Dagur - 30.07.1991, Blaðsíða 7

Dagur - 30.07.1991, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 30. júlí 1991 - DAGUR - 7 Kastkeppni Visa íslands og Mazda: Einar hársbreidd frá meti Einar Vilhjálmsson sigraði örugglega í spjótkastinu í kast- keppni Visa Island og Mazda sem fram fór í Mosfellsbæ á sunnudag. Einar kastaði 85.30 m sem er aðeins 18 cm frá Islandsmetinu sem hann á sjálfur. Sigurður Matthíasson kastaði 77.56 m og hafnaði í 4. sæti. Annar í spjótkastinu varð Kaleta frá Eistlandi með 81.88 m og Yevsjukov landi hans í þriðja sæti með 78.24 m. Sigurður varð fjórði eins og fyrr segir og Unnar Garðarson fimmti með 71.40 m en Sigurður Einarsson gat ekki tekið þátt vegna veikinda. Pétur Guðmundsson fékk litla keppni í kúluvarpinu en kastaði þó 20.67 m sem er besti árangur hans á þessu ári. Tveir sterkir kúluvarparar, sem ætluðu að vera með, afboðuðu komu sína á síðustu stundu. I kringlukastinu sigraði Romas Ubartas frá Lettlandi með 62.42 m, landi hans Kidikas varð annar með 61.44 m og Vésteinn Haf- steinsson varð þriðji með 59.76 m sem er langt frá hans besta. Samhliða mótinu fór frant stigamót í frjálsum íþróttum. Par bar m.a. til tíðinda að Jón Stefánsson, UFA, sigraði nokk- uð örugglega í 3000 m hlaupi karla á 8:49.7 m, og Kristján Gissurarson, UMSE, sigraði í stangarstökki, stökk 4.90 m. Nánar verður sagt frá stigamót- inu á morgun. 1. deild kvenna: Tveir stórir ósigrar hjá KA KA-stúlkur riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum í 1. deild kvenna um helgina. Á laugardag lék liðið við Val í Reykjavík og tapaði 2:7 og á sunnudag tapaði það 0:6 fyrir IA á Akranesi. KA-liðið byrjaði afar illa gegn Val og eftir 7 mínútur var staðan orðin 3:0. Þá jafnaðist leikurinn og um miðjan fyrri hálfleik minnkaði Patti Turner muninn eftir sendingu frá Eydísi Marinós- dóttur. KA sótti síðan meira í framhaldinu en það voru þó Valsstúlkur sem skoruðu næsta mark úr skyndisókn og staðan í hléi var 4:1. í seinni hálfleik skoraði Valur tvö mörk á upphafsmínútunum en Arndís Ólafsdóttir minnkaði muninn með hörkuskoti áður en Valur bætti 7. markinu við. Mörk Vals skoruðu Bryndís Valsdóttir (2), Sirrý Haraldsdótt- ir (2), Kristin Arnþórsdóttir, Ragnheiður Víkingsdóttir og Arney Magnúsdóttir. Á Skaganum var um algera einstefnu að ræða í fyrri hálfleik og skoraði heimaliðið þá öll mörkin. í seinni hálfleik jafnaðist leikurinn og liðin sóttu á víxl en fleiri urðu mörkin ekki. Ragn- heiður Jónasdóttir, Laufey Sig- urðardóttir og Friðgerður Jóhannsdóttir skoruðu tvö mörk hver fyrir ÍA. KA-liðið þarf ekkert að örvænta þrátt fyrir þessi töp enda bæði liðin í toppbaráttu, Skaga- liðið reyndar í efsta sæti. Þá er KA-liðið ákaflega ungt, meðal- aldurinn aðeins um 18 ár og yngsta stelpan ekki nema 13 ára gömul. Einar Vilhjálmsson. Samskipadeildin: „Sýndum að það býr margt í liðinii“ KA-menn unnu geysimikil- vægan sigur á Breiðabliki á Akureyrarvelli á sunnudags- kvöldið, 3:1. Með ósigri hefði liðið verið í afar erfiðri stöðu en liðinu tókst að þoka sér úr fallsæti, a.m.k. um stundar- sakir, og staðan í deildinni er nú þannig að ekki þarf mörg stig til að þoka sér upp um nokkur sæti. „Við vorum ákveðnari en áður og það gerði gæfumuninn. Við urðum að vinna þennan leik. Við vorum óstyrkir og lékum illa í byrjun en náðum okkur upp og það er piús. Mér líst bara vel á fram- haldið, við sýndum að það býr margt í þessu liði og við getum þetta,“ sagði Ormarr Órlygs- son, þjálfari KA. Leikurinn fór afar rólega af stað en KA-menn náðu smátt og smátt undirtökunum og fyrsta markið var búið að liegja góða stund í loftinu þegar Árni Her- mannsson, sem nú fékk tækifæri í byrjunarliðinu, skoraði með við- stöðulausu skoti af stuttu færi eft- ir frábæran undirbúning Pavels Vandas og Sverris Sverrissonar. KA-menn voru mun sterkari það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og voru nálægt því að bæta vjð þegar boltinn rúllaði eftir marklínu - sagði Ormarr Örlygsson eftir góðan sigur KA á Blikum Breiðabliks en enginn KA-maður náði að pota í hann. Á 65. mínútu jöfnuðu Blikar metin þegar KA-vörnin opnaðist upp á gátt og Willum Pór Pórsson skoraði með skoti úr miðjum vítateignum. En KA-menn gáf- ust ekki upp, náðu undirtökun- um á miðjunni og pressuðu stíft. Örn Viðar hleypti nýju blóði í leik liðsins með þrumuskoti af 25 m færi sem Eiríkur varði naum- lega og á 79. mínútu skoraði Pavel Vandas stórglæsilegt mark með þrumuskoti af 20 m færi. Blikar voru ákaflega ráðlausir í framhaldinu en voru þó ekki langt frá því að skora gegn gangi leiksins þegar Steindór Elíson skallaði í þverslá. En það var Ormarr sem innsiglaði sann- gjarnan sigur KA þegar hann skoraði á 87. mínútu. Árni Her- mannsson sendi þá góða send- ingu fyrir markið úr erfiðri stöðu, Örn Viðar skallaði í varnarmann og þaðan barst boltinn til Ormars sem skoraði af stuttu færi. Pavel Vandas lék á miðjunni í þessum leik og virðist finna sig betur þar en í framlínunni. A.m.k. lék hann einn sinn besta leik í sumar, barðist vel og skap- aði oft hættu með góðum send- ingum. Árni Hermannsson lék vel í framlínunni en enginn var þó betri en Steingrímur Birgisson sem lék frábærlega í vörninni. Ágætur leikur hjá KA-mönnunt sem sýndu að þeir eru með allt of sterkt lið til að falla í 2. deild. Blikar voru vægast sagt slappir og er erfitt að sjá út á hvað liðið hefur fengið stigin sín í sumar. Reyndar vantaði Kretovic í vörn- ina en Valur Valsson fyllti skarð hans ágætlega. Hins vegar galt rniðjan greinilega fyrir það og þrátt fyrir spretti Arnars og Hilmars náði liðið aldrei að sýna tennurnar. Lið KA: Haukur Bragason, Halldór Kristinsson, Steingrímur Birgisson, Erlingur Kristjánsson. Ormarr Örlygs- son, Örn Viðar Arnarson, Gauti Laxdal, Einar Einarsson, Pavel Vandas, Árni Hermannsson, Sverrir Sverrisson (Páll Gíslason á 83. mín.). Lið Breiðabliks: Eiríkur Þorvarðarson, Steindór Elíson, lngvaldur Gústafsson (Rögnvaldur Rögnvaldsson á 74. mín.), Sigurður Viðarsson, Guðmundur Guð- mundsson, Gústaf Ómarsson, Kristófer Sigurgeirsson (Willum Þór Þórsson á 46. mín.), Arnar Grétarsson, Grétar Stein- dórsson, Valur Valsson, Hilmar Sig- hvatsson. Mörk KA: Árni Hermannsson 29., Pavel Vandas 79. og Orntarr Örlygsson 87. Mark Breiðabliks: Willunt Þór Þórsson 65. Gul spjöld: Pavel Vandas, KA, og Will- um Þór Þórsson, UBK. Dómari: Bragi Bergmann. Línuverðir: Marinó Þorsteinsson og Guðmundur Stefán Maríasson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.