Dagur - 21.03.1991, Page 3

Dagur - 21.03.1991, Page 3
Fimmtudagur 21. mars 1991 - DAGUR - 3 -m- fréftir Alþingi - 113. löggjafarþingi slitið í gær mánuði fyrir kosningar: Vináttan á erfitt þar sem valdið býr - sagði Guðrún Helgadóttir, forseti Eftir mikið reiptog undanfarna sólarhringa var Alþingi, 113. löggjafarþingi, loks slitid laust fyrir hádegi í gær, réttum mán- uði áður en nýtt þing verður kjörið. - sagði Guðrún Helgadóttir, Sameinaðs þings, m.a. í þingslitaræðu Halldór Blöndal, 2. þingmaður Norðurlandskjördæmis eystra, þakkaði forseta fyrir hönd þingmanna fyrir sköruglega fund- arstjórn um leið og hann óskaði honum og fjölskyldu hans allra heilla. Steingrímur Hermannson, forsætisráðherra, las að lokuin bréf handhafa forsetavalds um þingslit og lýsti því yfir að 113. löggjafarþingi væri slitið. óþh Ólafsfiörður: Kosið verður um áfengis- útsölu 20. aprfl nk. Frarn kom í máli Guðrúnar Helgadóttir, forseta Sameinaðs þings, að þetta þing hafi setið samtals í 139 daga. Fundirstóðu í 555 klukkustundir. í neðri deild voru 78 fundir, efri deild 100 fundir og í Sameinuðu þingi 76 fundir. Á þessu þingi voru 65 stjórn- arfrumvörp og 7 þingmanna- frumvörp afgreidd sem lög frá Alþingi. Af 96 þingsályktunartil- lögum var 31 tillaga samþvkkt sem ályktun Alþingis, 4 var vísað til ríkisstjórnar, 2 kallaðar aftur og 59 voru óútræddar. Þess má geta að tvö ný met voru sett á þessu þingi í ræðu- mennsku. Hjörleifur Guttorms- son sló margra ára met Sverris Hermannssonar í þaulsetu í ræðustóli með því að halda 6 klukkustunda ræðu um álmálið og Ásgeir Hannes Eiríksson hélt stystu ræðu sem haldin hefur ver- ið á Alþingi um santa mál. Ræð- an var einfaldlega svona: „Álver rísi.“ Undir lök ræðu sinnar sagði forseti Sameinaðs þings: „Hátt- virtir þingmenn kveðjast nú hér í dag eftir langa og erfiða vinnu- lotu og er margur nú eflaust lúinn. En stjórnmálamenn eru seinþreyttir og því leggja nú mörg okkar út í baráttu fyrir áframhaldandi þingsetu. Sú er ósk mín best okkur öllum til handa að okkur auðnist að vera verðugir andstæðingar. Vináttan á erfitt þar sem valdið býr. Þó hygg ég að við lok þessa kjörtímabils skilji menn í vin- semd og ég óska öllum háttvirt- um þingmönnum góðrar heim- ferðar og heimkomu. íslending- urn öllurn óska ég heilla og ham- ingju.“ Nú liggur fyrir að kosið verður um hvort opna eigi áfengis- útsölu í Ólafsfirði samhliða kosningum til Alþingis 20. apríl nk. Samkvæmt núgildandi lögum þarf undirskriftir þriðjungs atkvæðabærra manna eða sam- þykkt viðkomandi bæjarstjórnar til þess að fram fari kosning um opnun áfengisútsölu. Undirskriftalistar hafa legið frammi í Ólafsfirði á undanförn- um vikum þar sem þess er farið á leit við bæjaryfirvöld að kosiö verði um opnun áfengisútsölu á staönum. Tvö hundruð sjötíu og fjórar undirskriftir söfnuðust, sem nægir til þess að kosning fari Kristján Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri íshafs hf. og Höfða hf. á Húsavík, sem gera út togarana Kolbcinsey ÞIl-10 og Júlíus Havsteen ÞH-1, seg- ist vonast til þess að ekki komi til uppsagna sjómanna á þeim. „Við erum í viðræðum við sjómennina, en það eru alls engin fram. Miðað er við kjörskrá 1. desember sl., en þá voru 817 á kjörskrá í Ólafsfirði. I kosningunum 20. apríl nk. þarf einfaldan meirihluta fólks á kjörskrá til þess að samþykkja að opnuð verði áfengisútsala í Ólafsfirði. Verði það niðurstað- an, er hins vegar óvíst að Áfengis og tóbaksverslun ríkisins opni þar áfengisútsölu í náinni framtíð. Nú þegar mun vera langur biðlisti á borði Höskuldar ríkisforstjóra um áfengisútsölur. Meðal annars er Blönduós þar á blaði, en íbúar þar samþykktu samhliða sveitarstjórnarkosning- unun sl. vor að opna áfengis- útsölu. óþh læti. Kolbeinsey er í siglingu á Þýskaland og því er hluti áhafn- arinnar heinta. Af þeim sökum gefst nú tækifæri til þess að ræða þessi mál. Við látum mál ekki fara í hnút. Sjómennirnir hér hafa í gegnum árin vcriö rnjög tillitssamir, en auðvitað kapp- kostum við að láta þá ekki búa við það lakasta," sagði Kristján. óþh Kjaramál sjómanna á Húsavík: Það eru engin læti - segir framkvæmdastjóri íshafs og Höfða Pústþjónusta Pústkerfi undir flestar tegundir bifreiða. Pakkningar, klemmur, upphengjur. Fast verð fyrir pústkerfaskipti. Höfum fullkomna beygjuvél. Ryðvarnarstöðín sf. Fjölnisgötu 6e • Sími: 96-26339 • 603 Akureyri. Góða veislu gjöra skal og þú færð allt sem t0 þarf hjá okkur Fljót og góð þjónusta Opið virka daga kl. 10.30 til 18.30 Opið iaugardaga kl. 10.00 til 14.00 0 MARKAÐUR FJÖLNISGÖTU 4b Gerið hagstæð helgarinnkaup hjá okkur norr á sértilboði! Við bjóðum Knorr sósur og sósujafnara á sérstöku tilboðsverði í öllum kaupfélögum á Norðurlandi, meðan birgðir endast. Komið og prófið Knorr í næstu kaupfélagsbúð! Kaupfélagið -þegar við eldum mat!

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.