Dagur - 29.10.1988, Síða 13
29. október 1988 - DAGUR - 13
jbornosíðon
wj Umsjón: Stefán Sæmundsson.
Tröllasögur
frá Grenivík
Nemendur í Grenivíkurskóla gáfu út
Kvöldblað Höfðahverfis og Grenivík-
ur í tengslum við listaviku sem end-
aði með Listahátíð um síðustu helgi.
Við skulum líta á nokkrar sögur úr
þessu skemmtilega blaði. Fyrst er
hér Þjóðsaga eftir Sveinlaugu í 4.
bekk:
„Einu sinni var maður sem hét
Halldór. Hann ætlaði að fara að
grafa holu í hól, sem er hérna í nesi,
en þá heyrir hann rödd, sem segir:
Ef þú grefur í hólinn, kviknar bæði í
Grenivíkurkirkju og Laufáskirkju.
Maðurinn hætti við að grafa.“
Þá er í blaðinu saga sem heitir
Sláturtíð. Höfundur er Anna Birna í
4. bekk:
„Það var einu sinni lítil skessa,
sem á heima uppi á Höfðanum.
Skessan var alltaf að syngja
„mamma tekur slátur, mamma gerir
það.“ Þá sagði mamma skessunnar:
Ef þú hættir ekki að syngja þá tek ég
ekkert slátur."
Loks koma hér þrjú sögubrot eftir
Rósu í 3. bekk:
„Einu sinni var tröll. Það átti heima
uppi í Grenivíkurfjalli. Það fór alltaf
við hliðina á kirkjunni þegar Björg
var að syngja. Á jólunum fór tröllið í
mat til Siggu Sverris."
„Tröllið söng alltaf fyrir Bödda.
Böddi blístraði oft með og þeir prjón-
uðu sokka saman. Tröllið fór í bað til
Guggu kennara."
„Tröllið prjónaði sokka á Hóbbu.
Um morguninn missti Þórður tönn.
Tröllið límdi tönnina í munninn og
setti varasalfa á Þórð."
Stutt sióferð
- Pabbi, hvenær má ég koma með
á sjóinn, spurði Eggert pabba sinn
um hverja helgi. Pabbi hans átti trillu
og fór gjarnan út á sjó um helgar til
að veiða fisk í matinn. Eggert hafði
aldrei fengið að koma með.
- Þegar veðrið er betra þá máttu
koma með, sagði pabbi gjarnan.
Eða: - Þegar þú ert orðinn fjögurra
ára. Litlir strákar geta bara dottið í
sjóinn.
Nú var Eggert orðinn fjögurra ára
og þá sagði pabbi: - Þegar þú ert
orðinn fimm ára, þá máttu koma
með mér á sjóinn. Þetta fannst
Eggert ákaflega leiðinlegt og hann
hélt áfram að suða í pabba sínum.
- Pabbi, hvað er fyrir neðan
sjóinn? Pabbi, fara fiskarnir nokkuð
upp til guðs þegar þú ert búinn að
veiða þá? Pabbi, af hverju borða
fiskarnir önglana?
Þannig helltust spurningarnar yfir
pabba þangað til hann varð þreyttur
á suðinu og ætlaði að fara að brýna
raustina. Þá datt honum í hug hvort
ekki væri rétt að leyfa stráknum að
koma með á sjóinn. Eggert var nú
hraustur, fjögurra ára strákur og
hann hefði bara gott af því að
skreppa á veiðar.
Næsta laugardag var ágætis veð-
■ S Æ0i-
f 3H.*! á. '
Þótt litirnir komi ekki fram þá eru þetta rauður bíll og blá ský, sem Sigurjón Þór Vignisson, 6
ára, Litluhiíð 2f á Akureyri teiknaði.
Aa
Y Y l /i
k/yM
A / \ / r /
r X / V #
!
Katrín Bessadóttir, 7 ára, Einholti 4c á Akureyri, teiknaði þessa mynd af henni Evu.
ur og pabbi vakti Eggert snemma
um morguninn. - Á fætur með þig
svefnpurrka. Við erum að fara á
sjóinn, sagði pabbi og ýtti við syni
sínum.
- Jibbí! Eggert spratt æpandi á
fætur og flýtti sér svo að klæða sig
að hann sneri Mikka mús peysunni
öfugt og fór í buxurnar úthverfar.
Mamma hans var að útbúa nesti og
benti honum á að snúa fötunum rétt
og klæða sig í síðbrók, lopapeysu
og regngalla. Feðgarnir lögðu nú af
stað niður að höfn.
Trillan hans pabba vaggaði mjúk-
lega þar sem hún var bundin við
bryggjuna. Pabbi bað Eggert að
bíða í hæfilegri fjarlægð meðan
hann væri að draga trilluna að
bryggjunni.
- Nei, nei, þú getur dottið í sjóinn,
æpti pabbi taugaveiklaður þegar
Eggert mjakaði sér nær. Eggert rak
upp vein, því honum brá við ópin í
pabba, en þá brá pabba svo mikið
að hann stakkst á bólakaf í sjóinn.
Hann komst þó fljótt upp á bryggjuna
aftur og steinþegjandi fór hann með
Eggert heim.
- Hva, þetta var stutt sjóferð,
sagði mamma þegar hún sá feðg-
ana koma, Eggert brosandi en
pabba hundrennandi og skömm-
ustulegan.
Þessa dýralífsmynd teiknaði Þórdís Ásta Thorarensen, 5 ára stúlka á Akureyri.
Brandarar
- Jæja, hvernig svafstu í nótt?
- Minnstu ekki á það. Ég hef
ekki lokað auga í alla nótt.
- Nú, þá er ekki von að þú hafir
sofið. Maður verður nefnilega að
loka augunum til þess að sofna.
Hvað hefur Grenvíkingur sem
gengur með rúgbrauð undir
handleggnum í rigningu regnhlíf-
arlaus?
Blautt rúgbrauð!
(Úr Kvöldblaði HG)
Andrés hafði fengiö sér nýjan bíl.
Hann gleymdi sér alveg og ók
fullgreitt. Um síðir var hann
stöðvaður af lögreglunni.
- Þú ekur á 100 km hraða á
klukkustund, sagði lögreglu-
þjónninn byrstur.
- Já, þetta grunaði mig alltaf,
sagði Andrés. - Ég vissi að það
værí ekki hægt að treysta hraða-
mælinum.
Læknirinn: - Þessar svefntöflur
endast þér í sex vikur.
Sjúklingurinn: - Hamingjan
góða! Eg hef ekki tíma til að sofa
svo lengi.
Einu sinni var gamli Jón að koma
úteftir. Þá sá hann tjald á vegin-
um. Nú, hann stoppaði bílinn og
ætlaði út að athuga þetta nánar.
Þá flaug tjaldurinn í burtu!
(Úr Kvöldblaði HG)
Vitið þið af hverju það er svona
hreint loftið á Grenivík?
Af því að Grenvíkingar sofa alltaf
með lokaða glugga.
(Úr Kvöldblaði HG)
Frímann; - Eggið mitt er ískalt.
Ásgeir: - Mitt líka. Ég skil þetta
ekki.
Frímann: - Kannski mamma hafi
soðíð eggin í köldu vatni.