Dagur - 01.07.1989, Page 1
72. árgangur Akureyri, laugardagur 1. júlí 1989 123. tölublað
fjArmAl þín
SÉRGREIN OKKAR
TIARFESTINGARFEIAGID,
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Kristján Jóhannsson með tflboð
frá Metropolitan í New York
- syngur í Adriana Lecouvreur á Scala í júlí
Kristján Jóhannsson óperu-
söngvari hefur fengið tilboð
um að syngja í óperunni Tosca
árið 1990 og 1991 við þá heims-
frægu óperu Metropolitan í
New York. Dagur náði tali af
Kristjáni í Mílanó á Ítalíu í gær
og staðfesti liann að tilboðið
hefði borist. „Ég er ekki búinn
að skrifa undir sainning um
þetta en ég á von á honum á
hverri stundu. Mér hefur bor-
ist skeyti og tilboð frá Metro-
politan um þetta verkefni,“
sagði Kristján.
„Þetta er þannig tilboö að ég
get gengið að því en ég hef haft
þá reglu með tilboð að ganga
ekki að hverju sem er. Ég myndi
segja að Scala-óperan væri há-
punkturinn en Metropolitan er
að sjálfsögðu mjög hátt skrifuð,"
sagði Kristján.
Kristján hefur í mörgu að snú-
ast þessa dagana. Hann flaug frá
Bandaríkjunum yfir til Mílanó
s.l. sunnudag og hefur hat'ið
æfingar af krafti á hlutverki í
Adriana Lecouvrcur eftir Ciéla.
Þetta kom mjög óvænt upp í
hendurnar á Kristjáni og sagðist
hann einungis hafa þrjár vikur til
að æfa hlutverkiö. Áætlaðar eru
þrjár sýningar á verkinu og er sú
fyrsta á dagskrá þann 10. júlí.
Vegna verkfalls í ballettinum,
sem tckur þátt í sýningunni, er
hugsanlegt að fyrsta sýningin fær-
ist til 13. júlí. „Þetta er mjög int-
eressant hlutverk að mörgu leyti.
Það krefst mikils af röddinni.
Hiutverkið er bæði dramtískt og
eins og rrtaður segir á óperumáli
lýrískt. Það krefst sterks og mik-
ils söngs og síðan veiks söngs á
milli. Það er vissulega mikið í
húfi að gera þetta vel vegna þess
að þessi ópera hefur ekki verið
sett hér á svið í 25 ár og sá tenór
sem söng þetta hér og fólk minn-
ist er Franco Corelli. Það er því
eins gott að gera þetta vel og ég
mun rcyna að gera mitt besta,“
Skyldi henni ekki leiðast þessari?
sagði Kristján.
Kristján kvaðst vera í góðu
formi þessa dagana og hann væri
tilbúinn til að takast á við þetta
spennandi verkefni á Scala. Að
afloknum sýningum þar tekur við
stíft prógramm í Bandaríkjunum.
„Ég vcrð í Chicago með tvær
óperur fram í desember og síðan
fer ég til Palermo á Ítalíu og þar
á eftir á Scala og til Feneyja. í
apríl fer ég til Carnegie-hall í
New York og verð þar með í
óperu í tónleikauppfærslu," sagði
Kristján.
Kristján sagöist ekki sjá fram á
að geta sungið hér heima á næst-
unni því dagskráin framundan
væri erfiö og þétt. En hvenær
skyldi Akureyringum gefast kost-
ur á að hlýða á Kristján. „Ég hef
alltaf sýnt því áhuga að syngja á
Akureyri en því miður er ekkert
tónleikahús þar. Það er frekast
hægt að syngja á veturna og vorin
og vegna þess að skólarnir eru þá
í fullum gangi er erfitt að koma
því við. Ég hef satt best aö segja
það mikið að gera að erfitt er aö
finna eyöu í prógrammiö." sagði
Kristján Jóhannsson að lokum.
óþh
Helgarveðrið:
Hlýnandi á
Norðurlandi
Veðurguöirnir leika greinilega
á als oddi uni þcssar nnindir og
það nnin ekki fara frain hjá
Norölendingum uin og eftir
helgina.
Bragi Jónsson veðurfræðingur
sagði veður fara hlýnandi á
Norðurlandi. Á laugardag verður
hægviðri og léttskýjað. Sunnan
kaldi verður á sunnudag og skýj-
að með köflum en síðan léttskýj-
að.
Til að gleðja Norðlendinga enn
meira spáði Bragi sunnan og suö-
vestanátt á mánudag og þriðju-
dag, hlýju veðri og léttskýjuöu.
„Hvað viljið þið hafa það betra?"
spurði hann og bætti við aö það
mætti jafnframt geta þess að það
yröi rigning í Reykjavík. KR
Undirbúningur hafinn í
rækjuvinnslu Geflu hf.:
Ekkert orðið ljóst um
hráefiiisöflunina
- Jökull hf. a Raufarhöfn, stærsti hluthafi
í Geflu, kannar möguleika á kaupum á bát
sem afli hráefnis fyrir rækjuvinnsluna
Nú er byrjað að undirbúa
rækjuvinnslu Geflu hf. á
Kópaskcri en vinnsian var
keypt af þrotabúi Sæbliks hf.
Ekki er hins vegar orðið ljóst
hvenær vinnsla hefst þar sem
ekki hefur verið frágengið
hvernig að hráefnisöflun verð-
ur staðið. Samkvæmt heimild-
um blaðsins hefur Jökull hf. á
Raufarhöfn, sem á um 70% í
Gellu hf., verið að kanna kaup
á bát sem notaður verði til
hráefnisöflunar fyrir rækju-
vinnslu Geflu í sumar.
Hólmsteinn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Jökuls og stjórn-
arformaður Geflu hf., segir ekki
rétt að gengið hafi verið frá kaup-
um á skipi en unnið sé að lausn á
hráefnisöflun fyrir verkámiðjuna.
„Nei, við erum ekki búnir að
kaupa bát en það er verið að
skoða málin. Ég vil ekkert segja
um það hvenær vinnslan getur
hafist, það verður að ráðast af
því hvenær við fáum rækju. Við
gætum byrjað á morgun þess
vegna en það er enn ekkert orðið
ljóst um hráefnisöflunina," segir
Hólmsteinn.
Kannanir hafa verið gerðar á
rækjumiðum í Öxarfirði undan-
farin ár en veiðar á rækju á þess-
um slóðum hafa legið niðri
undanfarin ár. Hólmsteinn segist
binda vonir við að í haust verði
veiðar á þessum slóðum leyfðar
og þar fáist hráefni m.a. fyrir
vinnsluna á Kópaskeri. Könnun
Hafrannsóknastofnunar sem
fram fari í septembermánuði
muni skera úr um hvort veiðar
verði leyfðar á ný. JÓH