Dagur - 30.07.1991, Blaðsíða 13

Dagur - 30.07.1991, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 30. júlí 1991 - DAGUR - 13 Tónlist____________________ Flauta og píanó Sem betur fer er nokkuð um það, þó að sumar sé, að góðir tónlist- armenn fari urn landið til þess að halda tónleika. Tveir slíkir Hall- fríður Ólafsdóttir, flautuleikari, og Atalia Weiss, píanóleikari, heimsóttu Akureyri mánudaginn 22. júlí og héldu tónleika í Safn- aðarheimili Akureyrarkirkju már.udaginn 22. júlf. Fyrsta verkið á efnisskránni var Sónata í e-moll, BWV 1034, eftir J. S. Bach. Hallfríður lék þetta verk af öryggi og smekk- vísi. Skemmtilegt var, hve vel henni tókst að ná frarn innileika og frjálslegum blæ ekki síst í andante kaflanum og hve leikur hennar var léttur og sem næst gáskafullur í seinni allegrókafla verksins. Undirleikur Ataliu Weiss í sónötu Bachs var öruggur og agaður. Þó var það svo, að þrátt fyrir natin og mjúk tök hennar á flygilinn, var greinilegt, að ekki hafði höfundurinn píanó í huga, þegar hann samdi verkið, enda það ekki til. Kliðmjúkur tónn sembalsins hefði vissulega farið betur. Annað verk tónleikanna var La Merle Noir (Svartþrösturinn) eftir Messiaen. I þessu verki átti flygillinn sannarlega vel heima með flautunni og frammistaða Ataliu Weiss var glæsileg ekki síður en Hallfríðar Ólafsdóttur. Sérlega var skemmtilegt að fylgj- ast með öguðum en jafnframt lip- urlegum tökum þeirra í erfiðri og hraðri lokahrynu verksins, þar sem samleikur hljóðfæranna var afburða vandlega útfærður. Þriðja verkið, sem Hallfríöur Ólafsdóttir og Atalia Weiss léku á tónleikunum í safnaðarheimil- inu var Sónatína eftir Pierre Sancan. Petta er afar líflegt og fjörlegt verk, sem gerir ekki síð- ur kröfur til píanistans en flautu- leikarans. Pað naut sín skemmti- lega í meðförum tónlistarmann- anna tveggja. Líflegt upphafið var leikandi og fjörugt og hið sama var um glaðlegan lokahlut- ann. Miðhlutinn, ígrundandi og hægari, myndaði skemmtilega andstæðu í túlkun tónlistarmann- anna, sem tókst vel að draga fram þessi blæskipti verksins. Næstsíðasta verkið á efnis- skránni var Inngangur og til- brigði um „Trock’ne Blumen“ op. 160 eftir Schubert. Eins og fyrr var samspil tónlistarmann- anna tveggja náið. Þeim tókst vel að ná fram hinum schubertska anda í söngrænum leik flautunnar og vel útfærðum undirleik. í þessu verki brá því þó fyrir, að styrkleikahlutföll flygils og flautu voru ekki alveg við hæfi, svo að fyrir kom, að flautan hvarf um of. Lokaverk tónleikanna, Sónata eftir Poulenc, var glæsilega flutt. Fyrsti hlutinn, Allegro malin- conico, var sérlega vel leikinn og agaður. Annar kaflinn, Cantil- ena, var söngrænn og ljúfur og með skemmtilega ákveðinni andstæðu í miðhluta sínum, sem tónlistarmönnunum tókst vel að draga fram. Lokakaflinn, Presto giocoso, var, í samræmi við heiti sitt, gáskafullur og hraður. Einnig hér var góð áhersla á blæmun miðhluta kaflans. Þetta voru góðir tónleikar. Vandaður samleiðkur Hallfríðar Ólafsdóttur og Ataliu Weiss bar þess vitni, að þær hafa ígrundað verkin af alúð. Slíkt er aðals- merki góðra flytjenda. Það trygg- ir líka, að tónleikar verða eftir- minnilegir, eins og þessir verða án efa þeim, sem þá sóttu. Haukur Ágústsson. Bókaútgáfan Björk 50 ára - efnir til verðlaunasamkeppni um barnabók Um þessar mundir á Bókaút- gáfan Björk 50 ára afmæli. í tilefni þess efnir stjórn út- gáfunnar til verðlaunasam- keppni um myndskreytta barnasögu handa yngri lesend- unum. Heitið er verðlaunum kr. 150 þús. (auk ritlauna) fyrir það handrit sem dómnefndin telur best. Séu höfundar tveir - myndlistarmaður og sögumað- ur - er ætlast til að þeir skili verkum sínum sameiginlega. Barnabækur hafa frá upphafi verið megin þátturinn í útgáfunni og á síðari árum hafa bækur handa hinum yngri lesendum færst í aukana. Fyrstu árin gaf Bókaútgáfan Björk út hluta af barnabókum Stefáns Júlíussonar rithöfundar í frumútgáfunni, sem síðar hafa orðið þjóðkunnar og komið út aftur og aftur, eins og Þrjár tólf ára stelpur, Kári litli í sveit og Auður og Ásgeir. Af þýddum bókum eru kunnastir Palli er einn í heiminum, eftir danska rithöfundinn Jens Sigs- gaard, ásamt nokkrum öðrunt bókum eftir hann og Selurinn Snorri eftir norska höfundinn Frithjof Sælen. Margar útgáfur hafa komið út af þessum bókum, sem hafa orðið lesefni tveggja kynslóða. Þá má nefna Bamba og Börnin hans Bamba eftir Walt Disney o.m.fl. Á síðari árum hefur útgáfan lagt aukna áherslu á útgáfu vand- aðra bóka fyrir lítil börn í bóka- flokknum: Skemmtilegu smá- barnabækurnar. Á þessu ári koma út í honum 5 nýir titlar og verða þá alls 30 titlar komnir út í þeim bókaflokki. Sumir hafa kontið út í nokkrum útgáfum eins og Stubbur, sem kom út á sl. ári í 8. útgáfu. Bækur þessar hafa not- ið afburða vinsælda um langt skeið og náð til yngstu lesend- anna eins og best getur orðið, enda valdar og íslenskaðar af hinum færustu skólamönnum og hin síðari ár prentaðar í 4 litum. Forráðamönnum útgáfunnar þótti því vel við hæfi á þessum tímamótum að stuðla að gerð íslenskra bóka handa yngri les- endum. Þannig væru höfundar og myndlistarmenn hvattir til að semja bækur - sem í máli og myndum stæðu íslenskum börn- um nærri - og kynnti þeim umhverfi og aðstæður, sem þau væru vaxin upp úr og þekktu eða þyrftu að kynnast. Bókaútgáfan Björk væntir þess Tvær nýjar Úrvalsbækur eru komnar á markaðinn, spennu- sögur númer 7. og 8. í ritröð- inni Úrvalsbækur. Þær tvær bækur sem nú koma út á íslensku eru hvor úr sinni átt- inni. Annars vegar er það bók- in „Falin markmið“ eftir kana- díska rithöfundinn Önnu Park- er og hins vegar metsölubókin „Lömbin þagna“ eftir Thomas Harris. í kynningu frá útgefanda, Frjálsri fjölmiðlun hf, segir m.a.: „Falin markmið heitir á frum- málinu „Hidden Agenda“. Þegar George Harris, þekktur kana- dískur bókaútgefandi, bíður bana undir neðanjarðarlest, lítur lögreglan aðeins á það sem slys eða kannski sjálfsvíg. Blaðamaðurinn Judith er frá- skilin móðir tveggja barna og á þar að auki við erfiða móður að etja. Hún hefur því lítinn áhuga á að flækjast í rannsókn á dauðs- falli. En hún getur ekki varist þeirri áleitnu hugsun að Harris hafi verið myrtur og vill fá að vita hvers vegna. Morð á öðrum gild- unt bókaútgefanda, í New York að þessu sinni, verður til þess að Judith og Marsha vinkona henn- ar lenda í miðri hringiðu rann- sóknarinnar..." Um metsölubók Thomasar Harris segir m.a.: „Lömbin þagna hefur verið að þátttaka t verðlauna- samkeppninni verði góð. Af fyrirspurnum og viðræðum síðan auglýsing um hana birtist í maí sl. má ráða að svo verði. Formaður dómnefndar - Stefán Júlíusson rithöfundur í Hafnarfirði - veitir frekari upplýsingar um gerð fyrir- hugaðrar bókar, ef þess er óskað. Skilafrestur er til 10. okt. n.k. metsölubók austan hafs og vestan síðan hún kom fyrst út árið 1988 og samnefnd kvikmynd er sýnd þessa dagana í Háskólabíói. Bókin heitir á frummálinu The Silence of the Lambs. Sögu- þráðurinn er í stuttu máli á þá lund að geðveikur morðingi gengur laus. Annar er í haldi, Lecter geðlæknir, dæmdur til lífs- tíðardvalar á geðveikrahæli. Hann býr yfir vitneskju sem get- ur orðið til að binda endi á atferli hins. En það er ekki fyrir hvern og einn að ná sambandi við Lecter. Clarice Starling, nemi í lögreglu- skóla FBI, ung og óhörðnuð, verður til þess að brjóta ísinn. Samskiptin milli Clarice Starling og Hannibals Lecters og sagan sem þau leiða okkur inn í eru magnþrungin átök milli góðs og ills...“ DAGUR Akurevri ©96-24222 Norðlenslrt dagblað Tvær n\jar Úrvalsbækur - Lömbin þagna og Falin markmið Okkur vantar starfsmann í fullt starf frá og með miðjum ágúst. Einnig vantar okkur starfsmann eftir hádegi frá og með 1. september. Umsækjendur sendi upplýsingar um aldur og fyrri störf í pósthólf 450, 602 Akureyri, fyrir 2. ágúst nk. Sporthú^idhf AKUREYRARB/íR Öldrunarþjónusta Hjúkrunarfræðingar Deildarstjóri óskast á eina deild Hjúkrunarheim- ilisins Hlíðar á Akureyri. Starfið veitist frá 1. okt. nk. eða eftir samkomulagi. Laun samkvæmt kjarasamningi Hjúkrunarfélags Íslands/Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga. Umsókn- arfrestur er til 15. ágúst. Við viljum einnig ráða hjúkrunarfræðinga nú þeg- ar eða eftir samkomulagi til starfa á hjúkrunar- deildum. Sjúkraliðar Á Hjúkrunarheimilinu Hlíð eru einnig lausar nokkrar stöður sjúkraliða. Er þar bæði um heilar og hiutastöður að ræða og samkomulagsatriði hvenær starf hefst. Upplýsingar um fyrrgreind störf gefur hjúkrunar- forstjóri á skrifstofu Oldrunardeildar í Hlíð, eða í síma 96-27930, alla virka daga frá kl. 08.00- 16.00. Upplýsingar um kaup og kjör er einnig hægt að fá hjá starfsmannastjóra Akureyrarbæjar í síma 96-21000. Umsóknareyðublöð fást á skrif- stofu starfsmannadeildar í Geislagötu 9. Öldrunardeild Akureyrarbæjar - Hjúkrunarheimilið Hlíð. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR, Stórholti 10, andaðist að heimili sínu miðvikudaginn 24. júlí og verður jarðsungin frá Glerárkirkju, þriðjudaginn 30. júlí, kl. 13.30. Sigrún Gústafsdóttir, Lárus Marteinsson, Ragnheiður Lárusdóttir, Stefán ívar Hansen, Sigurður Lárusson, Valdís Þorvaldsdóttir og barnabarnabörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, HELGA SIGURGEIRSSONAR, Stafni, Reykjadal. Jófríður Stefánsdóttir, María Kristín Helgadóttir, Hallur Jósefsson, Ólöf Helgadóttir, Kristján Jósefsson, Ingibjörg Helgadóttir, Guðlaugur Valdimarsson, Asgerður Helgadóttir, Jón Hannesson, Guðrún Helgadóttir, Gunnar Jakobsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Látum fara vel um barnið, og aukum öryggi þess um leið! mÉUMFERÐAR Uráð

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.