Dagur - 05.07.1988, Blaðsíða 11
5. julí 1988-DAGUR-11
Byggðastofnun:
Verulegur
hluti ráð-
stöfunarfjár
fengimi
erlendis
„Byggðastofnun er gert að afla
verulegs hluta ráðstöfunarfjár
síns með erlendum lántökum.
Alls er það fé sem stofnunin
mun hafa til lánveitinga í ár um
1500 milljónir króna, þar af til
almennra verkefna sinna um
1000 milljónir. Eru þá ekki
meðtalin sérstök verkefni sem
ríkisstjórnin hefur falið
Byggðastofnun að annast,“
segir í fréttatilkynningu frá
Byggðastofnun.
„Vegna eðlis verkefna Byggða-
stofnunar er mikilsvert að hún
eigi aðgang að hagstæðum
lánum. Byggðaþróunarlán Nor-
ræna fjárfestingarbankans (Nor-
disk Investeringsbank, NIB) eru
sérstaklega ætluð norrænum
stofnunum og sjóðum á sviði
byggðaþróunar og eru meðal
hagstæðustu lána sem bankinn
veitir og þar með meðal hagstæð-
ustu lána sem völ er á. Byggða-
stofnun hefur nú tekið lán hjá
NIB, að upphæð 9,2 milljónir
Bandaríkjadala og 6,5 milljónir
svissneskra franka sem er jafn-
virði um 600 milljóna króna.
Endurgreiðslur af láninu hefjast
1994 og þeim lýkur árið 2003.
Norræni fjárfestingarbankinn
er stofnun í eigu allra Norður-
landanna. Bankinn var stofnaður
árið 1975. Hlutverk bankans er
að afla fjár á hinum alþjóðlega
peningamarkaði og endurlána á
eðlilegum bankakjörum til nor-
rænna verkefna sem miða að efl-
ingu atvinnulífs norrænu þjóð-
anna.
Bankinn hefur í allmörg ár
veitt sérstök byggðaþróunarlán.
Til skamms tíma hefur verið litið
á þessar lánveitingar sem tilraun
og hefur ákveðnu fjármagni verið
ætlað til þeirra á hverju tilrauna-
tímabili. ísland hefur nýtt þessa
lántökumöguleika, fyrst Fram-
kvæmdastofnun ríkisins og Iðn-
þróunarsjóður og nú Byggða-
stofnun. Frumkvæði að tilurð
þessara lána var hjá Norrænu
embættismannanefndinni um
byggðastefnu, NERP. Fulltrúi
íslands í þessari nefnd lagði til
árið 1986 að byggðaþróunarlánin
yrðu fastur þáttur í starfsemi
Norræna fjárfestingarbankans.
Embættismannanefndin lagði
formlega tillögu um þetta fyrir
ráðherranefnd þeirra ráðherra
sem fara með byggðamál. Tillag-
an var endanlega samþykkt á síð-
asta þingi Norðurlandaráðs og
ráðherrar byggðamála sam-
þykktu reglur um þessi lán í maí
síðastliðnum. Lántaka Byggða-
stofnunar nú mun vera fyrsta
lántakan eftir hinu nýja lána-
kerfi.
Byggðastofnun gerir sér rök-
studdar vonir um að hið nýja
kerfi byggðaþróunarlána Nor-
ræna fjárfestingarbankans muni
tryggja stofnuninni aðgang að
hagstæðum lánum á komandi
árum. Pað að þetta lánakerfi er
nú orðið fastur liður í starfsemi
bankans þýðir að Byggðastofnun
getur gert ráð fyrir ákveðnum
lántökum í áætlunum sínum. Við
þetta bætist að allt samstarf við
Norræna fjárfestingarbankann er
einstaklega þægilegt og lipurt
sem dregur á sinn hátt úr kostn-
aði við lántöku. Bendir allt þetta
til þess að hið nýja kerfi byggða-
þróunarlána verði byggðaþróun-
arstarfi á íslandi lyftistöng á
komandi árum,“ segir að lokum.
Golfldúbbur
Akureyrar
Nýliðar Golfklúbbs Akureyrar.
Mjög áríðandi fundur í kvöld, þriðjudagskvöld
kl. 20.00 í Golfskálanum.
Nýliðanefnd.
---------------------------
Viðskiptavinir
athugið
Opna aftur 11. júlí.
Verið velkomin.
HflRGREIÐSLUSTOFAN
^amíUa
Hólsgerði 4 • Sími 22069 • Akureyri.
V__________________________/
mi
Útboð
Ólafsfjarðarbær óskar eftir tilboðum í gerð
gangstétta í Ólafsfirði.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofunni, Ól-
afsvegi 4, Ólafsfirði og Verkfræðistofu Norðurlands,
Skipagötu 4, Akureyri.
Tilboðin verða opnuð kl. 14.00 þriðjudaginn 12. júlí á
bæjarskrifstofunni, Ólafsvegi 4, Ólafsfirði.
Bæjartæknifræðingur.
Fulltrúastaða í
utanríkis-
þjónustunni
Staða háskólamenntaðs fulltrúa í utanríkisþjónust-
unni er laus til umsóknar.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist utanríkisráðuneytinu, Hverfisgötu 115,
150 Reykjavík, fyrir 15. júlí 1988.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 28. júní 1988.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Við Menntaskólann við Sund er laus til umsóknar
stundakennarastaða í eðlisfræði.
Upplýsingar eru veittar í símum: 35519, 33419, 44705 og
32858.
Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti eru lausar kennara-
stöður í íþróttagreinum, stærðfræði og hálf staða í mat-
vælagreinum.
Þá vantar stundakennara í íslensku, rafeindavirkjun, raf-
virkjun og ýmsum öðrum greinum.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans eftir 10. ágúst.
Við Flensborgarskóla í Hafnarfirði eru lausar stunda-
kennarastöður í eftirtöldum greinum: Eðlisfræði, stærð-
fræði, vélritun, bókfærslu, fjölmiðlun og latínu.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík fyrir 20. júlí næstkomandi.
Umsóknir um stundakennslu sendist skólameisturum viö-
komandi skóla.
Þá er umsóknarfrestur á áður auglýstri kennarastöðu í
ensku við Flensborgarskóla í Hafnarfirði framlengdur til
8. júlí.
Menntamálaráðuneytið.
------------------------------
Bridds
Sumarbridds í kvöld kl. 19.30 í Dynheimum.
Ekkert þátttökugjald - allir briddsspilarar velkomnir.
Bridgefélag Akureyrar.
ORÐSENDING FRÁ
TANNLÆKNASTOFU RAGNHEIÐAR
Ragnheiður Hansdóttir tannlæknir verður fjarverandi
um eins árs skeið frá 1. ágúst nk. vegna dvalar er-
lendis. Á meðan mun Lára Ólafsdóttir tannlæknir
reka tannlæknastofu Ragnheiðar.
Lára Ólafsdóttir,
Ragnheiður Hansdóttir.
Húsnæði óskast
Óskum eftir 3ja-4ra herbergja íbúð fyrir starfsmann
okkar, helst í skólahverfi Barnaskóla Akureyrar.
Góð umgengni og öruggar mánaðargreiðslur.
Upplýsingar í síma 24655.
Fræðsluskrifstofa
Norðurlandsumdæmis eystra
Furuvöllum 13, 600 Akureyri.
Vinningstölur 2. júlí 1988
Heildarvinningsupphæð kr. 8.220.558.-
1. vinningur kr. 5.136.074.-
Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur.
2. vinningur kr. 925.848.-
Skiptist á milli 308 vinningshafa kr. 3.006.-
3. vinningur kr. 2.158.636.-
Skiptist á milli 9.902ja vinningshafa sem fá 218 kr.
hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánu-
degi til laugardags og loka ekki fyrr
en 15 mínútum fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111