Dagur - 29.10.1988, Side 7
29. október 1988 - DAGUR - 7
„Ég sagði að hundurinn væri með flær og hún sagði mig Ijúga og fór heim í fússi og hefur ekki yrt á mig síðan.“
- pistill frá Bandaríkjunum
Vinkona mín á hund. Hrikalega
stóran og vöðvamikinn og kjaft-
urinn á við Jaws og augun eins og
rýtingar. Hann er andstæða
flagðsins undir fagra skinninu því
hann er forljótur og sauðmein-
laus, en þar sem vinkonan hefur
sumt sem aðrir hafa ekki þá er
hundurinn með flær.
Svo kom helgi og vinkonan til
mín og sagði að hún bara yrði að
skreppa og spurði hvort ég gæti
passað hundinn á meðan og það
var nú sjálfsagt. Hún skyldi bara
koma með dýrið. Enda er hún
falleg, vinkonan.
Hún kom með hundinn og
hann settist á gólfið og klóraði
sér óskaplega og stanslaust þar til
vinkonan kom aftur og ég sagði
að hundurinn væri með flær og
hún sagði mig ljúga og fór heim í
fússi og hefur ekki yrt á mig
síðan.
En ég sat heima eitt kvöld við
annan mann; við sötruðum bjór
og vorum á stuttbuxum, enda
gerist þetta í landi þar sem er
hlýtt og þar sem bjór er seldur í
matvöruverslunum. Nú, ég sat
þarna og klóraði mér á öðrum
ökklanum, svo á hinum, á lærinu,
aftur á ökklanum, og svo hopp-
aði eitthvað svart og pínulítið
upp á hné mér og beit mig. Ég
varð vondur og skellti lófanum á
lærið og meiddi mig og þetta litla
svarta hoppaði niður og beit mig
í ökklann.
- Hvernig?
- Kauptu sprey.
Ég fór í súpermarkað sem er eins
og sex Hagkaup á einni hæð og
fann sprey sem lofaði mér útrým-
ingu allra flóa á mínu heimili og
ef ekki þá skyldu framleiðendur
endurgreiða mér kostnaðinn við
kaupin að undanskildu póstgjaldi
og var það hærra en kaupverðið
og með það fór ég heim og
spreyjaði íbúðina alla. Lyktin var
svo hroðaleg að ég nánast kafn-
aði og því flúði ég og fór í apótek
og keypti meira smyrsl og kom
ekki heim allan daginn.
Um kvöldið kom ég heim og
fann dauða á gólfinu kakkalakka
í stórum hrúgum og ýmsar aðrar
tegundir af torkennilegum pödd-
um en enga sá ég flóna, enda fór
það svo að þegar ég hafði mokað
út líkunum og sest niður að ein
stökk upp á hné mér og beit mig.
Ég brjálaðist, æddi út í súper-
markað og fjárfesti í fimm mis-
munandi tegundum af flóaeyði í
spreyformi, fékk lánaða gas-
grímu hjá hernum, fór heim; ég
kláraði úr öllum brúsunum á
íbúðina og svaf hjá kunningja um
nóttina.
Daginn eftir sneri ég heim og
eftir að hafa uppgötvað fjölmarg-
ar nýjar tegundir af pöddum og
skorkvikindum í útrýmingarstöð-
inni íbúðinni minni og mokað
þeim öllum út settist ég niður og
sat grafkyrr og beið eftir flónni
sem ætlaði að bíta mig og ég beið
í tvo tíma en engin kom flóin.
Pað var ekki fyrr en ég fékk
heimsókn seinna um daginn að
flóin, þessi síðasta, stökk upp á
hné mér og beit mig. Svo drapst
hún.
Síðan hef ég ekki passað hund-
inn vinkonu minnar.
Jens Kristjánsson,
Bandaríkjunum.
- Hvað er þetta, sagði ég.
- Þetta er fló, sagði gesturinn.
Með það sama þaut flóin upp á
hnéð á mér og beit mig og ég náði
henni og muldi hana milli fingr-
anna. Ég var hróðugur og hugðist
líta líkið augum þegar kvikindið
stökk í burtu og beit gestinn í
ökklann.
- Pað er erfitt að drepa flær,
sagði gesturinn og klóraði sér.
- Jæja, sagði ég.
Seinna um kvöldið fór ég að
sofa og vaknaði um miðja nótt til
að klóra mér og var að því fram á
morgun og þá voru leggirnir og
lappirnar opin sár með húðsnepla
inn á milli og þar sem húðin var
klæjaði mig og þar sem hún var
ekki sveið mig.
Ég fór í apótek og keypti
smyrsl og bar á og leið betur og
fann síma og hringdi.
- Heyrðu, sagði ég, - það eru
flær í húsinu mínu.
- Dreptu þær.
Þessi hundur er greinilega vænsta skinn og það var hundur vinkonunnar
cinnig. Hann var andstæða flagðsins undir fagra skinninu.
Ekki flóarfriður
Sjómenn athugið!
Ávallt til línuefni og ábót.
Setjum upp línu.
Ennfremur flestar aðrar útgerðarvörur
SANDFELL HF
v/Laufásgötu • Akureyri • s. 26120
Kiwanis-
félagar
bæði núverandi og fyrrverandi.
20 ára afmælishátið
Kaldbaks, verður haldin að Jaðri þann
5. nóvember '88, kl. 19.00.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 28. okt. hjá
Eiríki í síma 24411 eða Þorsteini í síma 22337.
Hjúkrunar-
fræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu-
gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
í Ólafsvík.
2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
í Hólmavík.
3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
á Þórshöfn.
4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina
á Selfossi.
5. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
í Neskaupstað, Norðfirði.
6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík.
7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðv-
arnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
25. október 1988.
{MS
xmc Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa á sjúkra- og ellideild
Hornbrekku í Ólafsfirði.
Umsóknir sendist forstöðumanni Hornbrekku fyrir
10. nóv. n.k. Forstöðumaður veitir jafnframt allar
nánari upplýsingar í síma 96-62480.
Stjórn Hornbrekku, Ólafsfirði.
frv-,| FJÓRÐUNGSSJÚKRAHUSIÐ
lOCl Á AKUREYRI
Óskum að ráða
læknaritara
í fullt starf á Handlækningadeild sem fyrst.
Upplýsingar veitir Sigurunn Agnarsdóttir, lækna-
fulltrúi.
Umsóknir sendist skrifstofustjóra F.S.A. Vigni
Sveinssyni fyrir 5. nóvember n.k.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, s. 96-22100.