Dagur - 12.10.1990, Side 9

Dagur - 12.10.1990, Side 9
útgáfu, gjafabréfasölu o.fl. Gjafalistinn er fjölbreytilegur og telur á sjötta hundrað nöfn. Fá framlög eru innan við 1.000 kr. En hæst trónar talan 3.731.950 kr. sem félagið fékk i arf eftir Steindór Pálmason smið, þann gjafmilda heiðursmann, sem tók miklu ástfóstri við þetta verkefni félagsins, og lagði til þess alls tæplega 10 millj. kr. Séu framlögin tíunduð eftir upphæðum lítur sá listi þannig út: 6 framlaganna eru 9 framlaganna eru 9 framlaganna eru 5 framlaganna eru 8 framlaganna eru 35 framlaganna eru 36 framlaganna eru Samtals kr. 2.000.000 12.000.000 1.000.000 9.000.000 500.000 4.500.000 300.000 1.500.000 200.000 1.600.000 100.000 3.500.000 50.000 1.800.000 Þannig hafa þessir 108 einstakl- ingar, félagasamtök, hreppar, bær og ríki lagt fram samtals 33.900.000 kr., auk 1.750.000 kr. frá öðrum gefendum eða alls 35.650.000 kr. Fjáröflun félagsins sjálfs virðist nokkuð svipuð frá ári til árs, oft- ast milli 3-4 ntillj. kr. og athygli vekur að gjöld hvers árs eru næsta hverfandi. Þannig lítur t.d. reikningur ársins 1985 úr: 12 ár eru nú síðan fyrsta spaða- stungan var tekin og flestum finnst trúlega að byggingartími sé þegar orðinn of langur og að mál- ið komist í höfn og byggingin í rekstur. Óhjákvæmilegur kostn- aður - ljós og hiti - o.fl. er að verða verulegur kostnaðarliður, af þeim sökum líka þarf rekstur- inn að komast í gagn sem fyrst. Byggðastefna í orði og á borði Ein leið sýnist eðlilegust til lausn- ar málinu, sem er að bær og ríki skipti með sér þeim 70-75 millj. kr. byggingakostnaði sem eftir er, en félagið sjái um öflun 25-30 millj. kr. til tækjakaupa og alls búnaðar. Hlutur ríkisins er ekki stór til þessa aðeins 2Vi til 3% þess fjár sem búið er að leggja í bygging- una og hlutur bæjarins er litlu meiri. Það sýnist ekki óeðlilegt að hlutur þessara aðila í heildar- dæminu væri 15%, frá hvorum. Það fylgir því bæði kvöð og skylda að boða og framfylgja byggðastefnu, í raun. Það er haldlítið að lofa, eða láta skína í efndir loforða, sem síðan fjúka út í veður og vind eins og við Norð- lendingar höfum fengið að reyna Rekstrarreikningur NLFA 1985 TEKJUR: GJÖLD: Gjafir og framlög samkv. bók 2.503.140,00 Árgjöld og styrktarfélagagjöld 36.600,00 Ritföng, pappír, burðargj. 4.805,00 Gjafir 5,133,00 Fjáröflun: Auglýsingar 1.280,00 Bingó 166.259.55 Prentun fél. skírteina 2.532,00 -r kostn. 27.436,50 138.823,05 Söluljald 10.985.00 Smámiðahappdr. 127.035,00 Rekstrarhagnaður 3.365.368,24 -r- kostn. 17.180.00 109.855,00 Kaffisala 49.671,00 *r kostn. 3.589,50 46.081,50 Flóamarkaður 205.744.50 * kostn. 20.251,00 185.493,60 Kökubasar 13.850,00 h- kostn. 550,00 13.300,00 Hlutavclta 42.210.00 h- kostn. 1.800.00 40.410,00 Seldur jólapappír 1.780,50 Minningarkort 21.700,00 557.443,65 Vextir og verðbætur 292.937,59 3.390.121,24 3.390.121,24 Á tímamótum Og nú eru tímamót. Nú þegar heilbrigðismálaráðuneytið hefur veitt leyfi fyrir rekstri í Kjarna- lundi og að daggjöld fyrir 40 rúm verði veitt á fjárlögum 1992 sýna áætlanir að enn vantar 70-75 millj. kr. til að ljúka byggingar- framkvæmdum, auk 25-30 millj. kr. til kaupa á öllum búnaði og tækjum. Þannig stöndum við hér frammi fyrir allt að 100 millj. kr. fjárhagsdæmi. Hvernig verður það leyst á næsta eina og hálfa ári eða svo? af stjórnvöldum þessa dagana. Alver kemur ekki í Eyjafjörð, svo mikið er víst, svo leita verður á önnur mið. Eitt þeirra tækifæra sem nú eru í sjónmáli er Kjarna- lundur í fullum rekstri. Þar bjóð- ast 30 störf, sem hafa tvöföldun- aráhrif, eða meira, og er ekki í sjónmáli annað stærra atvinnu- spursmál hér urn slóðir. Þar fyrir utan munu svo byggingarfram- kvæmdir við Kjarnalund á næsta ári veita fjölda manna mikla atvinnu fjölda manna, ekki síst fagmönnum; smiðum, múrurum, rafvirkjum, málurum o.fl. En þetta krefst tafarlausra fjárfram- laga. Það er haldlítið að þessir aðilar beri fyrir sig peningaleysi. Peningar eru auðvitað til. Spurn- ingin er aðeins sú, hvar og hvert þeim er ráðstafað, hvar þeir lenda. Hvort þeir eru látnir í traust skuldlaust verkefni, sem stuðlar að hagsæld, bæði ein- staklinga og samfélagsins, eða milljónatugum fleygt í skulda- súpu fyrirtækja sem lítinn eða engan rekstrargrundvöll sýnast hafa. Sú auðvelda leið er fyrir hendi sem lausn á þessu máli, að bær og ríki tækju lán til 10 til 15 ára og afborganir og vextir af lán- inu árlega færð sem byggingar- styrkur til Kjarnalundar. Og hvað Akureyrarbæ varðar mun þetta fjármagn skila sér fljótt og örugglega til baka í opinberum gjöldunt starfsfólks og annars hagnaðar sem af þessari starfsemi mun leiða. Því verður að treysta á það að fjármagn verði fyrir hendi frá bæ og ríki á næsta ári, svo engin töf verði á framkvæmd- um. Verði svo vel róið fram í mun skuturinn vart eftir liggja. Það munu félagar í NLFA og fjölmargir aðrir áhugamenn og velunnarar sjá um að vel verði fyrir séð um allan búnað og tæki, sem nauðsynlegur er. Horfum fram Á þessu ári verður unnið fyrir um 8 millj. kr. Auk þess er hafin inn- rétting í kjallara hússins, þar sem fjöldi fólks - trimmhópar - og aðrir, sem í Kjarnaskóg sækja lífsfyllingu og þrótt, geta fengið aðstöðu. Þarna mun gefast kost- ur á búningsherbergjum, sturtu- böðum, gufubaði, áhalda- og æfingasal, sem einnig nýtist dval- argestum heimilisins, þegar þar að kemur. Kiwanisklúbburinn „Kaldbak- ur“ hratt þessu verkefni af stað með rausnarlegu framlagi 350 þús. kr. Áætlaður kostnaður framkvæmdanna er 1,3 millj. kr. og vonandi finnast fleiri örlátir svo þessi heilsulind geti opnað dyr sínar fyrir öllum þeim er njóta vilja. Við horfum vissulega vonglöð og fagnandi til þess tíma þegar Kjarnalundur iðar allur af lífi og starfi, lífi og starfi, sem miðar allt að einum punkti, meiri heilbrigði og lífsgleði, auknu lífsgildi. Um þá björtu rnynd verða sem flestir fjær og nær að slá skjaldborg, sem leysi hvern vanda, líka 100 millj. króna fjárhagsdæmið, sem bíður okkar. Tíminn sem okkur var ætlaður til verkloka er senn fullnaður, og þá fer vel á því að Ijúka þessari sögu með fleygum orðum. „Vilji er allt sem þarf.“ Jón Kristinsson, ritari NLFA. Æfingasundlaugin. Myndir: kl Föstudagur 12. október 1990 - DAGUR - 9 Viltu selja? Viltu kaupa? ★ Á Mitsubishi bílasýningunni um helgina verður stanslaus bílasala í salnum fyrir notaða bíla. ★ Komið með bílinn í sölu um helgina - sjáið glæsilegan sýningasal og njótið veitinga. Höldursf. fyrir rnotaöa b //a. BILASALA SAMSTARF FYRIRIÆKJA Á NORÐURLANDI RÁÐSTEFNA verður haldin á Akureyri laugardaginn 20. októ- ber um samstarf fyrirtækja á Norðurlandi. DAGSKRÁ: • Ávarp: Haraldur Sumarliöason, forseti Landssambands iðnaöarmanna: • Staða og uppbygging atvinnulífs á Norðurlandi, hlutverk atvinnuþróunarfélaga í eflingu atvinnu- lífs: Ásgeir Leifsson, framkv.stj. Iönþróunarfélags Þingeyinga. Sigurður P. Sigmundson, framkv.stjr. Iðnþróunarfélags Eyfirðinga. Uttnur Kristjánsdóttir, framkv.stj. Iðnþróunarfélags Norðurlands vestra. • Hvernig vinna fyrirtæki saman í fyrirtækjanetum? Kristján Jóhannsson, rekstrarhagfræðingur hjá VSI. • Samstarf fyrirtækja í sjávarútvegi og iðnaði: Guömundur Guðmundsson, verkfræðingur hjá Li. • Er fjarlægðin frá höfuðborgarsvæðinu kostur eða hindrun? Pétur Reimarsson, framkv.stjr. Sæplasts hf. • Samstarf í markaðshóp um útflutning: Torfi Guðmundsson, framkv.stj. Vélsmiðjunnar Odda hf. • Samstarf í byggingariðnaði: Hilmar Kristjánsson, framkv.stj. Stíganda hf. • Stuðningur Byggðastofnunar við að efla samstarf fyrirtækja á Norðurlandi: Valtýr Sigurbjarnarson, forstöðum. Byggðastofnunar á Akureyri. • Hugmyndir um skiptingu landsins í þjónustu- og atvinnusvæði: Ingimar Hansson, verkfræðingur. • Fjármögnun smáfyrirtækja á íslandi og í Evrópu: Guðlaugur Stefánsson, hagfræðingur hjá Li. • Samstarf um vöruþróun, kröfur til stjórnenda, hugvit og hönnun: Örn D. Jónsson, forstöðum. Sjávarútvegsstoínunar Háskóla íslands. • Umræður með þátttöku sveitarstjórnarmanna á Norðurlandi. Ráðstefnustjóri: Tómas Ingi Olrich, menntaskóla- kennari á Akureyri. Ráðstefnan verður haldin í Alþýöuhúsinu á Akur- eyri, 4. hæð. Ráðstefnugjald er kr. 4.500. Innifalið í ráðstefnugjaldi eru gögn, kaffi og hádegisverður. Tími: Laugardagurinn 20. október kl. 8.30-17.30. Skráning á ráðstefnuna fer fram á Svæðisskrifstofu iðn- aðarins á Akureyri, sími 96-11222 og hjá Landssam- bandi iðnaðarmanna, sími 621590, fyrir 16. október. SVÆÐISSKRIFSTOFA IÐNAÐARINS Á NORÐURLANDI LANDSSAMBAND IÐNAÐARMANNA

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.