Dagur - 29.10.1988, Síða 11
29. október 1988 - DAGUR - 11
Freestyle í SjaUanum
Keppni í frjálsri hárgreiðslu
eða freestyle, var haldin í Sjall-
anum laugardagskvöldið 22.
október sl. á vegum tímaritsins
Hár og fegurð. Þátttakendur
voru 19 talsins frá Akureyri,
Húsavík, Skagaströnd og
Reykjavík.
Keppt var í tveimur flokkum,
hárskurði og hárgreiðslu. Sigur-
vegarar í hárskurði urðu þessir. I
fyrsta sæti var Soffía Jónsdóttir
Rakarastofunni Kaupangi, þá
Særún Jónsdóttir Skagaströnd,
Auður Hinriksdóttir Hársnyrti-
stofunni Passion, Hulda Haf-
steinsdóttir Rakarastofu Haf-
steins og Jóhanna Kristinsdóttir
Rakarastofunni Kaupangi.
í hárgreiðslu sigraði Kristín
Sigvaldadóttir Hártískunni
Kaupangi, þá kom Erna Arnars-
dóttir sömu stofu, Ágústa Ólafs-
dóttir Hárgreiðslustofunni
Sigurmódel Soffíu var Jón B.
Þorsteinsson, ógnvænlegur ekki satt'
Hárfín, Þórunn Árnadóttir Hár-
greiðslustofu Steinunnar og
Gunnlaugur Stefánsson Hártísk-
unni Kaupangi.
Fjöldi áhorfenda fylgdist með
keppninni sem var jöfn og spenn-
andi, þó að þær sem lentu í fyrsta
sæti í hvorum flokki hafi sigrað
með yfirburðum. VG
Sigurvegarar í hvorum flokki, t.v. Soffla Jónsdóttir hárskurði og Kristín Sig-
valdadóttir hárgreiðslu.
Og hér er sigurmódel Kristínar, Hrafnhildur Theodórsdóttir.
Hárgreiðslukona þessarar dulúðlegu stúlku er Erna Arnarsdóttir og lenti
hún í öðru sæti.
\
Beingisnun hefst venjulega um
miðjan aldur. Beinin gisna innan
frá og styrkurþeirra minnkar. Þess
vegna eykst hætta á beinbrotum
og að hryggjarliðir falli saman.
Próteinið í mjólk
hágæðaprótein og nýtist því
vel í stöðuga endurnýjun og
uppbyggingu líkamans.
Eldur í
æðum?
Þegar aldurinn fserist yfir er mikilvægt aö
muna, aö lífsfjörið og heilsan eru háö réttri
næringu.
Rétt næring leggur grunn aö góða skapinu og
ásamt hreyfingu hamlar hún gegn beingisnun
og hrörnun og blóðið rennur mun léttar
um æðarnar.
MJÓLK er mikilvægur hlekkur í fæðuhringn-
um. Hún er einn fjölhæfasti bætiefnagjafi sem
völ er á. Erfitt er að fullnægja kalkþörf líkamans
án mjólkur eða mjólkurvara.
Auðvelt er að velja mjólk og mjólkurvörur með
mismunandi fitumagni eftir þörfum hvers og
eins en ráðlagður dagsskammtur fyrir fólk yfir
50 ára aldri samsvarar 2 glösum af mjólk á dag*.
'Margir telja aö kalkþörf aldraðra sé meiri, eða sem samsvarar 3 glösum á dag.