Dagur - 30.07.1991, Blaðsíða 16
DAGUR
Akureyri, þriðjudagur 30. júlí 1991
Kodak ^
Express
Gæöaframköllun
★ Tryggðu filmunni þinni
5?esta ^Pedíomyndir
$S&>. Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Hofsós:
Tveir smábátaeigendur undir smásjá
Sýslumannsembættið í Skaga-
fjarðarsýslu rannsakar nú mál
er varðar tvo eigendur smá-
báta, sem gerðir eru út frá
Hofsósi. Grunur leikur á að
þeir hafi brotið lög um stjórn-
un fiskveiöa, á þann veg að
náið samstarf þeirra í milli hafi
komið báðum verulega til
góða. Annar báturinn hefur
úthlutaðan kvóta og hinn hefur
krókaleyfi, sem þýðir að hann
hefur leyfi til að stunda hand-
færa- og línuveiðar eins og
hann getur í þrjú ár.
- Ríkisútvarpið skýrði frá því í
gær að grunur léki á að sá sem
ætti kvótann hefði í vissum skiln-
ingi drýgt hann með því að skipa
afla út í krókaleyfisbátinn á hafi
úti. Þessi ráðstöfun kemur báð-
um eigendum smábátanna til
góða við úthlutun kvóta eftir tvö
ár, þegar aflareynsla krókaleyfis-
bátanna verður metin.
Ægir Ólafsson, veiðieftirlits-
maður í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, sagðist í gær lítið geta tjáð
sig um þetta mál, það væri alfarið
í höndum sýslumannsembættisins
í Skagafjarðarsýslu. Ægir sagðist
ekki geta upplýst hvernig sjávar-
útvegsráðuneytið hefði komist á
snoðir um málið, eða hversu
lengi grunur hefði fallið á menn-
ina.
Sýslumaðurinn í Skagafjarðar-
sýslu vinnur nú að rannsókn
þessa máls. Komi í ljós að grunur
um kvótamisferli reynist á rökum
reistur verður það sent til embættis
ríkissaksóknara. óþh
Feðgamir uiuiu
Áningarrallið
Feðgarnir Jón R. Ragnarsson
og Rúnar Jónsson sigruðu í
Hótel-Áningar rallinu sem
haldið var í Skagafirði sl.
laugardag. Rallið var liður í
íslandsmeistarakeppninni og
núna eru þeir feðgar í öðru
sæti í keppninni um íslands-
meistaratitilinn með 35 stig.
Efstir eru Ásgeir Sigurðsson
og Bragi Guðmundsson með
55 stig en þeir urðu í öðru
sæti í Áningarrallinu. Á með-
fylgjandi mynd má sjá Ásgeir
og Braga á Metro-bíl sínum á
fleygiferð yfir læk.
Bílaklúbbur Skagafjarðar
sá um framkvæmd keppninn-
ar en þetta var fyrsta rall-
keppnin sem hann stóð fyrir.
Nánar verður greint frá
Hótel-Áningar rallinu í máli
og myndum í blaðinu á morg-
Un. Mynd: -bjb
Leikfélag Húsavíkur enn stórhuga:
Setur upp Gaukshreiðrið í vetur
- María Sigurðardóttir ráðin leikstjóri og Sonja B. Jónsdóttir þýðir verkið
Akureyri:
Sullaðogkeyrt
- átta ökumenn
fóru of geyst
Lögreglan á Akureyri lók
átta ökumenn fyrir of hrað-
an akstur um helgina, jafnt
innan sem utan bæjarmark-
anna. Þá voru tveir öku-
menn teknir vegna gruns um
ölvun við akstur og lenti
annar þeirra í árekstri að
morgni laugardags. Skemmdi
hann tvo kyrrstæða bfla svo
og sinn eigin.
Að sögn lögreglunnar var
talsverð ölvun í miðbæ Akur-
eyrar á föstudagskvöldið og
fengu nokkrir að gista fanga-
geymslur. Ekki var þó mikið
um óspektir en ölvun var áber-
andi. Ein rúða var brotin og
þá fóru óboðnir gestir í sund-
laugina. SS
Tveir ballgestir
á Dalvík:
Æthiðu að
synda til
Skagafjarðar
Mikið fjör var á og ekki síð-
ur eftir dansleik á Dalvík
aðfaranótt laugardags.
Meðal gesta voru tveir
Skagfirðingar sem lögreglan
kom auga á þegar þeir voru
að leggjast til sunds í höfn-
inni. Aðspurðir um hvernig
á ferðum þeirra stæði kváð-
ust þeir ætla að synda heim
til Skagaljarðar!
Lögreglumenn gátu talið
Skagfirðingunum hughvarf og
bent þeim á heppilegri aðferð
til að ferðast á milli staða.
Sundkapparnir voru nýlega
kontnir út í sjó og varð þeim
ekki meint af volkinu.
Að sögn lögreglunnar var
óvenju róstusamt eftir ballið,
blóðug slagsmál og annað í
svipuðum dúr. SS
Sunnan gola
og sólskin
næstu daga
Veðurstofan gerir ráð fyrir
að nú glaðni til á Norður-
landi og spáir hlýrri suðlægri
átt og léttskýjuðu veðri
næstu daga.
Norðlendingar mega að öll-
um líkindum taka sólfatnað-
inn frant að nýju því Veður-
stofan spáir hlýrri suðlægri átt
og sólskini næstu daga. Gert
er ráð fyrir að hitastig verði
allt að 20 gráður að deginum
og að góðviðrið rnuni haldast
um einhvern tíma. Þeir sem
hafa hug á útiveru á Norður-
landi nú um aðal suntarleyfis-
tímann og verslunarmanna-
helgina ættu því ekki að verða
fyrir vonbrigöum ef veður-
spárnar bregðast ekki. ÞI
Leikfélag Húsavíkur mun taka
hið fræga verk Gaukshreiðrið
til sýninga í vetur og er um að
ræða frumsýningu á því hér á
landi. Sonja B. Jónsdóttir,
fyrrverandi fréttamaður á
Ríkissjónvarpinu, hefur þýtt
„Af rannsóknum í vor á laxa-
seiðastofninum í Laxá í Suður-
Þingeyjarsýslu má ráða að
náttúrulegt klak Laxár hefur
ekki misfarist. Stofninn er í
góðu lagi og ekki í hættu,“
sagði Tumi Tómasson, fiski-
fræðingur, en hann hefur fylgst
með viðkomu laxastofnsins í
Laxá frá árinu 1984.
Að sögn Tuma eru aðal upp-
eldisstöðvar laxaseiðanna í
Hólmavaðslandi, í Laxamýrar-
landi og landi Núpa og Knúts-
staða en á þessum svæðum voru
seiðin talin á átta stöðum sem
Gaukshreiðrið fyrir Leikfélag
Húsavíkur og María Sigurðar-
dóttir hefur verið ráðin leik-
stjóri. Æfíngar munu hefjast í
október og er hugmyndin að
frumsýning verði um mánaða-
mótin janúar-febrúar á næsta
gefur glögga mynd af stofnstærð-
inni.
„Heimtur úr hafi voru mjög
slæmar 1989 og einnig 1990 þar
sem ástand sjávar var slæmt.
1989 og 1990 urðu afföll seiða í
ánni mikil vegna vorkulda og
mikilla leysinga fram eftir sumri.
Þessar ytri aðstæður valda því að
stangveiðin er og hefur verið með
minna móti. Seiðastofninn í ár er
sterkur og ætti að skila sér í auk-
inni veiði á næstu árum svo fram-
arlega sem sjávarskilyrði reynist
hagstæð,“ sagði Tumi Tómasson.
ój
ári.
Gaukshreiðrið hefur ekki áður
verið fært upp á leiksvið hér á
landi, en margir minnast ódauð-
legrar kvikmyndar, sem unnin
var upp úr samnefndri skáldsögu
og hlaut á sínum tíma Óskars-
verðlaunin eftirsóttu. Milos
Forman leikstýrði myndinni, en í
aðalhlutverki var Jack Nichol-
son, eins og flestir muna.
María Sigurðardóttir, sem hef-
ur verið ráðin leikstjóri, sagðist í
samtali við Dag vera mjög spennt
fyrir þessu verkefni. Val á leikrit-
inu sýndi enn og aftur þann
metnað sem leikáhugafólk á
Húsavfk hefði. Hún sagði ætlun-
ina að hefja æfingar af fullum
krafti í október, en frumsýning
yrði vart fyrr um mánaðamótin
janúar-febrúar á næsta ári.
Eins og þá rekur minni til, sem
sáu Gaukshreiðrið á hvíta tjald-
inu, er sögusvið verksins geð-
veikrahæli. María segist ætla að
kynna sér hvernig aðbúnaði og
meðhöndlun geðveikra hér á
landi sé háttað, þannig að unnt
verði að draga upp rétta mynd af
viðfangsefninu. María segir ekki
ætlunina að endurskapa Óskars-
verðlaunaverk Formans, ekki sé
hægt með nokkru móti að bera
saman kvikmynd og leiksvið. Þá
sé ekki á dagskrá að líkja eftir
Jack Nicholson á leiksviðinu á
Húsavík. Hins vegar verði leitast
við að gera sýninguna eftirminni-
lega og sem best úr garði. „Það er
virkilega gaman fyrir leikstjóra
að vinna með fólki, sem er til í að
gera hlutina vel,“ sagði María, en
hún hefur einu sinni áður, árið
1987, sett upp leikrit hjá Leikfé-
lagi Húsavíkur. óþh
Ráðning sveitarstjóra
á Raufarhöfn:
Umsækjandi
dregur sig til baka
Hreppsnefnd Raufarhafnar-
hrepps kom saman til fundar á
sunnudagskvöld, en fyrir fund-
inum lá m.a. að ræða ráðningu
nýs sveitarstjóra.
Hreppsnefndin hefur einkum
haft augastað á einurn umsækj-
anda um stöðuna undanfarið. Á
fundinum kom fram að aðstæður
þessa umsækjanda hafa breyst
það mikið frá því að hann sótti
um að hann sá sér ekki fært að
taka stöðuna að sér, og dró hann
umsókn sína til baka. Málið er
því í biðstöðu eins og er.
Júlíus Þórarinsson, sveitar-
stjóri, lætur af starfi sínu eftir
nokkrar vikur, en hann hefur
fengið ýmis góð atvinnutilboð
undanfarið. EHB
Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu:
„Laxastofninn er
ekki í hættu“
- segir Tumi Tómasson, fiskifræðingur