Dagur - 29.12.1990, Side 17

Dagur - 29.12.1990, Side 17
efst í huga Laugardagur 29. desember 1990 - DAGUR - 17 --------------—-------------------\ l Að fá að njóta flugeldanna Þá er enn eitt áriö að renna sitt skeiö á enda og fjölskyldur sameinast við flugeldaskot til að kveðja það gamla og fagna nýju. í London fyllast öll stræti af fagnandi fullu fólki þegar nýtt ár heldur innreið sína, en sem betur fer er það ekki enn svo hér á landi. Alltaf virðist samt verða meira um að fólkfari út að skemmta sér á alls kyns áramótafagnaði og er sjálfsagt hægt að finna bæði kosti og galla á því eins og öðru. Eg kýs aftur á móti að enda líðandi ár og fagna nýju í faðmi fjölskyldunnar. Flugeldar eru nauösynlegir á gamlárskvöldi og stundum er furðulegt að sjá fullorðna menn umturnast gjörsamlega við það að skjóta uþp flug- eldum. Það er eins og þeir gangi í barndóm öðru sinni og keppni við nágrannann, um það hvor skjóti upp fallegri og stærri flugeldum, fer oft fram í þeim málum líkt og öðrum. Annars er ég úr sveit og þar skýtur maður upp einum flugeldi I senn og horfir síðan dágóða stund á þá sem koma uþp frá öðrum bæjum. Málið er bara það að þeim fer alltaf fækkandi sem skotið er upp í kringum mig og kemur það til af þeim samdrætti sem orðið hefur í sveitum landsins síðustu árin. Sú þróun þykir mér miður, enda voru landnámsmennirnir miklir land- búnaðarsinnar, þó að stöku sinnum færu þeir í víking. Nú er það helsta markmið sumra í þjóðfé- laginu að leggja allan búskap af og flytja inn aliar þær vörur sem við þörfnumst. Hugmyndin hljómar hlægilega, en því miður er hún ekkert hlægileg því svo gæti farið að þetta yrði raunin. Sveitirnar legð- ust í eyði og atvinnuieysið biossaði upp í þéttbýl- iskjörnum landsins og það sem meira og verra er, auðvaldshyggja höfuðborgarinnar lokkaði til sín landsbyggðarfólk svo á endanum yrði lítið annað úti á landsbyggðinni en sumarbústaðir og hress- ingarhæli. Varla held ég að það sé það sem fólk vill, en slíkt verður hver og einn að gera upp við sig sjálfur. Komandi ár er kosningaár og gefst fólki þá kost- ur á að velja sér framtíð. Þó að barlómur hafi verið mikill á árinu sem er að líða held ég að allir þeir sem hugsa um hlutina og skoða sinn hag, sjái að hann hefur vænkast. Hvenær hefur fólk t.d. áður séð tíu, tólf ára gömul lán lækka við afborganirnar svo einhverju nemi? Fleira mætti telja upþ, en aðalatriðið er þó hve verðbólgan er orðin lág og guð forði okkur frá því að hún rjúki upp úr öllu valdi aftur, eins og oft hefur gerst þegar stjórnendur fá ekki að Ijúka við þau verk sem þeir byrja á. Von- andi þarf ég í framtíðinni ekki að troðast í gegnum mannfjöldann fullan á götum Reykjavíkur eftir miðnætti þess 31. desember. Vonandi get ég haft það gott I sveitinni, eða einhverju þéttbýli lands- byggðarinnar og notið flugelda nágrannanna um leið og minna eigin. Skúli Björn Gunnarsson. Lausnarsedill myndagátu Lausn: Nafh: Ileimlllsfang: Sími: IJtanáskriíitin er: Datíur - (myndaí>áta) • Strandgötu 31 • Póstliólf 58 • 602 Akureyri Skilaírcstur er til 30. janúar 1991 INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RÍKISSJÓÐS 11. FL B1985 Hinn 10. janúar 1991 er tólfti fasti gjalddagi vaxtamiöa verötryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 12 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiðimeð 5.000,- kr. skírteini kr. 487,00 Vaxtamiðimeð 10.000,-kr. skírteini kr. 974,00 ___________Vaxtamiöi með 100.000,- kr. skírteini_kr. 9.740,00_ Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10-júlí 1990 til 10. janúar 1991 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985 til 2969 hinn 1. janúar 1991. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 12 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1991. Reykjavík, 29. desember 1990 SEÐLAB ANKIÍSLANDS VIÐ STYÐJUM FLUGELDASÖLU HJÁLPARSVEITAR SKÁTA AKUREYRI KkÐs(ii!W Hafnarstræti 108 Akureyri Sími 22685 V__________________/ Vörutalning Matvöruverslanir KEA Vegna vörutalningar verða kjörbúðir KEA, Brekku- götu 1, Byggðavegi 98 og Sunnuhlíð 12 ekki opnað- ar fyrr en kl. 16 miðvikudaginn 2. janúar, en KEA Nettó verður opnað kl. 13. Hins vegar verður Kjör- markaður KEA við Hrísalund lokaður allan daginn. Raflagnadeild, Bygginga- vörudeild og Vöruhús KEA: Lokað 2., 3. og 4. janúar. Kaupfélag Eyfirðinga. DALVIK [aJ Veitustjóri W á Dalvík Laus er til umsóknar staða veitustjóra á Dalvík við Hita- og vatnsveitu Dalvíkur. Veitustjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri fyrir- tækjana og starfar samkvæmt reglugerðum fyrir Hita- og vatnsveitu Dalvíkur. Nánari upplýsingar um starfi veitir undirritaður í síma 96-61370. Umsóknum skal skila á skrifstofu Dalvíkurbæjar, Ráðhúsinu, fyrir 14. janúar 1991. Bæjarstjórinn á Dalvík. Hjartkær eiginmaöur minn, TRYGGVI RAGNAR GUÐMUNDSSON, Ránargötu 4, sem lést 23. desember, veröur jarðsunginn frá Akureyrar- kirkju, fimmtudaginn 3. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd bræðra og annarra vandamanna, Svafa Kristjansdóttir.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.