Dagur - 12.10.1990, Síða 3

Dagur - 12.10.1990, Síða 3
fréttir Föstudagur 12. október 1990 - DAGUR - 3 Haustlaukarnir komnir Aíramlialdandi pottaplöntuútsala Nýtt keramik Borðbúnaður í sérflokki Útfararskreytingar Kirkjuskreytingar Kransar og krossar r---------------- Haraldur Bessason kjörirm heiðurs- doktor við Manitobaháskóla Haraldur Bessason, rektor Há- skólans á Akureyri, verður gerður að heiðursdoktor við Minnesota háskóla á fímmtu- daginn kemur. Tilkynning þessa efnis barst Haraldi sl. sumar, en hann hélt utan í gær til að taka við nafnbót þessari, sem hann kveðst fyrst og fremst líta á sem viðurkenningu fyrir Háskólann á Akureyri. Það var dr. Arnold Naimark, rektor Manitobaháskóla, sem til- kynnti Haraldi Bessasyni um þessa nafnbót, sem yfirstjórn skólans hefur ákveðið að veita honum. Á fimmtudaginn verða hátíð- arhöld við Manitobaháskóla, við brautskráningu nemenda. Pá verður Haraldur Bessason sæmd- ur titlinum L.D., sem stendur fyrir doctor legum á latínu, (hef- ur sömu merkingu og doctor juris), honoris causa. „Eg tel þetta heiður fyrir Háskólann á Akureyri. Það kom mér algjörlega á óvart þegar ég fékk skeyti af þessu tilefni," segir Haraldur Bessason. Haraldur mun flytja aðalræð- una við háskólahátíð Mani- tobaháskóla að þessu sinni, og ávarpa brautskráða stúdenta. Hann hóf störf hjá Manitobahá- skóla árið 1956, fyrst sem aðstoð- arprófessor og síðar sem prófess- or í íslenskri tungu og bókmennt- um. Starfsferill hans þar varð langur og heilladrjúgur, alls 31 ár. Það var árið 1987 sem Harald- ur Bessason flutti aftur til ís- lands, og tók við rektorsstörfum hjá Háskólanum á Akureyri. EHB Starfshópur um atvinnu í sveitum: „Leitum nýrra leiða“ - segir Auður Eiríksdóttir Starfshópur um atvinnu í sveit- um, sem er á vegum Búnaðar- félags íslands, Kvenfélaga- sambands Islands, landbúnað- arráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stéttarfélags bænda, vill kom- ast í samband við þær konur í sveitum sem starfa við eða vilja hefja nýjan atvinnurekst- ur, þar með talið minjagripa- gerð og heimilisiðnaður, og óska eftir ráðgjöf eða annarri aðstoð af þeim sökum. Auður Eiríksdóttir að Hleiðargarði í Saurbæjarhreppi á sæti í starfs- hópnum. Áð sögn Auðar situr hún í þessum starfshópi á vegum Sam- bands íslenskra sveitarfélaga eftir tilnefningu fjórðungssambands- ins. Starfshópnum er ætlað að koma einhverju samhæfðu starfi á laggirnar og fá áreiðanlegar upplýsingar um þörf fyrir ráðgjöf og aðstoð við atvinnurekstur á vegum kvenna í sveitum og síðan megi finna leiðir til þess að mæta þeim þörfum. „Fólk er nú að hringja inn eftir auglýsingu sem birt var og lætur vita af hvað það er að vinna, eða hvað það hyggst framkvæma. Oft er fólk í erfiðleikum með mark- aðssetningu og fjármagn og við skoðum þau mál. Ráðgert er að ráða starfsmann til að ferðast um landið milli byggðarlaga til að samhæfa og kynna það sem er að gerast í þessum málum á hverjum stað. Fólk á landsbyggðinni, úti um sveitir, finnst það eitt og ein- angrað og vantar tengsl við fólk sem er að vinna að svipuðum verkefnum og oft vantar aðeins herslumuninn til að markaðssetn- ing og árangur náist,“ sagði Auð- ur Eiríksdóttir. ój BYGGINGAVÖRUR LÓNSBAKKA • Sr 96-30321 & 96-30326 OKEYPIS! Þau hafa aldeilis slegið í gegn GEMINI teppin okkar - sem þola næstum allt. Þessi þykku gæðateppi klæða nú fjölda stigahúsa auk annarra gólfa hérlendis sem erlendis. Núna geturðu teppalagt fleti sem hingað til var óhugsandi að hafa á teppi vegna bletta og slitálags. Skoðaðu ábyrgðarskilmálana. MARQUESA er alger bylting í teppagarni og þraut- prófað af hlutlausum rannsóknarstofum með tilliti til slitþols, fjaðurmagns og eigin- leika til að halda áferð sinni - þetta er gæðatrygging fyrir kaupandann. GEMINI teppin eru þétt, efnismikil, lykkjuofin gæðateppi, 8S0 gr af garni í hverjum fermetra og að auki blettaþolin. ÞAÐ MÁ JAFNVEL ÞRÍFA BLETTINA MEÐ 5 ára slitþolsábyrgð! 5 ára blettaábyrgð! Myndist, innan 5 ára frá kaupdegi blettur, sem ekki tekst að þrifa úr skv. leiðbeiningum, eða sérfræðingar okkar ná ekki úr þá skiptum viö orðalaust um teppi hjá þér. Slitni teppið I gegn innan 5 ára frá kaup- degi, skiptum við þvi slitna út með nýju teppi. 5 ára litaheldni! Láti teppi lit innan 5 ára frá kaupdegi, skiptum við þvi upplitaða út með nýju teppi. Ath: Ábyrgðin fellur úr gildi við misnotkun, skemmdarverk eða náttúruhamfarir. Gemini - teppi ofin úr Marquesa Einkar sterk gæðateppi með þéttum lykkjum og góðu undirlagi. 15 ferskir litir. Framleitt úr 100% polypropylene. Hentar á alla heimil- isfleti, stigahús og skrifstofur. Full ábyrgð. Breidd: 400 cm. Efnismagn: 880 gr. mJ Mælum, rífumgömlu teppinaf-gerumtil- boð og leggjum nýju teppin fljótt og vel.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.