Dagur - 13.12.1989, Qupperneq 1
Fimm loðnuskip tilkynntu um samtals
3300 tonna afla í gær:
„Þetta er skárra en
verið hefur undanfarið“
- segir Þórður Karlsson á Sjávarborg
„Ég held að þarna sé ekki
mjög mikið af loðnu, hún stend-
ur djúpt og er ekki í þéttum
torfum. Hún er byrjuð að
mjaka sér austur fyrir land og
núna er veiðisvæðið um 50 mfl-
ur beint út af Sléttu. Þetta er
skárra en verið hefur undan-
farið en þetta er lélegt miðað
við þennan tíma á undanförn-
um árum,“ sagði Þórður
Karlsson á loðnuskipinu Sjáv-
arborg í gær þegar skipið var á
leið á loðnumiðin á ný eftir að
hafa landað 750 tonnum á
Raufarhöfn.
Fimm loðnubátar tilkynntu um
afla í gær, samtals 3300 tonn.
Sjávarborgin var með 750 tonn
og landaði á Raufarhöfn, Þórs-
hamar landaði 550 tonnum á Þórs-
höfn,Dagfari landaði 580 tonnum
á Þórshöfn, Dagfari landaði 350
tonnum á Siglufirði og Bjarni
Ólafsson landaði 1130 tonnum,
þ.e. fullfermi, á Seyðisfirði. Alls
voru um 11 bátar á miðunum í
fyrrinótt og fengu flestir ágæt
köst þrátt fyrir að loðnan stæði
djúpt.
Hvalurinn hefur gert loðnu-
sjómönnum marga skráveifu á
miðunum og í fyrrinótt fengu
skipverjarnir á Dagfara ÞH tvo
hnúfubaka í nótina. Hvalirnir
stórskemmdu nótina og fór skip-
ið til Siglufjarðar í gær til að láta
gera við.
„Þetta voru feikna skepnur.
Þeir fóru með stór stykki úr nót-
inni og þá vorum við komnir með
ágætt kast. Við náðum um 100
tonnum en höfum áreiðanlega
misst a.m.k. annað eins. Við höf-
um séð mikið af hval á síðustu
sólarhringum. Annars er ég víst
dálítið lunkinn við að fá hval, ég
held að þeir finni af okkur lyktina
eða eitthvað," segir Hinrik Þór-
arinsson, skipstjóri á Dagfara í
gær. Hann segir að viðgerð á nót-
inni eftir hvalinn sé kostnaðar-
söm og gott þyki ef þessi farmur
borgi kostnað við viðgerð ásamt
olíu og launakostnaði.
Hinrik sagði mikinn frétta-
flutning af loðnumiðunum síð-
ustu daga hafa kostað að of
margir hafi farið á miðin en haft
lítinn árangur. Þegar loðnan
standi djúpt eins og nú og ekki
finnist meira af henni ráði minni
skipin ver en þau stóru við veið-
arnar. Stærri skipin geti fengið
ágæt köst með nótum sem eru
100 faðma djúpar á meðan minni
skipin ná ekki lengra en niður á
60-80 faðma. Þetta skipti miklu
máli við aðstæður eins og nú.
JÓH
Krakkarnir í Oddeyrarskóla voru önnuni kafín við laufabrauðsgerð í gærmorgunn og mátti þar
inga framtíðarinnar í faginu.
greinilega sjá snill-
Mynd: KL
Aðalfundur Álafoss í gær:
Tap ársíns 724 milljónir króna
frekari uppsagnir starfsfólks ekki á döfinni
Aðalfundur Álafoss hf. fyrir
árið 1988 var haldinn í Reykja-
vík síðdegis í gær. Sem kunn-
ugt er hefur fundi þessum ver-
ið frestað í tvígang, en ástæðan
fyrir því er að undanförnu
hefur verið unnið að fjárhags-
legri endurskipulagningu fyrir-
tækisins. Til að rétta stöðu
Álafoss við mun ekki vera inni
í myndinni að grípa til frekari
uppsagna starfsfólks. Á fund-
inum kom fram að rekstrartap
síðasta árs nam 724 milljónum
króna og fjármagnskostnaður,
þ.e. fjármagnsgjöld og gengis-
tap var um 273 milljónir.
í árslok 1988 var skuldastaða
Álafoss rúmir 2 milljarðar króna.
Eigið fé fyrirtækisins var á 3ja
hundrað milljónir í lok ársins og
að sögn Ólafs Ólafssonar for-
stjóra var stefnt að því að lækka
skuldastöðuna um 850 milljónir.
Til að rétta við hallann hafa
farið fram sölur eigna Álafoss
upp á 3-400 milljónir, þar á með-
al verksmiðjuhús í Mosfellsbæ og
Hekluhúsið á Akureyri. Þá er
hlutafjársjóður Byggðastofnunar
að koma inn með nýtt hlutafé
upp á 100 milljónir og atvinnu-
tryggingasjóður er að skuld-
breyta skammtímaskuldum sem
nema 200 milljónum króna.
„Aðgerðirnar hafa skilað þeim
árangri sem ætlast var til. Þess
ber þó að geta að staða Álafoss
er ennþá mjög þung. Við væntum
þess að ekki þurfi að koma til
frekari uppsagna starfsfólks,“
sagði Ólafur Ölafsson forstjóri
Álafoss í samtali við Dag að
Ioknum aðalfundinum í gær.
-bjb
Húsavík:
Útsvör verða 7,5%
Verkamannabústaðir á Akureyri:
Samið við verktaka um kaup á 20
Mðum fyrir 126 miUjónir króna
Álagningarreglur fyrir útsvör
og fasteignagjöld á Húsavík
voru samþykktar á fundi Bæj-
arstjórnar í gær. Ákvörðun um
álagningarstiga aðstöðugjalda
var frestað. Utsvör munu nema
7,5% vegna staðgreiðsluskila
1990, sem jafnframt verður
álagningarprósenta útsvara
1991. Þetta var samþykkt sam-
hljóða.
Fasteignaskattur á íbúðarhús-
næði verður 0,45% og hækkar
um 24% milli ára, cn fasteigna-
skattur á atvinnuhúsnæði verður
1,20% og hækkar um 26% milli
ára. Þetta var samþykkt með
fimm atkæðum meirihluta, eftir
að tillaga frá G-listamönnum, um
0,42% skatt á íbúðarhúsnæði og
1,10% skatt á atvinnuhúsnæði,
hafði verið felld.
Bæjarstjórn samþykkti síðan
samhljóða lóðaleigu, 1,5% vegna
almennra lóða en 2,5% vegna
lóða á hafnarsvæði. Vatnsskatt
sem verður 0,2% af íbúðarhús-
næði en 0,4% af atvinnuhúsnæði
og holræsagjöld sem verða
0,16% af öllu húsnæði.
Einnig voru sorpgjöld sam-
þykkt samhljóða. Þau verða kr.
3.250 af íbúðarhúsnæði og er það
25% hækkun milli ára. Atvinnu-
húsnæði verður nú flokkað í
fimm flokka en var áður flokkað
í þrjá. Sorpgjöldin munu hækka
um 32,5% og munu nema frá kr.
3.250 til 95 þúsunda. IM
Uppskriftasamkeppni MSKEA:
„Sumarskyr“ í 1. sæti
Stjórn verkamannabústaöa á
Akureyrí hefur gert kaup-
samninga við þrjá bygginga-
verktaka á Akureyri um kaup
á 20 íbúðum í fjölbýlis- og
raðhúsum á Akureyri. Samn-
ingsupphæð allra samning-
anna nemur um 126 milljón-
um króna sem er um helm-
ingur af þeirri upphæð sem
ráðstafað hefur verið á veg-
um vcrkamannabústaða á
þessu ári.
Sainningarnir eru við Aðal-
geir Finnsson hf., Fjölni sf. og
Harald og Guðlaug sf. Aðalgeir
Finnsson hf. mun byggja 9
íbúðir í fjölbýlishúsi við Mela-
síðu 1 og hljóðar samningsupp-
hæðin við hann upp á tæpar 50
milljónir króna. Við Vestursíðu
1 niunu Haraldur og Guðlaugur
sf. byggja fjórar 4ra herbergja
raðhúsaíbúðir á einni hæð.
Samningsupphæð vegna bygg-
inganna við Vestursíðu nemur
um 28,6 milljónum króna. Að
lokum mun Fjölnir sf. byggja
fjórar raðhúsaíbúðir við Fögru-
síðu og þjár íbúðir í fjölbýlis-
húsi við Múlasíðu númer 9.
Samningsupphæð þessara sjö
íbúða hljóðar uppá rúmlega 47
milljónir króna.
Aö sögn Hákonar Hákonar-
sonar formanns stjórnar verka-
mannabústaða á Akureyri, cr
hér um að ræða lok á samning-
um stjórnarinnar vegna fram-
kvæmda ársins 1989, en íbúð-
irnar í verkamannabústaðakerf-
inu hafa þegar verið auglýstar
til sölu. Þá eru sömuleiðis inni í
þessum samningum við verkt-
akana, leiguíbúðir, en nú cr
verið að ganga frá kaupum á
síöustu íbúðunum fyrir leiguí-
búðakerfið líka. vg
Það var „skyrætan“ Magnús
Kristinsson sem hreppti fyrsta
sætið í uppskriftasamkeppni
Mjólkursamlags KEA um
bestu skyruppskriftina, en úr-
slitin voru gerð kunn með við-
höfn í gær.
„Skyrætan“ var einmitt dul-
nefni Magnúsar í keppninni, en
uppskriftina sína kallar hann
„Sumarskyr".
Fimm aðrar uppskriftir hlutu
aukaverðlaun í keppninni, Sig-
ríður Jóhannsdóttir fyrir Epla og
bananaskyr, Orri Ingþórsson fyr-
ir Ávaxtaskyr, Rósbjörg Jónas-
dóttir fyrir Berjaskyr, Guðný
Matthíasdóttir fyrir Peruskyr og
Konný Kristjánsdóttir fyrir
Veisluskyr. VG