Dagur - 19.11.1988, Page 2

Dagur - 19.11.1988, Page 2
£• 2 — J ffc u £3 ?' ‘j ** •*!mjM r3 !•*• DAGUR - 19. nóvember 1988 Blessuð bamatrúin Góðan daginn æruverðugu les- endur. Eftir reiðilestur minn í síðasta pistli um græðgi manna og ásókn í veraldleg gæði ætla ég að venda kvæði mínu í kross og snúa mér að andlegu hliðinni. Sjálfsagt bregður- ykkur í brún, enda hefur lítið farið fyrir guðsótta og góðum siðum í greinum mínum. Nú líður að jólum og þá er tilvalið að iðrast og leita eftir sálarró, skreppa í kirkju og blaða í helgri bók. Sennilega trúa því fæstir þegar ég, durgurinn og dusilmennið Hallfreður Þór Örgumleiðason, segi að ég sé allra manna iðnastur við kirkjusókn. Vantrú ykkar er ofur skiljanleg, en á þessu eru einfaldar skýringar. Sunnudagaskóli, barnamessur og ámóta fyrirbæri eru mjög í tísku um þessar mundir og það hlaut að koma að því að dóttir mín smitaðist af þessum áhuga. „Pabbi, mig langar að fara í sunnudagaskóla," sagði sú stutta einn daginn. Mér svelgdist á kaffinu og sígarett- unni og ótal minningar þutu í gegnum sálartetrið. Mig rám- aði meira að segja í það að með skírninni var kveðið á um að barnið ætti að hijóta kristi- legt uppeldi. Æ, maður er nú ekki fullkominn. Eitthvað hlýtur að gleymast í uppeldinu hjá öllum foreldrum. Ég muldraði vandræðalegt svar til handa dóttur minni, rauk út og keypti Jesúbækur og kristilegar snældur, sem leystu Einar Áskel og Dýrin í Hálsaskógi af hólnti. „Nú er ég klæddur og kominn á ról ...“ sönglaði ég fyrir hana þegar hún var komin í háttinn og næsta sunnudag fórum við til kirkju. Guðhræddar æsku- minningar rifjuðust upp þegar krakkaskarinn í kirkjunni söng og trallaði: „Jesús er besti vin- ur barnanna.“ Presturinn sagði Góði Guð. Mig langar svo ofboðslega mikið í stórt og safaríkt kjötbein Væri nokkuð til of mikils mælst . . . -I heilsupósturinn í7ilmsjón: Sigurður Gestsson og Einar Guðmann l Hallfreður Örgumleiðason: sögur og fékk góða gesti í lið með sér, meira að segja mann sem reyndi að beina mér á betri brautir fyrir áratugum. Svei mér þá ef ég kannaðist ekki við þetta flest. Næstu daga urðu miklar breyt- ingar á lagavali og lestrarefni dóttur minnar og spurningarn- ar dundu á mér. „Pabbi, af hverju krossfestu mennirnir Jesúm?“ Ja ... „Pabbi, er Jesús ósýnilegur?" Tja ... „Pabbi, ég ætla að biðja Guð um að gefa dúkkunni minni nýtt auga og líka hár. Henni finnst ekki gaman að vera alltaf sköllótt. Guð getur allt.“ Gegn slíkum vangaveltum stendur maður ráðþrota. Biessuð barnatrúin er svo einlæg að maður getur varla annað en hrifist með. Ég var t.a.m. farinn að velta því fyrir mér hvort það væri frekja að biðja Guð um 3ja herbergja íbúð, helst með bílskúr. Ég hafði orð á þessu við kon- una mína og þá sagðist hún heldur vilja 4ra herbergja íbúð! Um síðir varð henni ljóst hvað hún hafði í rauninni látið sér um munn fara og hreytti þá út úr sér: „Hvað í ósköpunum ertu að pæla Hallfreður? Þér væri nær að fá þér almennilega vinnu í stað þess að heimta að fá hlutina á silfurfati. Þú vilt kannski fá nýjan bíl í jóla- gjöf?“ Rjóð af skömm sökkti hún sér niður í ástarsöguna á nýjan leik, þar sem saklausa stúlkan fékk að lokum eigin- mann, íbúð og bíl og sjálfa hamingjuna á silfurfati. Ég verð að segja að það er mér ánægjuefni að Kristur skuli enn vera samkeppnisfær við He-man og teiknimyndir Stöðvar 2. Ofbeldið ræður ríkjum í afþreyingarefni barna og því er full þörf fyrir ofurlít- inn kærleika til að vega upp á móti þessari þróun. Að vísu er saga kristniboðsins blóði drifin, en þá sögu má ritskoða og matreiða fyrir börnin í við- eigandi skömmtum. Þau geta sjálf myndað sér skoðanir á þessum málum þegar þau hafa aldur til en það er skylda okkar að veita börnunum kristilegt uppeldi. Jæja, ekki var meiningin að fara að stunda kristniboð, enda er ég ekki rétti maðurinn til þess. Eg held bara brauð- stritinu áfram og bíð ekki eftir kraftaverkum. Samt myndi ég ekki slá hendinni á móti 5 her- bergja íbúð með sána . . . Er ofiiæmi algengara en menn halda? Segjum sem svo að þú borðir ein- hverja fæðutegund t.d. korn, og fljótlega eftir það byrji að renna úr nefinu á þér, augun þrútna og þú verður syfjaður. Og það sem meira er, að þú verður var við þetta í hvert sinn sem þú borðar þessa tilteknu fæðutegund. Það sem þarna er á ferðinni er þá að öllum líkindum það sem kallast ofnæmisviðbrögð. Það er ekki hlaupið að því að komast að því hvaða fæðutegund það er sem haft er ofnæmi fyrir. Það er vegna þess að algengar fæðutegundir eru oft aðal of- næmisvaldarnir, svo sem hveiti, sjávarafurðir, hnetur, tómatar, ber, ger, ýmsir ávextir, jafnt sem mjólkurafurðir, egg, súkkulaði og sósur. Slæm viðbrögð eftir neyslu þessara og fleiri tegunda þurfa þó ekki að vera tilkomin vegna þess að það sé eitthvað að fæðutegundunum. Það þarf ekki einu sinni að þýða að þú ættir að sleppa þeim. Þau viðbrögð sem menn verða fyrir þurfa alls ekki að vera ofnæmisviðbrögð. Raun- veruleg ofnæmisviðbrögð eru vegna viðbragða ónæmiskerfis líkamans, en ónæmiskerfið er aðal vörn okkar gegn gerlum og bakteríum. Það á það hins vegar til að taka of mikið viðbragð við vissum efnum hjá sumum ein- staklingum. Það er það sem við köllum ofnæmi. Ofnæmisviðbrögð sökum fæðu koma yfirleitt í ljós innan við 30- 45 mínútur eftir máltíð. Ein- kennin eru oft kláði, munnurinn þrútnar eða húðin, heimæði, uppköst, höfuðverkur, niður- gangur, blöðrur, almenn þreyta og afbrigðileg hegðun. Ef þú verður var við ofnæmis- viðbrögð við einhverri fæðuteg- und er samt sem áður ekki víst að það sé einungis henni að kenna. Þá ber að hafa í huga að það geta verið einhver aukefni í fæðuteg- undinni sem þú gætir haft ofnæmi fyrir þótt tiltekið efni sé almennt viðurkennt sem hættulaust meg- inþorra almennings. Læknar nota margar aðferðir og tilraunir við leit að ofnæmis- valdandi fæðutegundum og eru þær jafn misjafnar og þær eru margar. Hugsanlega þá er samt sem áður ein besta aðferðin hið svokallaða útilokunar mataræði. Það er langdregin og jafnvel leiðinleg aðferð en hún virkar vel. Þá er skrifað niður allt sem borðað er og smátt og smátt bætt við fæðutegundum þannig að fljótlega kemur í ljós hvaða teg- und það er sem veldur ofnæminu og henni þá sleppt. Hins vegar er gott að gera sér grein fyrir því að hægt er að fá mjög væg ofnæmistilfelli. Þau geta lýst sér í vökvasöfnun sem kemur yfirleitt fyrst fram á and- liti. Það verður þrútnara en venjulega og augnpokar myndast. Einnig getur orðið vart við kláða einhvers staðar sem veldur nokkrum óþægindum. Það virðist vera sem ofnæmis- tilfellum fari alltaf fjölgandi. Fæðufjölbreytnin hefur aldrei verið meiri, og talið er að á með- an búið er við annað eins úrval af fæðutegundum verðum við að sætta okkur við að ofnæmi verði ávallt samhliða neyslu á óteljandi matartegundum. Það hefur kom- ið í ljós að fimmta hvert ofnæmis- tilfelli má rekja til litar og rot- varnarefna. Það er vitað mál að stór hluti hins almenna mataræðis getur verið ofnæmisvaldandi eða a.m.k. óþægindavaldur, og ef þú hefur orðið var við einhverja heilsubresti sem þig grunar að gætu verið af völdum einhverra matartegunda, þá er hið skyn- samlegasta sem þú getur gert að fara til læknis sem þekkingu hef- ur á þessum málum. Það gæti komið í veg fyrir óþægindi. Hægt er að komast hjá óþarfa óþægindum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.