Dagur - 30.07.1991, Blaðsíða 4

Dagur - 30.07.1991, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 30. júlí 1991 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31. PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SIMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR PÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Hriktir í stoðum stjórnarsamstarfs Bullandi ágreiningur er nú risinn milli þeirra Jóns Bald- vins Hannibalssonar, utanríkisráðherra og formanns Alþýðuflokksins, og Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs- ráðherra um framtíðarstefnu ríkisstjórnarinnar í sjávar- útvegsmálum. Eins og kunnugt er höfðu sjálfstæðismenn enga stefnu í sjávarútvegsmálum í síðustu kosningum aðra en þá að móta nýja sjávarútvegsstefnu sem fyrst. Alþýðuflokksmenn hafa hins vegar lengi verið hlynntir því að taka upp einhvers konar auðlindaskatt í sjávar- útvegi. Af fréttum sumra fjölmiðla að undanförnu að dæma má ætia að auðlindaskatturinn eigi vaxandi fylgi að fagna meðal sjálfstæðisráðherranna í ríkisstjórninni, að undanskildum sjávarútvegsráðherra. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra hefur réttilega bent á að sjávarútvegurinn þolir ekki meiri álögur en hann ber nú þegar, auk þess sem auðlindaskattur í sjáv- arútvegi hefði í för með sér gríðarlega tilfærslu á fjár- magni frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Flestir samráðherra Þorsteins virðast þó ætla að láta þessi rök sem vind um eyru þjóta og halda sínu striki. Innan ríkisstjórnarinnar hefur ágreiningurinn um sjáv- arútvegsstefnuna magnast mjög að undanfömu. Sjávar- útvegsráðherra hefur bent á að stjórnarflokkarnir hafi ekki gert með sér neitt samkomulag um að taka beri upp kvótaleigu. Hann fullyrðir að í stjórnarmyndunarvið- ræðunum hafi ósk Alþýðuflokksins um sérstakan auð- lindaskatt verið hafnað. Hins vegar hafi náðst um það samkomulag að skipuð yrði sjö manna nefnd til að endur- skoða fiskveiðilöggjöfina í heild og að hvor flokkur um sig tilnefndi þrjá menn í hana. Eins og kunnugt er hugðist Þorsteinn skipa Vilhjálm Egilsson alþingismann sem formann nefndarinnar, en því hafnaði Jón Baldvin alger- lega og vill fá að hafa hönd í bagga við skipun nefndar- formannsins. í DV í gær segir Jón Baldvin að Þorsteinn Pálsson hafi „vart opnað svo munninn að hann noti ekki tækifærið til að vísa á bug yfirlýstri stefnu Alþýðuflokksins í sjávar- útvegsmálum. ítrekað hefur hann haldið því fram að veiðileyfagjald eða aðrar breytingar á fiskveiðistjórnun- inni séu ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Þetta er í and- stöðu við það sem um var talað í stjórnarmyndunarvið- ræðunum og er ein af forsendum stjórnarsamstarfsins. Þetta eru stríðsyfirlýsingar gegn stefnu ríkisstjórnarinn- ar.“ Ekki þarf glöggan mann til að sjá að tilvitnuð orð for- manns Alþýðuflokksins ganga þvert á fullyrðingar sjáv- arútvegsráðherra. Vegna þessa djúpstæða ágreinings ráðherranna tveggja er þegar farið að hrikta í stoðum stjórnarsamstarfsins. Senn mun því reyna á sátta- semjarahæfileika Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. Það er í verkahring hans að reyna að sætta deiluaðila. Davíð veit líklega manna best hvað þeim Jóni Baldvin fór á milli í Viðey og ætti því að reynast létt að leiðrétta „mis- skilninginn" og jafna ágreininginn. Eða eins og einn ónefndur landkrabbi komst að orði: „Hvað er ein sjávar- útvegsstefna milli vina? Er það eitthvað til að gera veður út af“? BB. Fimmtudaginn 18. júlí birtist frétt í Degi um viðgerð kirkjunn- ar að Möðruvöllum í Hörgárdal. Vitnað var í orð mín í fréttinni, en eins og oft vill verða þegar leitað er frétta gegnum síma, þá var sú tilvitnun ekki alveg eins og ég vildi hafa hana. Sóknarnefnd Möðruvalla- klausturskirkju fékk birta leið- réttingu vegna fréttarinnar þriðjudaginn 23. júlí sl., þar sem í fyrsta lagi kemur fram, að við- gerð á kirkjunni sé alfarið á veg- um heimamanna en ekki embætt- is þjóðminjavarðar eins og haldið var fram í áðurnefndri frétt. í öðru lagi gerir sóknarnefnd athugasemd við orð mín um ald- ur kirkjunnar. Ég vil leyfa mér að gera athugasemd við þessa „leiðrétt- ingu“ sóknarnefndar. Hvað fyrra atriðið varðar þá gætir misskilnings hjá blaða- manni, þegar hann segir, að lag- færingar á turni kirkjunnar séu á vegum þjóðminjavarðar. Hið rétta er, að þjóðminjavörður hef- ur eftirlit með framkvæmdunum, enda er kirkjan friðuð og smið- irnir, sem vinna að endurbótun- um, viðurkenndir af honum sem sérfræðingar við slíka vinnu. Kirkjan á Möðruvöllum. Á að miða afmæli hennar við afhendingardag eða vígsludag? . 1 1 I J / jí [í(,fí TSSájJ Hvernig reiknast aldur kirkna? En það er söfnuðurinn sem greiðir kostnaðinn af viðgerðinni eins og fram kemur í leiðréttingu sóknarnefndar. Þó vil ég taka það fram að til þess fær söfnuður- inn mjög rausnarlega aðstoð, bæði frá Jöfnunarsjóði sókna (þ.e. frá þjóðkirkjunni) og frá Húsafriðunarsjóði (þ.e. frá em- bætti þjóðminjavarðar). Ennþá hefur söfnuðurinn ekki þurft að greiða krónu af sóknargjöldun- um vegna viðgerðarinnar, en þær hófust í fyrrasumar. Hvað síðara atriðið varðar, þ.e. um það hvenær rétt sé að minnast afmælis kirkjunnar, þá vil ég taka fram eftirfarandi: Gamla kirkjan á Möðruvöllum brann 5. mars 1865. Þegar var hafist handa við undirbúning nýrrar kirkjubyggingar. Einungis 5 mánuðum eftir kirkjubrunann, koma fyrstu kirkjuviðirnir til landsins frá Danmörku. Skilmálar vegna byggingarinn- ar voru mjög ítarlegir. Þar kemur m.a. fram, að kirkjan skyldi messufær fyrir júlílok árið eftir (þ.e. 1866). Þetta stóðst að mestu, því kirkjan var vígð einungis ári eftir að fyrstu viðirnir komu, eða 5. ágúst 1866 (einu ári og fimm mánuðum eftir brunann). Þætti slíkt góður kirkjubyggingarhraði nú á tímum. Kirkjubyggingunni var þó ekki að fullu lokið fyrr en árið 1867 og kirkjan ekki afhent söfnuðinum fyrr en 23. septem- ber 1867. Frá vígsludeginum segir bæði í dagbókum Sveins Þórarinssonar (sem varðveittar eru í Nonna- safninu á Akureyri) og í kirkju- bókinni. Kirkjan virðist síðan hafa verið notuð reglulega eftir vfgsluna, því í reikningum hennar kemur fram, að kirkjan sjálf hafi verið þrifin mánaðarlega, svo og messuklæði og fl. Auk þess virð- ist yfirheyrsla barna hafa hafist aftur í kirkjunni veturinn ’66-’67, því í reikningshaldinu er aðeins greint frá borgun fyrir lán á hús- næði til þess veturinn ’65-’66 og fram á vor. í bréfi stíluðu 15. Torfi K. Stefánsson Hjaltalin. nóv. 1866 er og sagt frá flutningi tveggja kirkjuklukkna og altaris- töflu til kirkjunnar. Þannig má vera ljóst, að kirkjan hefur verið notuð til messuhalds allt frá vígsludegi hennar fyrir tæpum 125 árum. Afmæli kirkna miðað við vígsluafmæli í flestum tilvikum er afmæli kirkna miðað við vígsluafmæli þeirra, en ekki afhendingardag. Ástæðan er sú, að kirkjan er ekki aðeins hús (bygging), heldur og einnig starfseining. 5. ágúst n.k. hefur kirkjubyggingin á Möðru- völlum verið 125 ár í notkun sem guðsþjónustuhús. Sem slík á hún því 125 ára afmæli í byrjun næsta mánaðar. En sem bygging, þ.e. sem fullfrágengið hús, á hún ekki 125 ára afmæli fyrr en 23. sept- ember á næsta ári. í fyrrnefndri leiðréttingu sókn- arnefndar kemur fram að jafnan hafi verið miðað við ártalið 1867 þegar afmælis kirkjunnar hefur verið minnst (þ.e. við afhending- ardag). Reyndar er það svo að afmæli kirkjunnar var fyrst hald- ið hátíðlegt árið 1957. Séra Sigurður Stefánsson (sóknar- prestur á Möðruvöllum 1928- 1966) stóð fyrir þeirri afmælishá- tíð en einhverja bakþanka, eða nýjar upplýsingar, virðist hann hafá fengið varðandi ártalið, því í bók sinni „Lögmannshlíðar- kirkja, aldarminning“ frá árinu 1962, segir hann til dæmis um þá kirkju, að aldur kirkjunnar verði að miðast við sjálfa vígsluna (sem var 1860), þó svo að húsið hafi ekki verið fullfrágengið fyrr en sumarið 1861 og fyrst tekið út síðsumars 1862. Þetta sama á þá auðvitað einn- ig við um kirkjuna á Möðruvöll- um, enda vildi sonur séra Sigurð- ar, séra Ágúst, sem þá var prest- ur á Möðruvöllum, minnast afmælis kirkjunnar árið 1966, væntanlega undir áhrifum frá föður sínum. Af því varð þó ekki, bæði vegna andstöðu sókn- arnefndar og vegna þess að séra Ágúst sótti burtu þá um sumarið. 100 ára afmæli kirkjunnar var því haldið hátíðlegt 1967 og 110 ára afmæli 1977. Þannig hefur afmælisins aðeins verið minnst með viðhöfn þrisvar á 125 ára ferli kirkjunnar, en þá hefur allt- af verið miðað við afhendingar- dag. Ártalið 1867, sem séra Sigurð- ur heitinn gerði að afmælisári kirkjunnar, hefur þannig mótað hefðina, þrátt fyrir það að hann sjálfur hafi verið þeirrar skoðun- ar eftirá, að miða ætti afmæli kirkna við vígsludag. Ég er sömu skoðunar og séra Sigurður heitinn. Kirkjan, sem guðsþjónustuhús, á 125 ára afmæli 5. ágúst n.k. Það er reyndar ekki skoðun mín, heldur er það staðreynd. En að sjálf- sögðu er það samkomulagatriði milli prests, sóknarnefndar og safnaðar, hvenær heppilegt sé að halda upp á afmæli kirkjunnar og hvort miða eigi við þann ára- fjölda sem húsið hefur verið í eigu safnaðarins (frá árinu 1867), eða þann árafjölda sem kirkjuleg starfsemi hefur farið þar fram innan dyra (frá árinu 1866). Torfi K. Stefánsson lijaltalín. Höfundur er sóknarprestur Möðruvalla- prestakalls.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.