Dagur - 30.07.1991, Side 9
Þriðjudagur 30. júlí 1991 - DAGUR - 9
3. deild:
DaMkingar á mikilli siglingu
- hafa unnið 5 leiki í röð og tylltu sér á toppinn um helgina
Dalvíkingar unnu auðveldan
sigur á Yölsungum um helgina
og tylltu sér þar með á topp 3.
deildar. Liðið het'ur nú unnið 5
leiki í röð og stefnir óðfluga á
sæti í 2. deild. Rétt er að taka
fram að Leiftursmenn eiga
leiki til góða, léku reyndar
gegn Magna í gær og verður
greint frá þeirri viðureign í
blaðinu á morgun.
Dalvíkingar áttu ekki í miklum
vandræðum með Völsunga á
föstudagskvöldið enda Húsvík-
ingar afar daufir og sýndu lítil
tilþrif. Árni Sveinsson náði for-
ystunni fyrir Dalvíkinga á 12.
mínútu með stórglæsilegu marki
beint úr aukaspyrnu, þrumuskot
frá vítateig og upp í vinkilinn.
Völsungar skoruðu sjálfsmark 10
mínútum síðar eftir hornspyrnu
og á 30. mínútu bætti Jón Örvar
Eiríksson þriðja markinu við eft-
ir hornspyrnu og darraðardans í
vítateig Völsungs.
Staðan í leikhléi var 3:0 og það
var svo Gísli Davíðsson sem inn-
siglaði sigur Dalvíkinga á 60.
mínútu, markmaður Völsungs
varði skot hans en missti boltann
frá sér og Gísli fylgdi á eftir og
skoraði. Skömmu síðar fengu
Völsungar langbesta færi sitt í
leiknum þegar Hörður Benónýs-
son stóð fyrir opnu marki en
skallaði framhjá.
Fjör hjá Reyni og Magna
10 mörk voru skoruð í viðureign
Reynis og Magna á föstudags-
kvöldið og höfðu Grenvíkingar
betur í markaregninu, 6:4. Þeir
voru reyndar skrefinu á undan
allan leikinn og Bjarni Áskelsson
náði forystunni strax í upphafi en
Siguróli Kristjánsson jafnaði
skömmu síðar fyrir Reyni og
staðan var 1:1 í hléi. í seinni hálf-
leik opnaðist allt upp á gátt,
Magnamenn náðu tvívegis foryst-
unni en Reynismenn jöfnuðu í
bæði skiptin. Magni skoraði þá
tvö í röð, Reynir minnkaði mun-
inn í 4:5 en síðasta markið kom í
hlut Magna og þar með stigin
þrjú. Bjarni Áskelsson skoraði
annað mark í seinni hálfleik og
Kristján Kristánsson skoraði
einnig tvö mörk fyrir Magna og
þeir Eymundur Eymundsson og
Ólafur Þorbergsson eitt hver.
Halldór Jóhannsson skoraði tví-
vegis fyrir Reyni og Grétar Karls-
son eitt úr vítaspyrnu.
Þrátt fyrir sigurinn sitja
Magnamenn í næst neðsta sæti
deildarinnar en höfðu tækifæri til
að breyta því með sigri á Leiftri í
gærkvöld.
Jafnt hjá Skallagrími
og Þrótti
Skallgrímur og Þróttur skildu
jöfn, 2:2, í Borgarnesi. Valdimar
Sigurðsson og Bjarki Jóhannes-
son skoruðu fyrir heimamenn en
Eysteinn Kristinsson og ívar
Kristinsson fyrir Þrótt.
Á ísafirði sigruðu heimamenn
ÍK 2:1. Stefán Tryggvason og
Gunnar Torfason skoruðu mörk
BÍ en Úlfar Óttarsson minnkaði
muninn fyrir ÍK.
2. deild:
Heil umferð
í gærkvöld
Heil umferð fór fram í 2. deild
fótboltans í gær.
Þá mættust Þór og Haukar á
Akureyri, Selfoss og Tindastóll,
Grindavík og Fylkir, ÍR og íA og
ÍBK og Þróttur. í 3. deild mætt-
ust Magni og Leiftur á Grenivík.
Sagt verður frá þessum leikjum í
blaðinu á morgun.
Arnar Snorrason, fyrirliði Dalvíkinga. Liðið gefur ekkert eftir í baráttunni
um 2. deildarsæti.
Kristján Kristjánsson, þjálfari Magna, skoraði tvívegis í 10 marka leik gegn Rcyni
JfllpiS
.
4. deild:
Loksins fékk Þrymur stíg
- HSÞ-b og Hvöt unnu bæði
Ekkert lát er á einvígi HSÞ-b
og Hvatar á toppi D-riðils 4.
deildar. Bæði liðin sigruðu í
leikjum sínum um helgina,
HSÞ-b sigraði UMSE-b 2:0 og
Hvöt Kormák 3:1. Þá hlaut
Þrymur sitt fyrsta stig á
íslandsmótinu í ár þcgar liðið
gerði 2:2 jafntefli við SM á
Sauðárkróki.
Leikur HSÞ-b og UMSE-b
þótti vel leikinn og skemmtileg-
ur. UMSE-b var reyndar meira
með boltann þegar á heildina er
litið en gekk illa að skapa sér
færi. Sóknarlotur Mývetninga
voru mun hættulegri, þeir notuðu
mikið háar sendingar inná víta-
teiginn sem voru stórhættulegar
enda leikmenn liðsins í hávaxn-
ara lagi. Ekkert mark var þó
skorað í fyrri hálfleik en í þeim
seinni skoraðu HSÞ-b tvívegis.
Þórir Sigmundur Þórisson skor-
aði strax í upphafi seinni hálfleiks
eftir að UMSE-b hafði sótt öllu
meira og Stefán Guðmundsson
innsiglaði sigurinn eftir slæm
varnarmistök hjá UMSE-b þegar
15 mínútur voru til leiksloka.
Hvatarsigur í jöfnum leik
Leikur Hvatar og Kormáks á
Blönduósi var mjög jafn og sigur-
inn hefði getað lent hvoru megin
sem var en heimamenn höfðu
heppnina með sér. Bjarni Gauk-
ur Sigurðsson náði forystunni fyr-
ir Hvöt en Rúnar Guðmundsson
jafnaði metin fyrir Kormák. Um
miðjan síðari hálfleik kom Páll
Leó Jónsson Hvöt aftur yfir eftir
slæm varnarmistök Kormáks-
manna og hann var síðan aftur á
ferðinni og innsiglaði sigur Hvat-
ar sem gefur ekkert eftir í topp-
baráttunni.
Loksins fékk Þrymur stig
Eftir harla rýra uppskeru framan
af sumri kom að því að Þrymur
fengi stig. Liðið tók á móti SM á
Sauðárkróki og byrjaði reyndar
illa. SM-ingar sóttu linnulítið í
fyrri hálfleik og náðu forystunni
með marki Jóhanns Einarssonar.
Helgi Eyþórsson bætti öðru
marki við í seinni hálfleik en þá
var SM m.a. búið að brenna af
vítaspyrnu. Eftir mark Helga
jafnaðist leikurinn, Ægir Arnar-
son minnkaði muninn fyrir Þrym
og Eiður Baldursson sá svo um
að jafna leikinn og tryggja stigið
langþráða.
Þess má geta að Jón Forberg,
einn besti leikmaður SM, er
handleggsbrotinn og leikur ekki
meira með liðinu í sumar.
Samskipadeild
11. umferð:
Víkingur-Valur 1:0 KA-Breiðablik 3:1
Víðir-IBV 5:2
FH-KR 2:0
Fram-Stjarnan mánud.
KR 11 6-3-2 22: 7 21
Fram 10 6-2-2 14: 7 20
Víkingur 11 6-0-5 17:17 18
FH 11 5-2-4 14:12 17
Breiðablik 11 4-4-3 17:16 16
ÍBV 11 5-1-5 19:19 16
Valur 11 4-2-5 14:15 14
KA 11 4-1-6 11:14 13
Stjarnan 10 3-34 13:15 12
Víðir 11 1-2-8 13:29 5
Markahæstir:
Hörður Magnússon, FH
Guðmundur Steinsson, Víkingi
Steindór Elíson, UBK
Leifur Hafsteinsson, ÍBV
Stcinar lngimundarsori, Víði
1. deild kvenna
KR-Týr 7:0
Valur-KA 7:2
ÍA-KA 6:0
ÍA 9 7-1-1 37: 5 22
KR 8 7-0-1 28: 8 21
Valur 9 6-2-1 30: 6 20
Breiðablik 7 4-1-2 11: 8 13
Þór 6 2-1-3 11:17 7
KA 9 1-2-6 10:28 5
Þróttur N. 8 1-0-7 6:24 3
Týr 8 0-1-7 4:42 1
3. deild
11. umfcrð:
Dalvík-Völsungur Skallagrímur-Þróttur 4:0 2:2
Bl-IK 2:1
Revnir-Magni 4:6
Leiftur-KS frcstað
Dalvík 11 7-2-2 25:16 23
Leiftur 9 7-1-1 26: 6 22
BÍ 11 5-3-3 17:10 18
Skallagrímur 11 5-3-3 26:26 18
ÍK 11 3-4-4 19:22 13
Völsungur 11 3-44 11:18 13
Þróttur N. 11 2-5-4 20:18 11
Reynir 11 3-2-6 18:30 11
Magni 10 3-1-6 23:29 10
KS 10 1-3-6 6:15 6
Markahæstir:
Þorlákur Árnason, Leiftri 14
Valdimar Sigurðss., Skallagrími. 8
Ágúst Sigurðsson, Dalvík 7
Ámi Sveinsson, Dalvík 7
4. deild D-riðill
11. umferð: HSÞ b-UMSE b 2:0
Hvöt-Kormákur 3:1
Þrymur-SM 2:2
HSÞ-b 10 7-2-1 41:11 23
Hvöt 10 64-0 39:16 22
Kormákur 9 4-1-4 20:14 13
Neisti 9 4-1-4 20:21 13
UMSE-b 9 4-0-5 18:25 12
SM 9 3-1-5 15:23 10
Þrymur 10 0-1-9 10:57 1
8
7
7
6
5
íþróttafélög -
félagasamtök
Mikið úrval af
verðlaunagripum.
Bikarar - styttur
plattar og peningar
fyrir allar greinar íþrótta.
Glæsilegir og ódýrir gripir.
Kristján L. Möller Sigluf.
Sími og fax 96-71133.
i