Dagur - 13.12.1989, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 13. desember 1989 - DAGUR - 5
„MM vonbrigði hve
fáir Akureyringar
eru sjálfliælnir“
- segir Þórður frá Dagverðará
Þórður Halldórsson, oftast
kenndur við Dagverðará á
Snæfellsnesi, er áttatíu og
fjögurra ára gamall. Fyrir
skömmu kom út bók þar sem
Haraldur Ingi Haraldsson ræð-
ir við Þórð. Nafn bókarinnar
er ekki af styttri gerðinni:
„Setið á Svalþúfu - Handbók
fyrir veiðiþjófa“. Þórður hefur
búið á Akureyri um sjö ára
skeið og Haraldur Ingi er
Akureyringur. Það var því
ekki úr vegi að fá Þórð frá
Dagverðará í stutt viðtal í
tilefni af útgáfu þessarar
„norðlensku“ bókar.
Við spurðum Þórð fyrst um
skólagöngu hans, sem sögð er
hafa verið í styttra lagi.
„Ég var sex vikur í barnaskóla
en svo lýkur að segja frá skóla-
göngu minni. En gættu að:
„Lærdóm mestan lífsins besta skóla
heima þjódin á sér æ
inni í góðum sveitabæ“
Æðsti háskóli íslands í ellefu
hundruð ár var baðstofan, þar
voru skrifuð dýrustu rit sem selj-
ast í dag fyrir milljónir. í borgun-
unt þykjast menn vera hálærðir
vegna skólagöngu en það er ekki
sama lærdómur og vit. Þið farið
til sálfræðinga og lærið sálarfræði
en skiljið ekkert í henni. í bað-
stofunni undir Jökli var kennd
æðsta sálarfræðin. Undirstaða
hennar er að reiðast aldrei og
öfunda öngvan og syrgja aldrei
tap né gróða sem er eðlilegt
lögmál lífsins. Allt hamingjuleysi
er kraftleysi, það að þola ekki til-
veruna. Fræðingavandamálin eru
í borgunum. Það sýnir okkur það
að enn er æðsta menning landsins
í sveitunum. Bændur og veiði-
menn eru undirstaða þjóðfélags-
ins. Ef þeir hætta að framleiða er
úti um menninguna."
- Mér sýnist þú nokkuð hress
eftir aldri, kominn vel yfir
áttrætt . . .
„Eftir aldri! Ég get allt sem þið
ungu mennirnir getið og betur,“
segir Þórður og hlær dátt. „Ég sá
það fyrir löngu þegar menn, sem
átu ekkert nema grænmeti, komu
á Snæfellsnes að þetta voru kraft-
lausir menn. Þá fór ég að bera þá
saman við gamla fólkið: Nýræðir
karlar hlupu upp um öll fjöll því
þeirra lifnaðarhættir voru heilsu-
samlegri. Það fólk lifði á rarnnt-
íslenskum inat og hafði svona
gott af. Ég hef farið eftir þessu og
þakka því heilsu mína. Ég ét feitt
kjöt og garnlan, íslenskan mat.
Ég hef aldrei étið ávexti eða
sælgæti. Horkjötið er til
skammar. Það vantar í það allan
kraft og bændur ættu að láta
rannsaka þetta hrausta gamla
fólk í stað þess að taka mark á
stofulærðum spekingum, sem
verða dauðir vegna sinnar eigin
speki löngu á undan okkur. Ég ér
þeirrar skoðunar að hverri þjóð
sé best að éta þann mat sem jörð-
in sem það stendur á ber og
fæðir. Að öðrum kosti hefðum
við ekki lifað í landinu þetta
lengi. Gauti Arnþórsson læknir
rannsakaði mig nýlega. Það var
allt í besta lagi hjá ntér, sérstak-
lega blóðfitan, taktu eftir. Þetta
er ekkert bull, því Gauti er vfs-
indamaður og með bestu læknum
í Evrópu."
- Nú hefur þú búið á Akureyri
í nokkur ár. Hvernig líkar refa-
skyttunni Þórði við Akureyr-
inga?
„Ég varð fyrir miklum von-
brigðum með það hve fáir Akur-
eyringar eru sjálfhælnir. En þó
má finna þar innan um snillinga á
Evrópuntælikvarða. Að búa á
Akureyri er dásamlegt, nema
hvað lognið er allt of mikið. Það
mætti gusta meira, þá gustaði
meira af öðru. Það er eiginlega of
mikið sældarlíf á Akureyri.“
- Akureyringar ekki nógu
sjálfhælnir, segir þú. En hvað þá
um Þingeyinga?
„Uss, það er ekki nokkurt loft
í þeim á móts við ntig og aðra
undir Jökli.
- Víkjum aðeins að bókinni
þinni. „Setið á Svalþúfu - Hand-
bók fyrir veiðiþjófa“, það er
frekar óvenjulegt nafn á bók.
Hvað merkir það?
„Svalþúfa er bjarg á Snæfells-
nesi. Þar kvað Kolbeinn Gríms-
son niöur skrattann. Þá þjóðsögu
þekkja allir en undirtitillinn vísar
til þess að í bókinni er mikið fjall-
að um veiðiskap og þá ekki alltaf
á hefðbundinn hátt. En þar er
fleira því þar er líka fróðleikur
sent enginn man eftir nema ég;
allir hinir eru dauðir.“
- Heyrst hefur að þið Harald-
ur Ingi beitið óvenjulegum
aðferðum við að koma bókinni á
framfæri.
„Já, við höfunt lagst út í tjald
við verslunarmiðstöðina Glæsibæ
í Reykjavík nú um stund og tök-
um fólk tali, bjóðurn því upp á
hákarl og almennilega súran og
feitan mat og svo í nefið á eftir.
Þessi bók verður ekki auglýst í
auglýsingaflóðinu. Þetta er ekki
þannig bók. Aðalatriðið er að
hafa gaman af þessu. Við erum
svo á leiðinni norður til að tala
við þá sent nenna að hlusta en
þangað til bið ég fyrir kveðjur til
allra sem þær vilja hafa.“
Að svo mæltu var Þórður
rokinn. Eflaust til að bjóða ein-
hverjum upp á hákarl og svo í
nefið á eftir. HB.
||
t
V
\
v
—
Þóra Einarsdóttir í Vernd er löngu
landskunn fyrir störf sín í þágu þeirra sem
standa halloka í samfélaginu. Hún kynnti
sér aðbúnað og félagslega þjónustu við
l fanga í mörgum helstu fangelsum
I Evrópu og stofnaði síðan fanga-
I hjálpina Vernd. Jafnframt því að
jj veravelgjörðarmaðurþessafólks
fli_ þá ferðaðist hún til Austurlanda
ia m.a. til Indlands og þar sá hún
mannlífið í sinni ömurlegustu
mynd. Af sinni alkunnu fórnfýsi
f sneri hún sérað hjálparstarfi
meðal þessa fólks. Merkileg
saga af stórkostlegri konu.
Sérstæð bók um konur sem giftar eru
þekktum einstaklingum í íslensku þjóðlífi,
— Þær hafa mikil áhrif
— Þær eru sjaidan í fjölmiðlum
— Þær hafa frá mörgu að segja.
Þær eru: Guðlaug Brynja Guðjónsdóttir,
maki Guðjón B. Olafsson, forstjóri SÍS,
Ebba Sigurðardóttir, maki Biskupinn
yfir íslandi, herra Ólafur B. Skúla-
son, Margrét Kristín Sigurðar-
dóttir, maki Ragnar Halldórsson,
fyrrverandi forstjóri íslenska ál-
félagsins, Jónína Benedikts-
dóttir, maki Svavar Gestsson, mennta-
málaráðherra og Gerður Unndórs-
dóttir, maki Vilhjálmur Einars- /
son, skólameistari Egilsstöðum. /j
Sigurjón Rist er þjóðkunnur fyrir braut-
ryðjendastörf sín sem vatnamælinga-
maður. Hann lenti í margvíslegum þrek-
raunum og ævintýrum við mælingar á
straumhörðum ám, stöðuvötnum
og jöklum, en tókst meö fyrir-
hyggju og aðgæslu aö sneiða
hjá alvarlegum óhöppum. Sigur-
jón segir líka frá uppvaxtar-
árum sínum á Akureyri og
í Eyjafirði, þegar fátækt og
kreppa settu mark á allt mann-
líf og berklar stráfelldu
fólk. Hann kynntist anga
nasismans á íslandi og var
handtekinn vegna hvarfs haka-
krossfána. Lifandi frásögn
með einstökum húmor. J&S
Afgreiðsla á Akureyri^^
Hafnarstræti 75, sími 24024.
| Skjaldborg
Ármúla 23- 108 Reykjavik
Simar: 67 24 00
6724 01 L
31599 I
1 ■■ »1 !
, 1 t & §
J | n I I
j Jl ^ |^| i [‘l 7* ■ jjj
JÖiK
2 1 1 |á fo
111 1 *