Dagur - 26.11.1988, Blaðsíða 9

Dagur - 26.11.1988, Blaðsíða 9
 Framkvœmdasliorinn Alex Ferguson tók við stöðu framkvæmdastjóra hjá Man. Utd. af Ron Atkinson í nóvember 1986. Hann var þá landsliðsþjálfari Skotlands og sagði að hann hefði ekki sleppt þeirri stöðu fyrir neitt annað félag en Utd. er hann gerðist sjötti framkvæmda- stjóri félagsins síðan Matt Busby gerði liðið að Englands- meisturum 1967. Ferguson var leikmaður með Queens Park, St. Johnstone, Dunferm- line, Rangers, Falkirk og Ayr í Skotlandi. Síðan varð hann stjóri hjá East Stirling 1974 og þá hjá St. Mirren áður en hann hóf 8 ára sigurgöngu með Aberdeen 1978. Hann leiddi Aberdeen til 8 titla í Skotlandi og gerði liðið síðan að Evrópu- bikarmeisturum 1983. Arið 1985 tók hann við stjórn skoska landsliðsins jafnframt því að stjórna Aberdeen. Aðstoðarmaður hans hjá Man. Utd. er Archie Knox sem hann tók með sér frá Aber- deen, en þar var hann í þeirri sömu stöðu. Það hefur verið nokkuö á brattann að sækja fyrir Ferguson hjá Utd., hann er mjög harður húsbóndi sem margir töldu liðið þurfa, en lán- ið hefur ekki leikið við hann né liðið síðan hann tók við og nú bendir margt til þess að hann sé að reyna að byggja upp nýtt lið frá grunni þar sem flestar gömlu stjörnurnar eigi ekki Alex Fergusen framkvæmdastjóri Manchester Utd. Óhætt mun að fullyrða að Manchester Utd. sé frægast allra knattspyrnuliða á Eng- landi og fylgismenn félagsins eru hvarvetna. Félagið hlaut samúð um allan heim er flestir leikmenn liðsins fórust í flug- slysi á leið heim úr keppnisferð fyrir um 30 árum og síðan aðdáun fyrir að ná upp mjög sterku liði skömmu síðar. Man. Utd. hefur 7 Englandsmeist- aratitla að baki, 1908, 1911, 1952, 1956, 1957, 1965 og 1967. Liðið sigraði í 2. deild 1936 og 1975. FA-bikarmeist- ari 1909, 1948, 1963, 1977, 1983 og 1985, þá varð félagið Evrópumeistari 1968. Nú er langt um liðið síðan félagið varð síðast Englandsmeistari og á undanförnum árum hefur ýmislegt gengið á hjá félaginu og það ekki náð þeim árangri sem krafist er. Á síðasta leik- tímabili hafnaði liðið í öðru sæti 1. deildar, en það þykir ekki nógu gott á þeim bæ. Miklar vonir voru bundnar við liðið í upphafi leiktímabils- ins sem nú er hafið, en mikil meiðsli leikmanna hafa sett stórt strik í reikninginn. Remi Moses varð að hætta vegna meiðsla og þeir Paul McGrath og Norman Whiteside verða lengi frá vegna meiðsla, auk þess sem þeir vilja báðir fara frá Man. Utd. Viv Anderson, Mike Duxbury og Colin Gibson hafa einnig átt við meiðsli að stríða. En félagið hefur þó marga snjalla leikmenn, Jim Leighton er landsliðsmark- vörður Skota og miðverðir liðs- ins þeir Mal Donaghy og Steve Bruce eru sterkir. Bakvaröa- stöðurnar hafa verið nokkurt vandamál, Lee Sharpe og Clayton Blackmore hafa leikið þar í forföllum Anderson, Gib- son og Duxbury, en miðvörð- urinn Billy Garton getur einnig leikið sem bakvörður. Fyrirliði enska landsliðsins Bryan Rob- son er driffjöður liðsins á miðj- unni, þar sem Gordon Strach- an berst einnig vel. ( framlín- unni hefur liðið tvo snjalla leik- menn, þá Mark Hughes og Brian McClair sem skoraði 31 mark fyrir liðið á síðasta leik- tímabili. Ungir leikmenn hafa einnig verið að sækja á, en lið- ið er nú um miðja 1. deild og ekki líklegt til stórafreka þar og Wimbledon batt enda á þátt- spyrnumann sem uppi hafi verið. Hann lék þó aðeins sem gestur með liðinu þar sem hann hafði þá lagt skóna á hill- una, en flestir fylgismanna fé- lagsins minnast þeirra ára með mikilli eftirsjá er Bobby Charlton, Denis Law og George Best léku saman í framlínu liðsins. Það er því ekki að furða þó að þeim sem muna þessa kappa finnist heldur lítið til arftaka þeirra koma. Þ.L.A. Kaup og sölur Það er ávallt mikið verslað hjá félaginu, enda nóg af pening- um til mannakaupa. í sumar voru tveir af eldri leikmönnum liðsins, þeir Kevin Moran og Arthur Albiston látnir fara án söluverðs, Moran til Sporting Gijon á Spáni og Albiston til W.B:A. báðir landsliðsmenn. Miðvörðurinn Graeme Hogg var seldur til Portsmouth fyrir £150.000 og markvörðurinn Chris Turner var seldur til Sheffield Wed. fyrir £175.000. Allt virtist einnig benda til að Gordon Strachan færi til Lens í Frakklandi, en þau kaup gengu til baka og Paul McGrath og Norman Whiteside fengu ekki sölur sem þeir vonuðust eftir. En það voru keyptir dýrir leikmenn til félagsins, mark- vörðurinn Jim Leighton var keyptur frá Aberdeen fyrir £750.000 og miðherjinn Mark Hughes var keyptur til baka frá Barcelona á Spáni fyrir £1,5 milljónir þar sem hann hafði ver- ið í tvö ár. Þessi landsliðsmið- herji Wales er dýrasti leikmað- ur sem Alex Ferguson hefur keypt til félagsins, en áður var það miðvörðurinn Steve Bruce sem keyptur var frá Norwich fyrir £825.000 sl. desember. Þá voru einnig keyptir tveir ungir leikmenn, þeir Paul Dalt- on frá utandeildaliðinu Brand- on og hinn 17 ára gamli Lee Sharpe fyrir £50.000 frá Torq- uay. Ferguson reyndi að fá til sín fleiri leikmenn, þeirra fræg- astan Paul Gascoigne, en hann kaus að fara til Totten- ham. Að undanförnu hefur einn- ig verið mikið um að vera á markaðstorginu hjá Man. Utd. eftir hina slöku byrjun liðsins í deildakeppninni. Miðvörðurinn Mark Hughes var keyptur frá Barce- lona fyrir £1,5 milljónir í sumar. Mal Donaghy var keyptur frá Luton fyrir £800.000 og fram- herjinn Ralph Milne kom frá Bristol City fyrir £170.000. Félagið seldi hins vegar mið- herjann Peter Davenport til Middlesbrough fyrir £700.000, miðvallarleikmanninn Liam O’Brien til Newcastle fyrir £100.000 og hinn skemmtilega danska landsliðsútherja Jesper Olsen til franska liðsins Borde- aux fyrir um £550.000. Það er engin launung að Ferguson er á höttunum eftir fleiri leik- mönnum og má búast við tíð- indum á næstunni. Þ.L.A. 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 Páll vann Magnús Páll Pálsson Nætursölustjóri lagöi Magnús Aöalbjörnsson yfir- kennara að velli með því að ná sjö réttum og er það besti árangur í getraunaleiknum í vetur. Magnús náði einungis fimm réttum. Páll skorar nú á Jóhann Inga son sinn til keppni en óvíst er hvort jafn mikil keppni ríkir á milli þeirra, eins og feðganna í sjón- varpsþættinum Faðir og synir. Jóhann segist hafa valið fallegt munstur á seðlinum en lítið horft á leikina og nú verður gaman að fylgjast með hvernig geng- ur í keppni feðganna. Páll: Charlton-Nott.For. 2 Coventry-Aston Villa x Derby-Arsenal 1 Middlesbro-Sheff.Wed. 1 Norwich-Luton 1 Southampton-Millwall 1 Tottenham-Q.P.R x West Ham-Everton 2 Blackburn-Portsmouth 1 Leeds-Stoke x Leicester-Bradford 1 W.B.A.-Crystal Palace 1 Jóhann Ingi: Charlton-Nott.For. x Coventry-Aston Villa 2 Derby-Arsenal 1 Middlesbro-Sheff.Wed. 2 Norwich-Luton 1 Southampton-Millwall 2 Tottenham-Q.P.R 1 West Ham-Everton x Blackburn-Portsmouth 2 Leeds-Stoke 2 Leicester-Bradford x W.B.A.-Crystal Palace 1 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 töku Utd. í deildabikarnum fyrir skömmu. En Man. Utd. er eitt ríkasta félagið á Eeglandi og það mun áreiðanlega ekkert verða til sparað að rétta liðið af, en vandamálið hefur verið að samstilla þá leikmenn sem keyptir hafa verið til þessa. Manchester Utd. lék á Akur- eyrarvelli fyrir nokkrum árum og meðal leikmanna var snill- ingurinn George Best sem margir telja einn besta knatt- Aftasta röð (frá vinstri til hægri): Nicky Wood, Lee Martin, Steve Bruce, Viv Anderson, Peter Daven- port (nú Middlesbrough), Paul McGrath, Liam O’Bri- en (nú Newcastle), Nor- man Whiteside. Miðröð: Archie Knox (að- stoðarframkvæmdastjóri), Alex Fergusori (fram- kvæmdastjóri), Clayton Blackmore, Chris Turner (nú Sheffield Wednes- day), Jim Leighton, Gary Walsh, Billy Garton, Jim McGregor, Norman Davi- es. Fremsta röð: Kevin Moran (nú Sporting Gijon), Mike Duxbury, Jesper Olsen (nú Bordeaux), Mark Hughes, Bryan Robson, Brian McClair, Gordon Strachan, Colin Gibson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.