Dagur - 24.07.1990, Blaðsíða 8

Dagur - 24.07.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 24. júlí 1990 Verðlaunahafar í kvennaflokki, Bryndís I. Stefánsdóttir, Birna Björnsdóttir og Ásta Ásmundsdóttir. Bikarkeppni 2. flokks: Þór í undanúrslit eftir sigur á KR 2. flokkur Þórs tryggði sér sæti í 4-liða úrslituin Bikarkeppn- innar í knattspyrnu þegar liðið sigraði KR í Reykjavík á laug- ardaginn. Úrslitin urðu 2:1 og voru öll mörkin skoruð í fyrri hálfleik. Þórsarar fengu óskabyrjun þegar Ingólfur Guðmundsson skoraði eftir aðeins tvær mínútur með þrumuskoti af 30 metra færi. Ingólfur var aftur á ferðinni þeg- ar 15 mínútur voru til leikhlés og bætti öðru marki við en KR-ing- ar minnkuðu muninn skömmu seinna. Þórsarar fengu ágætis færi í þessum hálfleik sem ekki nýttust og hefði ekki verið ósann- gjarnt þótt munurinn hefði verið meiri í hléi. í seinni hálfleik voru Þórsarar sterkari fyrstu 15 mínúturnar en þá tóku KR-ingar öll völd og sóttu stíft. Þórsarar vörðust þó vel og náðu að halda hreinu og tryggja sér sigurinn. Þegar hefur verið dregið til 4- liða úrslita og fengu Þórsarar heimaleik gegn Fram. Sá leikur fer fram mánudaginn 30. júlí. þurftu að hlaupa upp brekku eina ægilega og taldi Haukur að hún hefði fært sér sigurinn en hann er öllum hnútum kunnugur í brekk- unum eins og menn vita. Yfirburðir Birnu í kvenna- flokknum voru miklir og kom hún í mark heilum fjórum mínút- um á undan næstu konu sem var Ásta Ásmundsdóttir frá Akur- eyri. Birna náði þessari forystu í sundinu og bilið milli hennar og næstu kvenna hélst nokkuð óbreytt eftir það. Röð fimm efstu varð þessi: Karlar 1. Haukur Eiríksson, Svalb. 1:06.42 2. Jón Hugi Harðarson, Akran. 1:06.47 3. Einar Jóhannsson, Reykj. 1:07.57 4. Rögnvaldur Ingþórsson, Ak. 1:09.52 5. Óskar Ólafsson, Reykj. 1:10.21 Konur: 1. Birna Björnsdóttir, Garðab. 1:16.16 2. Ásta Ásmundsdóttir, Ak. 1:20.59 3. Bryndís I. Stefánsdóttir, Ak. 1:25.58 4. Hrönn Einarsdóttir, Ak. 1:29.48 5. Guðfinna Aðalgeirsdóttir, Ak. 1:31.07 Verðlaunahafar í karlaflokki, Einar Jóhannsson, Haukur Eiríksson og Jón Hugi Harðarson. Skíðagöngumaðurinn Haukur Eiríksson frá Svalbarðseyri og sundkonan Birna Björnsdóttir frá Garðabæ sigruðu á fyrsta íslandsmótinu í þríþraut sem fram fór við Hrafnagil í Eyja- flrði á sunnudagsmorguninn. Sigur Bimu var mjög öruggur en Haukur lenti í harðri keppni við Jón Huga Harðar- son en hafði betur í lokin. Þátttakendur um helgina voru 22 í karlaflokki og 5 í kvenna- flokki og þótti mótið heppnast í alla staði vel. Haukur Eiríksson. Hörpudeild: Þór-ÍBV frestað Leik Þórs og ÍBV, sem fram átti að fara á Akureyri í gærkvöld, var frestað þar sem ekki var flug- fært frá Eyjum. Þegar blaðið fór í vinnslu í gær var talið líklegast að leikurinn yrði látinn fara fram miðvikudaginn 1. ágúst. Birna Björnsdóttir. Myndir: JHB Birna Björnsdóttir: Átti ekkert frekar von á sigri „Þetta var frekar erfitt, sér- staklega hlaupin. Það var erfltt að skipta af hjólinu,“ sagði Birna Björnsdóttir frá Garða- bæ en hún vann öruggan sigur í kvennaflokknum. Birna sagðist æfa og keppa í sundi en sagðist varla hafa æft neitt sérstaklega fyrir keppnina. „Ég hélt mínu striki í sundinu en hljóp aðeins og hjólaði með. Ég átti ekkert frekar von á sigri og bjóst eiginlega við að ég fengi meiri keppni. Þetta var mjög skemmtilegt og ég á alveg eins von á að keppa í þessu áfram,“ sagði Birna Björnsdóttir. Þríþraut skiptist niður í sund, hjólreiðar og hlaup. Þessi skemmtilega íþróttagrein er til- tölulega ný hér á landi, fyrsta mótið í greininni fór fram á Akureyri fyrir rúmlega tveimur árum. Vegalengdir í þríþrautinni eru nokkuð misjafnar en á ís- landsmótinu voru syntir 750 m, hjólaðir 20 km og hlaupnir 6 km. Þetta afbrigði af þríþraut mun kallast „sprettþríþraut.“ Ef vikið er að keppninni um helgina og byrjað á karlaflokkn- um þá náði Jón Hugi Harðarson góðri forystu, eða nær tveimur mínútum, í sundinu enda vanur sundmaður. Þegar kom að hjól- reiðunum stakk hins vegar Einar Jóhannsson af. „Varst þú á mót- orhjóli?,“ spurði Haukur Einar þegar keppninni var lokið. Svo var þó ekki heldur hefur Einar keppt í hjólreiðum og m.a. dval- ist erlendis við æfingar og keppni. Þegar kom að hlaupinu náði Haukur hins vegar að vinna upp forskotið og stinga sér framúr og Jón Hugi kom í mark nokkrum sekúndum síðar. Hlaupararnir Haukur Eiríksson: Erfitt að halda þetta út“ „Það var erfltt að halda þetta út. Ég þurfti að beita sjálfan mig mikilli hörku,“ sagði Haukur Eiríksson sem sigraði í karlaflokki eftir spennandi keppni. „Mér fundust hlaupin erfiðust, sennilega af því að þau voru síð- ust og maður þurfti að halda þetta út. Ég hef hlaupið nokkuð mikið um æfina og ég keppti einu sinni í sundi þannig að ég stóð nokkuð vel að vígi í þessum greinum. Það var helst hjólið sem var nýtt fyrir manni. Ég stefndi að því að ná tíma innan við 1:10 þannig að ég get verið ánægður. Ég vissi ekkert hvar ég stóð og sigurinn kom mér á óvart,“ sagði Haukur Eiríks- son. Haukur og Bima fyrstu íslandsmeistaramir í þríþraut íþróttir Þriðjudagur 24. júlí 1990 - DAGUR - 9 i l Opna Húsavíkurmótið í golfi: Enn sigrar Kristján Gylfason - Halla Arnardóttir sigurvegari í kvennaflokki Kristján Gylfason og Halla Arnardóttir, bæði úr GA, sigr- uðu í keppni án forgjafar á Opna Húsavíkurmótinu í golfl sem fram fór um helgina. Kristján lék á 156 höggum, þremur færri en næsti maður, og virðist hann vera í góðu formi fyrir Landsmótið sem fram fer á Akureyri innan skamms. Halla lék á 192 höggum, sex höggum færri en næsta. Otrúlega góð þátttaka var í mótinu að þessu sinni, keppendur voru 112 talsins en til samanburðar má geta þess að keppendur á Akureyrar- mótinu fyrir skömmu voru 123 og höfðu aldrei verið fleiri. Mótið þótti heppnast nokkuð vel og veður var ágætt. Að vísu var nokkuð hvasst á laugardegin- um en vel heitt og á sunnudegin- um var golfveður eins og það verður best, blankalogn og hiti en engin sól. Keppni um 2. og 3. sæti í keppni án forgjafar í karla- flokknum var nokkuð spennandi. Hreinn Jónsson, GH, Sigurður H. Ringsted, GA, og Örn Arnar- son, GA, léku allir á 159 höggum og þurftu því í bráðabana sem fram fór á 3. holu. Hreinn vann strax í fyrstu umferð en Sigurður og Örn þurftu að fara þrisvar áður en Órn stóð uppi sem sigur- vegari og hreppti þriðja sætið. I keppni með forgjöf sigraði Hreinn Jónsson á 135 höggum nettó, Pálmi Pálmason, GH, varð annar á 138 og Sigurður H. Ringsted þriðji á 141 höggi. Sigur Höllu var nokkuð örugg- ur í kvennaflokki eins og fyrr segirl Jónína Pálsdóttir, GA, varð í öðru sæti á 198 höggum og KA og Fram gerðu jafntefli, 1:1, í Islandsmóti 2. flokks á KA-vellinum í síðustu viku. KA-menn höfðu forystu í hléi en Framarar pressuðu mjög stíft í seinni hálfleik og máttu heimamenn þakka fyrir jafn- teflið þegar upp var staðið. Fyrri hálfleikur var jafn og skemmtilegur. Bæði lið fengu ágæt færi en það voru KA-menn sem skoruðu eina mark hálfleiks- Sólveig Jóna Skúladóttir, GH, þriðja á 209. í keppni með forgjöf sigraði Sólveig Jóna á 153 höggum, Sig- ríður B. Ólafsdóttir, GH, varð önnur á 154 og Þóra Karlína Rósmundsdóttir, GH, þriðja á Magni nældi sér í dýrmæt stig á Grenivík á föstudagskvöldið. Liðið mætti þá toppliði HSÞ-b og sigraði 4:3 í hörkuleik. Magni er nú aðeins tveimur ins. Þar var að verki Tómas Her- mannsson og skoraði hann beint úr hornspyrnu. í síðari hálfleik voru Framarar sterkari aðilinn og pressuðu stíft. Þeir fengu mörg góð færi og náðu að jafna en ekki að knýja fram sigur. Mark Fram skoraði Rík- harður Daðason eftir mikið klúð- ur í vítateig KA. 156 höggum. í unglingaflokki varð Guðni Rúnar Helgason, GH, hlutskarp- astur í keppni án forgjafar á 154 höggum. Sveinn Bjarnason, GH, varð annar á 183 höggum og Gunnar Andri Gunnarsson, stigum á eftir HSÞ-b í E-riðli 4. deildar en á einn leik til góða og verður því ekki annað sagt en að staðan hjá Grenvík- ingunum sé vænleg. Magnamenn byrjuðu vel og náðu fljótlega forystunni með marki Jóns Illugasonar. Þjálfari Magna, Kristján Kristjánsson, bætti öðru marki við skömmu síðar en þá var komið að Mý- vetningunum. Einar Jónsson minnkaði muninn með glæsi- marki beint úr aukaspyrnu og Viðar Sigurjónsson jafnaði svo metin eftir að hann hafði stolið knettinum laglega af varnar- og markmanni Magna. Fjörið var þó ekki enn búið í fyrri hálfleik því brotið var á Magnamanninum Eymundi Ey- 4. deild D: GSS, þriðji á 185 höggum. Guðni Rúnar sigraði einnig í keppni án forgjafar á 124 höggum, Birgir Haraldsson, GA, varð annar á 143 höggum og Hjálmar Ingimarsson, GH, þriðji á 146 höggum. HSÞ-b mundssyni innan vítateigs HSÞ-b og Jón Ingólfsson skoraði úr víta- spyrnunni. Það var svo Hinrik Arni Bóasson sem átti síðasta orðið í hálfleiknum með þrumu- skoti úr vítateignum eftir að hafa fengið boltann upp úr auka- spyrnu og staðan í hléi var 3:3. I síðari hálfleik dró heldur af liðunum en Magnamenn voru þó hættulegri í öllum aðgerðum sínum. Þegar um 15 mínútur voru liðnar skoraði Ingólfur Ásgeirsson af miklu harðfylgi og það reyndist sigurmark leiksins og Magni sigraði 4:3. í kjölfarið fylgdu stangarskot beggja liða en fleiri urðu mörkin ekki. Tveir fengu að líta rauða spjaldið, Jónas Hallgrímsson, HSÞ-b, og Bjarni Ásgrímsson, Magna. 2. flokkur: Jaftit hjá KA og Fram Verðlaunahafar í karlaflokki, frá vinstri: Örn Arnarson GA, Kristján Gylfason GA og Hreinn Jónsson GH. Mynd: Brynjólfur Tryggvason. 4. deild E: Vænleg staða Magna - eftir 4:3 sigur á toppliði Þrymur tapaði fyrir Hvöt á Blönduósi - Guðmundur Haraldsson dæmdi 3. deild Úrslit í 10. umferð: Þróttur R.-Haukar 2:0 BÍ-Þróttur N. 1:0 Reynir-Dalyík 2:0 Völsungur-ÍK 0:2 Einherji-TBA 4:2 Þróttur R. 10 9-0-1 29: 7 27 Haukar 10 7-1-2 22:11 22 ÍK 10 7-0-3 26:16 21 Þróttur N. 10 5-2-3 31:18 17 Reynir 10 4-1-5 16:22 13 Völsungur 10 2-4-4 11:16 10 Dalvík 10 3-1-6 14:21 10 Einherji 10 2-3-5 17:24 9 BÍ 10 2-2-6 17:24 8 TBA 10 2-0-8 7:35 6 Markahæstir: Þráinn Haraldsson, Þrótti N. 10 Jóhann Ævarsson, BÍ 9 Ólafur Viggósson, Þrótti N. 9 Óskar Óskarsson, Þrótti R. 9 Garðar Níelsson, Reyni 7 Júlíus Þoriinnsson, ÍK 7 Tveir leikir voru í D-ríðli deild- arinnar um helgina. Geisiinn tók á móti Neista á Hólmavík og endaði sá leikur 0:0. Þrym- ur sótti síðan Hvöt heim á Blönduósi og þar sigraði Hvöt 3:1 í leik sem sjálfur Guð- mundur Haraldsson, milli- ríkjadómari, dæmdi. Leikur Geislans og Neista var háður á grasvelli Geislanna í blíðviðri hinu mesta. Jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik, en í þeim seinni sóttu Neistamenn heldur meira og var m.a. eitt mark dæmt af þeim. Einnig áttu þeir nokkur góð skot og eitt þeirra í samskeytin. Sumir vildu | fá dæmda vítaspyrnu í einni sókn Neista þegar Ingvar Magnússon var felldur af markverði, en dóm- arinn dæmdi ekkert og leiknum lauk með markalausu jafntefli. í leik Hvatar og Þryms gekk heldur meira á. Þrymsmenn urðu fyrri til að skora og var þar að verki Kristján Baldvinsson eftir að rangstöðugildra Hvatarmanna brást. Áður en fyrri hálfleik lauk náðu þó heimamenn að jafna og það var Kristinn Guðmundsson sem sá um það Seinni hálfleikurinn einkennd-' ist af sóknum I \ atar, en það var samt ekki fyrr e um tíu mínútur • Ivoru til leiksloka að Hermann Arason náði að koma þeim yfir og Ásgeir Valgarðsson bætti síð- an þriðja markinu við áður en leiknum lauk. ! Dómari í Ieik Hvatar og Þryms (Var enginn annar en Guðmundur jHaraldsson og þótti leikmönnum og áhorfendum ansi mikill munur jað hafa svo þjálfaðan og þekktan dómara miðað við suma þá sem eru að dæma 4. deildarleikina. Guðmundur var staddur í Húna- þingi við veiðar og notfærðu Hvatarmenn sér það og fengu hann til að dæma þennan leik auk þess sem hann dæmdi einn leik hjá yngri flokkum líka. SBG 4. deild E: Sögulegt hjá SMogAustra - 12 mörk og 9 spjöld Hann var nokkuð sögulegur leikur SM og Austra í E-riðli 4. deildar á föstu- dagskvöldið. Fyrir það fyrsta voru skor- uð 12 mörk í leiknum, sem SM vann 8:4, og þar að auki veifaði dómarinn hvorki meira né minna en níu spjöldum, sex gulum og þremur rauð- um. SM var mun sterkari aðilinn í leiknum og skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik en Austramenn svöruðu með einu. í seinni hálfleiknum bætti SM fjórum mörkum við en Austramenn klóruðu heidur í bakkann og skoruðu þrívegis. Örn Örlygsson og Heimir Finnsson skoruðu þrjú rnörk hvor fyrir SM og Jón Forberg skoraði tvö. Sigurður Helgi Olafs- son skoraði tvö mörk fyrir Austra og Pétur Jónsson og Dagur Ingason skoruðu hvor úr sinni vítaspyrnunni. Leikmenn beggja liða voru mjög óhress- ir með framgang dómarans í leiknum og töldu hann hafa verið heldur ósparan á spjöldin. Hann veitti þremur leikmönnum úr hvoru liði gul spjöld auk þess setn hann sýndi tveimur leikmönnum Austra og ein- um leikmanni SM rauð spjöld. Létt hjá UMSE-b gegn Narfa UMSE-b hafði mikia yfirburði þegar liðið mætti Narfa frá Hrísey á heima- velli þeirra síðarnefndu um helgina. UMSE-b sótti látlaust nær allan tímann og þegar upp var staðið hafði liðið skor- að sex mörk gegn engu marki Narfa. UMSE-b sótti látlaust í fyrri hálfleik og skoraði þá fimm mörk. Seinni hálfleikur var keimlíkur þeim fyrri nema nú gekk UMSE-mönnum verr að skora þrátt fyrir að færin létu ekki á sér standa. Þeir komu þó boltanum einu sinni í netiö og úrslitin urðu 6:0. Sigurinn hefði hæglega getað orðið stærri því UMSE-b misnotaði m.a. vítaspyrnu. Ásgrímur Reisenhaus og Baldvin Hall- grímsson skoruðu tvívegis hvor og Sigurð- ur Skarphéðinsson og Arnar Kristinsson skoruðu eitt mark hvor. 4. deild D-riðill Úrslit Geislinn-Neisti Hvöt-Þrymur Hvöt Neisti Kormákur Geislinn Þrymur Markahæstir: Albert Jónsson, Korntáki 6 Ásgeir Valgarðsson, Hvöt 6 í 6. umferð: 0:0 3:1 5 5-0-0 16: 5 15 5 3-1-1 12: 3 10 4 2-0-2 14: 5 6 5 1-1-3 3:22 4 5 0-0-5 4:14 0 E-riðill Úrslit í 7. umferð: HSÞ b-Magni SM-Austri Narfí-UMSE b HSÞ-b UMSE-b Magni S.M. Austri Rau. Narfi 3:4 8:4 0:6 7 5-1-1 32: 7 16 7 4-2-1 30: 7 14 6 4-2-0 23: 9 14 7 3-1-3 19:19 10 7 1-0-610:34 3 6 0-0-6 3:41 0 Markahæstir: Viðar Sigurjónsson, HSÞ-b 10 Ásgrímur Reisenhaus, UMSE-b 8 Kristján Kristjánsson, Magna 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.