Dagur - 12.10.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 12. október 1990
Nýtt Port á Akureyri:
íþróttafélagið Þór
opnar Hallarport
í íþróttahöUinni
fréftir
Á morgun, laugardag, kl. 11.00
mun íþróttafélagið Þór á
Akureyri opna nýtt Port, Hall-
arportið, í Iþróttahöllinni.
„Starfsemi Þórs á þessu sviði
hefur legið niðri í sumar, en nú
förum við aftur af stað með við-
höfn og skemmtileghcitum,“
sagði Benedikt Guðmundsson,
fyrrum íþróttakappi úr Þór.
„Síðastliðinn vetur rákum við
Þórsarar Port við Dalsbrautina í
líkingu við Kolaportið í Reykja-
vík. I vor var ákveðið að hvíla í
sumar og aðrir aðilar við Dals-
brautina tóku upp þráðinn. Allt-
af var á áætlun hjá Þór að skipta
um húsnæði og nú er svo komið
að við förum í Höllina og opnum
Hallarportið á laugardaginn. Við
væntum góðrar aðsóknar, því
margt er um að vera á staðnum á
íþróttasviðinu, sem styrkir stöðu
okkar. Á laugardaginn verður
vöruúrvalið fjölbreytt, rafmagns-
vörur, fatnaður, matvara og
ýmislegt annað. Ráðgert er að
bjóða upp á skemmtiatriði á
hverjum laugardegi, þegar Hall-
arportið er opið, og þessu lýkur í
sumar með miklu karnivali í
júlí,“ sagði Benedikt Guðmunds-
son. ój
Hafþórsmálið:
Vestfirðingar
eiga næsta leik
Eins og kom fram í blaðinu í
gær er Dögun hf. út úr mynd-
inni hvað varðar kaup á Haf-
þóri, skipi Hafrannsókna-
stofnunar. Sjávarútvegsráðu-
neytið hefur kallað næst til
leiks Togaraútgerð Isafjarðar
hf. sem var ásamt Ingimundi
og Gjögri hf. með næsta tilboð
fyrir neðan.
Hafþór hefur verið á leigu fyrir
vestan sl. sex ár og nú er að sjá
hvort framhald verður á því.
Togaraútgerðin átti 200 milljóna
króna tilboð í skipið og 50 millj-
ónir í útborgun. Þeir hafa frest
fram á næsta fimmtudag til að
útvega sér bankatryggingar og
annað sem ráðuneytið krefst.
Hafþór hefur verið gerður út
til rækjuveiða síðustu árin, en
þarfnast nú lagfæringa áður en
hægt er að gera hann út. Talað
hefur verið um 60-80 milljónir
króna í kostnað til að hefja sjó-
sókn á honum aftur fyrir utan
breytinga fyrir aðrar veiðar. Því
er ljóst að mikill kostnaður til
viðbótar við kaupverð kemur á
kaupanda skipsins hver svo sem
hann verður. SBG
Kjörbúð KEA
Byggðavegi 98
Helgartilboð
Mais Bakaðar
korn baunir Kiwi
340 g dós 400 g dós ca. 1 kg
75 kr. 42 kr. 163 kr.
Kjúklingar 444 kr.
Hverdags franskar 750 g 165 kr.
Nemli
hreingerningalögur
2 lítrar
74 kr.
Discount
kaffi
1/2 kg
169 kr.
'JLUL'/
_ MH!
Opið alla daga til Kl. 20.00,
ITka sunnudaga
KJÖRBUÐ KEA
BYGGÐAVEGI 98
Jón Víkingsson eigandi Kirnunnar og starfsfólk hans, til vinstri Bryndís
Jóhannesdóttir og til hægri Hanna Vigdís Jóhannesdóttir.
Ný matvöruverslun á Akureyri:
„Vandað verður til
vöruúrvals og hráefnis“
- segir Jón Víkingsson, verslunareigandi
Ný matvöruverslun, Kirnan,
var opnuð í gær í Innbænum
að Hafnarstræti 20, Höepfn-
ershúsinu, sem er gamalgróið
verslunarhúsnæði reist 1911 af
Carli Höepfner. Eigandi versl-
unarinnar Kirnunnar er Jón
Víkingsson.
„Við munum leitast við að
veita sem besta þjónustu þeim
sem hingað sækja. Vandað verð-
ur til vöruúrvals og þess gætt að
vera með nýtt og gott hráefni.
Sérstök alúð verður lögð á kjöt-
borðið, en síðar í mánuðinum
fáum við stórt og veglegt kjöt-
borð frá Þýskalandi, sem gerir
okkur mögulegt að auka úrvalið
enn frekar.
Bændur og aðrir viðskipta-
menn KEA, sem versla við kaup-
félagið út í reikning með bláum
nótum, eins og sagt er, geta versl-
að hér í versluninni á sama hátt,“
sagði Jón Víkingsson.
Verslunin Kirnan er opin
hvern virkan dag frá kl. 9.00 til
22.00 og um helgar frá kl. 10.00
til 22.00. ój
Mývatnssveit:
Stefnt að því að
ljúka við 30 km
girðingu næsta sumar
Stefnt er að því að Ijúka upp-
setningu girðingar í nágrenni
byggðarinnar í Reykjahlíð í
Mývatnssveit næsta sumar.
í sumar hefur verið unnið af
kappi við að girða. Landgræðsla
ríkisins hefur umsjón með girð-
ingarvinnunni.
Um er að ræða nálægt 30 kíló-
metra langa girðingu sem er sam-
starfsverkefni Landgræðslu ríkis-
ins, Skútustaðahrepps, Kísiliðj-
unnar og Kröfluvirkjunar.
Að sögn Sigurðar R. Ragnars-
sonar, sveitarstjóra Skútustaða-
hrepps, er margþætt markmið
með þessari girðingu. í fyrsta lagi
að stöðva landeyðingu, sem er
töluverð á svæði sem lendir innan
girðingar, í öðru lagi að halda
búfénaði frá byggðarkjarnanum í
Reykjahlíð, í þriðja lagi að girða
af athafnasvæði Kísiliðjunnar og
Kröfluvirkjunar og í fjórða lagi
að girða af tjaldsvæði og flugvall-
arsvæðið.
Að norðan og sunnan er girt á
landamerkjum Reykjahlíðar og
Grímsstaða annars vegar og hins
vegar Reykjahlíðar og Voga. Að
austan er farið yfir Námafjall og
Dalfjall. óþh
Kaupfélag Eyfirðinga:
Nítján gerðu tilboð
í vöruflutningana
- öll tilboðin frá Akureyri og Reykjavík
Nítján tilboð bárust Kaupfé-
lagi Eyfirðinga í vöruflutninga
fyrir fyrirtækið en ætlunin er
að leggja núverandi bifreiða-
deild félagsins niður, fáist við-
unandi tilboð í flutningana.
Þau tilboð sem bárust eru öll
frá fyrirtækjum á Akureyri og í
Reykjavík og í flestum tilvik-
um lýsa aðilar jafnframt yfir
áhuga á að kaupa vöruflutn-
ingabifreiðar af KEA.
Síðdegis í gær var ekki búið að
reikna öll tilboóin út og fékkst
því ekki uppgefið hvert þeirra
væri hagstæðast. Sigmundur
Ófeigsson hjá KEA sagði þó tals-
verðan mun á tilboðum. Þrjú
þeirra komi frá skipafélögum unt
flutninga á sjó. Hann ségir að
þegar lokið verði mati á öllum til-
boðunum verði valin úr 5-6 tilboð
og rætt við þá aðila sem þau
gerðu. Ekki sé sjálfgefið að tekið
verði aðeins einu tilboði heldur
geti svo farið að samið verði við
tvo aðila.
Á síðasta ári námu vöruflutn-
ingar fyrir KEA unt átta þúsund
tonnum en Sigmundur segir að
heimilt sé að hluti af þessum
vörum, eða allt að 3 þúsund
1 tonn, verði flutt með skipi. JÓH
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að sækja til félagsíbúðadeildar
Húsnæðisstofnunar ríkisins
um heimild til byggingar 12
félagslegra íbúða í fjölbýlis-
húsum árið 1991. Með um-
sókninni fylgi beiðni um frest
til að gcra og skila lögbundinní
könnun á húsnæðisástandi á
Siglufirði.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
makaskipti á eignarhlut ríkis-
ins í Gránugötu 18 annars veg-
ar og leiguréttindum á lóð
bæjarins að Gránugötu 8 hins
vegar, samkvæmt kaupsamn-
ingi milli ríkissjóðs og bæjar-
sjóðs en kaupsamningur þessi
lá frammi á bæjarráðsfundi.
■ Bæjarráði hefur borist
umsókn frá Framtaki sf. þar
sem sólt er um lóð undir stál-
grindarhús fyrir tækjageymslu
og aðra starfsemi. Ráðið sam-
þykkti að úthluta umsækjanda
lóöunum Egilstanga 1-3.
K Bæjarstjóri upplýsti á fundi
bæjarráðs nýlega að ólokið
væri fyllingu við viðlegukant
fyrir urn 2-2,5 milljónir kr.
sem nauðsynlegt væri að ljúka
nú í haust og rnælti Vita- og
hafnamálastofnun eindrcgið
ineð því að þessu verki yrði
lokið sem fyrst. Bæjarráð sam-
þykkti að fela bæjarstjóra og
bæjartæknil'ræöingi að ganga
til samninga um þessi verklok
við sömu verktaka og unniö
hafa að fyllingunni fram að
þessu.
■ Þráinn Sigurðsson bæjar-
tæknifræðingur hefur sagt
starfi sínu lausu rneð 3ja mán-
aða fyrirvara og lætur hann
því af störfum frá og með 1.
janúar 1991.
■ Bæjarráði hefur borist
erindi frá Gesti Frímannssyni
þar sem hann segir upp samn-
ingi sínum um sorphirðu fyrir
Siglufjarðurkaupstaö meö 3ja
mánaða fyrirvara og mun því
láta af störfum um næstu ára-
mót. Bæjarráð hefur sam-
þykkt að fela bæjartæknifræð-
ingi að augiýsa útboð um sorp-
hirðu fyrir Siglufjarðarkaup-
stað.
■ Jón Dýrfjörð hefur sótt um
byggingalóð á hafnarsvæðinu,
„nánar tiltekið á eða við hafn-
arbryggjuna." Hyggst hann
ásamt öðrum reisa vöru-
skemmu og skrifstofuhúsnæði
á löðinni sem hann telur æski-
legt að sé af stærðinni ca.
16x34 nt. Bæjarráð samþykkti
að vísa þessu erindi til
umsagnar í hafnarnefnd áður
en það fær áfgreiðslu í bæjar-
ráði.
■ Veitunefnd hefur sam-
þykkt aö ganga til samninga
við Jarðboranir hf. um borun
rannsóknarhola í Skarðsdal á
komandi hausti. Samningur-
inn skal gerður af veitustjóra
með vitund opinberra aðila.
■ Á fundi skólanefndar
nýlega kom m.a. fram að
nokkuð mikið hafi borið á
ruðubrotum í neðra skólahúsi
það sem af er árinu og er
heildarkostnaður frá árainöt-
um til 31. júlí kr. 97.786.-.