Dagur - 30.07.1991, Blaðsíða 8

Dagur - 30.07.1991, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 30. júlí 1991 ÍÞRÓTTIR Sigursveit Svía í drengjaflokki. Ekki kæmi á óvart þótt meira heyrðist frá þessum piltum í framtíðinni. Karen Sævarsdóttir lék mjög vel og hafnaði í 2. sæti í einstaklingskeppninni. íslenska drengjasveitin, f.v.: Þórður Ólafsson, Þórleifur Karlsson, Örn Arn- arsson, Arnar Astþórsson, Tryggvi Pétursson og Hannes Þorsteinsson. Á myndina vantar Sigurpál Sveinsson. Norðurlandamót unglinga í golfi: Unglingamir fóru á kostum á Jaðarsvelli Svíinn Petter Ederö virðist ánægður með högg sitt upp úr sandgryfju á 18. braut. Það er ekki skrítið því boltinn fór beint í holu og þar með var nýtt vallarmet á 18 holum staðreynd. Myndir: Goiii og gt Það er ekki ofsögum sagt að Norðurlandamót unglinga í golfi, sem fram fór á Jaðars- velli á Akureyri um helgina, hafi verið skemmtilegt. Ungl- ingarnir sýndu sannkallaða snilldartakta og í samræmi við það náðist framúrskarandi góður árangur á mótinu. Vall- armetin á Jaðarsvelli fuku í stórum stíl. Danska stúlkan Iben Tinning náði bestum árangri þegar hún lék síðustu 18 holurnar á 66 höggum, eða flmrn undir pari. Karen Sævars- dóttir lék síðustu 18 holurnar á 69 höggum og það sama gerði norska stúlkan Vibeke Stansrud á fyrstu 18 holunum. Vibeke lék 72 holurnar á 288 höggum, sem einnig er vallarmet á Jaðri. Landi hennar, Knut Ekjord, lék 72 holurnar á 287 höggum og bætti þar með vall- armet Úlfars Jónssonar. Eins og við var búist stóðu sænsku unglingarnir uppi sem sigurvegarar í sveitakeppni drengja á 1501 höggi, fimm högg- um á undan dönsku sveitinni í öðru sæti. íslensku drengirnir náðu fjórða sætinu, léku á 1535 höggum. Árangur íslensku drengjanna í sveitakeppninni var sem hér segir: Örn Arnarson 302 högg, Sigurpáll Geir Sveinsson 305 högg, Tryggvi Pétursson 305 högg, Þórður Olafsson 306 högg, Arnar Ástþórsson 320 högg og Þorleifur Karlsson 323 högg. Knut Ekjord Noregi sigraði örugglega í einstaklingskeppni drengja á 287 höggum. Annar varð Svíinn Petter Ederö á 290 höggum og landi hans Johan Hagelin í því þriðja á 294 höggum. Örn Arnarson náði bestum árangri íslensku kylfing- anna, varð í 10. sæti á 302 höggum. Norsku stúlkurnar sigruðu með yfirburðum í sveitakeppni stúlkna á 599 höggum. Dönsku stúlkurnar komu næstar á 613 höggum, en þær ísiensku lentu í því fjórða á 629 höggum. Árang- ur íslensku stúlknanna varð sem hér segir: Karen Sævarsdóttir 299 högg, Andrea Ásgrímsdóttir 332 högg og Herborg Arnarsdóttir 341 högg. Þessi árangur tryggði Karenu annað sæti í einstaklingskeppn- inni, en þar bar sigur úr býtum Vibeke Stansrud Noregi á 288 höggum. Andrea varð í 11. sæti í einstaklingskeppninni og Her- borg í því 13. óþh Úrslit: Sveitakeppni drengja högg 1. Svíþjóð 1501 2. Danmörk 1506 3. Noregur 1523 4. ísland 1535 5. Finnland 1548 Einstaklingskeppni drengja 1. Knut Ekjord Nor 287 2. Petter Ederö Sví 290 3. Johan Hagelin Sví 294 4. Morten Hagen Nor 295 5. Karsten Guldbæk 297 10. Örn Arnarson ísl 302 12. Sigurpáll Geir Sv. ísl 305 13. Tryggvi Pétursson ísl 305 14. Þórður Ólafsson ísl 306 26. Arnar Ástþórsson ísl 320 27. Þorleifur Karlsson ísl 323 Sveitakeppni stúlkna 1. Noregur 599 2. Danmörk 613 3. Svíþjóð 615 4. ísland 629 5. Finnland 689 Einstaklingskeppni stúlkna 1. Vibeke Stansrud Nor 288 2. Karen Sævarsd. ísl 299 3. Iben Tinning Dan 307 4. Cristina Kuld Dan 310 5. Sofie Strömgren Sví 311 11. Andrea Ásgrímsdóttir 332 13. Herborg Arnarsdóttir 341 Opna Landsbankamótið í golfi: Axel Reynis hirti guilið - hart barist um silfrið Opna Landsbankamótið í golfi fór fram á Húsavík um helgina hjá Golfklúbbi Húsavíkur. AIIs tóku þátt 93 kylfingar úr 8 klúbbum, allt frá Eskifirði til Reykjavíkur, og tókst mótið með ágætum ef undan er skilið slagveður síðari mótsdag. Axel Reynisson, Golfklúbbi Húsa- víkur, sigraði í karlaflokki og Akureyringarnir Jónína Páls- dóttir og Birgir Haraldsson sigruðu í kvennaflokki og ungl- ingaflokki. Leiknar voru 36 holur með og án forgjafar. Fyrri keppnisdaginn var blíðskaparveður og náðist ágætis árangur hjá kylfingum. Að morgni sunnudagsins rigndi líkt og hellt væri úr fötu og hafði slag- veðrið töluverð áhrif á högga- fjölda keppenda. Landsbankinn á Húsavík gaf öll verðlaun á mót- inu. Sverrir Þorvaldsson GA og Kristján Hjálmarsson GA háðu mikinn bráðabana um 2. sætið en Sverrir hafði betur í fimmtu til- raun. Sauðkrækingarnir Guðjón Gunnarsson og Óli Barðdal börðust um silfrið í unglinga- flokki og vann Guðjón í bráða- bana. Úrslit mótsins urðu þessi: -bjb Karlaflokkur án forgjafar. 1. Axel Reynisson GH 158 2. Sverrir Þorvaldsson GA 162 3. Kristján Hjálmarsson GA 162 Karlaflokkur með forgjöf. 1. Axel Reynisson GH 140 2. Sigurður Hreinsson GH 140 3. Bergur R. Björnsson GÓ 141 Kvennaflokkur án forgjafar. 1. Jónína Pálsdóttir GA 183 2. Erla Adolfsdóttir GA 193 3. Sólveig J. Skúlad. GH 204 Kvennaflokkur með forgjöf. 1. Ingibjörg H. Stefánsd. GA 152 2. Sólveig J. Skúlad. GH 154 3. Erla Adolfsdóttir GA 155 Unglingaflokkur án forgjafar. 1. Birgir Haraldsson GA 166 2. Guðjón B. Gunnarsson GSS 168 3. Óli Barðdal Reyniss. GSS 168 Unglingaflokkur með forgjöf. 1. Oli Barðdal Reyniss. GSS 128 2. Birgir Haraldsson GA 140 3. Guðjón B. Gunnarsson GSS 144

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.