Dagur - 05.07.1988, Side 13
5. júlí 1988- DAGUR - 13
Bílameistarinn, Skemmuvegi M40,
neöri hæö, s. 91-78225. Eigum vara-
hluti í Audi, Charmant, Charade,
Cherry, Fairmont, Saab 99, Skoda,
Fiat 132 og Suzuki ST 90. Eigum
einnig úrval varahluta í fl. teg.
Opið f rá 9-19 og 10-16 laugardaga.
/•..
Hákon Guðmundsson
rafvirkjameistari
Kotárgerði 6, Akureyri
sími 96-24376 - 96-24377.
Tek að mér allar raflagnir
og viðgerðir í íbúðarhús.
Einnig viðgerðir
heimilistækja og verkfæra.
Almenn rafvirkjaþjonusta.
Sími 96-24376 verkstæði,
símsvari frá kl. 8-12.
Bílasími 002-2331.
Ökukennsla.
Kenni á nýjan MMC Space Wagon
2000 4WD.
Útvega öll náms- og prófgögn.
Dag- kvöld- og helgartímar. Einnig
endurhæfingartímar.
Anna Kristfn Hansdóttir,
ökukennari, sími 23837.
Ökukennsla - Bifhjólakennsla.
Vilt þú læra á bíl eða bifhjól? Ný
kennslubifreið, Honda Accord EX
2000 árg. 1988. Kenni á kvöldin og
um helgar. Útvega bækur og
prófgögn.
Egill H. Bragason,
sími 22813.
Klæði og geri við bólstruð
húsgögn. Áklæði og leðurlíki í
úrvali. Látið fagmann vinna verkið.
Sæki og sendi tilboð í stærri verk.
Bólstrun Björns Sveinssonar,
Geislagötu 1, sfmi 25322.
Heimasími 21508.
Borgarbíó
Alltaf
nýjar
myndir
ÖKUM EINS OG MENN!
Drögum úr hraða
-ökum af skynsemi!
||UMFEROAR
Vísitala byggingar-
kostnaðar hækkar
©Ferðafélag Akureyrar
Skipagötu 13.
9.-16. júlí: Suðurland,
Vestmannaeyjar og
Þórsmörk.
9. júlí: Þeistareykir.
16. júlí: Herðubreiðarlindir (flug-
ferð).
21.-24. júlí: Brúaröræfi og Snæfell.
23. júlí: Kambsskarð.
23. júlí-1. ágúst: Hornstrandir,
Grunnavík-Hornvík. (í samvinnu
við Ferðafélag fslands.)
29. júlí-1. ágúst: Kverkfjöll, Askja
og Herðubreiðalindir.
30. júlí: Mælifell í Skagafirði.
3.-7. ágúst: Arnarvatnsheiði, Borg-
arfjörður og Kjölur.
6. ágúst: Hjaltadalsheiði.
15.-17. júlí: Herðubreiðarlindir,
Askja.
Ath. Árbókin er komin. Fólk er
vinsamlegast beðið að sækja hana á
skrifstofu Ferðafélagsins.
Skrifstofa félagsins er í Skipagötu
13. Síminn er 22720. Skrifstofan er
opin milli kl. 16 og 19 alla virka
daga nema laugardaga.
Nonnahús verður opið daglega kl.
14.00-16.30 frá 12. júní til 1. sept.
Nánari upplýsingar í síma 23555.
Zontaklúbbur Akureyrar.
Héraösskjalasafn Svarfdæla Dalvík.
Opið á mánudögum og föstudögum
frá kl. 13.00-17.00. Fimmtudögum
frá kl. 19.00-21.00.
Sigurhæðir.
Húsið opið daglega kl. 2-4 frá 15.
júní til 1. september.
Hagstofan hefur reiknað vísi-
töiu byggingarkostnaöar eftir
verölagi um miðjan júnímánuð
1988. Reyndist hún vera 121,3
stig, eða 8,4% hærri en í maí
(júní 1987 = 100). Þessi vísi-
tala gildir fyrir júlí 1988. Sam-
svarandi vísitala miðuð við
eldri grunn (desember 1982 =
100) er 388 stig.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 21,3%. Síðustu þrjá
mánuði hefur vísitalan hækkað
um 11,6% og samsvarar það
55,1% árshækkun.
Af efnisliðum má nefna að
hækkun á verði steypu olli 0,6%
hækkun vísitölunnar, hækkun
málningarefnis 0,3% hækkun,
hækkun á verði innréttinga og
innihurða 0,3% hækkun, hækkun
raflagnaefnis 0,3% hækkun,
hækkun á verði pípulagningar-
efnis olli 0,3% hækkun og hækk-
un á verði ýmissa efnisliða ann-
arra, einkum þó innfluttra, olli
um 1,4% hækkun byggingarvísi-
tölu.
Rétt þykir að taka fram að
áhrif gengisbreytingarinnar þann
16. maí sl. munu að langmestu
leyti komin fram í vísitölunni.
Greiðslur almennings
fyrír læknishjálp og lyf
(skv. reglugerð útg. 22. júní 1988)
1. Greiöslur hjá heiniilislÆkni og heilsugæslulækni
165 kr. — Fyrir viðtal á stofu læknis. Innifalin er ritun lyfseðils.
300 kr. —- Fyrir vitjun læknis til sjúklings.
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling. um viðbótargjald, nema
vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér.
2- Greiðslur fyrir sórfræðilæknishjálp, rannsóknir
og röntgengreiningu
550 kr. — Fyrir hverja komu til sérfræðings.
185 kr. — Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrstu 1 2 skiptin hjá sérfræðingi á hverju almanaksári, síðan ekkert.
(Sjá nánar hér að neðan).
Aldrei má krefja sjúkling um nema eina greiðslu fyrir hverja komu ásamt rannsókn/röntgengreiningu í fram-
haldi af henni. Til nánari skýringar er eftirfarandi tafla:
Greiðslur almennings fyrir sérfræðilæknishjálp, nokkur dæmi.
TAFLA Heimílis- læknir Sérfræð- ingur Ranns./ Röntg.gr. Sérfræð- ingur Aðgerð hjá Svæfing/deyfing sérfræðingi hjá sérfræðingi
Dæmi 1 165 550
Dæmi 2 165 385
Dæmi 3 165 550 550
Dæmi 4 165 550 0
Dæmi 5 165 550 0 550
Dæmi 6 165 550 0 550 0 550
Skýringar: Taflan lesist frá vinstri
til hægri og sýnir samskipti við
a.m.k. tvo lækna. Dæmi 4: Sjúkl-
ingur leitar til heimilislæknis og
greiðir þar 165 kr. Heimilislæknir
vísar síðan sjúklingi til sérfræð-
ings, og þar greiðir sjúklingur 550
kr. Þessi sérfræðingur sendir
sjúkling í röntgengreiningu, og
þarf sjúklingur ekki að greiða
sérstaklega fyrir hana, þar sem
hún er 1 beinu framhaldi af komu
til sérfræðings.
Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir, og má læknir ekki krefja sjúkling um viðbótargjald, nema
vegna lyfja eða umbúða, sem sjúklingur kynni að þurfa að fara með burt með sér.
Allir eiga að fá kvittanir fyrir greiðslum sínum hjá sérfræðingum.
Elli- og örorkulífeyrisþegar, sem leggja fram hjá sjúkrasamlagi sínu kvittun fyrir 1 2 greiðslum á sérfræði-
læknishjálp á sama ári, fá skírteini, sem veitir þeim rétt á þessari þjónustu ókeypis það sem eftir er ársins.
3. Greiöslur fyrir lyf
440 kr. — Fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi.
140 kr. — Elli- og örorkulífeyrisþegar, fyrir lyf greidd af sjúkrasamlagi.
Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfjaskammt, eða brot úr honum.
Gegn framvísun sérstaks lyfjaskJrteinis í lyfjabúð fást ákveðinn lyf,
við tilteknum langvarandi sjúkdómum, ókeypis.
Læknar gefa vottorð til sjúkrasamlags í þeim tilvikum,
sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi.
Greiðslur þessar gilda frá og með 1. júlí 1988.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS