Dagur - 19.11.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 19.11.1988, Blaðsíða 15
Í9. nóvember 1988 - DAGUR - 15 ri dagskrá fjölmiðla 20.30 Útvarp unga fólksins - Spaugið í til- verunni. Við hljóðnemann er Jón Atli Jónasson. 21.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi. 22.07 Rokk og nýbylgja. Skúli Helgason kynnir. 01.10 Vökulögin. Veðurfregnir kl. 1.00 og 4.30. Fréttir eru sagðar kl. 2, 4, 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Hljóðbylgjan FM 101,8 LAUGARDAGUR 19. nóvember 10.00 Kjartan Pálmarsson á laugardagsmorgni. 13.00 Axel Axelsson á léttum nótum á laugardegi. 15.00 Einar Brynjólfsson, íþróttir á laugardegi. 17.00 Bragi Guðmundsson kynnir vinsældalista Hljóðbylgjunnar. 19.00 Ókynnt kvöldmatartónlist á laugardegi. 20.00 Þráinn Brjánsson er ykkar maður á laugardagskvöldi. 24.00 Næturvakt Hljóðbylgjunnar. 04.00 Ókynnt tónlist til sunnudagsmorguns. SUNNUDAGUR 20. nóvember 10.00 Haukur Guðjónsson spilar sunnudagstónlist við allra hæfi fram að hádegi. 12.00 Ókynnt hádegistónlist á sunnudegi. 13.00 Einar Brynjólfsson spilar gullaldartónlist og læðir inn einu og einu nýmeti. 16.00 Þráinn Brjánsson á sunnudagssíðdegi. 19.00 Ókynnt sunnudagskvöldmatartón- list. 20.00 íslenskir tónar. 22.00 Harpa Benediktsdóttir á síðustu rödd sunnudagsins. 24.00 Dagskrárlok. MÁNUDAGUR 21. nóvember 07.00 Kjartan Pálmarsson á fyrri morgunvakt Hljóðbylgjunnar. 09.00 Pétur Guðjónsson þessi eini þarna. 12.00 Hádegistónlist. 13.00 Þráinn Brjánsson á dagvaktinni. f 17.00 Kjartan Pálmarsson verður ykkur innan handar á leið heim úr vinnu. 19.00 Ókynnt tónlist með kvöldmatnum. 20.00 Pétur Guðjónsson með Rokkbitann. 22.00 Þráinn Brjánsson lýkur dagskránni á mánudegi. 24.00 Dagskrárlok. LAUGARDAGUR 19. nóvember 10.00 Ryksugan á fullu. Fisléttur laugardagur með Jóni Axel Ólafssyni. Fréttir kl. 10 og 12. 14.00 Dýragarðurinn. Gunnlaugur Helgason ljónatemjari bregður fyrir sig betri stólnum og skemmtir hlustendum Stjömunnar. Fréttir kl. 16.00. 18.00 Ljúfur laugardagur. Besta tónlistin á öldum ljósvakans. 22.00 Næturvaktin. Stjömustuð fram eftir nóttu. Kveðjur og óskalög í síma 681900. 03.00-10.00 Næturstjörnur. Fyrir þá sem geta bara ekki hætt að hlusta. SUNNUDAGUR 20. nóvember 10.00 Líkamsrækt og næring. Jón Axel Ólafsson leikur létta og þægi- lega sunnudagstónlist. 14.00 ís með súkkulaði. Gunnlaugur Helgason kroppatemjari á sunnudagsrúntinum. 18.00 Útvarp ókeypis. Engin afnotagjöld, engin áskriftargjöld, aðeins góð og ókeypis síðdegistónlist. 21.00 Kvöldstjörnur. Vinsæll liður á sunnudegi, tónlist sem kemur öllum til að líða vel. 01.00-07.00 Næturstjörnur. Þægileg næturtónlist fyrir þá sem em ennþá vakandi. MÁNUDAGUR 21. nóvember 7.00 Egg og beikon. Óhollur en bragðgóður morgunþáttur Stjörnunnar. Fréttir kl. 8. 09.00 Níu til fimm. Lögin við vinnuna. Lítt trufluð af tali. Hádegisverðarpotturinn á Hard Rock Cafékl. 11.30. Fréttir klukkan 10, 12, 14 og 16. 17.00 ís og eldur. Hin hliðin á eldfjallaeyjunni. 18.00 Bæjarins besta kvöldtónlist. 21.00 í seinna lagi. Nýtt og gamalt í bland. Kokteill sem end- ist inn í draumalandið. 01.00-07.00 Næturstjörnur. Næturtónlist fyrir vaktavinnufólk, leigu- bílstjóra, bakara og þá sem vilja hreinlega ekki sofa. 08.00 Haraldur Gíslason á laugardagsmorgni. 12.00 Margrét Hrafnsdóttir á léttum laugardegi. 16.00 íslenski listinn. Bylgjan kynnir 40 vinsælustu lög vikunn- ar. 18.00 Meiri músík - minna mas. Bylgjan og tónlistin þín. 22.00 Kristófer Helgason á næturvakt Bylgjunnar. 03.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. SUNNUDAGUR 20. nóvember 09.00 Haraldur Gíslason á sunnudagsmorgni. 12.00 Margrét Hrafnsdóttir og sunnudagstónlistin. 16.00 Ólafur Már Björnsson. Hér er ljúfa tónlistin alls ráðandi. 21.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson. Sérvaiin tónlist fyrir svefninn. 02.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. MÁNUDAGUR 21. nóvember 08.00 Páll Þorsteinsson - þægilegt rabb í morgunsárið. Fréttir kl. 8 og Potturinn, þessi heiti kl. 9. 10.00 Anna Þorláks. Aðalfréttirnar kl. 12 og fréttayfirlit kl. 13. 14.00 Þorsteinn Ásgeirsson. Fréttir kl. 14 og 16 og Potturinn ómiss- andi kl. 15 og 17. 18.00 Fréttir á Bylgjunni. 18.10 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykjavík síðdegis. 19.05 Meiri músík - minna mas. Tónlistin þín á Bylgjunni. 22.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson og tónlist fyrir svefninn. 02.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Ijósvakarýni Sitt lítið af hverju og.. Ég verö að viðurkenna að í Ijósvaka hef ég lítið rýnt síðustu vikuna, en eitthvað hef ég hlustað. Það er Rás 2 sem hefur vinninginn þar, hún er jafnan á þegar þess er kostur og er nánast orðin fastur liður í tilverunni. Ekki á maður þess kost að hlusta á hljóðbylgjustjörnurótina, þannig að lítið er hægt að tala um þær. Jú, annars, eitt get ég minnst á. Ég sá það f blaði fyrir skömmu að haft var eftir forráðamönnum Hljóðbylgjunnar á Akur- eyri að útsendingar þeirra næðust allt frá Sauðárkróki austur til Egilsstaða. Þetta voru fréttir fyrir mig, en eins og flestir vita bý ég á Sauðárkróki. Við þessar fréttir fór ég að hamast á viðtæki mínu og sneri rásartakkanum fram og aftur, en ekkert gerðist, ég náði ekki Hljóðbylgj- unni. Þaö getur hins vegar vel verið að maður nái þessum sendingum með hátæknibúnaði og viðeigandi móttöku- búnaði á húsþakinu, hver veit? Dægurmálaútvarp Rásar 2 finnst mér hafa tekið miklum framförum að undan- förnu, það liggur við að það sé orðið ein aðal tenging landsbyggðarinnar við Davíðs borg og endurnar í tjörninni. Fólk hringir í hlustendaþjónustuna og kvartar sem aldrei fyrr, Ijósvíkingar dægurmála- útvarpsins fara af stað að leita svara og hringja í hina og þessa menn, sumir eru jafnvei svo kaldir að koma í „stúdíó" í beina. Stundum tekst að laga þá hnökra sem eru á hinni og þessari þjónustu sem kvartað er yfir, en oftast virðist hlust- endaþjónustan skilja lítið eftir sig þegar upp er staðið. Þrátt fyrir allt á Rás 2 heið- ur skilinn fyrir þessa þjónustu og á að halda henni áfram. Nú, jæja, hvað get ég minnst á fleira? Jú, það eru skötuhjúin Eva Ásrún og skólabróðir minn, Óskar Páll. Þau stjórna morgunþætti og miðdegisþætti á Rás 2 af mikilli röggsemi, þeir klikka nú ekki mikið úr Skagafirðinum. Sérstak- lega langar mig til að heyra fleiri sögur af Michael Jackson, sem Eva Ásrún las svo undurblítt um daginn, það lá við að maður felldi tár. Að lokum langar mig til að minnast á eitt „gott“ mismæli sem ég heyrði í vik- unni á Rás 2, er ég var á leiðinni í vinn- una. Verið var að lesa auglýsingar og ein var lesin af þulinum einhvern veginn svona: „Lottó, laukur að tölum!" Ekki orö um það meir, og verið þið sæl að sinni. Björn Jóhann Björnsson. Til sölu á Dalvík Blóma- og gjafavöruverslun í fullum rekstri. Upplýsingar í símum 96-61393, 61446 og 61625. Sauðfjárbændur athugið! Þeir sem áforma að leggja inn sauðfé í afurða- stöð á tímabilinu 20. nóv. til 31. maí nk. þurfa að tilkynna það Framleiðsluráði landbúnaðarins fyrir 20. þ.m. að höfðu samráði við afurðastöð. Þá þurfa sauðfjárbændur sem ætla að gera sam- komulag við afurðastöð um að nýta allt að 5% af full- virðisrétti næsta verðlagsár til innleggs á þessu verð- lagsári, að ganga frá því samkomulagi fyrir 20. þ.m. Framleiðsluráð landbúnaðarins. FRAMSÓKNARMENN |||l AKUREYRI Skrifstofa Framsóknarflokksins er að Hafnarstræti 90, Akureyri. Opin mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 16- 18. Sími 21180. Starfsmenn verða Kolbrún Þormóðsdóttir og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir. NÝJAR BÆKUR Fást í bóka- búðum og blaðsölum um allt land SNORRAHÚS Strandgötu 31 ■ Akureyri Sími 96-24222 Endurskinsmerki Dökkklæddur vegfarandi sést ekki fyrr en í 20 —30 m. fjarlægð frá lágljósum bifreiðar. oryggi umferðinni. en með endurskinsmerki sést hann í 120 —130 m. fjarlægð.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.