Dagur - 29.10.1988, Síða 2
2-DAíSijR - SG. oktÖbér ’t988
Leiðinlegur og langrækinn
Góöan daginn háttvirtu lesend-
ur. Fjölmargir hafa komið að
máli við mig, hringt í mig og
skrifað mér í þeirri von að ég
haldi áfram með söguna af
Sigríði í Koti, Valtý á Felli og
riddaranum á hvíta hestinum.
Hingað til hef ég vísað öllum
beiðnum á bug og mun gera það
enn um sinn. Hitt er ekki útilok-
að að ég taki upp þráðinn að
nýju, enda er mér ekki sama um
þennan ástarþríhyrning og vildi
gjarnan stýra elskendunum í
gegnum öldurót örlaganna.
Hugsið ykkur bara ef
sakleysinginn hún Sigríður
lendir í klónum á lostafullum
flagaranum án þess að Valtýr fái
rönd við reist. Það væri skelfi-
legt.
„Þú ert bæði leiðinlegur og
langrækinn," sagði konan mín
við mig á dögunum þegar ég
benti henni á þá staðreynd, að
ef hún hefði ekki keypt sér ný
föt í sumar, nánar tiítekið um
miðjan maí, þá hefðum við
getað farið á tónleikana með
Kim Larsen á Hótel íslandi.
Þetta er engu að síður satt og
sorglegt að vita hve konur cru
skammsýnar. Þær hugsa bara
um tískuna og líðandi stund.
„Þú ættir ekki að segja mikið
Hallfreður Þór Örgumleiða-
son,“ gólaði konan og henni var
greinilega mikið niðri fyrir fyrst
hún nefndi mig fullu og réttu
nafni. „Ef þú hefðir aldrei reykt
eða drukkið þá ættum við
skuldlausa fjögurra herbergja
ibúð núna með bílskúr, sána og
nuddpotti,“ hélt konan áfram,
nær örvita.
Þvílík röksemdafærsla! Ef ég
hefði hvorki reykt né drukkið
um ævina þá væri ég einfaldlega
ekki á lífi. Látinn maður getur
ekki keypt íbúð, það er á
hreinu. Hvers virði er lífið án
lífsnautna? Spyrjið hvern sem
er nema presta og bindindis-
Vélsleðar til sölu
Arctic Cat 1987 Cheetah. Loftk.
Ekinn 850 mílur kr. 340.000,-
Góð greiðslukjör.
Arctic Cat 1988. Wildcat sem
nýr.
Ekinn 800 mílur kr. 430.000,-
Arctic Cat 1987 Cheetah. Raf-
start - bakkgír.
Ekinn 480 míiur, kr. 390.000,-
Ski Doo Formula plus.
Ekinn 3400 km, árg. '86,
kr. 350.000,-
Ski Doo 1987. Grár MX.
Ekinn 2600 mílur, kr. 420.000,-
Arctic Cat Cougar 1987. Svartur.
Ekinn 2600 milur, kr. 320.000,-
Vélsleðamarkaðurinn
er hjá okkur.
Vantar sleða á söluskrá.
Hocboitu níiASAiA
□ □ ö
BILASALINN
VIDHVANNAVUU
5:24119/24170
menn. Nei, það má ekki horfa í
nauðsynlegan lífselexír þegar
peningar eru annars vegar, en
föt og annað prjál er allt annar
handleggur. Auðvitað getur
hver heilvita maður gengið í
sömu fötunum árum saman.
Lítið bara á mig.
Hvað minn gamla vin, Kim
Larsen, varðar þá er það
sorgleg staðreynd að ekki þýðir
að bjóða Akureyringum upp á
skemmtikrafta af neinu tagi.
Spyrjið bara Laufdalinn.
Akureyringar eru svo tregir og
nískir að þeir glápa frekar á
hundfúlt Sjónvarpið en að
skreppa í Sjallann og skemmta
sér ærlega. Þess vegna þýðir
ekkert að fá Kim Larsen
norður, mér og félögum mínum
af eldri kynslóðinni til mikillar
armæðu. Það verður því ekkert
af upprifjun á dönskum sælu-
stundum að sinni, nema ég vinni
í lottófimmþrjátíuogátta-
leikandiléttmeðbónus eða í
lukkubílahappaferða-
fjarkatríóinu.
Ég er í fýlu. Dóttir mín er
líka í fýlu. Þegar ég spurði hana
hvers vegna þá svaraði hún:
„Þú áttir ekki að skamma mig.“
„Ha, skamma þig, hvenær gerði
ég það?“ hváði ég sljór. „Á jól-
unum þegar ég ætlaði að taka
upp stóra pakkann,“ ansaði sú
stutta, hvessti augnaráðið enn
Hallfreður
Örgumleiðason:
, yw;
; ■ , ; :
fp!
11 j
'! \
f í
Ef Hallfreður hefði hvorki reykt né drukkið um ævina, þá ætti hann 4ra herbergja íbúð með sána.
og framlengdi stútinn á munnin-
um. Ég skil bara ekki hvaðan
barnið hefur þessa langrækni,
hugsaði ég með mér og leit á
konuna sem söng og trallaði. Sú
þóttist vera í góðu skapi. Ég var
fljótur að breyta því.
„Æ, hættu þessu endemis
útburðarvæli. Sérðu hvað sífellt
nöldrið í þér og tilgangslaus
óhljóðin hafa gert dóttur okkar.
Hún er orðin langrækin og
leiðinleg eins og þú og öll þín
ætt, allir þínir vinnufélagar,
gamlir skólafélagar og annað
hyski,“ hreytti ég út úr mér og
fann sæluhroll hríslast um mig
er ég sá uppsveigð munnvik
konunnar detta niður í blý-
þunga skeifu. Hún gat ekki einu
sinni svarað fyrir sig.
Þar með vorum við öll komin
í fýlu, enda er það bjargföst trú
mín að fjölskyldan eigi að
standa saman á erfiðleikatím-
um. Eitt skal yfir alla ganga og
allir verða að finna til sam-
kenndar með öðrum, sérstak-
lega mér. Nei, ég er sko ekki
langrækinn að eðlisfari, en ef
einhver hundur er í hinum
fjölskyldumeðlimunum þá verð
ég auðvitað að gelta með.
Fasteignatorgið
Geislagötu 12, Sími: 21967
Sölustjóri Björn Kristjánsson, heimasími: 21776
Opið frá
kl. 13-19
F.F. Félag
Fasteignasala
Til sölu nokkur einbýlishús við Bakkasíðu, úr timbri
Verð fyrir alla
Fullbúin með teppum og innréttingum, lóð grófjöfnuð.
Mögulegt er að taka minni íbúðir upp í kaupverð.
Þá er miðað við fullbúið hús.
135 fm ásamt 32 fm bílskúr. Verð 7.000.000,00.
128 fm ásamt 34,40 fm bílskúr. Verð 6.783.230,00.
119 fm ásamt 28 fm bílskúr. Verð 6.287.923,00.
109 fm ásamt 28 fm bílskúr. Verð 5.861.053,24.
Verktaki er
Aðalgeir
Finnsson hf.
Grenílundur: Glæsilegt par-
hús ca. 289 fm á tveim
hæðum. Innbyggður bíl-
skúr. Möguleiki að hafa 2ja
herb. íbúð á n.h.
Hamragerði: Einbýlishús á
besta stað í bænum 300
fm með tvöföldum bílskúr.
Furulundur: 3ja herbergja
raðhús á e.h. ca. 77 fm.
Falleg eign.
Seljahlíð: 4ra herbergja
endaraðhús. Mjög falleg
eign.
Kjalarsíða: 2ja herbergja
íbúð á 1. hæð í svalablokk.
Laus fljótlega.
Til sölu framleiðslufyrirtæki
í matvælagerð á Reykja-
víkursvæðinu í fullum
rekstri. Góð viðskiptasam-
bönd. Möguleiki að taka
íbúð í skiptum.
Upplýsingar á skrifstof-
unni.