Dagur - 30.07.1991, Side 1
74. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 30. júlí 1991
141. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Gránuíélagsgötu 4
Akureyri ■ Sími 23599
Fornbílaklúbbur íslands stóð fyrir ferð um helgina frá Reykjavík til Sauðárkróks og til baka. Um 30 bílar tóku
þátt í ökuferðinni, sem þótti takast mjög vel. Með í för var tæplega 30 ára gamall vatnabíll af Amphicar-gerð
í eigu Jóhanns Árnasonar. Bíllinn tók „ökuferð“ í Sauðárkrókshöfn og vakti sú sigling óskipta athygli við-
staddra. Nánar verður greint frá ferð fornbílaklúbbsins í blaðinu á morgun. Mynd: -bjb
Arnarneshreppur:
Ágreiningur um úthlutun ríkisjarðar
Byggðasafn Norður-
Þingeyinga opnað:
Óskar Sigvalda-
son aflienti
veglega gjöf
Byggðasafn Norður-Þingey-
inga á Kópaskeri var opnað við
hátíðlega athöfn sl. sunnudag
að viðstöddu miklu fjölmenni,
þ.ám. Þór Magnússyni,
þjóðminjaverði. Við þetta
tækifæri afhenti Óskar Sig-
valdason, sem ættir á að rekja
til Öxarfjarðar, safninu að gjöf
margar ómetanlegar gamlar
myndir af fólki og húsum í
Norður-Þingeyjarsýslu, sem
hann hefur safnað og tekið
sjálfur.
Anna Helgadóttir, sem sæti á í
stjórn Byggðasafnsins, sagði að
óhætt sé að segja að gestum hafi
komið á óvart hversu veglegt og
áhugavert safnið væri.
Hún sagði að langt væri síðan
að söfnun muna í sýslunni hófst,
en það er ekki fyrr en núna sem
þeim hefur öllum verið safnað á
sama stað. Safnið er til húsa í
gamla barnaskólanum á Kópa-
skeri og út ágúst verður það opið
á mánudögum, fimmtudögum,
og laugardögum kl. 13-17. Safn-
vörður er Kristveig Björnsdóttir.
óþh
Húnavatnssýsla:
Fimmhandteknir
vegna fíkniefiia
Lögreglan á Blönduósi hand-
tók fimm manns aðfaranótt
sunnudags vegna gruns um
neyslu fíkniefna. Rannsókn
stóð yfír í gær og vildi lögregl-
an lítið tjá sig um málið.
Að sögn lögreglunnar voru
mennirnir ekki við þessa iðju
sína á Blönduósi heldur á sveita-
bæ í Húnavatnssýslu.
Nánari upplýsingar fengust
ekki í gær en kæra verður send til
ríkissaksóknara. SS
Lögreglan á Raufarhöfn hafði
á óvæntan hátt hendur í hári
ökumanns sem grunaður var
um ölvun við akstur sl. sunnu-
dagsmorgun. Lögregluþjónn
var á ferð milli Raufarhafnar
og Þistilfjarðar þegar bíll hans
lenti í árekstri við bíl sem kom
á móti. Runnu tvær grímur á
lögregluþjóninn er hann hafði
tal af ökumanni hins bílsins og
grunur um meinta ölvun við
akstur vaknaði.
Óhappið bar að með þeim
hætti að bílarnir mættust við
grindarhlið á Ytrihálsi í svarta-
þoku snemma á sunnudagsmorg-
un. Áreksturinn varð býsna harð-
Ágreiningur milli sveitar-
stjórnar Arnarneshrepps og
Jarðanefndar Eyjafjarðarsýslu
vegna veitingar ríkisjarðarinn-
ar Syðri-Bakka liggur óút-
kljáður í landbúnaðarráðu-
neytinu. Fimm mánuðir eru frá
því að umsóknarfrestur um
jörðina rann út, hreppsnefnd
mælti með einum af fímm um-
sækjendum en jarðanefnd með
öðrum. Landbúnaðarráðu-
neytið hefur úrslitavald í mál-
inu, og vilja ráðuneytismenn
að sögn sætta málsaðila í
heimasveit.
Forsaga málsins er sú að
Daníel Behrend, síðasti ábúandi
Syðri-Bakka, sagði jarðnæðinu
lausu í fyrra, og var auglýst eftir
umsóknum um jörðina hjá land-
búnaðarráðuneytinu. Umsækj-
endur fá umsagnir hreppsnefndar
og jarðanefndar, en ráðuneytið
leitaði eftir þeim. í þessu tilviki
ur og báðir bílarnir óökufærir eft-
ir óhappið. Bíll hins grunaða,
sem reyndar var ekkert grunaður
fyrr en óhappið vildi til, var jafn-
vel talinn ónýtur.
Að sögn lögregluþjónsins fékk
hann lánaðan annan bíl til að
sinna löggæslu meðan lögreglu-
bíllinn er í lamasessi en bíllinn
verður væntanlega kominn úr
viðgerð fyrir verslunarmanna-
helgi.
Aðfaranótt laugardags tók lög-
reglan á Raufarhöfn annan
ökumann sem grunaður var um
ölvun við akstur en sú athöfn fór
ekki fram með eins dramatískum
hætti. SS
er ekki samstaða um málið hjá
þeim aðilum sem umsögn eiga að
veita. Þórður Þórðarson, bóndi í
Hvammi í Arnarneshreppi, fékk
meðmæli jarðanefndar og hefur
vilyrði iandbúnaðarráðuneytisins
til að nýta hey af túni Syðri-
Bakka í sumar. Endanlegt sam-
þykki ráðuneytisins við umsókn
Þórðar liggur þó ekki fyrir, þótt
margoft hafi verið leitað eftir
staðfestingu. Hreppsnefndin
mælti með umsókn Sigurjóns
Gunnarssonar á Akureyri, með-
fram vegna þess að hún taldi
æskilegt að fjölga íbúum og
útsvarsgreiðendum í hreppnum,
fremur en að samþykkja að þeir
íbúar sem fyrir eru nýttu sér jörð-
ina.
Þórður segir að sjónarmið
hreppsnefndar hafi verið að ekki
skyldi rekinn búskapur á Syðri-
Bakka, heldur væri heppilegast
að fá þangað ábúanda sem stund-
aði vinnu annars staðar, t.d. á
Akureyri. Hann kveðst ekki
skilja þá hörku sem færst hefur í
málið, því Syðri-Bakki sé ekki sá
gullmoli að tilefni gefist til mikilla
átaka um jörðina. „Ég skil þá
afstöðu hreppsnefndar að vilja fá
nýjar útsvarstekjur, en mér
fannst skrýtið hjá hreppsnefnd að
hún kallaði mig ekki fyrir til að fá
að vita hvað ég ætlaði mér með
Hleypt var úr lóni Blöndu-
virkjunar sl. laugardagsmorg-
un og greindi DV frá því í gær
að veiðimaður hefði nærri
drukknað er vatnsborðið
hækkaði skyndilega. Jafnframt
segir í frétt blaðsins að lögregl-
an á Blönduósi hefði ekki vilj-
að gera skýrslu um málið.
jörðina,“ segir Þórður, en hann
var kallaður fyrir jarðanefnd til
að gera grein fyrir umsókn sinni.
Samkvæmt upplýsingum Dags
var enginn umsækjandi kallaður
fyrir hreppsnefnd. Jarðanefnd
mælti með því að annar maður
fengi nytjar af Syðri-Bakka en
Þórður í Hvammi afnot af húsum
jarðarinnar. EHB
Geitungar eru í stöðugri sókn
hér á landi og alltaf bætast við
tíðindi um nýjar landnáms-
slóðir. Á Möðruvöllum í Hörg-
árdal komst upp um geitunga-
bú á allsérstæðum stað í síð-
ustu viku, eða í róludekki á
leiksvæði barnanna á bænum.
Að sögn húsráðenda á Möðru-
völlum hefur ekki verið mikið um
geitunga í Hörgárdal og sögðust
þeir reyndar aldrei hafa séð þá
flugnategund þar. í síðustu viku
var farið að athuga málið nánar
eftir að börnin urðu fyrir flugna-
árás þegar þau voru að róla sér í
rólu sem er á bænum.
Dagur leitaði til lögreglunnar á
Blönduósi síðdegis í gær og fékk
þær upplýsingar að veiði-
mennirnir hefðu komið og sagst
hafa lent í stórhættu. Þeir hefðu
hins vegar ekki lagt fram kæru,
aðeins klagað Landsvirkjun fyrir
að hleypa úr lóninu.
Lögreglan kannaði málið og sá
ekki ástæðu til frekari aðgerða
Þingeyrarkirkja:
Sjónvarpsmessa
fyriröll
Norðurlönd
- sr. Bolli Gústavsson
predikar og Kór Akur-
eyrarkirkju syngur
Sunnudaginn 1. september nk.
mun Ríkissjónvarpið festa á
fílmu messu í Þingeyrarkirkju í
Húnaþingi, sem send verður út
15. september í sjónvarpi á öll-
um Norðurlöndunum. Sr. Bolli
Gústavsson, vígslubiskup á
Hólum, predikar. Um tónlist
við messuna sjá Margrét Bóas-
dóttir, sópran, og Kór Akur-
eyrarkirkju undir stjórn
Björns Steinars Sólbergssonar.
Að sögn sr. Bolla er útsending
á samnorrænni messu árviss við-
burður og síðast var slík messa
tekin hér upp í Strandakirkju fyr-
ir nokkrum árum. Sr. Bolli sagð-
ist vera mjög ánægður með að.
Þingeyrarkirkja skyldi hafa orðið
fyrir valinu, enda ætti hún merka
sögu.
Á Þingeyrum var fyrsta klaust-
ur á íslandi sett á stofn árið 1133.
Núverandi kirkja á Þingeyrum
var byggð á árunum 1864-1877.
Hún var hlaðin úr grjóti, sem sótt
var í Nesbjörg. Hljómburður
þykir með afbrigðum góður í
Þingeyrarkirkju og hefur sú
staðreynd haft sitt að segja þegar
ákvörðun var tekin um að festa
þessa samnorrænu messu á filmu
þar. óþh
Við nánari athugun kom í Ijós
að stórt geitungabú var komið
innan í dekk sem notað er í ról-
una og verður þessi staðsetning
að teljast afar óvenjuleg. Hús-
ráðendur furða sig á því hvernig
geitungarnir fengu frið til að
koma sér upp búi í dekkinu en
líklegast hafa þeir unnið verkið
að næturlagi. Geitungabúið var
haganlega unnið og líkt hand-
bolta í laginu. Þegar börnin
mættu svo til leiks í róluna var
friðurinn úti og fengu þau að
finna fyrir geitungunum þó engar
hættulegar stungur hlytust af.
eftir að hafa fengið skýringar frá
stöðvarstjóra.
Af öðrum tíðindum af vett-
vangi lögreglunnar má nefna að
töluvert var um hraðakstur í
Húnavatnssýslum um helgina og
giskaði lögreglan á að 50-60 öku-
menn hefðu verið stöðvaðir af
þeim sökum. Þeir sem hraðast
óku voru á 120-140 km hraða. SS
Raufarhöfn:
Lögreglubfll í árekstri
- ökumaður hins bflsins grunaður um ölvun
-bjb
Lögreglan á Blönduósi:
Hraðakstur og hrakfarir veiðimanns
Möðruvellir í Hörgárdal:
Geitungar í róló!