Dagur - 22.04.1989, Blaðsíða 9

Dagur - 22.04.1989, Blaðsíða 9
Laugardagur 22. apríl 1989 - DAGUR - 9 carmina „Hún Helga er undarlegur stúdent“ - Helga Valborg Pétursdóttir í Carmínuviðtali Helga Valborg Pétursdóttir er húsmóðir í Austurhlíð, starfs- mannastjóri á Hótel Reynihlíð og gegnir einnig kokksstarHnu þar yfir vetrarmánuðina. Helga Valborg var oddviti í Mývatnssveit í fimm ár 1982- ’87. Hún mætir á stjórnarfundi Kaupfélags Þingeyinga, var kjörin 1. varamaður í stjórn 1986, og hún er í stjórn SÍS, var kjörin varamaður 1985 en kom inn sem aðalmaður er Valur Arnþórsson lét af störf- um í stjórninni. Helga Valborg varð stúdent frá M.A. 1956. Hún tók því ljúf- mannlega að mæta í Carmínu- viðtal er eftir því var leitað. Helga var á leiðinni á stjórnar- fund hjá KÞ og var fyrst spurð um áhuga sinn og þátttöku í félagsmálum. „Eg hef mjög gaman af að starfa að félagsmálum. Ég starf- aði í U.m.f. Mývetningi á tíma- bili og lengi í kvenfélaginu og var formaður þess. Svo er ég félagi í ITC Flugu og það held ég sé skemmtilegasti félagsskapur sem ég tek þátt í. Ég er í fulltrúaráði Sambands íslenskra sveitarfélaga og í Skóg- og garðræktarfélagi og finnst yfirleitt gaman að vera í félagsskap með fólki.“ - Umfjöllunin í Carmínu hefst á vísu um þig, hvernig er hún til- komin? „Það er rétt að ég fæddist dag- inn sem þessi kóngur heimsótti Mývatnssveit. Á Holtavöruheiði er stór varða sem er talin vera reist þar sem konungurinn fékk að pissa á leiðinni norðuryfir. Þegar við fórum í landsprófsferð frá Laugaskóla var Páll H. Jóns- son fararstjóri og hann orti vís- una við vörðuna á heiðinni." Foreldrar Helgu Valborgar voru Kristín Þuríður Gísladóttir og Pétur Jónsson. „Það var alltaf stefnt að því að ég fengi að njóta þeirrar menntunar sem ég óskaði sjálf eftir, og ég hefði eflaust getað fengið að læra meira ef ég hefði viljað. En ég gifti mig viku eftir að ég kláraði stúdentsprófið og á þeim tíma var ekki talið við hæfi, og jafnvel ekki .eðlilegt, að konur væru við nám eftir að þær voru giftar. Áður en ég lauk stúd- entsprófi var ég búin að ráða mig sem kennara austur á Vopna- fjörð. Maðurinn minn er Arnþór Björnsson frá Svínabökkum í Vopnafirði, og þar vorum við fyrstu fjóra veturna af okkar búskap en á Hótel Reynihlíð á sumrin. Við Arnþór kynntumst ' í Laugaskóla og opinberuðum vor- ið sem ég kláraði fimmta bekk í M.A. Það var ekki algengt að stúlkur sem voru við nám í Menntaskólanum væru tr.úlofað- ar. Þegar Þórarinn Björnsson, skólameistarinn okkar sem var alveg yndislegur maður, frétti að ég væri búin að opinbera heim- sótti hann vinkonu mína og for- eldra hennar, sem voru nánir vin- ir hans. Hann var alveg rasandi og reiður yfir þessu, því hann var sannfærður um að fyrst ég væri búin að opinbera ætlaði ég hætta í skólanum. Svona var tíðarand- inn, en það hvarflaði aldrei að mér að hætta.“ - VorU mikið færri stúlkur við nám á þessum árum? „Við vorum 11 stúlkur af 46 nemendum í bekknum. Að loknu stúdentsprófi var ég ekki með neinar óskir um að halda áfram námi. Veturnir höfðu stundum verið svolítið langir þegar kærast- inn minn var annað hvort erlend- is eða austur á Vopnafirði, svo við sáumst kannski aðeins einu sinni til tvisvar á ári. En þetta voru yndisleg ár, sér- staklega í minningunni. Hópur- inn var ekki svo stór að þegar lit- ið er til baka var þetta eins og stór systkinahópur og megnið af fólkinu bjó saman á heimavist öll árin. Ein þeirra sem ég þekkti best er Hólmfríður Ólafsdóttir, kennari á Akureyri, ég átti annað heimili hjá henni og foreldrum hennar meðan við vorum í skóla, en gömul vinátta var milli for- eldra hennar og minna foreldra. Þetta voru allt indælir félagar og ég kann varla við að nefna einn öðrum fremur." - í Carmínu kemur fram að þessi lofaða stúlka hafi leikið pip- arkerlingu af mikilli snilld. „Það var eiginlega þessi bekk- ur sem endurreisti leikfélagið í Menntaskólanum, sem ekki hafði starfað í 3-4 ár. Við settum upp Æðikollinn eftir Holberg og Jón- as Jónasson var leikstjóri. Þetta gekk afskaplega vel og aðsókn var góð, mig minnir að sýningar hafi orðið 13, þar af 10 á Akur- eyri, tvær í Mývatnssveit og ein á Húsavík. Magnús Líndal Stef- ánsson, læknir á Akureyri, var aðal forsprakkinn og formaður leikfélagsins." Helga og Arnþór eiga þrjár dætur sem allar hafa stundað nám við Menntaskólann. Sú yngsta lýkur námi í vor og þess má geta að hún hefur starfað öll skólaár sín með leikfélagi skólans. „Ég þurfti ekki að hvetja dæt- urnar til náms og ég held að þeim þyki öllum vænt um skólann og hafi átt þar góða daga.“ - Er það rétt sem hér stendur að áhugamálið hafi verið að ger- ast forstöðukona Húsmæðra- kennaraskóla íslands? „Ég var þá þegar vanari mat- reiðslu og slíku heldur en aðrar í bekknum, og kannski var þetta eina embættið á þessu sviði sem fólk mundi eftir og því hafi það verið tekið fram.“ Helga Valborg er aftur horfin Helga Valborg Pétursdóttir. að hótelrekstrinum eins og fram hefur komið, en hvað um aðra spádóma úr Carmínu? „Það var ógurlegur feill að standa ekki við það að eiga 12 börn, en tírninn var of fljótur að líða og of mikið að gera. Ég fer stundum á skíði og hef afskap- lega gaman að því. Öll handa- vinna höfðar afskaplega mikið til mín en mitt vandamál í lífinu hefur verið það að ég hef haft allt of mörg áhugamál. Mig minnir að krosssaumur hafi verið áhuga- mál mitt á þessum tíma og við höfðum saumaklúbba og komum saman með handavinnu á kvöldin. Draumurinn um brúðkaups- ferð til Sviss hefur ekki ræst en það er ekki komið að gullbrúð- kaupinu. Hins vegar fórum við til Thailands þegar við áttum silfur- brúðkaup og ég er búin að koma í löndin í kringum Sviss. Ég hef alltaf verið mjög hrifin af Sviss og mig langar alltaf þangað, þó svo hafi viljað til að ekki hafði orðið af ferð þangað. Á þessum árum var mikið talað um Sviss í sam- bandi við skíðaíþróttirnar og á þeim hafði ég mikinn áhuga. Útgarður, sem ekki er lengur til, var uppi í Hlíðarfjalli og þangað fórum við 1-2 sinnum á vetri og stunduðum skíði. Úr Carmínu: Arið fyrir löngu var ýmislegt á seiði, eflaust miklu fleira en nokkur maður veit. Danakóngur hnerraði á Holtavörðuheiði, og Helga Valborg fæddist upp í Mývatnssveit. Helga Valborg Pétursdóttir var borin í þennan heim í Reykjahlíð í Mýbitssveit þann 26. júní 1936. Þann sama dag heimsótti hans hátign, Friðrik krónprins, fæðingarsveit hennar, og flýtti hún sér þess vegna svo mjög af tómri kurteisi að heilsa upp á prinsinn, að hún stökk úr móður- kviði löngu fyrir tímann. Var hún þá ekki nema 8V5 mörk á þyngd, og þótti þetta því vasklega gjört, enda var hún jafnan ólöt síðan. Svört var hún á brún og brá og svo hárprúð, að prinsinn féll í stafi yfir fegurð hennar. Fagnaði hún prinsinum með öskri miklu og söng fyrir hann á fyrsta dægri þjóðsöng Mývetninga: „Blessuð sértu sveitin mín.“ - Spáði Danasjóli því, að mær þessi mundi ntikill skörungur verða, og gekk það eftir. Olst hún upp með foreldrum sínum grönn og spengileg til sex ára aldurs, en hóf þá hótelrekstur og matseld í Reynihlíð, hvar hún eldaði silunga í enska lávarða. Þótti þá fara betur á því, að hún lofaði sína vöru með góðu holdafari, og tók hún þá að fitna - í hófi - og hefur farið sí- gildnandi síðan. En er hún tók að nálgast giftingaraldurinn, varð hún al- tekin af svo yfirþyrmandi hungri og þorsta sálarinnar, að hún réðst í skólá að hinu fræga menntasetri S-Þingeyinga, Laugum, náði sér þar í manns- efni og lauk þaðan landsprófi 1952. Næsta haust kom hún í 3. bekk M.A., og er nú sálin að verða álíka vel á sig komin og líkaminn. Þessi Helga Valborg er heiðarleg sál, elskuð af öllum sínum skólasystkinum. Hefur hún leikið af mikilli snilld piparkerlingu í „Æðikollinum" eftir Holberg, en þar náði hún sér þó í mann að lokum, og mátti glöggt sjá, að til þess hefur hún æfinguna. Áhugamál hennar frá barnæsku var að gerast for- stöðukona Húsmæðraskóla íslands. En enginn má sköpum renna. Ungi maðurinn ruglaði öll þessi áform fyrir henni, þjóð vorri til óbætanlegs tjóns. Áætlunin er nú að hverfa aftur að hótelrekstrinum, eiga tólf börn og ganga á skíðum (krosssaumur í tómstundum). Draumurinn um brúð- kaupsferð til Sviss. Ef til vill verður hún þó að bíða til gullbrúðkaupsins. Hversu vel hún tekur sig út í brúðarskarti opinberaðist öllum lýð í Æði- kollinum. r/>i~y,V. r7 ^ ■ J1 ■ Ot Lv, A 'T-J' Mynd: IM Mér fannst í reyndinni þessi ár í Menntaskólanum yndisleg og þar voru ágætir kennarar. Sá sem stóð alltaf næst okkar bekk var Árni Kristjánsson úr Kinninni, hann kcnndi okkur íslensku í þrjá vetur og aðstoðaði okkur líka við útfærslu á leikritinu og fleiru. Þórarinn Björnsson, skólameistari var alveg einstakur maður. Enn í dag finnst mér ég hálfpartinn vera að koma heim þegar ég kem í skólann og ég á miklar rætur til hans. Það var mikið félagslíf þessa vetur sem ég var í skólanum. Við vorum ekki neitt sérstaklega góð- ur bekkur, að talið var. Ég minn- ist þess að skólameistari sagði það í útskriftarræðunni okkar, að þegar við hefðum verið í fjórða bekk hefði hann langað til að reka hálfan bekkinn, en síðan tókum við okkur afskaplega vel á og hann sagði að við værum bara orðin góð þegar við fórum. Mér finnst ég oft hafa búið vel að verunni í Menntaskólanum og námið komið mér til góða. Ég var úr sveit og hafði ekki haft svo mikil tækifæri til að fylgjast með menningarviðburðum og öðru slíku, en í skólanum hlutum við ákveðna örvun í þá áttina sem ef til vill opnaði augu okkar. Síðasta árið sem ég var í skólanum hafði ég kannski svo- litla sérstöðu af því að ég var opinberlega trúlofuð. Iðunn Steinsdóttir var í yngri bekkjun- um þennan vetur og löngu síðar þegar leiðir okkar lágu saman sagðist hún hafa borið mjög mikla virðingu fyrir mér. Ég var umsjónarmaður kvennavistarinn- ar þennan vetur og henni fannst að það hlyti að vera mjög merki- leg manneskja sem var hringtrú- lofuð, en ég gerði mér ekki grein fyrir að ég væri svona merkileg. Heimavistin var heimili manns í þessa fjóra vetur því það var ekki farið heim um helgar, aðeins í jóla- og páskafrí, og þó ekki allt- af um páskana.“ Að lokum rifjaði Helga upp skemmtilega sögu til marks um tíðarandann: „Á þessum árum var það ekki orðið algengt að stúlkur færu í Menntaskóla og það var eiginlega litið svo á að þær sem færu á slíka braut gætu ekkert í heimilisverkum eða slíku. Þegar ég var austur í Vopnafirði vorum við með í þre- faldri skírnarveislu, þar sem feð- urnir þrír voru allir bræður. Auð- vitað var ég þrælvön að smyrja brauð og gerði það fyrir veisluna. En þá sagði gömul kona þarna í sveitinni: „Ja, hún Helga er undarlegur stúdent.“ IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.