Dagur - 30.07.1991, Page 3
Þriðjudagur 30. júlí 1991 - DAGUR - 3
Fréttir
Dalvíkurhöfn:
Smábátahöfiiin
dýpkuð
- kostnaður áætlaður
2,5-3 milljónir króna
í dag verður byrjað að dýpka
Dalvíkurhöfn fyrir innan smá-
bátagarðinn og verður upp-
greftrinum ekið í uppfyllingu
innan nýs varnargarðs nyrst á
hafnarsvæðinu. Það eru Jarð-
verk hf. og Bifreiðastöð Dal-
víkur sem sjá um verkið en það
eru sömu aðilar og sáu um nýja
grjót varnargarðinn.
Hér er um 3500 RM af upp-
greftri að ræða og tekur verkið
um 15 til 20 daga en ekki er hægt
að vinna við gröftinn nema á
fjöru en 2,5 metra dýpi þarf að
vera í læginu miðað við stór-
straumsfjöru. Samkvæmt upplýs-
ingum tæknideildar Dalvíkurbæj-
ar er áætlaður kostnaður við
verkið um 2,5 til 3,0 millj. króna.
Með þessari framkvæmd eykst
öryggi smábáta í höfninni til
muna er flotbryggjan verður færð
inn fyrir grjótvarnargarðinn.
GG
Kristnesspítali símasambandslaus
í hartnær sex tíma
- bilun á ijölsímasambandi milli Hrafnagils og Akureyrar
Fjölmenni í hófi á Grenivík til heiðurs prestshjónunum í Laufási:
Óhætt er að segja að borð hafi svignað undan hnallþórunum í kveðjuhófi til
heiðurs prestshjónunum á Grenivík sl. sunnudag.
Þeir símnotendur í Eyjafjarð-
arsveit sem tengdir eru stöð-
inni á Hrafnagili voru síma-
sambandslausir frá því um sex-
leytið á sunnudagskvöldið og
fram undir miðnættið.
Bilunin var á fjölsímasam-
bandinu milli Hrafnagils og
Akureyrar, og tók nokkurn tíma
að finna bilunina en í fyrstu var
álitið að um stöðvarbilun væri að
ræða í sjálfvirku stöðinni. Krist-
nesspítali er tengdur Hrafnagils-
stöðinni og hefur hælið ekkert
varasamband við umheiminn
þegar um slíkar bilanir er að
ræða eins og átti sér stað á sunnu-
dagskvöldið. GG
„Hvergi eins faJlegt og
á hlaðinu í Laufási“
- segir sr. Bolli Gústavsson, sem nú flyst vestur í Hóla
eftir 25 ár í Laufási
Sr. Bolli Gústavsson, fráfar-
andi sóknarprestur í Laufási
við Eyjafjörð, kvaddi söfnuð
sinn með messu í Grenivíkur-
kirkju sl. sunnudag. Að henni
lokinni héldu sóknarnefndir
Grenivíkurkirkju, Svalbarðs-
kirkju og Laufáskirkju, sr.
Bolla og fjölskyldu hans veg-
legt kveðjuhóf á Grenivík og
sátu það á þriðja hundrað
manns.
„Veislan var í alla staði ákaf-
lega myndarleg og við hjónin og
börn okkar viljum nota þetta
tækifæri til þess að koma á fram-
færi innilegu þakklæti fyrir þann
vinarhug sem okkur var sýndur
með henni,“ sagði sr. Boili í sam-
tali við Dag.
Sr. Bolli sagði að nú stæðu fyr-
ir dyrum flutningar frá Laufási
vestur í Hóla, en eins og kunnugt
er hefur hann verið kjörinn
vígslubiskup Hólastiftis. „Við
erum fyrir nokkru byrjuð að
pakka niður, en það kemur á
daginn eftir 25 ára búsetu hér að
það er töluvert mál að flytja bú-
slóðina, þó ekki sé um lengri leið
að ræða. í ljós hefur komið að
maður á ýmislegt, sent erfitt er að
gera upp við sig hvort sé rétt-
læt.anlegt að henda,“ sagði Bolli
og bætti við að það væru
nákvæmlega 25 ár síðan hann
flutti í Laufás frá Hrísey, eftir að
hafa þjónað þar í þrjú ár. „Ég
flutti mig ekki langt þá, fór með
búslóðina á fiskibáti yfir sundið.
Það er mjög eftirminnilegt,"
sagði Bolli.
Hann sagði að árin í Laufási
hefðu verið lærdómsrík og í alla
staði ánægjuleg. „Það er svo mik-
ið gott við þennan stað. Laufás er
einstaklega fallegur staður, það
er hvergi eins fallegt og á hlaðinu
í Laufási og hér er óvenjulega
mikil veðursæld,“ sagði Bolli.
Á næstunni flyst sr. Bolli og
kona hans, Matthildur Jónsdótt-
Frú Matthildur Jónsdóttir og sr.
Bolli Gústavsson aö lokinni kveðju-
messu í Grenivíkurkirkju.
Myndir: KK
ir, vestur í Hóla. Sr. Bolli segist
líta svo á að hér sé um tímamót
að ræða. Unnið sé markvisst að
því að gera embætti vígslubiskups
á Hólum mun virkara en það hef-
ur verið og grundvallarbreytingin
sé sú að hér eftir verði embættið
bundið við Hólastað. óþh
Skák
Göngugötumót 1991:
Ólafiir sigraði í
útihraðskákmótínu
Síðastliöinn föstudag hélt
Skákfélag Akureyrar útihrað-
skákmót í göngugötunni en
það er orðin hefð að félagið
gangist fyrir slíku móti á
sumrin. Keppt er um farand-
bikar sem gefinn var af Bóka-
búð Jónasar.
Alls voru 12 skákmenn mættir
til leiks í viðunandi veðri sl.
föstudag, sá elsti rúmlega fimm-
tugur en sá yngsti þrettán ára.
Sýnt þótti að hörð barátta yrði
um verðlaunasætin, eins og kom
á daginn.
Rúnar Sigurpálsson, sigurveg-
arinn frá útihraðskákmótinu í
fyrra, og Ólafur Kristjánsson,
þriðji stigahæsti skákmaður
Akureyrar, skáru sig nokkuð úr.
Skák þeirra innbyrðis réði úrslit-
um og stóð Ólafur uppi sem sig-
urvegari og það með glæsibrag
því hann leyfði aðeins eitt jafn-
tefli en sigraði í öðrum skákum.
Röð efstu manna varð þessi: 1.
Ólafur Kristjánsson 10'Á v. 2.
Rúnar Sigurpálsson 9lá v. 3. Bogi
Pálsson IVi v. 4. Þór Valtýsson 7
v. 5. Sveinbjörn Sigurðsson 6V2 v.
6.-7. Páll Þórsson og Skafti Ingi-
marsson SVi v. Skákstjóri var Páll
Hlöðvesson. SS
Rskmiðlun Norðurlands á Dalvík - Rskverð á markaði vikuna 21.07-27.071991
Tegund Hámarks- verð Lágmarks- verð Meðalverð (kr/kg) Magn (kg) Verðmæti
Þorskur 88 83 82,16 12.976 1.066.149
- undirmál 67 65 65,54 2.288 149.949
Ýsa 105 90 98,29 2.518 247.501
Ufsi 60 54 56,02 54.335 3.043.696
Lúða 140 140 140,00 5 700
Steinbítur 41 30 35,82 1.712 61.323
Grálúða 68 65 66,09 1.231 81.355
Karfi 28 27 26,55 794 21.081
Hrogn 120 120 120,00 144 17.280
Samtals 61,70 76.003 4.689.034
Dagur birtir á þriöjudögum töflu yfir flskverö hjá Fiskmiölun Norðurlands á Dalvik og greinir þar frá
veröinu sem fékkst t vikunni á undan. Þetta er gert í Ijösi þess aö hlutverk fiskmarkaða i verðmynd-
un íslenskra sjávarafuröa hefur vaxlö hrööum skrefum og því sjálfsagt að gera lesendum blaðsins
kleift aö fylgjast meö þróun markaðsverös á fiski hér á Noröurtandi.
Samland - Heildsöludreifing
Óseyri 1, 603 Akureyri, símar 96-30421, 30422 og 30378.
Hvítlaukur er allra meina bót og stuðlar að almennu
hreysti og langlífi. Þeír sem neyta hvítlauks daglega
við ofháum blóðþrýstingi, ofliárri blóðfitu, œðakölkun
og meltingdrtruflunum, liafafengið bót heilsu og aukið
vellíðan almennt.
Mikil og reglubundin neysla livítlauks hefur góð áhrif
á hjarta og œðasjúkdóma, kólesteról í blóði og áfleiri
þœtti líkamans.
Aðal virka efnið í hvítlauknum er allicín, sem hefur
m.a. sýklahemjandi áhrif.
Þess vegna er mjög mikið atriði þegar keyptar eru
hvítlauksvörur að þœr innihaldi allicín (sannarlega).
Það geturþú fullvissað þig um þegarþú kaupir glas af
"ALLIRICH" hvítlaukfráArizonaNatural.Áþvístendur
Allicin Rich.
ÞAÐ ER MUNURINN ÁÖÐRUM TEGUNDUM.
Farðu vel með heilsuna - veldu réttu tegundina -
ALLIRICH sem passar þér, og á lœgra verði.
Eina lyktarlausa
hvítlauksafurðin
með allicini.
Varist eftirlíkingar