Dagur - 26.11.1988, Side 7

Dagur - 26.11.1988, Side 7
26. nóvember 1988 - DAGUR - 7 Hlustað á ítalskan leiðsögumann í þokunni uppi á Vesúvíusi. Sverrir Páll, annar kennaranna sem . . . og hinn kennarinn, Jónas fór með okkur . . . Helgason. í sólbaði við sundlaug annars hótelsins í Sorrento. Á góðri stundu . . . eða Bandaríkjamenn). Verslanir eins og Stefanel, Benetton og Coin standa þó fyllilega undir nafni á Ítalíu, þar eru ódýr föt miðað við gæði. Almennt eru föt- in ódýr. Maradonna 21.09. Síðdegis þennan dag var skipulögð ferð til bæjarins Avell- ino þar sem horfðum á fótbolta- leik milli Napólí og Secena. Maradonna spilaði með Napólí og skoraði eitt mark. - ítalirnir voru eins æstir á þessum leik og þeirra er von og vísa. Það var náttúrlega rigning á leiknum og ekkert voðalega margir en við skemmtum okkur ágætlega. Við sátum þarna í hóp fyrir aftan annað markið, í regnkápum með regnhlífar, étandi eitthvert snack. 22.09.-23.09. Nú var það sól- baðið sem gilti, enda tími til kominn að fá lit á kroppinn. Pompei og Vesúvíus 24.09.-25.09. Helmingur hópsins fór í skoðunarferð um Pompei og síðan upp í fjallið Vesúvíus ann- an daginn og lá svo í sólbaði hinn daginn og öfugt. Pompei er hin forna borg við rætur Vesúvíusar sem grófst und- ir ösku er fjallið gaus um 79 árum f. Krist. Borgin hefur í mörgu verið komin langt á þróunar- brautinni en það kom okkur á óvart hve uppfull af erotik (klámi) hún hefur verið. Vesúvíus hefur lengi gosið með 20-30 ára fresti en nú eru lið- in 44 ár síðan það gaus síðast, svo allir bíða spenntir eftir gosi. Það var svo mikið mistur þarna upp frá þegar seinni hópurinn fór að fólk sá lítið annað en veginn fram- an við sig þegar gengið var upp á fjallið. Það var aðeins nokkurra metra skyggni svo útsýnið var ekki upp á marga fiska og við sáum ekki einu sinni ofan í gíginn (bara að skoða Öskju þegar mað- ur kemur heim!). Þar sem ítalir eru með sölumennskuna í blóð- inu voru auðvitað tvær minja- gripasölur þarna upp frá og önn- ur þeirra meira að segja við gíg- barminn, - það fannst mörgum nú hámarkið. Amaltíströndin 26.09. Þennan dag var boðið upp á skoðunarferð um Amalfí- ströndina. Ströndinni svipar einna helst til Ólafsfjarðarmúla en er mun ægilegri en hann. Veg- urinn eftir henni er örmjór og líkt og skorinn inn í klettaströndina, en eftir honum fara margar ferðamannarútur daglega. Þarna eru heilu þorpin sem hanga utan í hlíðinni eins og mosagróður í klettabelti. Við skoðuðum m.a. einn dropasteinshelli en enduð- um svo á sandströnd við klettana sem var algjör draumaströnd. Þar spókaði fólk sig í nokkrar klukkustundir, fór í sólbað eða synti. 27.09. Dagskrá dagsins hljóð- aði upp á sólbað eða verslunar- leiðangur. Það er ágætt að versla í Sorrento en svo er líka auðvelt að skella sér til Napólí í lest til að versla. Við fórum einmitt í versl- unarleiðangur til Napólí fimm stelpur saman og lentum í því að taka leigubíl inni í borginni. Það var eftirminnilegt, annað verður ekki sagt, bílstjórinn keyrði eins og brjálæðingur, þannig að við vorum í hálfgerðu sjokki allan tímann. (Þetta sparaði okkur náttúrlega ferð í rússíbana í tívolí.) 28.09. Nú áttu þeir sem misstu af Amalfíferðinni þann 26. kost á ið komast í hana, en sú ferð vakti einna mesta hrifningu af öllum skoðunarferðunum. Þeir sem heima sátu fóru að sjálf- sögðu í sólbað - enda síðasti sól- baðsdagur ferðarinnar. Frá Róm til London 29.09. Við vöknuðum kl. 4.00 urn nóttina - þ.e. þeir sem fóru að sofa kvöldið áður. Eftir morgun- mat lögðu rúturnar af stað og við keyrðum til Rómar en allir vegir liggja til Rómar, ekki satt? Þar var beðið lon og don, fyrst á Campionflugvellinum svo á Leonardo da Vinci vellinum. Skömmu eftir hádegið fór vélin í loftið og flogið var til London. 30.09.-02.10. Það var gott að koma til London og skilja inn- fædda, það var næstum því eins og að vera komin heim. Nú tóku hamborgararnir við af pizzunni. Umferðin í London er á háu menningarstigi miðað við það sem gerist á Ítalíu. Hún hefur líka sína sérstöðu fyrir að vera vinstri handar og svo vegna allra gamaldags leigubílanna og tveggja hæða strætisvagnanna. London á líka sínar neðanjarðar- lestir en við ferðuðumst aðallega með þeim. Dagarnir í London fóru mest í það að spóka sig um og versla í Oxfordstreet - fyrir það sem eftir var af gjaldeyrinum. í London fæst bókstaflega allt sem hugur- inn girnist. Einhverjir fóru á Hippodrome diskótekið sem er það stærsta í Evrópu og vax- myndasafnið heimsóttu margir. ...og heim Við flugum síðan heim (í hangi- kjöt og saltfisk) í tvískiptum hóp þann 1. og 2. okt. Það var gott að koma heim á Frón. Þegar við með seinni vél- inni lentum var hríð í Keflavík og fagnaðarlæti brutust út. Nú var bara að komast heim með yfir- vigtina til mömmu og byrja í skólanum. Helga Kristjánsdóttir. að giftast!"

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.