Dagur - 13.12.1989, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 13. desember 1989 - DAGUR - 3
iHill.WVHHH »I, I
fréttir
Önnur umræða um fjárlög á Alþingi:
Háskólinn á Akureyri „saltaður" til þriðju umi’æöu
- einn af „vandræðagemlingum“ í kerfinu
í gær hófst önnur umræða um
fjárlagafrumvarpið á Alþingi.
Fyrirfram var búist við að í til-
lögum meirihluta fjárveitinga-
Vísitala framfærslukostnaðar:
Hefur hækkað um 5,7%
síðustu þrjá mánuði
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í desember-
byrjun 1989. Vísitalan í desem-
ber reyndist vera 138,6 stig (maí
1988 = 100), eða 2,2% hærri en í
nóvember. Samsvarandi vísitala
samkvæmt eldra grunni (febrúar
1984 = 100) er 339,9 stig.
Verð á áfengi hækkaði um
5,8% og tóbaki um 6,4% 29.
nóvember sl. og olli það alls
0,2% hækkun á vísitölunni. Verð
á bensíni hækkaði um 3,6% 1.
desember sl. og hafði það í för
með sér 0,2% vísitöluhækkun.
Af öðrum verðhækkunum má
nefna að 2,5% hækkun á fatnaði
olli um 0,2% hækkun, 1,8%
hækkun á húsnæðiskostnaði olli
um 0,2% hækkun og 1,9% hækk-
un á mat- og drykkjarvörum olli
um 0,4% .hækkun. Verðhækkun
ýmissa annarra vöru- og þjón-
ustuliða olli alls um 1,0% hækk-
un á vísitölu framfærslukostnað-
ar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 25,2%. Undanfarna
þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 5,7% og jafngildir sú
Póst- og síma-
málastofnun:
Símaþjónusta tíl
útlanda hækkar
Vegna gengisbreytinga hækkuðu
gjöld fyrir símaþjónustu til út-
landa frá og með 12. desember
1989 um 11-12%, nema til Banda-
ríkja Norður-Ameríku, en þar
nemur hækkunin um 8-9,5%.
Hækkun þessi stafar af hækkun
á gengi SDR og gullfranka frá 16.
júní 1989, en þá var gjöldum síð-
ast breytt í samræmi við gengi.
Geta má þess að tekist hefur
samkomulag við símastjórnir í
Malaysíu, Singapore, Taiwan og
Thailandi um að lækka talsíma-
gjöld milli íslands og þessara
landa og fylgja þau því ekki
hækkunum vegna gengisbreyt-
inga nema að takmörkuðu leyti.
Mínútugjald þangað lækkar því
úr kr. 214.00 í kr. 197.00.
Sem dæmi um önnur gjöld má
nefna að hver mínúta í sjálfvirku
vali til Norðurlandanna, nema
Finnlands, mun kosta kr. 60.00,
tii Bretlands og Vestur-Þýska-
lands kr. 73.00 og til Bandaríkj-
anna kr. 111.00.
I telexþjónustunni mun hver
mínúta til Danmerkur, Eng-
lands, Noregs og Vestur-Þýska-
lands kosta kr. 23.50 og til
Bandaríkjanna kr. 80.00.
Fastagjald fyrir hver símskeyti
mun kosta kr. 550.00, hvert orð
til Evrópulanda kr. 23.00 og til
Bandaríkjanna kr. 26.00.
Söluskattur 7,5% er innifalinn
í uppgefnum gjöldum.
hækkun um 24,9% verðbólgu á
heilu ári.
nefndar yrði gert ráð fyrir að
framlög til Háskólans á Akur-
eyri yrðu hækkuð svo að unnt
yrði að tryggja tilveru sjávar-
útvegsbrautar við skólann.
í tillögum nefndarinnar er
Háskólans á Akureyri hins vegar
ekki getið sérstaklega og sam-
kvæmt upplýsingum sem Dagur
aflaði sér í gær munu málefni
skólans vera til sérstakrar skoð-
unar starfshóps Fjárlaga- og
hagsýslustofnunar og mennta-
málaráðuneytis og mun ætlunin
að leggja fram tillögur þegar
þingið tekur fjárlagafrumvarpið
til þriðju umræðu.
Ymsar hugmyndir múnu enn
upp á borðinu um hvernig beri að
leysa húsnæðisvanda sjávarútvegs-
brautar en menn hafa þó ekki
komist að sameiginlegri lausn
enn sem kornið er. Heimildamað-
ur í ríkiskerfinu orðaði það svo í
gær að háskólamálið væri eitt af
þessum svokölluðu vandræða-
málum sem kæmu til umræðu á
lokastigi afgreiðslu fjárlagafrum-
varpsins. Eftir því sem næst verð-
ur komist er nú rætt um að
tryggja sjávarútvegsbrautinni
fjármagn til þess að hefja kennslu
um áramótin. Hins vegar er talið
heldur ólíklegt að heimild fáist til
kaupa á húsnæði fyrir brautina á
næsta ári. Líklegra er talið að til
að byrja með verði ofan á að
leigja húsnæði fyrir starfsemi
sjávarútvegsbrautar. Þingmaður
sem vel hefur fylgst mað fram-
gangi málsins hafði þetta að segja
í gær: „Ég held að þingmenn séu
allir á einu máli um að tryggja til-
veru sjávarútvegsbrautarinnar.
Hins vegar virðist vera að vissir
aðilar hér í Reykjavík vilji hlut
Háskólans á Akureyri ekki sér-
staklega rnikinn." óþh
Dagskra:
Ingimar Eydal.
Óskar og Emma.
Jólasveinar.
Svaladrykkur og gott í poka.
Happdrætti.
Jólasaga.
Jóladans og fleira. J
Sunnudagmn 17. desember kl. 15.00
halda Óskar og Emma litlujólin í Sjallanum.
Allir krakkar, sem eiga eða kaupa Ævintýrabaukana,
Óskar eða Emmu geta sótt aðgöngumiða,
sem líka eru happdrættismiðar, í Iðnaðarbankann.
Það verður líf í baukunum.
. Munið að sækja
miðana a
JisL