Dagur - 05.07.1988, Síða 10
10 - DAGl>R - 5. júlí'19881
Starfsmenn KEA:
Vilja leggja sitt af mörkum til
að efla skógrækt í Ejjafirði
Fyrir skömmu mátti sjá áhuga-
sama starfsmenn Kaupfélags
Eyfiröinga viö gróðursetningu
að Naustaborgum við Akur-
eyri. Það rigndi nokkuð á
starfsmennina, en þeir létu það
ekki á sig fá og settu niður um
2000 plöntur á tveimur klukku-
tímum. Einhvers staðar yrði það
líklega orðað á þá leið að
margar hendur ynnu létt verk.
Stefán Vilhjálmsson formaður
starfsmannafélagsins sagði hug-
myndina hafa komið fram fyrir
tveimur árum, en á 100 ára
afmæli félagsins hafi það styrkt
Skógræktarfélag Eyfirðinga ogi
fór gróðursetningin fram í sam-
vinnu við Skógræktarfélagið. Á
skógræktarkvöldi starfsmanna-
félagsins nú mættu um 20 manns
til gróðursetningarinnar og sagðist
Stefán vonast til að fleiri starfs-
menn sæu sér fært að mæta að
ári, en fyrirhugað er að gera
skógræktarkvöldin að árvissum
atburði. í fyrra voru gróðursettar
heldur fleiri plöntur en nú, eða
tæplega 3000. Voru þær gróður-
settar á svipuðum slóðum þannig
að búast má við að starfsmenn
KEA muni í framtíðinni koma
upp lundi miklum.
„Við viljum leggja okkar af
mörkum til að efla skógrækt við
Eyjafjörð,“ sagði Stefán og bætti
því við að lokum að skógræktar-
ferðirnar nytu sívaxandi vinsælda
og vonaðist til að í framtíðinni
yrði mætingin einkar góð. mþþ
Það hjálpuðust allir að, enda tók ekki nema tvo klukkutíma að gróðursetja
2000 plöntur.
r* M * 'Y ' 1 i í WR+ H 111i
\ é -A vfc*, J
Bara að búa sig betur ef ekki skín sólin.
Starfsmannafélag Kaupfélags Eyfirðinga stóð fyrir skógræktarkvöldi fyrir skömmu. I rigningu en góðu veðri gróður-
settu starfsmenn 2000 plöntur. Eins og sjá má á myndinni var mæting ekki eins og best verður á kosið, en gárung-
arnir sögðu að þarna hefðu mætt allir starfsmenn KEA, það hefði bara vantað 1019 manns. Myndír: tlv
Verðkönnun á Akureyri 24. júní 1988
Grœnmeti - Garðávextir
Lægsta Hæsta
verð verð
Hagkaup 4 tegundir
KEA Hafnarst. 91 2 tegundir
Verslunin Síða 3 tegundir
KEA Hafnarst. 20 2 tegundir
Matvörumarkaðurinn 1 tegund
KEA Brekkugötu 1 tegund
TÖMATAR GÓRKUR PAPRIKA RAUÐ PAPRIKA GRffiN GULRffiTUR HVÍTKÁL
KEA Hrisalundi 213.00 224.00 784.00 576.00 115.30 83.30
Hagkaup Noróurg. 169.00 186.00 679.00 558.00 99.00 85.00
KEA Byggóavegi 213.00 224.00 784.00 573.00 115.00 83.00
Matvörumarkaóur 219.00 231.00 784.00 594.00 131.20 107.00
KEA Sunnuhlió 213.00 224.00 784.00 576.00 128.00 83.00
Verslunin Sióa 234.00 245.00 784.00 576.00 139.00 93.00
KEA Höfóahlió 212.80 224.80 784.00 572.80 115.30 85.30
Verslunin Brynja 216.00 228.00
KEA Ránargötu 229.25 241.45 620.75 124.60 89.80
Garóshorn 230.00 238.00
KEA Brekkugötu 229.00 242.00 845.25 620.80 124.60 90.00
Verslunin Esja 200.00 210.00
KEA Hafnarstr. 20 229.30 242.00 862.00 620.80 124.60 90.00
Hólabúóin 198.00 240.00 128.00
KEA Hafnarst. 91 229.00 242.00 519.00 617.00 124.00 79.00
Lægsta verð 169.00 186.00 519.00 558.00 99.00 79.00
Hæsta veró 234.00 245.00 862.00 620.80 139.00 107.00
Mismunur á hæsta og lægsta verði 38.5% 31.7% 66.1% 11.3% 40.4% 35.4í