Dagur - 21.03.1991, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 21. mars 1991 - DAGUR - 7
-----------------------------------
Ljósanotkun er lögboðin bæði að nóttu seni degi og virðist notkun þeirra nokkuð góð víðast livar. Þó cru niargir
sein gleynia of oft að kveikja á Ijósunum.
Könnun á notkun öryggisbúnaðar bifreiða:
Ástandið víðast gott
norðan heiða
- Pórshafnarbúar mega þó taka sig á í beltanotkun
Könnun var gerð á öryggisbún-
aði bifreiða á landinu í lok
febrúarniánaðar þar sem lög-
reglumenn horfðu eftir notkun
bílbelta, ástandi hjólbarða og
Ijósanotkun. Þegar niðurstöð-
ur könnunarinnar hafa verið
teknar saman keniur í Ijós að
94,5% ökumanna nota bílljós
og 79% þeirra nota bílbelti við
aksturinn. Athyglisvert er
einnig að 85% farþega í fram-
sæti nota bílbeltin en minnst er
notkun bílbelta í aftursætum
bifreiða, eða 67%. Könnunin
leiddi líka í Ijós að um 5% bif-
reiða var á sumarhjólbörðum þó
hávetur sé á ineðan 23% bif-
reiða var á ónegldum hjól-
börðum en 68% á negldum.
En lítum á niðurstöður á ein-
stökum stöðum á Norðuriandi.
Húnavatnssýslur
í úrtaki lögreglumanna í Húna-
vatnssýslum voru 33 bílar. í 23
bílum voru karlmenn við stýrið
en í 10 tilvikum óku konur. Af
þessum bílum voru 20 fólksbílar
en 13 jeppar. Langflestir, eða 25
bílanna, voru á negldum hjól-
börðum en 8 á ónegldum. Allir
ökumennirnir notuðu bílljósin og
þá var beltanotkun þeirra einnig
góð þó þrír ökumannanna reynd-
ust án belta. Hins vegar voru
farþegar í framsætum 11 þessara
bifreiða og voru þeir allir ineð
belti. Sömuleiðis voru farþegar í
aftursætum einnig með belti,
undantekningalaust.
Skagafjörður
í úrtaki lögreglunnar í Skagafirði
voru 48 bílar. í 32 bílum voru
karlmenn við stýrið en konur í 15
tilfellum. í einu tilfelli treysti lög-
reglan sér ekki til að segja til um
kyn ökumanns. Af þessum bílum
voru 31 fólksbíll. 13 jeppar og 4
sendiferöabílar. Af bílunum voru
38 á negldum hjólbörðum en 10 á
ónegldum. Fjórir ökumannanna
notuðu ekki ökuljós og fimm
þeirra voru án bílbclta. I 20 bíl-
um voru farþegar í framsætum og
notuðu 18 þeirra bílbeltin. í 17
bílanna voru farþegar í aftursæt-
um og notuðu 15 þeirra beltin.
Siglufjörður
Hjá Siglufjarðarlögreglunni voru
25 bílar í úrtakinu. í 17 tilvikum
voru karlmenn við stýrið en kon-
ur í 8 tilfellum. Af þessum bílum
voru 22 fólksbílar, tveir jeppar
og einn sendiferðabíll. Ljósa-
notkun virðist góð á Siglufirði því
allir notuðu ökumennirnir ljósin.
Pá voru 18 þeirra með öryggis-
belti og af 9 farþegum í framsæt-
um voru 8 með beltin. Hins vegar
var beltanotkun í aftursætum
bifreiðanna slakari því af 11 far-
þegum voru aðeins 5 með beltin.
Hvað varðar hjólbarðana þá
reyndist einn bíll á sumarhjól-
börðum, 21 bíll á negldum hjól-
börðum en þrír á ónegldum.
Ólafsfjörður
í Ólafsfirði voru líka 25 bílar í
könnuninni. Þar voru einnig 17
karlar við stýrið en 8 konur. Eins
og á Siglufirði reyndust allir nota
ökuljós en þrír ökumannanna
notuðu ekki öryggisbeltin. Hins
vegar reyndust allir farþegar í
framsætum með belti og sömu-
leiðis farþegar í aftursætum.
Astand hjólbarðanna var þannig
að einn bíll var á sumarhjólbörð-
um, annar á ónegldum hjólbörð-
um en aðrir á negldum vetrar-
hjólbörðum. í úrtakinu voru 22
fólksbílar, tveir jeppar og einn
sendiferðabíll.
Dalvík
Á Dalvík var 31 bíll í könnun-
inni. Þar voru 17 ökumannanna
karlar en 14 konur. Af þcssum
bílum voru 28 fólksbílar og 3
jeppar. Allir reyndust bílarnir á
negldum hjólbörðum og allir
nema einn með ökuljósin kveikt.
Bílbeltanotkunin virðist ágæt á
staðnum því 29 ökurhannanna
voru með belti og af 12 farþcgum
í framsætuni voru 9 meö belti. Af
16 farþegum í aftursætum voru
12 með beltin spennt.
Akureyri
Könnunin á Akureyri náði til 74
bifreiða. I 48 þcirra voru karl-
menn undir stýri en konur í 26 til-
fellum. Af bílunum voru 55
fólksbílar, 11 jeppar, 7 sendi-
ferðabílar en einn bíll var utan
þessara flokka. Flestir, eða 68,
voru á negldum hjólbörðum en 6
á ónegldum. Ljós notaði 71 öku-
maður en þrír óku án ljósa. Þá
voru 65 ökumannanna með belti
en 9 án belta. Allir farþegar í
framsætum reyndust með beltin
spennt en einn af farþegum í
aftursætum var án belta.
Þórshöfn
Þórhöfn skar sig mjög úr í
könnuninni vegna dræmrar belta-
notkunar ökumanna. Kannaðir
voru 25 bílar og voru karlmenn
ökumenn í 17 þeirra en konur í 8.
Belti notuðu aðeins 6 af þessu
fólki og af fimm farþegum í fram-
sætum var aðeins einn með belti.
Sömu sögu er að segja af belta-
notkun í aftursætum bifreiða á
Þórshöfn. Ökuljósin notuðu hins
vegar 23 þannig að ljósanotkunin
er betri á staðnum en beltanotk-
unin. Ástand hjólbarða bílanna
var þannig að 15 bílar voru á
negldum hjólbörðum, 4 á sumar-
hjólbörðum, 5 á ónegldum
vetrarhjólbörðum en um einn af
bílunum er ekki vitað. JÓH
&
BIFREIÐASKODUN ÍSLANDS HF.
Lokað verður
föstudaginn 22. mars nk.
Opnað verður aftur
mánudaginn 25. mars að Frostagötu 3a.
Opið er frá kl. 08.00 til 16.00 alla virka daga.
Athugið að panta þarf tíma í skoðun,
sími 23570.
BIFREIÐASKOÐUN ISLANDS HF.
Akureyri
TREFJARÍK JÓGURT
- full af fjörefnum
Nýtt, ferskt og hressandi bragð
<ÍFa
Rútuferöir um fegurstu staöi Sviss
með íslenskum fararstjóra
Akureyri-Zurich
>—
' \\i
Brottfarir 23. júní og 4. ágúst
Verð frá kr.
73.400
yy{
Ferðaskrifstofan
NONNI hf.
} Brekkugötu 3
Y"' v/Ráðhústorg
símar 27922 og 27923
Umboð á Akureyri fyrir Ferðaskrifstofuna
pr. m. í 2ja m. herb.