Dagur - 29.10.1988, Qupperneq 3
29, pKtóþpr 1938 -DAQyfl -a
Hörður Kristinsson, forstöðuinaður Náttúrufræðistofnunar Norðurlands, er hér í sýningarsalnum, sein gestir fá
ókeypis aðgang að á morgun. Einnig verður önnur starfsemi stofnunarinnar kynnt.
se
Alþingi
ÍSLENDINGA
Skrifstofa Alþingis
óskar aö ráöa starfsmann til aö annast
reikningshald og hafa umsjón meö starfs-
mannamálum skrifstofunnar. Háskóla-
menntun æskileg. Framtíöarstaöa.
Umsóknir sendist til skrifstofu Alþingis fyrir 1.
nóvember n.k.
Náttúrufræðistofnun Norðurlands:
Starfsemm kynnt á
norrænu tækníárí
Nyjar
Bœkurnar sem beðið er eftir
Náttúrufræðistofnun Norður-
lands er með opið hús á
morgun, sunnudag, í tilefni af
norrænu tækniári. Starfsfólk
stofnunarinnar vcrður á staðn-
um til að kynna starfsemi
hennar, ýmsir gripir úr geymslu-
söfnun verða til sýnis og
aðgangur að sýningarsalnum á
neðstu hæð er ókeypis. Hér
verður í stuttu máli farið yfir
starfsemi stofnunarinnar.
Náttúrufræðistofnun Norður-
lands er rannsóknastofnun í nátt-
úrufræði með áherslu á grasa-
fræði. Innan grasafræðinnar hef-
ur stofnunin sérhæft sig í íslensk-
um háplöntunj, fléttum og
sveppum. Jarðfræðingur er starf-
andi við stofnunina, með sérhæf-
ingu í kvarterjarðfræði (setlög-
um). Auk rannsóknastarfsemi
sér stofnunin um rekstur Lysti-
garðs Akureyrar, sem jöfnum
höndum er skrúðgarður og grasa-
garður opinn almenningi, og
einnig rekur stofnunin sýningar-
sal í náttúrufræði og er hann
opinn almenningi.
Þá tekur Náttúrufræðistofnun
Norðurlands að sér útseld rann-
sóknaverkefni og þjónustu fyrir
ýmsa aðila eftir því sem aðstæður
leyfa. Einnig veitir hún ýmsa
fyrirgreiðslu og upplýsingaþjón-
ustu í náttúrufræði til almenn-
ings, án endurgjalds.
Fjórir menn eru í fullu starfi
við stofnunina: Björgvin Stein-
dórsson garðyrkjufræðingur,
Elín Gunnlaugsdóttir grasa-
fræðingur, Halldór G. Pétursson
jarðfræðingur og Hörður Krist-
insson grasafræðingur, en hann
er jafnframt forstöðumaður
stofnunarinnar. Að auki vinnur
Helgi Hallgrímsson líffræðingur í
hlutastarfi við rannsóknir á
íslenskum sveppum og Dómhild-
ur Sigurðardóttir sér um vörslu
sýningarsalar á sumrin. Þá er
ótalið sumarstarfsfólk við Lysti-
garðinn.
Rannsóknaverkefni
Af grunnrannsóknum má nefna
að unnið er að því að kortleggja
útbreiðslu allra blómplantna og
byrkninga á íslandi á grundvelli
10x10 km reitkerfis. Verkefnið er
á lokastigi. Unnið er að rann-
sóknum á íslenskum gróðursam-
félögum. Það verkefni er á byrj-
unarstigi og hefur enn sem komið
er aðeins verið unnið í lögsagn-
arumdæmi Akureyrar og í Eyja-
firði.
Rannsóknir á fléttuflóru
íslands hafa staðið lengi og bæt-
ast sífellt við gögn í hana. Mark-
miðið er að greina allar tegundir
á landinu, sem munu vera um 500
talsins, og kortleggja útbreiðslu
þeirra á sama hátt og blóm:
plantnanna.
Rannsóknir á íslenskum
sveppum hafa staðið lengur en
nokkur önnur verkefni, enda
mjög viðamikið og erfitt verk.
Þær eru unnar í samvinnu við
erlenda sérfræðinga. Trúlega
verður ekki langt þar til heildar-
listi yfir íslenska sveppi lítur
dagsins ljós. Þar sem notkun
villtra sveppa til manneldis hefur
aukist mjög hérlendis er mjög
áríðandi að afla sem bestrar vitn-
eskju um íslenskar tegundir og
geta leiðbeint um greiningu
þeirra.
Grunnrannsóknir í jarðfræði
eru enn í mótun, enda skammt
um liðið síðan jarðfræðingur var
ráðinn við Náttúrufræðistofnun
Norðurlands. Fyrirhugað er að
kortleggja útbreiðslu jökla á
Norðurlandi eins og hún var und-
ir lok síðasta jökulskeiðs.
Þá má nefna útseld rannsókna-
verkefni, en umfang og verksvið
þeirra ákvarðast af sérhæfingu
þess starfsliðs sem stofnunin
hefur, svo og þeirri aðstöðu sem
það hefur.
Lystigarður og
sýningarsalur
Lystigarður Akureyrar er rekinn
sem skrúðgarður og grasagarður
opinn almenningi. Þar eru rækt-
aðar og hafðar til sýnis 2-3.000
tegundir jurta, runna og trjáa
víðs vegar úr heiminum. Lögð
er áhersla á að sýna sem mest af
íslenskum blómplöntum og byrkn-
ingum auk erlendu tegundanna.
Árlega er safnað fræi af þeim
tegundum sem vel þroskast og
frælistar sendir til grasagarða og
rannsóknastofnana víða um
heim. Um 150 erlendar fræpant-
anir eru að jafnaði afgreiddar á
áxi og jafnframt pantað fræ af er-
lendum plöntum til að prófa hér
frá álíka mörgum grasagörðum.
Lystigarðurinn er mikið sóttur
af ferðamönnum yfir sumartím-
ann og munu flestir erlendir
ferðamenn sem koma til Akur-
eyrar hafa þar viðkomu, en engar
tölur eru hins vegar til um fjölda
gesta.
Sýningarsalur Náttúrufræði-
stofnunar er opinn almenningi
daglega á sumrin en á sunnudög-
um yfir vetrarmánuðina. Þar eru
til sýnis allir íslenskir varpfuglar
auk margra annarra fugla sem
hingað koma sem fargestir. Tölu-
vert er til sýnis af fjöru- og sjáv-
ardýrum og flestar skeljar og
kuðungar sem hér eru algengar.
Möppur liggja frammi með flest-
um íslenskum blómplöntum og
byrkningum og nokkuð er af
þörungum, sveppum, fléttum og
mosum í römmum og sýning-
arborðum. Þá eru til sýnis íslensk
skordýr og einnig sýnishorn af
erlendum og íslenskum steinum
og bergtegundum. Allt eru þetta
fastar sýningar, sem búa við
þröngan húsakost, en rými vant-
ar til að koma upp skiptisýning-
um og sérsýningum. Um 3.500
gestir hafa heimsótt sýningarsal-
inn á þessu ári, að stærstum hluta
ferðamenn sem koma yfir sumar-
mánuðina. Þetta er meiri aðsókn
en verið hefur áður.
Náttúrufræðistofnun Norður-
lands er einnig gagnamiðstöð og
þar er rekin upplýsingaþjónusta.
Þar má nefna plöntusafn, dýra-
safn, steina og bergtegundir,
bókasafn, örnefnaskrá, landa-
kort, loftmyndir og ljósmyndir.
Þá stendur stofnunin fyrir útgáfu-
starfsemi og gefur út ritraðirnar
Acta Botanica Islandica, Fjölrit
Náttúrugripasafnsins á Akureyri
og Ársskýrslu.
Loks má nefna að stofnunin
veitir svör við náttúrufræðilegum
fyrirspurnum og er nú mikið verk
fyrir höndum að skipuleggja og
tölvuvæða þau gögn, sem stofn-
unin geymir, svo að slíkar upp-
lýsingar séu ávallt fljótfundnar.
SS
í frumskóginum
Síðasta bónin
Fast í bókabúöum og
blaösölum um allt land
SNORRAHUS
Strandgötu 31 • Akureyri Sími 96-24222
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1983-2. fl. 01.11.88-01.05.89 kr. 339,34
1984-3. fl. 12.11.88-12.05.89 kr. 329,54
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, október 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS