Dagur - 24.07.1990, Blaðsíða 16
Akureyri, þriðjudagur 24. júlí 1990
Saudárkrókur
Húsavík
Einn á báti.
Mynd: KL
Sigurbjörg ÓF-1:
Mesta aflaverðmæti
í eiimi veiðiferð
Frystitogarinn Sigurbjörg ÓF-
1 kom á föstudagsmorgun með
fullfermi af frystum þorskflök-
um og grálúðu til löndunar á
Ólafsfirði. Aflinn var 166 tonn
og aflaverðmæti 37 milljónir
króna sem er mesta aflaverð-
mæti skipsins í einni veiðiferð.
Aflanum verður landað í
frystigáma, en í næstu viku mun
Hofsjökull, skip Eimskips, lesta
gámana til útflutnings. Umræður
hafa farið fram milli forráða-
manna Eimskips og Ólafsfjarðar-
bæjar um siglingar Eimskips til
Ólafsfjarðar, og eru taldar líkur á
að koma Hofsjökuls til Ólafs-
fjarðar í næstu viku sé aðeins
byrjun þess að Eimskip hætti við
þá ákvörðun að fella niður allar
Beina flugið Akureyri-Sviss:
Flugstöðin á Akureyri of lítil
- brottfararfarþegar verða að bíða utandyra meðan tollskoðun fer fram
Mikil aðsókn er að beina flug-
inu Akureyri-Sviss, og er upp-
bókað í allar ferðir nema eina,
þann 13. ágúst. Hjá Ferða-
skrifstofunni Nonna fengust
þær upplýsingar að ferðir þess-
ar sæktu á og væru greinilega
vinsælar. Þó er Flugstöðin á
Akureyri of lítil, að margra
mati, til að hægt sé að veita
ferðafólkinu fullkomna þjón-
ustu þar.
Nokkrir aðilar hafa haft sam-
band við Dag vegna fyrirkomu-
lagsins á Akureyrarflugvelli. Pot-
urnar frá TEA lenda kl. 23.30 á
Akureyri og brottför er kl. 01.05.
Flugstöðinni er lokað meðan toll-
verðir sinna sínum skyldustörf-
um. Á meðan bíða farþegar sem
eru á leið til Sviss utandyra, því
þeir mega ekki fara inn fyrr en
tollverðir hafa lokið störfum.
Bent hefur verið á að þetta sé
ekki heppilegt, þótt það sé senni-
lega óhjákvæmilegt miðað við lög
um tollgæslu og útlendingaeftir-
lit.
Brottfararfarþegar koma sumir
það snemma að dæmi eru um að
þeir hafi þurft að bíða í klukku-
stund meðan flugstöðin er lokuð.
Hjá Ferðaskrifstofunni Nonna
fengust þær upplýsingar að eftir-
lit tollvarða tæki u.þ.b. hálfa
klukkustund, en brottfararfar-
þegum væri sagt að mæta ekki
fyrr en rétt upp úr miðnætti.
Sú spurning hefur vaknað upp,
í kjölfar beina flugsins, hvort
ekki þyrfti að stækka flugstöðina
á Akureyri og jafnvel setja þar
upp litla fríhöfn. Þá væri hægt að
halda brottfararfarþegum að-
greindum frá komufarþegum
undir sama þaki.
Þorgrímur Þorgrímsson hjá
Ferðaskrifstofunni Nonna segir
það álit sitt að tvímælalaust þyrfti
að stækka húsið, en eins og er
rúmar það ekki bæði komu- og
brottfararfarþega í hverja þotu-
ferð.
Hann segir að engar kvart-
anir hafi borist frá brottfararfar-
þegum vegna lokunar flugstöðv-
arinnar, enda viti ferðafólkið að
húsið sé ekki opnað fyrr en rúm-
lega tólf. Auk þess getur fólkið
beðið í áætlunarbifreiðum meðan
tollafgreiðsla og vegabréfaskoð-
un fer fram. Meðan flugstöðin er
ekki stærri er ekki um annað að
gera en hafa þetta svona. Hvað
fríhöfnina snertir er það mál leyst
til bráðbirgða með góðu vöruúr-
vali um borð í þotunum. EHB
Hvammstangi:
AðkaUandi hafnarframkvæmdir
smábátahöfnin tilbúin
Smábátahöfnin á Hvamms-
tanga er nú komin í fulla
notkun. I síðustu viku var flot-
bryggjimum komið fyrir og
landvegurinn steyptur svo að
aðstaða smábáta er orðin
mjög góð á Hvammstanga.
Frekari verkefni eru þó aðkall-
andi í hafnarframkvæmdum á
staðnum að sögn Þórðar
Skúlasonar, sveitarstjóra, og
þar er dýpkun efst á blaði.
„Hafnarframkvæmdir eru hér
ódýrar og þannig hefur það verið
í gegnum tíðina. Skilyrðin eru
góð frá náttúrunnar hendi og
auðvelt að gera hér höfn að þvf
leytinu til. Síðan höfum við ágæt-
an mann hér á staðnum sem hef-
ur séð um þessar framkvæmdir
og það hefur ekki síður sparað
fé,“ segir Þórður, en smábáta-
höfnin var gerð fyrir afgang af
fjármagni sem varið var í fram-
kvæmdir við aðalhöfnina á síð-
asta ári og henni lokað þá með
grjótgarði.
Þær framkvæmdir sem voru við
höfnina í fyrra voru lagfæringar á
norðurgarðinum og þar segir
Þórður að þörf sé á frekari
aðgerðum og sérstaklega þarf að
styrkja fremsta hlutann á gamla
kerjagarðinum með stálþili.
Dýpkun á höfninni er einnig
verulega aðkallandi og verður
hún að gerast strax á næsta ári að
sögn Þórðar, því að bátarnir eiga
orðið í erfiðleikum með að kom-
ast út og inn úr henni. Ástæðan
er þó ekki sú að dýpið sé að
minnka í höfninni, heldur eru
bátarnir sem um hana fara alltaf
að stækka. SBG
siglingar til Ólafsfjarðar vegna
slæmra hafnarskilyrða þar eins og
fram hefur komið í Degi.
Skipstjóri á Sigurbjörgu er Vil-
hjálmur Sigurðsson. GG
Þingeyjarsýsla:
Tvær
bflveltur
Bflvelta varð í Vaglaskógi um
helgina og rétt fyrir helgi varð
bflvelta í Mývatnssveit. Ekki
urðu slys á fólki við þessi
óhöpp en í báðum tilfellum eru
ökumenn grunaðir um ölvun
við akstur.
Mikill ferðamannstraumur hef-
ur verið í Þingeyjarsýslu undan-
farna daga og mjög mikil umferð,
sem hefur gengið óhappalaust að
sögn lögreglu á Húsavík.
Að sögn lögreglu á Egilssöðum
hefur verið gífulega mikið af
ferðafólki þar og tjaldstæði KHB
voru full af tjöldum í fyrrinótt.
Fjöldi ferðafólks tjaldaði einnig í
Atlavík, en þrátt fyrir mikla
umferð hefur hún gengið óhappa-
laust fyrir sig. IM
Lögreglan:
Ekið
á belju
Dalvík: Framúrakstur á Hafnar-
braut varð þess valdandi að bif-
reiðin sem ekið var á er talin
ónýt. Engin slys urðu á mönnum.
Ólafsfjörður: Ókumaður frá
Ólafsfirði ók á belju við bæinn
Hátún á Árskógsströnd sl. föstu-
dag. Beljan slapp með skrámur
en bifreiðin er mikið beygluð.
Nokkrir ökumenn voru teknir
fyrir of hraðan akstur um helg-
ina.
Akureyri: Veruleg ölvun var í
bænum um helgina, og voru fjór-
ir gestir fjarlægðir vegna óspekta
af tjaldsvæðinu. 2 ökumenn sem
sviptir höfðu verið ökuréttindum
voru teknir og 8 fyrir of hraðan
akstur. GG
Húsavík:
Innbrot á útimarkað
- sex peysum stolið í blíðviðri
Sex lopapeysum var stolið úr
tjaldi útimarkaðarins á Húsa-
vík aðfaranótt sunnudags.
Þjófnaðurinn var kærður til
lögreglu sem enn hefur ekki
upplýst málið.
Þetta er þriðja sumarið sem
Sveinn Hauksson starfrækir úti-
markað á Húsavík, og þar til nú
hefur ekki verið hróflað við tjald-
inu á næturnar. Sveinn sagði í
samtali við Dag að sér fyndist að
menn legðust lágt að vera að
hnupla úr tjaldinu og geta ekki
séð það í friði. Blíðuveður var á
Húsavík um helgina en ekkert
tveggjapeysuveður og því síður
sexpeysuveður. Sá fingralangi
ætti því að sjá sóma sinn í að
skila ónotuðum peysunum hið
fyrsta. IM
Akureyri:
Andanmgar týna tölunni
Kcttirnir á Brckkunni eru
iðnir við að fylgjast með
Andapollinum fyrir neðan
Sundlaug Akureyrar þessar
vikurnar. Um helgina tóku
þeir tvo andarunga, og eru þá
aðeins sex ungar eftir.
Árni Steinar Jóhannsson,
deildarstjóri Umhverfisdeildar
Akureyrarbæjar, var spurður
hvort ekki væri eitthvað til ráða
svo ungunum fækkaði ekki á
þennan sorglega hátt. Hann
sagði að í fyrra hefði verið gerð
tilraun til að setja upp búr á
varphólfnanum. Þá hefði cinn
starfsmaður umhverfisdeildar-
innar vaktað hólmann í frítíma
sínum, með góðum árangri. Nú
væru ekki aðstæður fyrir hendi
til að endurtaka það.
í ár er enginn sérstakur vakt-
maður við Andapollinn. Árni
Steinar segir að hann óski auð-
vitað alltaf eftir fólki sem vilji
leggja sitt af mörkum til að
vakta ungana, en slík vinna
kostar mikið og Umhverfis-
deildin hafi ekki fé til að leggja
í þetta. Náttúran verði að hafa
sinn gang, fáist ekki einhverjir
aðilar til stuðnings ungunum.
Mávur og svartbakur hafa
drepið geysilegan fjölda af
æðar- og andarungum við Poll-
inn í vor og sumar, eins og
áhugamenn urn fugla vita gjörla
og hafa margir fylgst með þessu
í sumar. Æðarkollurnar voru
með fimm til sex unga úr
eggjum, en strax eftir fyrstu
viku á sjó voru oftast aðeins
tveir til þrír ungar eftir með
hverri æðarkollu. EHB