Dagur - 17.09.1988, Side 12
12 - DAGUR - 17. september 1988
Hef ekki
mikla
trú...
Jörundur og Guðrún framan við hjólhýsið sem þau bjuggu í á meðan Circo de Espana dvaldi á Akureyri.
viö og snert á mörgum hlutum en
ekkert klárað og það er m.a. þess
vegna sem þessi vandamál eru í
þjóðfélaginu í dag.
Ég hef ekki mikla trú á íslensk-
um stjórnmálamönnum. Pað eru
jú ágætis menn innan um á þingi
en þeir fá ekkert að gera fyrir
hinum. Steingrímur Hermanns-
son reynir t.d. alltaf að leika
,,stikkfrí“.
ó að ég sé ekki alþýðu-
flokksmaður, hef ég
samt talsverða trú á
Jóni Baldvin. Hann er einn af
þeim fáu sem vill gera eitthvað og
þorir, enda er hann mjög óvin-
sæll hjá mörgum. Hann er nú t.d.
að boða aðgerðir sem menn hafa
kallað kjarnorkutillögur, um
heiftarlegan niðurskurð og breyt-
ingar.
Þetta er svo lítið land og það
eru of margir sem vilja stjórna.
Við erum nú á leið í hálfgerða
kreppu og ráðamennirnir segja
að það sé alltaf vegna ytri
aðstæðna sem þessi staða kemur
upp. En ytri aðstæðum er bara
ekkert um að kenna, það er
aðeins eitt orð til yfir þetta
ástand og það er óstjórn. Það eru
allir voða kátir og glaðir þegar er
næg þensla í þjóðfélaginu en í
kjölfar mikillar þenslu kemur
bakfall. Það vill samt enginn vita
af þessu bakfalli á meðan þenslan
er sem mest og allir hafa nóg til
alls. Bakslagið kemur vegna þess
að ráðamennirnir nota ekki tím-
ann í góðærinu til þess að tryggja
sig fyrir bakslaginu sem alltaf
kemur í kjölfar þenslunnar.“
ú hefur verið sagt að
mjög erfitt sé að
stjórna íslendingum.
Hvað heldur þú um það?
„Hef áhuga á að skipta mér meira af póiítík í framtíðinni en hef iítinn áhuga
á þingmennsku.“
„Það láta allir að stjórn ef rétt
er að farið og íslendingar ekkert
síður en aðrir. Vandamálin eru
hjá þessum pólitíkusum sem eru
einn anginn af þessu og hinn ang-
inn er embættismannakerfið hér
á landi. Ég hef aðeins fengið að
kynnast því í sambandi við
skemmtanir og skemmtanahald.
Embættismenn á íslandi mis-
skilja gjörsamlega sitt hlutverk.
Þeir eru eins og smákóngar út um
allt land, sitja hver í sínu horni
og segja hérna ræð ég. Þetta á
bara ekki að vera svona og þeir
vinna oft á móti stjórnmála-
mönnunum. Þetta hefur eyðilagt
mikið og það eru margir vanhæfir
embættismenn hér á landi, sem
hafa gert mikið ógagn. Og þessi
endalausi klíkuskapur við embætt-
isráðningar er svo alveg sér
kapítuli út af fyrir sig og nær ekki
nokkurri átt. Það er ekkert skrít-
ið að stjórnmálamenn fái illt orð
á sig, þegar þeir eru sífellt að
kippa inn einum og einum úr sín-
um röðum í einhver feit embætti
hingað og þangað um landið.
Nú svo er eitt af því sem við
þurfum að gera en það er að
hætta þessum gífurlega ríkisbú-
skap. Miðað t.d. við fjölda banka
og fjölda starfsfólks í bönkum,
þá mætti halda að við værum
svipaðir og þeir í Kuwait og velt-
um upp úr jörðinni milljörðum á
dag í olíu. Það er ekki til svo
mikið af peningum í þessu landi
að það þurfi alla þessa banka og
það þarf að koma hluta af þessu
bankafólki í aðra atvinnu. Ríkið
er með Landsbanka, Búnaðar-
banka og Útvegsbanka en til
hvers, það er hægt að koma þessu
öllu saman fyrir í einum banka og
spara með því hundruð milljóna.
Albert Guðmundsson kom
fram með tillögu um að selja
mörg af þessum ríkisfyrirtækjum
og það hefur eitthvað verið gert
af því en á að gera miklu meira,
því að ríkið á ekkert að vera að
standa í rekstri. Það hefur sýnt
sig að þau fyrirtæki sem ríkið
rekur eru öll rekin með bullandi
tapi. Menn hafa hreinlega ekki
metnað til að reka ríkisfyrirtækin
á sama basis og önnur fyrirtæki,
því þó að ríkisfyrirtækin tapi, er
alltaf borgað með þeim.“
vona að lokum, þú hef-
ur verið nokkuð óvæg-
inn í gagnrýni á
íslenska stjórnmálamenn en seg-
ist þó sjálfur geta hugsað þér að
fara að hafa meiri afskipti af
pólitík sjálfur. Hefurðu kannski
sett stefnuna á Alþingi?
„Nei ég held að ég sé ekki
manngerð í það starf. Stjórn-
málamenn verða fyrir rosalegu
skítkasti sem þeir eiga sumir
hverjir skilið og þeim er borið á
brýn að hafa sagt hitt eða þetta
eða jafnvel logið til um hitt eða
þetta. Ég tek allt svona svo alvar-
lega og mundi sennilega ekki
geta staðið undir þvílíku. Ég
þykist vera nokkuð samkvæmur
sjálfum mér og þekktur fyrir að
standa við það sem ég segi, enda
alinn þannig upp.
Það er hægt að taka allt af þér,
sama hvað það er, nema
mannorð þitt. Það getur enginn
tekið af þér nema þú sjálfur og ég
þykist hafa þokkalega gott
mannorð sjálfur og vil því ekki
láta eyðileggja það með því að
fara að starfa inni á Alþingi.
Alþingismenn fá borgað þokka-
lega fyrir það að vera nánast
mannorðslausir og sviptir næst-
um allri ærunni en þeir virðast
sáttir við sitt hlutskipti og það
komast færri að en vilja,“