UMSE-b 3
Knattspyrna 3. deild:
Jafiitefli í skemmti-
legum leik á Grenivík
- 2:2 hjá Magna og Prótti
Magni og Þróttur frá Nes-
kaupstað skildu jöfn þegar
liðin mættust á Grenivík á
laugardag. Bæði liðin skoruðu
tvö mörk í opnum og sérlega
skemmtilegum leik og verða
þau úrslit að teljast sanngjörn
þegar á heildina er litið. Bæði
liðin fengu mikið af færum í
leiknum og þótt Magnamenn
hafi sótt öllu meira í síðari
hálfleik náðu Þróttarar hættu-
legum sóknum.
Þróttarar náðu forystunni á 12.
mínútu leiksins. Það var marka-
skorarinn mikli Guðbjartur
Magnason sem átti skalla að
Grenivíkurmarkinu eftir horn-
spyrnu og boltinn lak inn fyrir
marklínuna.
Jafnræði var með liðunum eftir
markið en þrátt fyrir ágæt tæki-
færi beggja íiða urðu mörkin ekki
fleiri í fyrri hálfleik og staðan í
leikhléi var því 0:1.
Magnamenn jöfnuðu strax í
upphafi síðari hálfleiks. Þeir
fengu þá aukaspyrnu fyrir utan
vítateig Þróttar, knettinum var
rennt til Þorsteins Jónssonar sem
skoraði með góðu skoti. Magna-
menn sóttu nú öllu meira en
Þróttarar náðu þó ágætum sókn-
um og það voru þeir sem skoruðu
næsta mark. Það var Guðbjartur
sem var aftur á ferðinni og skor-
aði af öryggi eftir að hafa komist
einn inn fyrir vörn Magna. Það
var svo Tómas Karlsson sem
Hvöt sigraði Reyni Árskógs-
strönd þegar liðin mættust á
Blönduósi á laugardag með
einu marki gegn engu. Sigur-
inn var sanngjarn og hefði allt
eins getað orðið stærri ef Eir-
íkur Eiríksson hefði ekki stað-
ið sig mjög vel í marki Reynis.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik. Reynismenn léku
þá undan vindi en tókst ekki að
skapa sér nein afgerandi mark-
tækifæri. Leikmenn Hvatar börð-
ust vel á móti vindinum og fengu
eitt ágætt færi sem ekki tókst að
nýta. Þá áttu þeir tvö ágætis skot
að marki Reynis sem Eiríkur
varði vel. Hvorugu liðinu tókst
að skora í fyrri hálfleik.
jafnaði leikinn með stórglæsilegu
skoti af 30 metra færi.
Þegar staðan var orðin 2:2
færðist mikið fjör í leikinn og
hefðu mörkin hæglega getað orð-
Reynismenn hófu síðari hálf-
leikinn af krafti og voru betri
aðilinn fyrstu mínúturnar. En
leikmenn Hvatar vöknuðu smátt
og smátt af dvalanum og eftir
u.þ.b. 10 mínútur af hálfleiknum
höfðu þeir náð góðum tökum á
leiknum. Þeir náðu upp mikilli
pressu á Reyni og þegar rúmar 15
mínútur voru til leiksloka bar
það árangur. Dæmd var horn-
spyrna á Reyni, knötturinn var
sendur út þar sem skotið var að
marki Reynis. Axel Rúnar
Guðmundsson var á réttum stað
inni í teignum og hann potaði í
knöttinn þannig að hann breytti
um stefnu og hafnaði í netinu.
Eftir þetta sóttu Blöndósingar
ið fleiri. Magnamenn áttu t.d. tvö
skot í þverslá og Þróttarar eitt en
allt kom fyrir ekki. Stangirnar og
markverðirnir voru á réttum stað
og úrslitin urðu því 2:2. JHB
1:0
stíft og fengu ágæt færi en Eirík-
ur varði eins og berserkur og
fleiri urðu mörkin ekki. Úrslitin
því sanngjarn 1:0 sigur Hvatar í
frekar grófum og litlausum leik.
JHB
Staðan
3. defld
Úrslit leikja í 6. umferð B-
riðils urðu þessi:
UMFS Dalvík-Sindri 1:1
Einherji-Huginn 7:1
Magni-Þróttur 2:2
Hvöt-Reynir 1:0
Reynir Á. 6 4-0-2 13: 8 12
Þróttur N. 5 3-1-1 9: 6 10
UMFSDalv. 5 2-2-1 9:10 8
Magni 5 1-3-1 4: 4 6
Hvöt 6 1-3-2 2: 3 6
Einherji 4 1-2-1 8: 3 5
Huginn 6 1-2-3 8:18 5
Sindri 5 1-1-3 8: 9 4
Markahæstir:
Guðbj. Magnas. Þrótti N. 7
Garðar Jónss. UMFS Dalv. 4
Grétar Karlsson Reyni 4
Knattspyma 3. deild:
Miklir
yílrburðir
Einherja
Einherji hafði mikla yfirburði
yfir Hugin þegar liðin mættust
á Vopnafirði í B-riðli 3. deildar
á laugardag. Lokatölurnar
urðu 7:1.
Gamli KA-maðurinn Vignir
Þormóðsson skoraði 2 mörk fyrir
Einherja í þessum leik, bæði úr
vítaspyrnum. Vignir hefur staðið
sig mjög vel með Einherja í sum-
ar en þess má geta að hann skor-
aði 3 mörk fyrir liðið þegar það
sigraði Þrótt í Mjólkurbikarnum
á dögunum, 5:3. Aðrir marka-
skorarar Einherja í þessum leik
voru Stefán Guðmundssn, Viðar
Sigurjónsson, Baldur Kjartans-
son, Helgi Þórðarson og Kristján
Davíðsson. Sveinbjörn Jóhanns-
son skoraði mark Hugins. JHB
Axel Rúnar Guðmundsson skoraði fyrir Hvöt.
Fyrir nokkru kom Fimleikafélagið Björk úr Hafnarfirði til Akureyrar og hi
| sýningu. Islandsmeistari kvenna, Linda Steina Pétursdóttir var með í för
hér sést hún sýna æfingar á dýnu. Mynd: (
Þorsteinn Jónsson skoraði gegn Þrótti.
Hvöt fór illa með færin
- er liðið sigraði Reyni
5. júlí 1988 - DAGUR - 9
Mitsubishi-mótið í golfi:
ðgurður sigraði eftir
æsispennandi keppni
- bíllinn gekk ekki út
Sigurður Ringsted varð sigur-
vegari í karlaflokki án forgjaf-
ar í Mitsubishi golfmótinu sem
fram fór á Jaðarsvellinum á
Akureyri um helgina. Sigurður
háði geysispennandi keppni
við Þórhall Pálsson, en þeir
félagar voru jafnir á 152 högg-
um eftir 36 holur. Háðu þeir
Akureyrarmótið í golfi hefst á
Jaðarsvellinum á morgun.
Leiknar verða 72 holur á fjór-
um dögum, en mótinu lýkur á
laugardag. Keppt verður í 7-8
flokkum og hefst keppni kl. 16
alla dagana að laugardegi
undanskildum en þá verður
byrjað kl. 9.
Keppt verður í 1., 2. og 3.
flokki karla og einnig í 4. flokki
því bráðabana og Sigurði tókst
að knýja fram sigur þegar þeir
léku 18. holuna í þriðja sinn.
Jón Baldvin Árnason sigraði í
keppni með forgjöf og Andrea
Ásgrímsdóttir sigraði í kvenna-
flokki, en þar var einungis
keppt með forgjöf.
ef næg þátttaka fæst. Þá verður
að sjálfsögðu keppt í meistara-
flokki og kvennaflokki. Loks
verður keppt í unglingaflokki, 14
ára og yngri, og öldungaflokki,
50 ára og eldri. Skráningu lýkur í
kvöld kl. 20.
Mótinu lýkur með grillveislu í
Golfskálanum að Jaðri á laugar-
dagskvöldið og verða verðlaunin
afhent í þeirri veislu. JHB
Annars varð röð efstu manna á
mótinu þessi:
Karlaflokkur án forgjafar:
1. Sigurður Ringsted 152
2. Þórhallur Pálsson 152
3. Viðar Þorsteinsson 157
Karlaflokkur með forgjöf:
1. Jón Baldvin Árnason 133
2. Kristinn Svanbergsson 133
3. Eiríkur Haraldsson 135
Kvennaflokkur:
1. Andrea Ásgrímsdóttir 148
2. Inga Magnúsdóttir 148
3. Halla Berglind Ásgrímsd. 168
Þess má geta að Höldur hf.
sem gaf verðlaunin í mótið hafði
heitið hverjum þeim sem fara
myndi holu í höggi nýjum bíl í
verðlaun. Það tókst hins vegar
engum að gera og bíllinn gekk
því ekki út. Þá gaf Höldur einnig
fjölmörg aukaverðlaun fyrir hin
margvíslegustu afrek. JHB
Golf:
Akureyrarmótið hefst
á morgun
Skúli og Vilhelm Ágústssynir afhenda Sigurði Ringsted verðlaunin fyrir sig-
ur í Mitsubishi-mótinu. Mynd: ehb
Esso-mótið í knattspyrnu:
KA sigurvegari í
keppniA Uða
Um helgina gekkst knattspymu-
deild KA fyrir Esso-móti í
miniknattspyrnu á KA-vellin-
um á Akureyri. Keppnin var
haldin fyrir 5. flokk, A og B lið
og voru veitt verðlaun fyrir 1.,
2. og 3. sætið í hvorum flokki.
Það var KA sem sigraði í
keppni A liðanna og Víkingur
sem sigraði í keppni B liðanna.
Þá var einnig haldin keppni í
„bandí“ í tengslum við mótið og
fór sú keppni fram í Iþrótta-
höllinni á Akureyri. Það var A
Iið. KS sem sigraði í þeirri
keppni.
Stjarnan úr Garðabæ varð í 2.
sæti í keppni A liðanna í knatt-
spyrnunni og Þórsarar urðu í því
3. í keppni B liðanna urðu það
hins vegar Þórsarar sem urðu í 2.
sæti og Haukar frá Hafnarfirði í
því 3.
Siglfirðingar voru sterkir í
„bandí“ eins og fyrr segir en Vík-
ingur varð þar í 2. sæti. Aftureld-
ing úr Mosfellssveit varð í 3. sæti.
JHB
Lið HSÞ.
Mynd: IM
Um helgina fór fram á Akureyri Twin Otter mót í fallhh'farstökki. Nánar
verður sagt frá mótinu síðar. Mynd: gb
Norðurlandsmeistara-
mót í sundi:
HSÞ sigraði
Norðurlandsmeistaramót í
sundi var haldið á Siglufirði 1.-
2. júlí sl. Keppt var í átta
flokkum og 40 greinum.
HSÞ sigraði á mótinu og hlaut
alls 360 stig. í öðru sæti varð
Óðinn með 230 stig og USVH í
þriðja sæti með 128 stig.
HSÞ hlaut Albertsbikarinn
sem er farandbikar, einnig hlaut
félagið annan bikar í fyrsta sinn,
en hann hægt að vinna til eignar
ef félag er stigahæst þrjú ár í röð
eða í fimm ár samtals. IM
Ólympíuhlaupið:
Bæjarstjórinn
sigurvegari
Á laugardag fór fram Ólympíu-
hlaup á Akureyri. Það var
Ungmennafélag Akureyrar
sem sá um framkvæmd hlaups-
ins. Keppt var í tveimur vega-
lengdum, 5 og 10 km. Hlaupið
hófst á Ráðhústorginu og end-
aði þar.
Keppendur voru 30, sá yngsti 7
ára og sá elsti 41 árs. Flestir
hlupu styttri vegalengdina.
Athygli vakti að Sigfús Jónsson,
bæjarstjóri á Akureyri, sigraði í
10 km hlaupinu eftir harða
keppni við Ólaf Gunnarsson og
Sigurð Aðalsteinsson skíðagöngu-
kappa.
Helstu úrslit urðu þessi:
5 km:
Sigurður P. Sigmunds. 16:16 mín.
Páll Jónsson 16:44 mín.
Sigurður Bjarklind 17:44 mín.
Birkir Kristinsson 20:18 mín.
Kristján Ólafsson 20:26 mín.
10 km:
Sigfús Jónsson 36:46 mín.
Ólafur Gunnarsson 36:58 mín.
Sigurður Aðalsteinsson 37:01 mín.
Manuel Boissier 37:33 mín.
Guðlaugur Halldórsson 43:54 mín.