Dagur - 12.10.1990, Page 7

Dagur - 12.10.1990, Page 7
OPer <ír -itinRh’.ttwö-J — HljSACI — 8 Föstudagur 12. október 1990 - DAGUR - 7 Þessi stúlka var að selja sykur og hafði aðeins verið að í u.þ.b. tvær mínútur þegar myndin var tekin. Að sjálfsögðu var komin röð. láta á sjá. Málning farin að flagna af, ef húsið hefur á annað borð einhvern tímann verið málað, þakplötur að losna o.s.frv. Eftir á að hyggja minnist ég þess ekki að einbýlishús hafi borið fyrir mín augu meðan á dvölinni stóð. Það er vel hugsanlegt að einhver slík hafi farið framhjá mér en ég held að óhætt sé að fullyrða að ríki- dæmi af því tagi sé afar fátítt í Sofiu. Hinn almenni borgari býr í Iangflestum tilfellum í leiguhús- næði þar sem hann hefur ekki ráð á öðru. Þess rná geta að venjuleg þriggja herbergja íbúð kostar sem samsvarar 170 þúsund íslenskum krónum. Allt í járnum í þinginu Lífskjör almennings eru ekki upp á marga fiska um þessar mundir og flestir tala um að ástandið í stjórnmálum og efnahagsmálum þjóðarinnar sé alvarlegra en nokkru sinni fyrr. Fyrir því eru margar ástæður en flestar má rekja á einn eða annan hátt til hinna róttæku breytinga í lýð- ræðisátt sem nú standa yfir í Austur-Evrópulöndunum. í stjórnmálalegu tilliti virðist búlgarska þjóðin vera klofin. Fyrir þingkosningar sem haldnar voru í landinu í júní sl. byggði stjórnarandstaðan upp öfluga áróðursvél í Sofiu og öðrum stærstu borgum landsins og það skilaði árangri. Meira en V hlut- Götumynd úr miðborginni. ar íbúa í stærstu borgunum höfn- uðu áframhaldandi stjórn gamla kommúnistaflokksins og kusu stjórnarandstöðuna. En það nægði ekki til. I dreifbýlinu og minni borgum og bæjum naut „flokkurinn“ mikils stuðnings, einkum af tveimur ástæðum að því er virðist. í fyrsta lagi komst áróður stjórnarandstöðunnar ekki til skila á þessum stöðum þar sem fjármagn var vart fyrir hendi og skipulag baráttunnar kannski ekki eins og best hefði getað orðið. í öðru lagi er alls ekkert víst að þetta hefði skilað sér í betri útkomu stjórnarand- stöðunnar. Stór hluti íbúa dreif- býlisins unir glaður við sitt, fram- leiðir matvæli sem þjóðin þarfn- ast til eigin neyslu jafnt sem út- flutnings, hefur það ágætt að flestu leyti og hefur engan áhuga á breytingum. Niðurstaðan varð því sú að „flokkurinn" hlaut helming atkvæða og andstaðan hinn helm- inginn. Samkvæmt lögum þarf starfhæf stjórn að hafa Vi hluta þingmanna að baki sér og þar sem stjórnarandstaðan ncitar alfarið að vinna með kommúnist- unum er allt í járnum. Þetta hef- ur það í för með sér að allar ákvarðanir stjórnvalda taka geysilegan tíma, nauðsynlegar breytingar ná ekki fram að ganga vegna málavafsturs í þinginu og hálflamað ríkisvald hefur nánast allt á sínum snærum sem fyrr en hefur ekki lengur mátt til að sjá um það. InnrásIraka veldur vandræðum Önnur skýring á vöruskortinum kom fram á íþróttasíðum blaðs- ins í síðustu viku. Hún er á þann veg að framleiðendur í dreifltýl- inu hafi verið óhressir með kosn- ingahegðun borgarbúa og reyni nú að kúga þá til hlýðni. Fleiri og sennilegri skýringar hafa verið nefndar til sögunnar. Iraksdeilan hefur snert Búlgari á fleiri en einn hátt og valdið þeim miklum vandræðum. Þeir hafa t.d. lengi fengið stóran hluta olíu sinnar frá Sovétríkjunum á afar hagstæðum kjörum en eftir innrás Iraka í Kúvæt neita Sovétmenn að láta olíu af hendi nema fyrir greiðslu í dollurum. Þeir eru af skornum skammti í Búlgaríu og allur gjaldeyrir þjóðarinnar fer til orkukaupa. Matvæli er ekki unnt að kaupa til landsins og matvæla- framleiðendur sjá sér hag í því að afla gjaldeyris með því að flytja framleiðslu sína út frekar en að láta hana á markað innanlands. Bitrir höfuðborgarbúar segja að framleiðendur bíði eftir því að skorturinn á markaðinum leiði til þcss að verð hækki nægilega mik- ið til að þeir láti svo lítið að selja löndum sínum matvæli. íraksdeilan hefur reyndar vald- ið Búlgörum vandræðum á fleiri en einn hátt. Um 5000 Búlgarar eru í írak og fá ekki að yfirgefa landið sem veldur því að landar þeirra eru milli steins og sleggju í þessu viðkvæma máli. Þá vill þannig til að írakar skulda Búlg- örum gcysilega mikið fé og snúist Búlgaría af fullri hörku gegn írak getur það haft alvarlegar efna- hagslegar afleiðingar fyrir landið. Það er kannski rétt að taka fram að allar vangaveltur um stjórnmálaástandið eru skrifaðar án ábyrgðar enda aðallega byggðar á samtölum við óbreytta borgara, sem hafa mismunandi skoðanir á ástandinu, en ekki vís- indalegum athugunum. Þó eru meginatriðin ljós og ætti ekki að þurfa að efast urn margt sem hér hefur komið fram. Búlgarar - þjóð í vanda Hvað sem öðru líður er ljóst að Myndir og texti: Jón Haukur Brynjólfsson Búlgarar eru þjóð í vanda og það sést glögglega þegar komið er út á götur Sofiu. Við allar bensín- stöðvar eru langar raðir af bif- reiðum og á fæstum stöðvunum er bensín að fá. Matvörubúðir eru nánast án undantekninga svo gott sem tómar og þar eru einnig langar biðraðir af fólki sem bíður upp á von og óvon. Við og við er skotið upp sölubásum á almanna- færi þegar snjöllum kaupsýslu- ntanni áskotnast einhverjar nauðsynjavörur. Þær seljast strax og komast færri að en vilja. Þjóð- in fær aðeins um helming þeirra orku sem hún þarfnast og raf- magn í höfuðborginni er t.d. mjög ótryggt (rafmagnið fór t.a.m. af leikvanginunt í hléi á leik CSKA og KA). Almenningur er orðinn óþreyju- fullur enda styttist í að hann fari að svelta. Svartsýni gætir og tví- vegis með skömmu millibili hafa ! orðið óeirðir í Sofiu. Á meðan við dvöldum í borginni neyddist t.d. kommúnistaflokkurinn til að láta fjarlæga tákn flokksins af höfuðstöðvum sínum, rauða stjörnu, vegna þrýstings frá almenningi. Glæpum hefur stór- fjölgað og flestir cru að verða búnir að fá nóg. Ein kona sagði okkur að eina markmið almenn- ings í dag væri að vinna myrkr- anna á milli og afla þannig nægi- lega mikils fjár til að komast í burtu. Sumir eru farnir að fyrirlíta samlanda sína og gott dænti um það er leigubílstjóri sem ók ntér á nokkra staði og var mér til aðstoðar á annan hátt. Ég spurði hann hvort mikið af ferðamönn- um kæmi til Búlgaríu og hann játti því en sagði þá alla vera að gera mistök. Ég hváði og þá sagði hann „Búlgaría er ntjög fallegt land en fólkið sem hér býr er slæmt." Gleymist seint Að koma til Sofiu um þessar mundir er reynsla sem seint gleymist. Einhverjum kann að þykja umsögn mín neikvæð en ástandið er verra en flestir ímynda sér. Eins og svo oft áður eru stjórnmál stór hluti vandans en nauðsynlegra breytinga er beðið og Búlgarar vona að þær verði fyrr en seinna. Að öðrum kosti hlýtur að sjóða upp úr því hugmyndafræði magans er alltaf sú áhrifaríkasta. Bílasala • Bílaskipti MMC Space Wagon 4x4, 7 manna árg. ’86, ekinn 40.000. V. 900.000. MMC L-300, sendill, árg. ’83, ekinn 62.000. V. 420.000. Subaru 1800 station 4x4, árg. ’88, ekinn 52.000. V. 1.050.000. mmu rajero langur, arg. »7, ekinn 90.000. V. 1.750.000. miiiwci iuuu ula, aiy. ekinn 4.000. V. 880.000. Athugið! Opið á sunnudag frá klukkan 13-17. i nÍLASAUNN Möldursf. BflASAlA við Hvannavelli. Símar 24119 og 24170. Skoda Favorit, árg. ’89, ekinn 11.000. V. 450.000. Lancer 4x4 station, árg. ’88, Toyota Corolla, árg. ’87, ekinn ekinn 45.000. V. 1.050.000. 52.000. V. 520.000. 16.000. V. 1.080.000. Toyota Landcruiser langur, árg. ’88, ekinn 54.000. V. 2.950.000. Toyota Camry station, árg. '87, ekinn 45.000. Subaru Justy 4x4, árg. ’88, ekinn 23.000. V. 560.000. ekinn 35.000. V. 760.000.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.