Dagur - 12.10.1990, Side 13

Dagur - 12.10.1990, Side 13
Föstudagur 12. október 1990 - DAGUR - 13 hér & þar Þetta eru nú meiri ökuníðingarnir þarna í Kaliforníu. Sjáið bara þennan vesalings mann sem hefur lent undir jeppanum og situr þar fastur eins og hvert annað skraut. Og reyndar eru þessir fætur bara til skrauts. Einhver furðulegur jeppadellukarl fann upp á þessu og árangurinn er sá að skelfingu lostnir ökumenn hafa hvað eftir annað haft samband við lögreglu og björgunarsveitir og beðið um hjálp handa manninum sem lenti undir jeppanum. Já, blessaðir Kanarnir eru kyndugir. Karl í klípu Nei, þetta er ekki Vilhjálmur Ingi að brjótast inn í eggjaverslun eða út úr tann- læknastofu, en óneitanlega virðist þessi náungi vera undir miklum þrýstingi. Sjálf- sagt er þetta líka ansi pínleg staða, þ.e. ef maðurinn væri af holdi og blóði. Hér er hins vegar um útilistaverk að ræða, höggmynd í Ástralíu. Sprungan í veggnum er raunveruleg. Þetta er gamalgróin krá og einhver hefur verið svo sniðugur að búa til þennan mann sem er á flótta frá reikningnum og notfærir sér glufu í veggnum. ||| FRAMSÓKNARMENN |||E 111 AKUREYRI Bæjarmálafundur Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90, sunnudaginn 15. október kl. 17.00. Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram- sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig varamenn. Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar. Framsóknarfólk Húsavík Aðalfundur Framsóknarfélags Húsavíkur verður haldinn sunnudaginn 14. okt. n.k. í Félagsheimil- inu og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Venjuleg hðalfundarstörf. 3. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. 4. Kosning fulltrúa á flokksþing. 5. Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, ræðir um stjórnmálaviðhorfiö. 6. Önnur mál. Mætum hress og kát til starfa. Kaffiveitingar. Stjórnin. Aðstoð vantar á tannlæknastofu allan daginn Umsókn sendist til Egils Jónsson, tannlæknis merkt- ar „Aðstoð“ Pósthólf 749, 602 Akureyri. Öllum umsóknum verður svarað bréflega. Upplýsingar óskast um: Nafn, aldur, heimilisfang, menntun, fyrri störf. Nöfn 2ja meðmælenda, sem hægt er að hafa samband við símleiðis. Hvenær viðkomandi getur hafið vinnu. Aðrar upplýsingar, er að gagni mega koma. Egill Jónsson, tannlæknir. Aðstoð vantar á tannlæknastofu 60-100% starf Umsókn sendist til Steinars Þorsteinssonar, tann- læknis merktar „Aðstoð“ Pósthólf 749, 602 Akureyri. Öllum umsóknum verður svarað bréflega. Upplýsingar óskast um: Nafn, aldur, heimilsfang, menntun, fyrri störf. Nöfn 2ja meðmælenda, sem hægt er að hafa samband við símleiðis. Hvenær viðkomandi getur hafið vinnu. Aðrar upplýsingar, er að gagni mega koma. Steinar Þorsteinsson, tanniæknir. Getum bætt við starfs- fólki nú þegar Við almenn verksmiðjustörf. Upplýsingar gefur Sigurður Arnórsson, ekki í síma. Súkkulaðiverksmiðjan Linda.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.