Dagur - 13.12.1989, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 13. desember 1989
Jólasveinarnir Kjutkrókur, Kertasníkir og Stékkjastaur, brugðu undir sig betri fætinuni á laugdardaginn og héldu með flugvél Flugfélags Norðurlands í heini-
sókn til Grímseyjar. IVIeð þeim í för var hópur barna frá Akureyri og cinnig slóst Ijósmyndari Dags með í förina og tók þessa mynd við það tækifæri.
Siglunes hf. er með áframhaldandi
rækjuvinnsluleyfl á Siglufirði
- deilan stendur um afnot af verksmiðjuhúsi Sigló sem slegið var Ríkissjóði
Siglunes hf. hefur fengið stað-
festingu á vinnsluleyfi sínu hjá
sjávarútvegsráðuneytinu.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
eru ákveðnir í að halda rekstri
rækjuverksmiðju áfram á
Siglufirði, og hafa augastað á
húsi sem hentar starfseminni.
Guðmundur Arnaldsson,
framkvæmdastjóri Sigluness, segir
stjórn fyrirtækisins staðráðna í að
halda vinnslunni áfram í bænum.
„Við höfum tækin, þrjár pillunar-
vélar og framleiðslulínuna, og
munum verða annað hvort í hús-
inu sem Ríkissjóður keypti eða
einhverju öðru húsnæði. Þetta er
það sem að okkur snýr og okkar
hluthöfum,“ segir hann.
Fulltrúaráð Kennarasambands
íslands lýsir yfir fullum stuðningi
við þá sjálfsögðu kröfu BSRB að
samningaviðræðum við ríki og
sveitarfélög verði þegar í stað
komið á.
Fulltrúaráð KÍ krefst þess að
leiðrétt verði sú mikla kjara-
skerðing sem launafólk hefur
orðið fyrir og tekur jafnframt
Menn hafa velt því fyrir sér
hvort Siglunes muni festa kaup á
frystihúsi ísafoldar, sem varð
gjaldþrota fyrir skömmu. Að
■sögn forráðamanna Sigluness var
húsið skoðað en það þykir of lítið
og óhentugt og verður ekki
keypt.
„Það liggur fyrir munnleg stað-
festing á að við erum með
vinnsluleyfi frá ráðuneytinu.
Meginmálið er að við höfum til-
skilin leyfi, eins og Sunnumönn-
um hefur verið tjáð, og við erum
með kaupleigusamning að vélun-
um við sænskt kaupleigufyrirtæki
auk viðskiptasambanda. Þetta
getur hver sem vill kannað,“ seg-
ir Guðmundur Arnaldsson.
Samkvæmt nýjustu fréttum frá
undir þá kröfu BSRB að leiðrétt-
ur verði sá mikli munur sem á
undanförnum áruin hefur mynd-
ast á launum félagsmanna BSRB
og starfsmanna við sömu störf en
í öðrum stéttarfélöguin. Misræmi
af því tagi sem þannig kemur
fram er óþolandi öllu launafólki
og skapar einungis togstreitu og
ágreining á vinnustöðum.
Siglufirði hafa þrír Sunnumenn
gerst hluthafar í almennings-
hlutafélaginu Siglunesi, en tog-
streita virðist ríkja milli þessara
félaga um afnot af verksmiðju-
húsi Sigló. Á meðan deilt er um
þetta ganga 30 fyrrverandi starfs-
menn atvinnulausir.
Athugasemd frá
Fangelsismála-
stofhim rðdsins
í tilefni af viðtali við refsi-
fanga, sem birtist í Degi þann
7. desember sl. og vegna frétt-
ar á forsíðu blaðsins, vill Fang-
elsismálastofnun ríkisins taka
fram, að hún ræðir ekki í fjöl-
miðlum um mál einstakra
fanga né eltist við rangfærslur
um störf hennar.
Þó er það skiljanlegt að ekki eru
allir menn sáttir við ríkisstofnun
sem meðal annars hefur það hlut-
verk að fullnusta refsivistardóma
þeirra. Hins vegar verður ekki
hjá því komist að mótmæla þeirri
röngu fullyrðingu að stofnunin
fari ekki að lögum, eins og segir
bæði í viðtalinu og í fréttinni.
Að lokum skal bent á þá leið
íslensks réttar að telji aðili
stjórnvöld brjóta á sér lög eða
ekki beita réttum aðferðum við
meðferð máls er ætíð hægt að
leita úrlausnar dómstólanna.
Á Siglufirði er mikið rætt um
þreifingar Þormóðs ramma vegna
bátakaupa frá Þorlákshöfn, eins
og áður hefur komið fram. Eru
sumir þeirrar skoðunar að fyrir-
tækið vilji kaupa bát sem hentar
til rækjuveiða, en ætlunin sé að
koma þorskkvóta Stapavíkur yfir
á Sigluvík og Stálvík, til að gera
rekstur þeirra arðbærari. Aðrir
hafa bent á að Stapavíkin þarfn-
ist milljóna króna klössunar eigi
að gera skipið út áfram. Því sé
það „hálfgert neyðarbrauð að
skipta á henni og 127 tonna pung
frá Þorlákshöfn,“ eins og einn
viðmælandi blaðsins komst að
orði. EHB
Plasteinangrun hf.:
Óskað eftír
írekari gögnum
Arnar Sigfússon, fulltrúi
bæjarfógetans á Akureyri, hef-
ur sent bréf til Plasteinangrun-
ar hf. þar sem hann óskar frek-
ari upplýsinga og gagna til þess
aö geta tekið afstööu til fram-
kominnar beiðni fyrirtækisins
um heimild til nauðasamninga.
„Við yfirferð fyrirliggjandi
gagna frá fyrirtækinu voru nokk-
ur atriði sein ég taldi ástæðu til að
fá frekari upplýsingar um. Fyrir-
tækinu var gefinn frestur til nk.
nránudags til að koma þeim á
framfæri.“ óþh
Ályktun frá fulltrúaráði
Kennarasambands íslands:
Hin mikla kjaraskerðing
launafóiks verði leiðrétt
frétfir
Húsavík:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráði hcfur borist
erindi frá Húsnæöisstofnun
ríkisins, þar sem fram kemur
að Húsnæðismálastjórn hefur
samþykkt að þær fimm leigu-
íbúðir sem bæjarsjóður er aö
láta byggja að Grundargarði
4, veröi yfirteknar af Búseta á
Húsavík. í frarohaldi af þessu
erindi, samþykkir bæjarráð að
ræða við Búsetafélagiö um
framgang málsins.
■ Bæjarráði hcfur borist
erindi frá Sjúkrasanrlagi Húsa-
víkur. En vegna fyrirhugaðra
breytinga á verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga, hefur
Sjúkrasamlagsstjórn sagt upp
núverandi þjónustusamningi
við bæinn, frá og með næstu
áramótum.
■ Bæjarráði hefur borist
erindi frá Starfsmannafélagi
Húsavíkur, þar sem ni.a. er
óskað eftir frágangi á lista yfir
þá starfsmenn bæjarsins, sem
mega samkvæmt lögum vinna,
ef til verkfalls kemur. Einnig
>var lögð fram krafa um sömu
laun fyrir sömu vinnu og vitn-
að til samanburðar við
almennan vinnumarkað.
■ Alls bárust 13 umsóknir um
starf við íþróttahöllina en
bæjarráð hefur samþykkt að
ráða Valdimar Ingólfsson
Túngötu 15, í starfið frá 1.
janúar n.k.
■ Byggingafulltrúi lagði fram
á fundi bygginganefndar
nýlega, bréf frá Herði Þórhalls-
syni, sem fjallar um bygginga-
framkvæmdir í kirkjugarðín-
um viö Höfðabrekku. Hörður
cr ósáttur við framgang
málsins, m.a. mcð lilliti til
útsýnis frá húsi sínu við Skjói-
brekku 12. Höröur eróánægð-
ur með staðsetningu og hæð
hins nýja þjónustuhúss í kirkju-
garöinum og lýsir einnig
óánægju með gróðursetningu
trjáa á lóðarmörkum kirkju-
garðsins að norðan, auk fleiri
atriða. Bygginganefnd tók
ekki afstöðu til bréfsins.
■ Byggingancfnd hefur borist
erindi frá Húsnæðissamvinnu-
félaginu Búseta, þar sem
félagið óskar eftir lóð fyrir 4
íbúða hús á tveimur hæðum,
eða 4 íbúða raðhús. Einnig
óskar félagið eftir lóð fyrir 12
íbúða fjölbýlishús. Ncfndin
tekur jákvætt í erindið og
bendir á lóðir við Grundar-
garð fyrir Búseta að sækja um.
Jafnframt var byggingarfull-
trúa falið aö auglýsa lausar
byggingalóðir.
■ Bygginganefnd hefur borist
erindi frá íslenska Stálfélag-
inu, þar sem óskað er cftir
afmörkuðu svæði, sem öllu til-
fallandi brotajárni og bílflök-
um verður safnað á. Félagið
mun síöan skuldbinda sig til
þess aö hrcinsa þetta svæði
með reglulegu millibili. Bygg-
inganefnd tekur jákvætt í mál-
ið og felur byggingafulltrúa að
athuga það nánar.