Dagur - 22.04.1989, Blaðsíða 14

Dagur - 22.04.1989, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 22. apríl 1989 Aðalfundur Útgerðarfélags Akureyringa hf. verður haldinn mánudaginn 24. apríl 1989 20.30 í matsal frystihússins. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Lagabreytingar. Útgáfa jöfnunarhlutabréfa. kl. Stjórnin. Fyrirtæki til sölu Sérverslun með verkfæri og áhöld. Arðvænlegt þjónustufyrirtæki í miðbænum. Mjög gott þjónustufyrirtæki í eigin húsnæði nálægt miðbænum. Húsnæðið þarf ekki að selja. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Sími 25566 Benedikt Olafsson hdl. Sölustjóri, Pétur Jósefsson, er á skrifstofunnl virka daga kl. 14-18.30 Glerárgötu 36, 3. hæð. Heimasimi hans er 24485. FASTÐGNA& M SKIPASAIAZjSsZ NORÐURLANDS O Frá tónleikum Skagfirsku söngsveitarinnar og Söngfélagsins Drangey, sem haldnir voru í íþróttahúsinu á Sauðár- króki, í tilefni Sæluviku Skagfirðinga 1989. Fjölmenni var á tónleikunum, sem þóttu takast mjög vel og fékk skag- firska söngfólkið frábærar viðtökur áheyrenda. Laus staða Laus er til umsóknar staða sérfræðings í íslenskri mál- fræði við íslenska málstöð. Verkefni einkum á sviði hag- nýtrar málfræði, málfarsleg ráðgjöf og fræðsla og ritstjórn- arstörf. Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 16. maí nk. Menntamálaráðuneytið, 14. apríl 1989. Frá menntamálaráðuneytinu: Lausar stöður við framhaldsskóla Við framhaldsskólann á Laugum er laus staða íþrótta- kennara. Við skólann er auk hefðbundinnar íþróttakennslu starfrækt íþróttabraut. Við Menntaskólann á Akureyri er laus til umsóknar staða stærðfræðikennara. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 19. maí nk. Menntamálaráðuneytið. Akureyringur kæri! Hvernig væri að þú færir og kynntir þér allt úrvalið sem hér er upptalið. m Gúmmívinnslan hf. Rettarhvammi 1 Akureyri Simi 96-26776 Avon, Trayal, General, Passprot. Einnig Michelin, hin ágæta tegund. Kemur þú, þá kemstu inn og við munum sjá um bílinn þinn. Rekstrarkostnaður Byggða- stofnunar óx mn 36% 1988 - 90 stærstu skuldunautarnir skulda Byggðastofnun 4,3 milljarða króna Starfsmenn Byggðastofnunar á Akureyri, talið frá vinstri: Valtýr Sigurbjarn- arson, Guðmundur Guðmundsson og Benedikt Guðnmndsson. Á fundi stjórnar Byggðastofn- unar þ. 28. mars sl. samþykkti hún ársreikning fyrir árið 1988. Hér er getið nokkurra helstu stærða úr reikningunum. Nán- ar verður fjallað um starfsemi stofnunarinnar á síðastliðnu ári í ársskýrslu sem væntanleg er á næstu vikum. Við síðustu áramót var niður- staða efnahagsreiknings Byggða- stofnunar 6.755,7 m.kr. og hafði hækkað um 46,2% á árinu. Eigið fé stofnunarinnar var 1.641,7 milljónir. Er þá búið að taka tillit til 200 m.kr. færslu á afskriftar- reikning. Eigið fé óx um 19,5% á árinu. Hlutfall eigin fjár stofnun- arinnar af heildareign var 29,7% í upphafi ársins. Þegar gert er upp í árslok er niðurstaðan sú að þetta hlutfall hefur lækkað í 24,3%. Þessi mikla lækkun er framhald langtíma rýrnunar á hlutfalli eiginfjár. Lækkunin staf- ar annars vegar af því hversu mikiar lántökur stofnunarinnar voru en hins vegar af því hversu mikið hcfur verið lagt til hliðar í afskriftareikning útlána til að mæta óhjákvæmilegum töpum. Á mælikvarða lánskjaravísitölu óx eigið fé Byggðastofnunar á síð- astliðnu ári unt 4,9 milljónir eða 0,3%. Fasteignir Byggðastofnunar eru 6,8% af eigin fé. Stofnunin hefur lagt fram 76,3 m.kr. sem hlutafé í 14 fyrirtækjum. Um síðastliðin áraniót námu iánveitingar Byggðastofnunar með áföllnum vöxtum samtals 6.619 m.kr. f>ar af voru tæplega 2A hlutar gengistryggð lán en 27,6% með innlendri verðtrygg- ingu. Óverðtryggð lán heyra sög- unni til en eftirstöðvar þeirra námu 144 m.kr. um áramót. Heildarskuldir stofnunarinnar námu rúmum 5 milljörðum króna og eru þær nær algerlega erlend lán. Innlend lán námu 341 m.kr. Samkvæmt lögum skal Byggða- stofnun njóta framlags af fjárlög- um til staj-fsemi sinnar. Framlag- ið nant 125 m.kr. á árinu 1988 og hafði hækkað úr 80 m.kr. frá fyrra ári. Lántökur ársins voru 79,0% af heildarlánveitingum. Á árinu 1988 samþykkti stjórn- in 580 láns- eða styrkumsóknir og synjaði J17 en 27 umsóknir sem bárust á árinu féllu niður af ein- hverjum ástæðum. Samtals námu lán og styrkir sem stjórnin sam- þykkti 2.175 m.kr. á árinu 1988. Þar af voru 502 nt.kr. ógreiddar í árslok. f>á samþykkti stjórnin að leggja fram fé í 12 hlutafélög. Um síðastiiðin áramót voru skuldunautar Byggðastofnunar 1.552. Tuttugu hinna stærstu skulduðu stofnuninni samtals 1.360,6 m.kr. Alls skuldaði 71 fyrirtæki yfir 20 milljónir króna hvert en alls 2.937,5 milljónir eða 46,7% af heiidarskuld fyrirtækja. Enda þótt skuldunautum stofn- unarinnar hafi fjölgað um 60 frá fyrra ári einkenndist lánastarf- semi ársins 1988 af því að mikil aukning skulda varð hjá fyrir- tækjum sem skulduðu stofnun- inni ntikið fyrir. Umsvif Byggðastofnunar juk- ust töluvert á árinu 1988. Unt áramót voru starfsmenn alls 29. Par af voru 3 í hlutastarfi. Sam- eiginlegt starfslið með Fram- kvæmdasjóði íslands annast umsjón með húsnæði, sameigin- lega tölvu, mötuneyti o.þ.h. Auk fastráðinna starfsmanna ltafa starfsmenn unnið tímabundið fyrir stofnunina, bæði í Reykja- vík og annars staðar. Með til- komu Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina jókst álag á starfslið stofnunarinnar verulega. Prátt fyrir það hefur ekki verið ráðið í nema eitt nýtt starf í Reykjavík enda er stefnan sú að viðbót við starfslið verði á lands- byggðinni. Ráðnir voru 3 nýir starfsmenn á Akureyri en einn flutti frá Reykjavík. Vergur rekstrarkostnaður Byggðastofnunar varð samtals 95,8 milljónir króna og hafði vax- ið um 54% frá fyrra ári. Stofnun- in hefur ýmsar tekjur á móti og nant hann alls 4,9 milljónum króna árið 1988. Á árinu 1988 var ráðist í ýmsar breytingar á hús- næði stofnunarinnar að Rauðar- árstíg 25 og stofnunin kostaði innréttingar í miðstöð sína á Akureyri. Sé tekið tillit til fjár- festingarkostnaðar og kostnaðar vegna þjónustu við Atvinnutrygg- ingarsjóð óx rekstrarkostnaður stofnunarinnar um 36% á árinu. Á stjórnarfundinum voru einn- ig til ákvörðunar starfs- og rekstr- aráætlanir stofnunarinnar fyrir árið 1989, ásamt nokkrum öðrum málum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.