Dagur - 13.12.1989, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 13. desember 1989 - DAGUR - 9
Heimir Týr Svavarsson og Þórný Birgisdóttir, neinendur í Framhaldsskólanum með samlestur úr
íslendingasögunni eftir Halldór Kiljan Laxnes.
Svala Hermannsdóttir afhendir Birki Þorkelssyni, skólameistara Framhaldsskólans orðsifjabók-
ina og Halldóri Valdimarssyni skólastjóra barnaskólans íslenska orðsifjabók og fánastöng, gjafír
frá Soroptimistaklúbbi Húsavíkur og nágrcnnis. Myndir: 1M
Barnaskólakórinn með hreyfisöng undir stjórn Hólmfríðar Benediktsdóttur.
Páll og Arnþór Helgasynir og Finnur Kristjánsson, forstöðumaður Safnaluissins, með lykil að kistunni góðu.
eru berorðar heimildir um marga
hluti.
Við, systkinin og móðir okkar,
tókum þá ákvörðun að líta ekki á
þetta safn. Þegar gaus í Vest-
mannaeyjum var því komið fyrir
í mikilli kistu, sem fóstuforeldrar
hans höfðu átt. Þessi kista var
ekki opnuð frá því að skjalasafn-
inu var komið þar fyrir og þar til
að við litum ofan í hana í gær-
morgun. Þessari kistu með skjöl-
um Helga Benediktssonar hefur
nú verið komið fyrir í Safnahús-
inu hér á Húsavík, og það var svo
einkennilegt að þegar við bræður
ókum hér inn í bæinn, þá buldi
hátt í kistunni.
Þessi skjöl eru komin til síns
heima, og ósk föður okkar um að
Þingeyingar fái skjölin til varð-
veislu hefur verið uppfyllt."
Síðan afhenti Arnþór Finni
Kristjánssyni lyklana að kistunni.
Finnur þakkaði þessa veglegu
gjöf og sagði hana ekki vera neitt
smáræði, heldur hvorki meira né
minna en hluta af íslandssög-
unni. Finnur minntist Helga og
sagði að hann hefði verið nokk-
urskonar þjóðsagnapersóna í
hugum margra á Húsavík. Sagði
hann Helga hafa eignast hér
marga vini, og aldrei hefði hann
heyrt neinn Húsvíking leggja illa
til Helga Benediktssonar.
Finnur sagði Helga hafa verið
einn mesta athafnamann okkar
tíma og ræddi um dugnað hans,
áræði og lífskraft.
Arnþór sagði föður sinn alltaf
hafa verið stoltan af að vera
Norðlendingur og rifjuðu bræð-
urnir upp nokkrar góðar sögur af
Helga sem sögðu margt um
manninn, t.d. sögðu þeir að þeg-
ar orustan um Bretland stóð
hefði Helgi sent Churchill skeyti
til að stappa í hann stálinu. Afrit
af skeyti þessu og svarbréf frá rit-
ara Churchills mun vera meðal
bréfa þeirra sem komin eru til
varðveislu í skjalasafn Safnahúss-
ins á Húsavík. IM
Kaupmanna/ólag
Akurayrar
Opnimartími
verslana í desember
umfram venju
Laugardagur 16. desember kl. 10-22.
Fimmtudagur 21. desember kl. 09-22.
Þorláksmessa 23. desember kl. 10-23.
Kaupmannafélag Akureyrar.