Dagur - 13.12.1989, Side 16
Akureyri, miðvikudagur 13. desember 1989
Mjólkursamlag KEA:
Eldur í búnings-
klefa starfsmanna
- vindill í vasa kveikti eldinn
Lækkum matarreikninginn!
KEJX NETTÓ
Höfðahlíð 1
Snemma í gærmorgunn kom
upp eldur í búningsklefa karla í
Mjólkurstöð KEA á Akureyri.
Starfsmönnum tókst að slökkva
eldinn áður en slökkviðliðið
kom á vettvang og fór þar bet-
ur en á horfðist.
Eldsupptök munu vera þau, að
starfsmaður sem var að koma til
vinnu hafði stungið vindli í vasa
Húsavík:
um
útsölu í vor
Samþykkt var samhljóða, að
kosið skuli um opnun áfengis-
útsölu á Húsavík, á fundi
Bæjarstjórnar Húsavíkur í
gær. Mun atkvæðagreiðslan
fara fram um leið og næstu
kosningar til bæjarstjórnar,
vorið 1990.
Bæjarstjórn hafa borist
undirskriftalistar frá 362 ein-
staklingum, með áskorun um að
atkvæðagreiðsla um opnun
áfengisútsölu fari fram sem
fyrst. Bæjarstjórn var þó ekki
skylt að verða við þessari áskor-
un þar sem fjöidi áskorenda
náði ekki tölu sem nemur þriðj-
ungi af tölu atkvæðisbærra
bæjarbúa.
Lítið var rætt um áskorunina
á bæjarstjórnarfundinum, aö-
eins tveir bæjarfulltrúa tóku til
máls; Jón Ásberg Salomonsson
og Kristján Ásgeirsson, en síð-
an var hún samþykkt sam-
hljóða.
brisvar hefur verið kosið um
opnun áfengisútsölu á Húsavík
síðan í júni 1970, og síðast fyrir
rétt tæpum þrernur árum. IM
sinn en ekki tekið eftir að glóð
var enn í vindlinum. Fötunum
stakk hann síðan í skáp sinn og
hélt til vinnu.
Um hálftíma síðar tóku menn
eftir því að reyk lagði undan
hurðinni á búningsklefanum.
Kallað var á slökkvilið, en tveim-
ur starfsmönnum tókst að
slökkva eldinn áður en liðið kom
á vettvang. Eldurinn hafði ekki
náð að breiðast út í aðra skápa
sem í herberginu eru og því varð
tjón með minnsta móti. Þá barst
enginn reykur inn í vinnslusali
Mjólkursamlagsins. VG
Bræðurnir Ketkrókur, Kertusníkir og Stekkjastaur skemmtu börnum í göngugötunni á Akureyri á sunnudaginn.
Sungu þeir og trölluðu og fengu lánaðar svalirnar hjá KEA svo börnin sæu betur. Mynd: kl
Atvinnuástandið í nóvember:
Atvinnuleysi jókst mest á Norðurlandi eystra
mikil aukning á Akureyri, Húsavík og Siglufirði
Atvinnuleysi á íslandi það sem
af er þessu ári, liefur aldrei
verið meira frá því skráning
atvinnuleysisdaga hófst árið
1975. Aukningin milli mánað-
anna október og nóvember sl.
nam að jafnaði 18,5% og mest
var hún á Noðurlandi eystra.
Fjöldi skráðra atvinnuleysis-
daga í nóvember svarar til þess
að 2200 manns hafi að meðal-
tali verið á atvinnuleysiskrá í
mánuðinum, eða 1,7% af áætl-
uðum mannafla á vinnumark-
aðnum.
Ef nánar er litið á tölur úr ein-
stökum landsfjórðungum kemur
í ljós að á Norðurlandi eystra var
351 maður að meðaltali atvinnu-
laus í nóvember sem er 115 fleiri
en í október. Á Norðurlandi
vestra voru 150 manns að meðal-
tali atvinnulausir í nóvember eða
61 fleiri en í mánuðinum á
undan.
Á Norðurlandi vestra varð
aukningin mest á Siglufirði.
Atvinnulausum fjölgaði þar úr 13
í október í 36 í nóvember. Mikil
aukning varð sömuleiðis á Sauð-
árkróki, Hvammstanga og
Blönduósi.
Á Norðurlandi eystra varð
aukningin lang mest á Akureyri
og Húsavík. A Akureyri fjölgaði
atvinnulausum milli mánaða um
51, þar af 40 karla. Á Húsavík
fjölgaði atvinnulausum um 49 þar
af 25 karla. Mikil aukning varð
sömuleiðis á Dalvík.
Talið er að gott veðurfar að
undanförnu hafi orðið til þess að
aukningin milli mánaða nú er
heldur minni bæði tölulega og
hlutfallslega en milli sömu mán-
aða í fyrra, en vegna veðursins
hefur ekki dregið úr útivinnu að
neinu marki enn sem komið er.
VG
Snæfellið selt
til Grindavíkur
- vertíðabátur tekinn upp í kaupverð
í gær var gengiö frá kaupum
útgeröarfyrirfækisins Þor-
bjarnar hf. í Grindavík á frysti-
togaranum Snæfelli EA 740 af
Kaupfélagi Eyfirðinga. Form-
leg eigendaskipti fara fram um
næstu áramót, þ.e. ef þeir aðil-
ar sem lánuðu til smíði skipsins
samþykkja söluna.
Tryggingaverðmæti Snæfells-
ins er um 530 milljónir króna og
er talið að kaupverð sé vart
lægra. Vertíðarbáturinn Sigurður
Þorleifsson GK 256 mun ganga
upp í kaupin, en hann er metinn
á um 100-200 milljónir króna.
Sigurður Þorleifsson GK er
stálskip, smíðað á Akureyri
1973.
Eiríkur Tómasson útgerðar-
stjóri hjá Þorbirni hf. í Grindavík
sagði í samtali við Dag, að
útgerðin hefði að undanförnu
verið á höttunum eftir nýju skipi
og er ætlunin að breyta urn
áherslur í rekstri. „Ef við ætlum
að halda áfram í sjávarútvegn-
um, verðum við að breyta rekstr-
inum.“ VG/óþh
Slysið í Fljótum:
Nafii hins látna
Nafn mannsins sem lést í
slysinu í Fljótum um síðustu
helgi var Fjólmundur Karls-
son.
Hann var 67 ára gamall vél-
smiður til heimilis að Berg-
landi II Hofsósi. Hann lætur
eftir sig konu og fjögur upp-
komin börn. kj
VILTU
MEIRITEKJUR?
------------•------------
Leitaðu ráða um arðbærar
sparnaðarleiðir
hjá sérfræðingum.
Verðbréfamarkaður
Fj árf estingarf élagsins hf.:
------------•---:--------
Er umsýsluaðili fyrir Verðbréfasjóði sem veita
sparifjáreigendum góða vexti með lágmarks-
áhættu.
Er umboðsaðili fyrir Spariskírteini ríkissjóðs.
Kaupir og selur hlutabréf.
Tekur að sér umsjón fjármála fyrir einstaklinga og
félagasamtök.
... .....- ...........—• ----------------------i_.
Hefur umsjón með frjálsa lífeyrissjóðnum sem er
stórmerk nýjung í lífeyrismálum íslendinga.
<n>
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
Ráðhústorgi 3, Akureyri, sími 25000