Dagur - 13.12.1989, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 13. desember 1989
Húsavík:
Sameiginleg fullveldishátíð skólanna
- Vel vandað til dagskrár
Fullveldisfagnaður skólanna á
Húsavík var haldinn í íþrótta-
húsinu 30. nóv. sl. Fjölmenni
var á hátíðinni, 6-700 manns
að talið var, nemendur skól-
anna, kennarar og annað
starfslið, auk foreldra, systkina
og fleiri gesta. Nemcndur
Barnaskólans, Framhaldsskól-
ans, Dansskólans og Tónlistar-
skólans tluttu fjölbreytta og
vandaða dagskrá, voru þau
sjálfum sér og skólum sínum til
sóma og var framlagi þeirra vel
tekið.
Léttsveit Húsavíkur lék í upp-
hafi hátíðarinnar sem sett var af
Bylgju Steingrímsdóttur,
nemanda í Framhaldsskólanum,
en hún kynnti einnig dagskrárliði.
Nemendur efstu bekkja Barna-
skólans fluttu dagskrá í tali og
tónum um fullveldisdaginn 1918,
í samantekt kennaranna, Arn-
heiðar Eggertsdóttur og Guðrún-
ar Kristínar Jóhannsdóttur; sagt
var frá hátíðahöldum dagsins, líf-
vörður stóð heiðursvörð, nokkrir
nemenda brugðu sér í hlutverk
ráðamanna og fluttu brot úr
ávörpum þeirra, og íslenski fán-
inn var dreginn að húni meðan 21
fallbyssuskoti honum til heiðurs
var skotið af stærstu trommu
lúðrasveitarinnar. Áhorfendur
vottuðu þjóðsöngnum virðingu
með því að rísa úr sætum og
einnig fengu þeir að endurtaka
húrrahróp 1. desemberdagskrár-
innar 1918.
Kórar Barnaskólans og Fram-
haldsskólans sungu saman og
sinn í hvoru lagi undir stjórn
Hólmfríðar Benediktsdóttur og
við undirleik David Thontpson.
M.a. sungu nemendur Barna-
skólans lagið Áin er alltaf að
vaxa eftir Jónas og Jón Múla
Árnasyni og dönsuðu um leið.
Dansskóli Svölu kom með gott
framlag til hátíðarinnar, tvö pör,
eldri og yngri nemenda sýndu
dans og stóðu sig vel.
Steingrímur Þórhallsson, nem-
andi í Framhaldsskólanum, flutti
frumort Ijóð af miklum skörungs-
skap, og ekki kæmi á óvart þó
hann ætti eftir að láta meira til
sín heyra síðar.
Nemendur voru ekkert að ráð-
ast á garðinn þar sent hann er
lægstur og tveir leikarar úr leik-
klúbbi Framhaldsskólans fluttu
atriði úr fslandsklukkunni eftir
Halldór Kiljan Laxnes. Þetta
voru Heimir Týr Þórhallsson og
Þórný Birgisdóttir.
Svala Hermannsdóttir, for-
maður Soroptimistaklúbbs Húsa-
víkur og nágrennis færði Barna-
skólanum og Framhaldsskólan-
um gjafir frá klúbbnum. Tók
Guðmundur Birkir Þorkelsson.
skólameistari Framhaldsskólans
við íslensku orðsifjabókinni, en
Halldór Valdimarsson, skóla-
stjóri Barnaskólans við íslensku
orðsifjabókinni og fánastöng fyr-
ir íslenska fánann, sem klúbbur-
inn gaf skólanum árið áður til
notkunar við hátíðleg tækifæri
innanhúss.
Að lokum lék léttsveit Fram-
haldsskólans.
Þetta er í annað sinn sem
skólarnir efna til sameiginlegrar
fullveldishátíðar, vel hefur til
tekist og mættu slíkar hátíðir því
verða að föstum liö í starfsemi
skólanna. Mikill metnaður var í
efnisvali fyrir hátíðina og mega
aðstandendur vera stoltir af og
hafa þökk fyrir ánægjulega
stund. IM
Fylgst með dagskránni af athygli.
Safnahúsinu á Húsavík barst góð gjöf:
„Bréfasafii Helga er hluti af íslandssögunni“
- segir Finnur Kristjánsson forstöðumaður Safnahússins.
Safnahúsinu á Húsavík barst gjöf frá Guðrúnu
Stefánsdóttur og börnum hennar 3. des. sl.
Um var að ræða bréfasafn Helga Benediktssonar
sem orðið hefði níræður þennan dag.
Bræðurnir Páll og Arnþór Helgasynir afhentu
safnið, en það telur um tíu þúsund bréf sem eru frá
einni síðu, upp í 50-60 vélritaðar síður hvert.
í tilefni af afhendingunni var haldið kaffiboð að
Hótel Húsavík þar sem Arnþór afhenti Finni
Kristjánssyni, forstöðumanni Safnahússins, lykla
að kistu þeirri er bréfasafnið geymir.
Við afhendinguna flutti Arn-
þór kveðju frá móður sinni og
sagði ágrip af sögu föður síns sem
hér fer á eftir: „Hann var fæddur
að Grenjaðarstað 3. des. 1899 og
fluttist með Jóhönnu móður sinni
að Héðinshöfða á sjöunda mán-
uði. Jóhanna dó frá honum á
Þorláksmessudag árið 1900.
Helga var síðan komið í fóstur til
ágætra sæmdarhjóna hér á Húsa-
vík; hjá Sigtryggi Péturssyni og
Hólmfríði Magnúsdóttur sem
bjuggu hér í Borgarhóli, og þessa
fósturforeldra sína mat Helgi
ákaflega mikils.
Hann fluttist til Vestmanna-
eyja árið 1920 og setti þar á fót
mikinn atvinnurekstur. Hann var
á sínum tíma landskunnur
athafnamaður, stundaði útgerð,
fiskverkun, verslun, rak iðnað-
arfyrirtæki, var með búskap og
átti hlut að ýmsum þjóðþrifamál-
um þar í bæ og reyndar um allt
land.
Faðir okkar tók virkan þátt í
stjórnmálum. Hann gekk í Fram-
sóknarflokkinn skömmu eftir að
hann var stofnaður og var mikill
og einlægur aðdáandi Jónasar frá
Hriflu. Svo mikill aðdáandi Jón-
asar að við bræður erum aldir
upp í svipaðri aðdáun á Jónasi og
Kínverjar voru aldir upp í aðdá-
un á Mao. Þessvegna þoli ég t.d.
aldrei að heyra Jónasi hallmælt,
þá fer mér að líða illa.
Faðir okkar skrifaði gríðarlega
mikið um dagana. Hann mun
hafa ritað um tíu þúsund sendi-
bréf, og greinar í blöð og tímarit
eru fjölmargar. Þessi sendibréf
sem hann skrifaði voru frá einni
síðu og upp í 50-60 þéttritaðar,
vélritaðar síður. Þessi bréf fjöll-
uðu um ýmsa atburði en vegna
bersögli sinnar og óhlýðni við
forustumenn Framsóknarflokks-
ins fór svo að Helga Benedikts-
syni var lokaður Tíminn. Þá
greip hann til þess ráðs að koma
sér upp hópi pennavina, sem
hann sendi afrit af þeim bréfum
sem hann skrifaði. Það má segja
að hann hafi verið sískrifandi.
Hann fór snemma á fætur á
morgnana og afkastaði miklu
dagsverki. Ég man ekki eftir hon-
um öðruvísi en að hann væri með
eitthvert bréf í smíðum, eða
grein. Hann skrifaði fjöldan allan
af minningargreinum og þar kom
hann einnig víða við. Hann gat
átt það til að skrifa greinar um
góðvini sína, rithöfunda, stjórn-
málamenn og róna. Það skipti
engu máli hvar í stétt maðurinn
var, ef tilefni gafst til þá skrifaði
hann. Þessar greinar urðu oft
þörf hugvekja um þau málefni
sem þá voru ofarlega á baugi og
höfðu kannski snert viðkomandi
einstaklinga.
Nú kem ég loks að erindi okk-
ar hér í dag. Á jólum 1970 bað
faðir minn þess að skjalasafni því
er hann léti eftir sig, sem voru
þessi tíu þúsund sendibréf, bréf
frá ýmsum einstaklingum til hans
og greinar þær sem hann hafði
skrifað í blöð og tímarit, að þessu
skjalasafni yrði komið í vörslu
Þingeyinga, og þar yrði það varð-
veitt til þess að menn gætu nýtt
sér það og notfært í sambandi við
stjórnmála- og atvinnusögu þessa
lands.
Hér er um gríðarlega merkar
heimildir að ræða um ýmis mál.
Hann hafði gott samband við
stjórnmálamenn í flestum flokk-
um og vissi því ótrúlega vel hvað
var að gerast hverju sinni. Þess
má geta að hann spáði fyrir um
örlög Hafskips, sagði að upp-
bygging fyrirtækisins væri þess
eðlis að það hlyti að hrynja.
Hann spáði fyrir um örlög
Útvegsbankans. Ef menn á ann-
að borð fara að kynna sér þessi
bréf og þær greinar sem hann
skrifaði, þá kemur fljótlega í ljós
að þarna var á ferðinni óvenju-
lega glöggskyggn maður sem vissi
mætavel hvað hann var að tala
um. Ef til vill hafði hann sínar
skoðanir sem féllu ekki öllum
vel. Þessvegna óttaðist hann að
ef þessu skjalasafni yrði ekki
komið fyrir á öruggum stað, færu
kannski ýmsir að hirða úr því það
sem óþægilegt væri. Því er ekki
að leyna að í þessu skjalasafni