Dagur - 05.07.1988, Qupperneq 16
Akureyri, þriðjudagur 5. júlí 1988
llcrmnle\'
Margs konar lím, pústkítti
og fleira.
ÞÓR5HAMR HF.
Varahlutaverslun
Við Tryggvabraut ■ Akureyri ■ Sími 22700
Fiskverkafólk í
röngu félagi?
„Menn hafa sætt sig við þessa
skilgreiningu en fólk hjá
Niðursuðu K. Jónssonar & Co.
er ekki hjá okkur og þar er
ýmislegt meðhöndlað, bæði
sjávarfang og annað sem ekki
tilheyrir sjávarútvegi eins og
grænmeti og kjöt,“ sagði
Kristín Hjálmarsdóttir, for-
maður Iðju, en hún er þeirrar
skoðunar að það sé í sumum
tilvikum spurning hvort starfs-
fólk við matvælaiðnað sé í
réttu stéttarfélagi.
Kristín sagði það óumdeilan-
legt að vinnsla sjávarafurða
heyrði undir sjávarútvegsráðu-
neytið og hefði slíkt verið ákveð-
ið á sínum tíma. Þó væri það ekki
neinum vafa undirorpið að
fiskiðnaður væri iðnaður en um
þetta hefði, eftir því sem hún
kæmist næst, ekki verið deilt eða
rætt á annan hátt með tilliti til
þess hvort starfsfólk í fiskiðnaði
ætti að heyra undir stéttarfélag
iðnverkafólks eða ekki. Fólk
sætti sig við þá skilgreiningu að
fiskverkafólk væri ekki innan
vébanda stéttarfélags iðnverka-
fólks en hvað stéttir eins og
starfsfólk í niðursuðu eða aðstoð-
arfólk í brauðgerðum varðaði þá
væru mörkin miklu óljósari og
væri það raunar atriði sem þyrfti
að skoða í heild og tengdist
skipulagsmálum verkalýðshreyf-
ingarinnar. Þau mál yrðu rædd á
ASÍ þinginu næsta haust.
Björn Snæbjörnsson, vara-.
formaður verkalýðsfélagsins
Einingar, sagði að hvað Niður-
suðu K. Jónssonar & Co. varðaði
þá væri þar margþætt starfsemi
og starfsfólkið færðist mikið milli
starfa. Spurningin þar gæti alveg
eins verið hvort fólkið ætti að
vera í Einingu í dag og í Iðju á
morgun. Menn greindi í sjálfu
sér á hvort skilgreina ætti niður-
suðu sem iðnað eða fiskvinnslu.
„Þetta er ákveðið vandamál
vegna þess að skilin eru ekki
alveg nógu skýr þarna á milli en
það er líka ákveðin hefð fyrir því
í hvaða stéttarfélögum starfs-
menn hinna ýmsu fyrirtækja eru
með tilliti til eðlis meirihluta-
starfa,“ sagði Björn. EHB
Skuldabréf Akureyr-
arbæjar uppseld
Skuldabrétln sem Akureyrar-
bær gaf út í vor eru nú öll seld.
Alls var um að ræða 100 millj-
óna króna skuldabréfaútboð á
vegum bæjarins og hljóðaði
hvert skuldabréf upp á 100
þúsund krónur.
Bréfin voru gefin út til fjög-
urra, fimm og sex ára. Ávöxtun
bréfanna var 10,5 til 11 prósent
umfram verðtryggingu. Bréfin
seldust upp á tveimur mánuðum
Þormóöur rammi:
Frystihúsinu
lokað í
þrjár vikur
Frystihús Þormóðs ramma á
Siglufirði verður lokað í
þrjár vikur í sumar. Tveir af
þremur togurum fyrirtækis-
ins, Stálvík og Sigluvík
verða frá veiðum » sama
tíma.
Snorri Guðfinnsson fram-
kvæmdastjóri Þormóðs
ramma, sagði í samtali við
blaðið að þessir tveir togarar
séu á sóknarmarki og þurfi að
stoppa í 45 daga frá 1. maí til
1. sept. Þess vegna var ákveð-
ið að loka frystihúsinu í þrjár
vikur, frá 25. júlí til 15. ágúst
og að starfsfólk taki sumar-
leyfi sitt á þessum tíma. Tæp-
lega 120 manns starfa í frysti-
húsinu og hefur þessi ákvörð-
un mælst vel fyrir meðal starfs-
fólks að sögn Snorra Guð-
finnssonar. kjó
og sagði Jón Hallur Pétursson hjá
Kaupþingi Norðurlands að það
gæti talist góð sala að selja bréfin
á þeim tíma. Kaupþing Norður-
lands var einn af þeim stöðum
sem seldi mikið af þessum
skuldabréfum.
„Þetta tók jafnlangan tíma og
við bjuggumst við. Ef þetta hefði
tekið skemmri tíma hefðu vext-
irnir verið of háir sem við hefðum
boðið á bréfunum en ef þetta
hefði tekið lengri tíma hefðu
vextirnir verið of lágir, þetta fer
eftir því hvernig okkur tekst til í
vaxtatilboðinu," sagði Sigfús.
- En er það ekki neyðarbrauð
fyrir bæinn að fara út á þá braut
að selja skuldabréf með afföll-
um? „Jú, mikil ósköp, en meðan
ekki er til lánsfé í þjóðfélaginu
með eðlilegum kjörum þá kennir
neyðin naktri konu að spinna.
Það var ekki um annað val að
ræða og okkur var ráðlagt að
bjöða þessa vexti til að bréfin
gengju út á 2-3 mánuðum," sagði
Sigfús Jónsson. EHB
Klukkan í
Akureyrarkirkju:
Slitin
keðja í
gangverki
Líf þeirra sem reiða sig á
klukkuna í Akureyrarkirkju
fer að líkindum i fastar skorður
nú á næstunni. Klukkan hefur
verið biluð um tíma, gefur upp
tímann hálf sex hvenær sem er
sólarhringsins. Orsakanna er
að leita í slitinni keðju í gang-
verkinu.
„Það var erfiðleikum háð að
finna rétta hlutinn, en tókst eftir
ítarlega leit. Þetta er orðið svo
óskaplega' gamalt," sagði Dúi
Björnsson umsjónarmaður, en
klukkan var sett upp um svipað
leyti og kirkjan var tekin í notkun
eða um 1940. Dúi sagði að nú
væri beðið eftir réttu keðjunni og
vonaðist hann til að klukkan færi
að ganga nú í vikunni. mþþ
Keðja í gangverki klukkunnar í
Akureyrarkirkju
nokkru og hcfur
stopp síðan.
slitnaði fyrir
klukkan verið
Mynd: GB
Samkeppni um stækkun Amtsbókasafnsins á Akureyri:
„Glæsileikí einkennir
útlit byggingarinnar"
- segir í niðurstöðu dómnefndar um 1. verðlaunatillöguna
„Megineinkenni þessarar til-
lögu er snilldarleg aðlögun að
núverandi húsi í hlutföllum,
meðferð einstakra tlata og efn-
isvali. Markmið höfundar, að
túlka á stílfærðan hátt megin-
hugsun að baki núverandi
húsi, skilar sér á sannfærandi
hátt í nýbyggingunni. Glæsi-
Norðurland:
Heyskapur að hefjast
Heyskapur er víða hafínn á
Norðurlandi og sums staðar
kominn vel á veg. Sláttur hófst
fyrst í framanverðum Eyjafírði
og þar er heyskapur lengst
kominn. I Skagafírði eru marg-
ir bændur að hefja slátt þessa
dagana en í Húnavatnssýslum
er heyskapur byrjaður á
nokkrum bæjum.
Guðmundur Steindórsson,
ráðunautur hjá Búnaðarsam-
bandi Eyjafjarðar, segir að hvass-
viðrið á síðustu vikum hafi nokk-
uð sett strik í reikninginn fyrir
bændum og dæmi séu um að rok-
ið hafi komið niður á gróðri.
Spretta er nú víðast orðin góð
og sagðist Guðmundur eiga von á
að hann verði a.m.k. í góðu með-
allagi í sumar. „Jú, ég held að
heyskapurinn hljóti að verða
góður. Spretta fór vel af stað fyrr
í sumar en sfðan dró nokkuð úr
henni í þurrkunum. En rigning í
síðustu viku er að skila sér
núna,“ segir Guðmundur. JÓH
leiki einkennir útlit byggingar-
innar í fullu samræmi við
núverandi hús.“
Þannig hljóðar upphaf
umsagnar dómnefndar um þá til-
lögu er hlaut 1. verðlaun í sam-
keppni um viðbyggingu við
Amtsbókasafnið á Akureyri en
síðastliðinn föstudag voru niður-
stöður dómnefndar kynntar.
Guðmundur Jónsson arkitekt,
uppalinn Akureyringur, er
höfundur tillögunnar og hlaut
hann 725.900 kr. í verðlaun.
Önnur verðlaun, kr. 311.100,
hlutu Arnfríður Sigurðardóttir,
Bergljót Sigríður Einarsdóttir og
Geirharður Þorsteinsson. Þriðju
verðlaun hlutu Ágústa Björns-
dóttir og Ragnheiður Ragnars-
dóttir, kr. 311.100.
Þá fengu 3 tillögur innkaup,
ríflega 100.000 kr. hver. Dóm-
nefnd var einnig sammála um að
4 tillögur skyldu hljóta viðurkenn-
inguna athyglisverð tillaga.
í niðurstöðum dómnefndar
segir að tillaga Guðmundar Jóns-
sonar hljóti verðlaun fyrir frá-
bæra byggingarlist. Dómnefnd
mælir með að honum verði falin
fullnaðarhönnun byggingarinnar
og einnig endurvinnsla tillögunn-
ar, telji útbjóðandi húsið of stórt.
Dómnefnd skipuðu: Gunnar
Ragnars, Sigríður Stefánsdóttir,
Ágúst G. Berg, Björn R. Halls-
son og Ormar Þór Guðmunds-
son. JÓH
Gunnar Ragnars, forinaður dóm-
ncfndar, afhendir Guðmundi Jóns-
syni arkitekt 1. verðlaun í samkeppni
um stækkun Amtsbókasafnsins á
Akureyri. Mynd: gb